Ísafold - 28.07.1900, Blaðsíða 1
Kamur út vmist einu sinni eða
tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
1 '/• doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (eriendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXVII. árg.
Keykjavík laug'arda^inn 28. júlí 1900.
47. blað.
Heiðruðu kaup-
endur Isafoldar minnist
þess, að gjaldagi á blað-
inu*þ- á. er liðinn — var
15. þ. m.
l7o. 0. F. 828109.
Forngripasafnið opið md., mvd. og ld.
11-12.
Landsbankinn opinn bvern virkan dag
kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Lanasbókasafn opið hvern virkan dag
kl 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
md., mvd. og ld. til útlána.
Okeypis lækning á spítalanum á þriðjud.
og föstud. kl. 11 —1.
Okeypis augnlækning á spítalanum
fyrsta og þriðja þriðjud. bvers mánaðar
kl. 11-1.
Ókeypis tannlækning i Hafnarstræti lb
1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
Bændur og prestar
á þingi.
Langoftast kveður það við, þegar
únst er á þingmannaefni í sveitun-
t-m, að batndur vilji menn umfram alt
kjósa.
Fyrir skömmu var á fundi hór í ná-
grenninu gjörð sú grein fyrir þessum
hug kjósenda, að bsendur fyndu bezt,
hvar skórinn kreppir. Af því að þeir
hafi alment ekki við annað að styðj-
ast en sína eigin fyrirhyggju og fram-
hvaemdarsemi, og séu þar af leiðandi
svo illa efnum búnir, þá séu þeir við-
kvæmari fyrir öllu, sem móti búnaðin-
^tn blási, hvort sem það séu nú gjöld
eða annað, heldur en embættismenn,
sem ávalt hafi stoð af miklu öðru en
búskapnum, jafnvel þótt þeir séu sum-
ir búandi menn. Fyrir þessa sök eigí
miklu fremur að kjósa bændur á þing
en embættismenn. jpessi rökfærsla
mun vera mjög algeng.
Um það geta nú ekki orðið skiftar
7A' -mir, að það er í alla staði eðli-
h^gt, rétt og sjálfsagt, að bændur kjósi
8téttarbræður sína, að öllu öðru jöfnu.
í jölmennasta stétt landsins heldur
auðvitað sínum mönnum fram til virð-
inga, þegar hún getur það. Bór og öll-
um að meinfangalausu. En ekki þarf
nema nokkura umhugsun til þess að
sjá það, að rök þau, er færð voru á á-
minstum fundi fyrir því, að bændur
eigi menn um fram alt að kjósa, ná
engri átt.
Eigi menn að sjálfsögðu að kjósa
bændur á þing af þeirri ástæðu, að
þeir fyrir efnaskort séu svo viðkvæm-
ír fyrir öllu því, er móti búnaðinum
blæB, þá hlýtur og að vera sjálfsagt,
að kjósa þá eina á þing, sem allra-fá-
tækastir eru, en hafna öllu efnamönn-
um, hvort sem þeir eru bændur eða
ekki. Líklegast gera fæstir sér í hug-
arlund, að það mundi vera sórlega vit-
urlegt.
Sé flokkur manna viltur úti í ó-
bygðum í harðviðri, þá er ekkert vit
í að kjósa að sjálfsögðu fyrir leiðtoga
þann, sem klæðminstur er og þar af
leiðandi finnur mest til vosbúðarinnar.
þar á móti mundi sá kosinn, sem Iík-
legastur þætti til að rata og koma
mönnunum til bygða — alveg eins
fyrir það, þó að hann væri í skjólbetri
fötum en allir hinir.
Alveg eins er um landsmál. því
fer mjög fjarri, að alt eða mest sé
undir því komið, að þeir, sem fram úr
þeim eiga að ráða, bíði mestan hall-
ann, ef þau fara í ólagi. Um hitt er
margfalt meira vert, að þeir menn
verði Iátnir ráða fram úr þeim, sem
hafa hyggindi til að gera það vel.
En til þess þarf allvíðtæka mentun.
Enginn mentunarlítill maður verður
mikill gagnsemdarmaður á þingi. Mikla
mentun þarf til þess að geta fundið
upp ráð, er þjóðinni megi að haldi
koma. Allmikla mentun þarf til þess
að hafa næman skilning á það, eröðr-
um mönnum hugkvæmist í þá átt og
standa fastur fyrir blekkingarfortölum
óviturra eða óhlutvandra manna. Jafn-
vel til þess að taka sæmilegan þátt í
þingstörfum, — gera áheyrilega grein
fyrir skoðunum sínum í jfrþingsalnum
og lýtalaust í nefndarálicum — þarf
töluverða mentun; og enginn verður á-
hrifamikill atkvæðamaður á þingi, ef
honum er hvorstveggja þess varriað.
