Ísafold - 28.07.1900, Qupperneq 4
188
Þar er þeim ekki i kot vísað.
Hann getur vitaskuld ekki tvískift
sér sjalfum, ritstjóri Þjóðólfs, og getur
þá ekki betur boðið en þennan návenzla-
mann sinn og sér alt að því jafnsnjali-
an að vitsmunum og landsmálaþekking,
að ógleyindu viðlíka almenningstrausti
og virðingu.
En gustukin meira en lítil, þar sem
þetta kjördœmi hefir ekki nema 5 þing-
mannaefni uudir.
Prestaskólakandídat
Sigurbjörn Axtvaldur Gíslason, einn
með álitlegustu prestsefnum, sem hér
hafa gerst, sigldi í gær með póstskipinu
til Danmerkur, í þvt skyni að dvelja
þar árlangt hjá presti einum á Jótlandi,
er hefirmikið orð ásér sem andríkur kenni-
maður, með því áformi, að kynnast keuni-
mensku og hagnyta sér góða leiðbeiningu
í Danmörku. Þetta mun hafa gerst
fyrir milligöngu síra Jóns Helgasonar
prestaskólakennara. Prestur þessi er af
íslenzku kyni, sonarsonur Halldórs
nokkurs Bjarnarsonar, er var móður-
bróðir Bjarna heit. rektors og varð
klukkari i Noregi, en síðan kennari í
Danmörku. Presturinn heitir nafni afa
síns, H. Bjarnesen, og á heima í Ga-
dum á Jótlandi.
Búnaðarfræðispróf
fullkomið við landbúnaðarháskólann
í Kaupmannahöfn hefir Guðjón
búfræð. Guðmundsaon leyst af
hendi í vor möð góðum vitnisburði —
hinn fyrsti Islendingur, er það próf
hefir tekið. Hafði gengið áður á
landbúnaðarskóla í Norvegi og útskrif-
ast þaðan. Hann hefir ritað greinar
um landbúnaðarsýninguna í Oðinsvé,
sem byrja í næsta blaði.
Skarlatssóttin
?g
þjódkátíðin
Samkvæmt tillögum héraðslæknis hef-
ir lögreglustjórinn (bæjarfóg.) b a n n a ð
hina fyrirhugu þjóðhátíð hér f bænum,
vegna skarlatssóttarinnar, sem hér
gengur, svo að henni verður að fresta
að sinni að minsta kosti.
þessa hyggilegu og sjálfsögðu ráð-
8töfun eru sumir bæjarmenn óánægðir
með, einkum forstöðumenn hátíðar-
haldsins, og þá sjálfsagt veitinga-
mennirnir. þeir vilja bera þjóðhátíðar-
samkomuna saman við aðrar sarakomur
og mannfundi, svo sem messugerð í
kirkjum, Goodtemplarasamkomur full-
orðinna o.f!., og þá láta banna þær líka.
En sá samanburður á við heldur
mikið hugsunarleysi að styðjast.
þjóðhátíðarsamkomur eru miklu f jöl-
mennari en nokkrar aðrar samkomur,
sem hér gerast; mannfjöldinn skiftir
þúsundum. þar þjappa menn sér
saman eíns og verður, er eitthvað er
á að horfa eða hlýða. þar hópast að
sægur af börnum; enginn fær leið
til að afstýra því; en þeim er sótt-
hættast og mest sótthættan af þeim.
Undir berum himni fer hátíðahaldið
að vísu fram að mestuleyti; en mikið
er verið inni í tjöldum, veitingatjöld-
um, og þar mikil ös og troðningur.
þá samkomu sækja sveitamenn
hópum saman úr öllum áttum, og því
sérstakleg hætta, að þeir dreifi sótt-
næminu út um alt, ef illa tekst til.
Loks er sá munur á þessari samkomu
og flestum öðrum, að hún er allsen dis
óþörf. það væri því að gera leik til
að dreifa þessari skæðu sótt sem
víðast, ef slík samkoma væri leyfð.
