Ísafold - 04.08.1900, Page 4
196
Kosningafylgisgrobbið.
Afturhaldsrnálgagnið, sem berst af
öllum mætti fyrir því, að þjóSin sendi
sem mest af afturhaldsmönnum á þing,
og það með þeirn vopnum, sem því eru
tömust, beitir nú síðast þeirri blekking-
artilraun til kjörfylgis bankastjóranum
bér, að hann hafi átt eða eigi alveg
vísa kosningu í sína fyrra kjördæmi,
Árness/slu, en vilji gera það fyrir bæna-
stað kjósenda hér og þeim til hjálp-
ræðis, að vera lieldur þeirra fulltrúi á
alþingi næsta kjörtímabil heldur en
Árnesinga.
Við ekkert hórað landsins, að næstu
sveitum fráskildum, höfum vór jafn-
tíðar og miklar samgöngur eins og Ár-
nessýslu. Og enginn maður þafan segir
öðru vísi frá nó hefir sagt oss vitanlega
í alt vor um kjörfylgi bankastjórans
þar en á þá leið, að það muni vera á
að gizka 3—4 fjórir vandamenn hans
þar og alúðarvinir, sem ætli sér að kjósa
hann. Allir aðrir undantekningarlaust
lúki upp einum rnunni um það, að
h a n n (Tr. G.) vilji þeir alls ekki hafa
á þingi lengur; þeim líki svo illa fram-
koma hans á síðasta þingi eða þingum.
Jafnvel Símon á Fossi, sá mikli þing-
inálagarpur og kosningahöfðingi, nefni
hann varla á nafn.
En svo bæta þeir við: »Það er
reyudar ekki gott að segja, hvað verða
kann, ef hann (Tr. G.) lætur kjósendur
sjá framan í sig á kjörfundi þar eystra;
því margur skuldar bankan-
u m«.
Sé þá svarað á þá leið, að ekki komi
það kosningum við og só hvorki kjós-
endum nó bankastjóranum til virðingar,
að gera ráð fyrir nokkuru áhrifasam-
bandi þar í milli, þá er viðkvæðið
vanalega líkt ög hjá reykvisku smalan-
um, sem minst var á síðast: »Það er
nú svona, að hvað bindur annað«.
Þetta er nú sannleikurinn um
kjörgengi bankastjórans í Árnessýslu,
og um leið lykillinn að kjósendasmöl-
uninni fyrir hann hér í bænum
Stúdentaleiðangurinn
danski.
Sú breyting hefir orðið á komutíma
Botníu með stúdentana, að hann er ráð-
gerður ekki á morgun, heldur á mártu-
daginn síðdegis. Þá fer strandferðabát-
urirtn Hólar á móti gufuskipinu hér út
í flóann með íslenzkan stúdentahóp, að
fagna gestunum og fylgja þeim inn á
höfnina; kapt. Ost-Jacobsen lánar
Hóla til þess ókeypis.
Botnía fer jafnharðan vestur á Isa-
fjörð, en gestirnir nátta sig hór í bæn-
um; þeim hefir verið skift niður á bæj-
armenn ýmsa.
Morguninn eftir, þriðjudagsmorgun-
inn 7. ágúst, stendur til að gestirnir
skreppi inn að Laugarnesi, að skoða
holdsveikraspítalann, og svo laugarnar.
Sumir verða fluttir á bátum frá her-
skipinu Heimdalli; en að öðru leýti er
vonast eftir, að þeir, sem þá hýsa, setji
undir þá hesta, þeir sem hægt eiga með
það, eða vagna, þeir sem þá hafa.
Um miðjan daginn er búist við, að
gestirnir skoði Forngripasafnið, Alþing-
ishúsið, Dómkirkjuna, Landsbókasafnið
o. fl. En kl. 5 síðdegis verður þeim
haldin veizla í Iðnaðarmannahúsinu og
dansað á eftir.
Næsta dag, miðvikudag 8. ágúst,
verður lagt á stað til Þingvalla og
Geysis.
Þótt svo fari, sem hugsast getur, að
Botnía komi á morguri eigi að síður, þá
bi'eytist ekkert í þessari fyrirætlun, og
fer þá mánudagurinn ti) minni háttar
útreiða m. m.
Heiðu rssamsæti
var þeim Pdli skáldi Ólafssyni og
konu hans haldið hór l bænum í fyrra
kveld. af 40—50 bæjarmönnum, körlum
og konum, mést lærðum mönnum. Þar
var amtmaður J. Havsteen, dr. Finnur
Jónsson háskólakennari, yfirkennari
Steingr. Thorsteinsson og aðrir kennar-
ar frá skólunum hér, bankastjóri Tr.
Gunnarsson og fleira virðingarmanna.
Björn Jónsson ritstjóri mælti fyrir
minni heiðursgestsins, og Einar Hjör-
leifsson ritstjóri fyrir minni konu hans.