Vér höfum átt á þingi stöku bænd-
ur, sem þar hafa orðið verulegir at-
kvæðamenn, með allrafremstu þing-
mönnum. Allir kannast við Jón Sig-
urðsson frá Gautlöndum og Einar Ás-
mundsson frá Nesi. En þeir menn
höfðu líka fyrirtaksmentun til að bera.
Svipað má segja um Pétur Jónsson á
Gautlöndum; hann er mjög vel ment-
aður maður og nýtur sín fyrir bragðið
vel á þingi, væri að sjálfsögðu fyrir-
taksþingmaður, ef Vídalíns-tjóðrið mark-
aði honum ekki svið. Hins vegar
mætti nefna heilan tug af einkar efni-
legum bændum á þingi, nýtustu mönn-
um í héraði, sem ótrúlega lítið hefir
orðið úr, þðgar á þing hefir kotnið, af
þessari einu ástæðu, að mentun þeirra
hefir ekki verið nándarnærri nógu fjöl-
breytt og veigamikil.
Auðvitað er nú svo fyrir þakkandi,
að til er nokkuð af bændum hér á
landi, sem notið hafa þeirrar mentun-
ar, er til þess þarf að verða nýtur
þingmaður. Og þar sem svo stendur
á, er alveg sjálfsagt að leggja kapp á
að koma þeim á þing, ef kjósendum
gezt þá jafn-vel að skoðunum þeirra og
bera traust til þeirra sem vandaðra
manna og samvizkusamra.
En því miður er svo ástatt í ýms-
um kjördæmum hér á landi, að ekki
er unt að fá þar góð þingmannsefni
úr bændaflokki. Sumpart fyrir þá
sök, að þeir bændur eru ekki til, sem
hafa næga mentun til þess að skipa
þingmannssæti sómasamlega, sumpart
vegna hins, að þeir fáu bændur, sem
vel væru hæfir til þingmensku, njóta
ekki svo mikillar alþýðuhylli, að nokk-
ur vegur sé til þess að fá þá kosna,
eða þá að þeir mega ekki eða þykj-
ast ekki mega með nokkuru móti fara
frá beimilum sínum um bjargræðistím-
ann og gera því engau kost á sér.
þar sem svo hefir verið ástatt, hafa
úrræðin langoftast verið þau, að kjósa
einhvern prestinn f kjördæminu.
Og yfirleitt verður ekki annað sagt
en að það hafi verið vel og rétt ráð-
ið. Prestar hafa reynst alveg eins
þjóðræknir menn á alþingi íslendinga
eins og bændur hefðu framast getað
verið.
Og það er líka eðlilegt. f>ví að all-
ur þeirra hagur er samgróinn hag
bændastéttarinnar. Hvenær sem bænd-
ur verða fyrir hnekki, verða prestar það
engu síður. Og hvernig ætti líka ann-
að að vera, þar sem mennirnir eru
sjálfir bændur, sumir bláfátækir, sum-
ir bjargálnamenn, sumir efnaðir, alveg
eins og aðrir bændur, og með engu
móti unt fyrir þá að komast af, nema
búskapur þeirra sé í þolanlegu lagi.
|>eir hafa komið fram á þingi ná-
kvæmlega eins og bændur mundu hafa
gert, að því einu undanskildu, að þeir
hafa verið meiri atkvæðamenn en all-
ur þorri bænda hefði getað orðið.
Oss detta í hug nokkur nöfn: Hall-
dór Jónsson, Hannes Stephensen, Ó-
lafur Sivertsen, Eiríkur Kúld, Guðm.
Einarsson, Sigurður Gunnarsson (Hall-
ormsstað), ísleifur Gíslason, Arnljótur
Ólafsson, Benedikt Kristjánsson, f>ór-
arinn Böðvarsson, f>orkell Bjarnason,
Sigurður Gunnarsson (Stykkisbólmi),
Sigurður Stefánsson, Magnús Andrés-
son, Jens Pálsson.
Hverju ætli þjóðin hefði verið bætc-
afl, þó að hún hefði sent bændur á
þing í staðinn fyrir þessa menn alla ?
Vitanlega alls engu. En hún hefði
alveg áreiðanlega fengið upp og niður
margfalt lélegri þingmenn. f>að væri
velgjulegt smjaður, bein óhreinskilni
við bændur, að vera að segja annað.
f>rátt fyrir þetta er megn andróður
gegn því að senda presta á þing —
fyrir það eitt, að þeir séu prestar.