Vegna óþarfans vírðist einnig hefði
verið réttara að leyfa e k k i samsöng-
inn hér í kveld.
þetta á ekki heima um kirkjugöng-
ur, eða þá aðrar vanalegar og algengar
minni háttar samkomur, eða samsæti
með tilteknum gestum. Ætti að fara
að banna slíkt, þyrfti einnig að loka
búðum og veitingahúsum eða sóttkvía
sérhvert íbúðarhús. En það væri sama
sem að banna mönnum brýnustu nauð-
synjaviðskifti, sem er naumast takandi
í mál í stórvægilegum yfirvofandi voða,
hvað þá heldur þegar ekki er um að
tefla annað en að gera sem skað-
minsta minni háttar sótt, sem er að
vísu skæð, en verður þó alls eigi talin
með alræmlum voða-drepsóttum.
þetta, sem hér er á vikið, hlýtur
hverjum meðalgreindum manni að
skiljast, er þetta mál skoðar með ein-
hverri umhugsun og stillingu.
Bessastaðakirkju átti að vígja á
morgun, eftir hina miklu og vönduðu
viðgerð .á henni; en með því að útlit
er orðið ískyggilegt á Álftanesi að því
er skarlatssóttina snertir — það vitn-
aðist í gær —, en búast mátti við
miklu fjölmenni við kirkjuna, einnig
úr öðrum sveitum, er ekki hafafengið
sóttina enn, þá er nú þeirri athöfn
frestað að yfirvalds tilhlutun.
Póstgufuskip Vesta
kom hingað miðvikudagskveid 25.
þ. mán. norðan um land og austan,
með nokkuð af farþegum ; þar á meðal
var síra þorvaldur Jakobsson í Sauð-
auksdal, Skúli þ. Sivertsen óðalsbóndi
frá Hrappsey. o fl.
Veðurathuganir
i Beykjavik eftir landlækni Dr J Jónas-
sen.
pj Híti (á Celsius) Loftvog (millimet.) Yeðurátt.
nóttu um hd árd. síðd. árd. siðd.
7. + 1 +11 767.1 764.5 0 d 0 d
8. + 8 +10 762.0 756.9 ahd a h d
9. + 7 + 14 'i56.9 756.9 a h b 0 b
10. + 8 +13 (49.3 749.3 a h d a h d
11. # +15 749.3 751.8 a h d 0 d
12. + 8 + 15 7518 749.3 0 b a h d
13. + 8 + 14 749.3 740.3 0 b a h d
14. + 8 “fl;J 749 3 749 3 0 b 0 h
15. + 9 +12 754.4 754.4 Svhd 0 b
16 + 8 + 11 754 4 751.8 0 d 0 d
17. + 7 +10 7516 749 3 0 d 0 d
18 + 6 + 0 751.8 7518 v hb v h b
19. + 6 + 12 759.5 762.0 v h b 0 d
20. + 7 + 12 767.1 7671 Sa h d 0 b
Undanfarna tíð sumarblíða; um tima
nokknr væta við og við; en að öðru leyti
öndvegistíð.
Fyrir tilhlntun lögreght-
stjórnarinnar verður vígslu
á Bessasta ðakirkju frestað
vegna skat latssóttar á /ílfta-
nesi. Engin messa á Bessa-
stöðum á morgun.
Hafnarfirði 28. júlí 1800,
Páll Eiimrssoii.
Nýlenduvöru-verzlun
Gunnars Einarssonar
KIEKJUSTRÆTl nr. 4 (Tjarnargötu
nr. 1) hefir meðal annars niður-
soðnar og niðurlagðar vörur,
ýmis konar »S y 11 e t ö i«, A 11 i t a n
eða »0 m n i c o 1 o r« einungis fyrir þá
sem vilja fagran og halágóðan lit,
hvort heldur á Silki, Ull eða Baðmull.
Fuglabúr af ýmsum stærðum.