Bróðir heiðursgestsins, Jón ritstjóri O-
lafsson, þakkaði fyrir minnið, með þeirri
gamanorðsending frá bróður sínum, að
það væri orðið svo langt síðan, er hann
sat á alþingi, að honum væri ótamt
orðið að flytja snjallar ræður í marg-
menni.
Aukreitis mintist bankagjaldkeri Hall-
dór Jónsson viðstaddra skálda, annara
en heiðursgestsins, og mælti sérstaklega
fyrir minni þjóðskáldsins Stgr. Thor-
steinssons. Enn mælti dr. Finnur Jóns
son fyrir minni íslands, en B. J. ritstj.
fyrir minni hans aftur. Nokkrir töl-
uðu aðrir, og var samsætið fjörugt og
skemtilegt.
Páll Ólafsson og þau hjón, er dvalið
hafa hér nokkrar vikur, fara heim aft-
ur með strandferðaskipinu í næstu viku.
Hann hefir nú þrjá um sjötugt, er nokk-
uð bilaður á heyrn og sjón, og heldur
fóthrumur, en með fullu fjöri og heilsn
að öðru leyti.
Nýjustu flebunarbrögðin.
Eitt af því, er óskammfeilnustu at-
kvæðasmalar bankastjórans reyna að
telja kjósendum trú um þessa dagana,
er sú botnleysa, að það hafi verið Jón^
Jenssyni yfirdómara að kenna, aðhluta.
félagsbankamálið hafi verið felt á sið-
asta þingi.
Nú er sannleikurinn sá, að því fór
svo fjarri, að hlutafólagsbankamálið væri
felt á síðasta þingi, að frumvarpið um
það var samþykt í neðri deild, en málið
afgreitt með þingsályktun til stjórnar-
innar í báðum deildum með að kalla má
öllum atkvæðum — þar á meðal atkvæði
Jóns Jenssouar.
Ónnur flugan, sem reynt er að láta
kjósendur gína við og Þjóðólfur hefir
gleyptísinni nafntoguðu einfeldni, ersú,að
það hafi verið Jóni Jenssyni að kenna, að
batteríissölufrumvarpið var samþykt á
síðasta þingi. Hann á sem sé að hafa
borið y>ól'iglega upp í deildinni annað
tilboð um hærri borgun fyrir Batteríið«,
sem þingið á svo ekki að hafa getað
gongið að.
Sannleikurinn erauðvitað sá, að Jón
Jensson bar aldrei upp í deildirmi, hvorki
löglega né ólöglega, nokkurt tilboð um
borgun fyrir Batteríið. Nokkurir bæ-
armenn sendu alþingi tilboð um að kaupa
Batteríið fyrir nærri því þrefalt verð á
við það, er þeim Yídalínshjónum var
ætlað að fá það fyrir. En það tilboð
kom of seint til þess, að það gæti haft
aðra verkun en þá, að gefa þinginu
bending um það, að ekkert vit væri í,
að selja blettinn fyrir það verð, er boðið
hafði verið. Og auðvitað var það aldrei
borið upp í deildinni, hvorki af J. J.
né öðrum.
Gífurlegasta flekunarbragðsins er getið
á óðrum stað hór í blaðinu — tilraun-
arinnar til þess að telja kjósendum trú
um, að bankastjórinn só hinn eindregn-
asti forvígismaður hlutafólagsbankans.
Ekki leynir sér, hverja trú þeir menn
hafa á málstað sínum, er ekki treysta
sór til þess að berjast fyrir honum með
sæmilegri ráðum — að vér nú ekki
minnumst á traustið á þekkingu og vits-
murtumkjósendanna, og virðinguna fyrir
þeim og sannleikanum!
Skarlatssóttin
er nú í 7 húsum alls hór í bænum;
en 1 þeirra losnar úr sótthaldi nú um
holgina, eftir 7—8 vikur. Af hinum 6
er að eins 1 fyrir vestan aðalbæinn (á
Ólafsbakka í Ánanaustum), en 5 við
Laugaveg eða þar nálægt. Sjúklingar
alls í þessum 6 húsum 9, alt börn,
nema 1 'stúlka um tvítugt. En í Fram-
farafélagshúsinu sóttkvíaða eru 11 sjúk-
lingar alls, alt börn, nema 2 ungmenni.
Af þessum 11 eru 4 utanbæjar: 3 af
Álftanesi og 1 sunnan úr Hraunum.
Tvent af þessu fólki í Framfarafélags-
húsinu útskrifast 1 næstu viku.
Héraðslœknirinn vill brýna fyrir al-
menningi i banum, að þyrpast ekki
saman hér við bryggjurnar, er stúdent-
arnir dönsku koma, og sérstaklega að
láta ekki börn hópa sig eða troðast par
að.
Tiðarfar.