Sá andróður er ekkert annað en vit-
leysa.
f>ví að séu prestar þeir, sem á þingi
hafa setið, saklausir af nokkurri yfir-
sjón, þá eru þeir saklausir af því að
hafa notað þingmensku sína til að
draga taum stéttar sinnar, svo að það
komi niður á bændum. Svo grand-
varir hafa þeir verið í því efni, að
naumast hefir orðið séð á neinu, að
þeir hafi neitt látið sér ant um hag
stéttarbræðra sinna — að einum und-
anteknum, þeirra er nefndir hafa ver-
ið, síra f>órarni Böðvarssyni. Hann
lét sér hugarhaldið um það að bæta
kjör presta. En ekki kom honum til
hugar að leggja neinar nýar byrðar á
bændur. Hann vildi fækka prestun-
um og fá þeim meira verk í hendur,
til þess að þeir skyldu geta átt við
sómasamleg kjör að búa — alveg hið
sama, sem nú vakir fyrir fríkirkju-
mönnum.
Bn þá prestalaunalögin frá síðasta
þingi! munu menn segja. Eru ekki
prestar að reyna að koma sjálfum sér
á landssjóð? Og er það ekki hlut-
drægni og ágengni?
Til þess eru fljót svör. í það mál
hefir verið farið með meiri varfærni
en í nokkurt annað mál á þinginu —
á töluvert annan hátt en þegar verið
var að ákveða laun veraldlegu em-
bættismannanna hérna um árið — þar
sem það er borið undir alla gjaldend-
ur á landinu. Og enn er mönnum ó-
kunnugt um, hvort breytingin er nokk-
uð geðþekkari prestum en bændum.
Víst er um það, að ýmsir prestar eru
henni algerlega mótfallnir; aðrir láta
sér standa á sama; enn öðrum er hún
mikið áhugamál. Sama má segja um
bændur. Breytingin hefir í sumum
sóknura, að því er frézt hefir, verið
sótt af kappi af bænda hálfu. í öðr-
um sóknum eru þeir henni andvígir.
í enn öðrum sóknum er enginn áhugi
á málinu, hvorki til né frá. Hitt er
með öllu óséð enn, hvort meiri hluti
presta eða minni hluti bænda er breyt-
ingunni meðmæltur.
En eitt er aftur á móti víst og á-
reiðanlegt: Verði meiri hluti lands-
manna breytingunni mótfallinn, þá
dettur engum þingmanni f hug, prest-
um né öðrum, að halda henni fram.
Og sýni það sig aftur að hinu leytinu,
að vilji þjóðarinnar sé með breyting-
unni, þá er það sýnileg skylda þings-
ins, að samþykkja lög í þá átt. Ann-
ars væri þessi atkvæðagreiðsla úti um
land alt eintómt gabb, sem hvorki
væri samboðið virðingu þingsins né
þjóðarinnar.
í því efni gæti því naumast neitt
gert til, hvort margir eða fáir prestar
eru á þingi. Fyrir þeirra hluta sakir
er bændum sannarlega hættulaust að
senda prest á þing, þar sem svo stend-
ur á, að hann er vænlegasta þingmanns-
efnið, sem þeir eiga völ á.
Og ekki ætti sá óvenjulega ríki á-
hugi, sem nú er vaknaður á landbún-
aðarmálum, að spilla fyrir þeim.
Prestar eru ómótmælanlega bændur,
stundum með beztu búhöldunum í sínu
kjördæmi. Prestur, sem býr fallega,
sýnir með því, að hann hefir eins gott
vit á búskap eins og bændur. Og jafn-
ant hlýtur honum að vera um alt, er
landbúnaðinn styður, eins og öðrum
bændum í sveit sinni. f>eir hafa yfirleitt
mentunina eina umfram sveitunga sína.
Eða dettur nokkurum manni í hug,
að þeir nafnarnir á Gilsbakka og Torfa-
stöðum muni vera ófærari til þess að
skilja, hvað landbúnaðinum megi að
haldi koma, en aðrir bændur í Mýra-
sýslu og Ásnessýslu?
Skemtlsbipið enska
Cuzco er hingað var von í fyrradag
og getið hefir verið áður í Isafold,
kom þá kl. 4 síðdegis, frá Spitzbergen,
með 120 farþega, enska flesta,
suma (4) frá Japan. Stendur hér við
rétta 3 sólarhringa. Nokkuð af farþeg-
um fór til fúngvalla í gær.
Póstskipið Lanra
lagði á stað í gærkveldi til útlanda
með scrjáling af farþegum.