Nú með »Laura«
Stórar birgðir af allskonar
HÁLSLÍNI og nýmóðins HÖTTUM
í v e r z 1 u n
B. H- Bjarnason
t. d. mjög góðar
Mansketskyrtur . . . á kr. 3,50—4,75
margar teg. af Krögum
(hv. og misl.) . . . . á kr. 0,65—1,50
ótal teg. Flibba (uppst.
og niðurl.) . . . . á kr. 0,38—0,60
Margar teg. Manskettur
(hv. og misl.) parið á kr. 0,50—1,00
Slipsi, Vasaklútar, Brjóst- og Mansket-
hnappar, 8 teg. af Höttum frá kr.
2,00—4,50.
Skinn- og Tauhúfur, Axlabönd, Mitt-
isbönd m. m.
Fáeinum sýnishornum hef-
ir verið raðað út í gluggann.
GOSDRYKKJAVERKSMIÐJAN
G E Y S I R
hefir þá beztu og ódýrustu
Gosdrykki
Um 20 tegundir af Limmónaði og
prima Sódavatni úr ÍS.
Ennfremnr margar súrar og sætar
Saítir
Edik, Gerpulver, Hjorte-takssalt,
Brjóstsykur og Confect margar sortir.
þeir sem enn ekki hafa greitt
barnaskólagjald frá síðastl. skólaári
eru alvarlega ámintir um að borga
þau nú þegar. Sömuleiðis brunabóta-
gjöld frá 1. apríl þ. á.
____________P. Pétursson.
Góð Og VÖnduð afturhleðslubyssa
með hleðslu-áhöldum o. fl. er til sölu.
Ritstj. vísar á seljanda.
HBYHÚS til leigu nú þegar á
Skólavörðustíg nr. 8.
Rauður graðhestur 2 eða 3 v.
hefir verið hirtur og settur í sérstaka
vöktun, sem meingripur, hér í hrepp,
samkvæmt samþykt um kynbætur
hesta í Kjósar- og Gullbringusýslu.
Mark. tvístýft eða blaðstýft a. h., biti
a. v.
Verður seldur 4. ágúst ef eigandi
ekki gefur sig fram og borgar áfallinn
kostnað.
Mosfellshrepp 27. júlí 1900.
Björn Porláksson.
Umrennings- og strokuhross öll, er
hittast í Grafarlandi, verða tekin í
gæzlu. Minsta útborgunargjald 50 a. og
um sólarhringinn25a. í gæzlu-oghagatoll.
Gröf, Mosfellssveit 25. júlí 1200.
Björn Bjarnarson.
Húsnæði óskast fyrir lítið heimili
vestarlega í bænum eða um miðbæinn.
Ritstj. vísar á leigjanda.
Tannlæknir.
Nýar tennur tilbúnar og innsettar
með mjög vægum kjörum-
Ó. ST. STEFÁNSSON, Glasgow,
Reykjavlk.
Er að hítta frá kl. 11 f. m. til kl.
2 e. m.
Brún hryssa með mark : biti aft. bæði,
aljárnnð, velgeng og viljug, með ber eða
lítið æxli ofan við aðra ■ nösina, tapaðist
úr vöktun i Rvik 8. júlí. Hver, sem hitta
kynni, er vinsamlega beðinn að gera mér við-
vart hið fyrsta.
Efri-Hömrnm í Holtum 16. júli 1900
Filippus Bjarnason.
Öllum þeim sem sendu blómsveiga eða á
annan hátt sýndu hluttekning sína við frá-
fall og jarðarför Jóns litla sonar okkar,
tjáum við innilega þökk okkar og barna okk-
ar.
Reykjavík, 25. júll 1900
Helga og Jón Olafsson.
Málaravörur og
járnvörur
er lang-bezt að kaupa í verzlun
B. H. Bjarnason.
Samkvæmt ákvörðun hreppsnefndar
verður ágangshrossum smalað hér
hvern miðvikudag, og þau, er ekki
þegar verða hirt, meðhöndluð sem ó-
skilahross (sbr. Reglugj.j.
Gröf, Mosfellssveit, 23. júlí 1900.
Björn Bjarnarson.
Njar tvíbökur
á 38 aur- pr- pd. — Ódýrari f stór-
kaupum fást í verzlun
B. H. Bjarnason.
Poki með kassa í, merktur
•Valgerður Johnsen, Passagergods,
Reykjavík«, hefir horfið af »Laura«.
Sá sem kynni að hafa tekið haun í
misgripum, skili honum á Laugaveg 15.
Hérmeð leyfum við okk-
ur að tilkynna heiðruðum al-
menningi, að eftir nákvcema
yfirveguu höfum við kom-
ist að peirri niðurstöðu, að
pað mundi ekki borga sig
fyrir okkm, að kaupa hf-
andi fé á íslandi, og að
við munum pví ekki halda
markaði í haust.
Parker & Fraser
Liverpool.
Umsóknir
um kvennaskólann á Ytri-Ey í Húna-
vatnssýslu fyrir næsta vetur, 1900--1901,
verða að vera komnar til einhvers af
8kólanefndarmönnunum : J. G. Möll-
ers kaupmanns á Blönduósi, E. Hemm-
erts verzlunarstj. á Skagaströnd, eða
Sigurðar Sigurðssonar bónda á Hún-
stöðum fyrir 20. september næstkom-
andi. Yfir 30 stúlkur verða teknar á
skólann. Skólagjaldið fyrir allan
skólatímann frá 1. okt.—14. maí er
120 kr., Sem borgist fyrir fram, nema
hlutaðeigandi hafi ábyrgðarmann. Stúlk-
ur, sem taka þátt í öllum skyldunáms-
greinum skólans, fá nokkurn námsstyrk.
Hinn 1. desember 1898 varð úti hér
í sýslu Guðmundur nokkur Guðmunds-
son, heimilislaus maður, ættaður að
norðan. Mér hefir eigi tekist að spyrja
til erfingja hans allra, og er því hér
með, samkv. 17. gr. skiftalaganna frál2.
apríl 1878, skorað á alla þá, er arf
kunna að eiga eftir hann, að segja til
nafns síns, aldurs og heimilis innan
15. dags nóvbr. þ. á., en þann dag
verður skiftafundur haldinn í búinu.
Skiftaráðandinn í Snæfellsness- og
Hnappadalss. Stykkish. 2C. júlf 1900.
Lárus H. Bjarnason.
Uppboðsauglýsing
Laugardaganna 18. ágúst, 1. og 15.
september verða opinber uppboð hald-
in á Norðurfirði á timburhúsi tilheyr-
andi dánarbúi M. S. Árnasonar kaup-
manns. Húsið var ætlað bæði til
verzlunar og íbúðar — ekki fullgert, en
þó virt á 1600 krónur.
Hin fyrri tvö uppboðin fara fram
hér á skrifstofunui á hádegi; hið 3. og
síðasta verður haldið í sjálfu húsiuu
kl. 10 f. h.
Söluskilmálar verða birtir á öllum
uppboðunum.
Skrifstofu Strandasýslu, 20. júlí 1900.
Marino Hafstein.
Kennarastaða við
Hólaskóla.
Kennarastaðau við búnaðarskólann
á Hólum er laus. Kennarinn á að
vera kominn að skólanum í niiðjum
oktobr. þ. á., vera við hann til 14.
maí n. á. og kenna búnaðarnáms-
greinir eftir nánari fyrirtuælum skóla-
stjóra. Keunarinn fær ókeypis hús-
næði, ljós, hita, kost og þjónustu og
200 kr. þóknun. Bónarbréf um sýel-
an þessa sendist til skólastjórans á
Hólum fy»r lok næsta mánaðar.
íslands Norður og Austuramt
Akureyri 9. júlí 1900
Páll Briem.
Enn fást nokkur eintök af
Sunnanfara VII. ár. 2. hefti á
kr. 1,50, 1. heftiá kr. 1,00, bæði sam-
an fyrir kr. 2,00. Notið tækifærið með-
an Sunnanf. er svona ódýr.
Einar Gunnarsson, Kirkjustræti 4.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)og
Einar Hjörleifsson.
ísafol darprentsmiðja.