Bagalegir óþurkar um túnasláttinn,
en töður þó náðst yfirleitt þessa vikuna,
og sumstaðar fyr. Nú lagstur f rign-
ingar aftur.
Strandferðab. Hólar
kapt. Öst-Jakobsen, kom í gærmorg-
un hingað austan um land með fáeina
farþega.
Hér á ferð
hafa verið í þessari viku Magnús
83%lum. Torfason í Árbæ með fr ú sinni
Torfi skólastjóri Bjarnason í Ólafsdal
frú'E. Nielsen á Eyrarbakka, Jón Páls-
son organisti þar o. fl., síra Magnús
Þorsteinsson á Bergþórshvoli, Grímur
Thorarensen frá Kirkjubæ, Sigurður
Guðmundsson í Helli í Holtum.
Fundarlaun.
Konungur Svía og Norðmanna hefir
gefið dreng þeim, er í fyrra vor fann
við Kollafjörð fiothylki rekið úr heim-
skautsleiðangri Andrées, 25 krónur.
Jafnframt hefir konungur Svía og
Norðmanna látið birta loforð um verð-
laun öllum þeim til haada, er hér eftír
kunna að finna eitthvað úr Andrées-
leiðangrinum og halda því til skila.
B A U Ð hryssa í óskilum, mark :
fjöður f. h. biti a. v. klipt k á lendina,
eigandi gefi sig fram og borgi áfallinn
kostnað
Guðm. Ingimundarson Bergstöðum.
Tapast hefir snemma í sumar
jarpur foli 5 vetra, dekkri á fax og
tagl, ójárnaður, mark: stýft hægra og
að mig minnir gagnbitað hægra. Finn-
andi er vinsamlegast beðinn að gjöra
mér aem fyrst viðvart.
Ási við Hafnarfjörð 1. ágúst 1900.
Sigurðnr Jónsson.
Brúnn graðhestur 2 vetra, mark:
gagnbitað hægra (fremri bitinn fláandi)
er í vörzlum hreppsnefndarinnar í Mos-
fellshreppi, samkvæmt kynbótasam-
þyktinni, og verður seldur eftir 14 daga,
ef eigandi ekki vitjar hans fyrir þann
tíma og borgar áfallinn kostnað.
Varmá, 2. ágúst 1900.
Björn Þorláksson.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)og
Binar Hjörlelfsson.
Isafol darprentsmiðja.
Tapast hefir steinhringur hjá Sel-
vatni fyrir ofan Miðdal. Finnandi
skili í afgreiðslu ísaf.
Athugið. Jörðin Álftanes
í Mýrasýslu fæst til kaups og ábúðar
í næstu fardögum. Semja má við
Svein Níelsson á Lambastöðum.
Eg hefi mörg ár þjáðst af tauga-
veiklun og slæmri meltingu, og hefi eg
reynt ýms ráð við því, en ekki komið
að notum. En eftir að eg hefinúeitt
ár brúkað hinn heimsfræga Kínalífsel-
ixír, er hr. Waldemar Petersen í Frið-
rikshöfn býr til, er mér ánægja að
geta vottað, að Kfnalífselixír er hið
bezta og öruggasta meðal við alls kon-
ar taugaveiklun og við slæmri ímelt-
ingu, og tek eg því eftirleiðis þenna
fyrirtaksbitter fram yfir alla aðra bitt-
era.
Reykjum. Rósa Stefánsdóttir
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest-
um kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-líís-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að
standi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
Að Hvammi í Kjós er í óskilum
rauðblesóttur hestur 4 vetra, með
mark. blaðstýft (illa gert) aftan, biti
fr. hægra; sneitt aft., biti fr. vinstra;
ógeltur. Hestur þessi verður seldur
eftir 14 daga frá útkomu þessarar aug-
lýsingar, með tilliti til kynbótasam-
þyktar fyrir Kjósar- og Gullbringusýslu,
verði eigandi þá ekki búinn að gefa
sig fram og borga úfallinn kostnað.
Neðra-Hálsi, 31. júlí 1900.
pórður Guðmundsson.
JARPUR hestar, stór, 6 vetra, dökkur
á tagl og fax, hefur tapast frá Þingvöllum.
Mark fjööur aftan vinstra. Finnandi beð-
mn að skila að Þingvöllum eða til Daníels
Bernhöfts bakara i Rvik. Hesturinn er í
vor keyptur austan úr Flóa.
Hinn 1. desember 1898 varð úti hér
í sýslu Guðmundur nokkur Guðmunds-
son, heimilislaus maður, ættaður að
norðan. Mér hefir eigi tekist að spyrja
til erfingja hans allra, og er því hér
með, samkv. 17. gr. skiftalaganna frál2.
apríl 1878, skorað á alla þá, er arf
kunna að eiga eftir hann, að segja til
nafns síns, aldurs og hsimilis innan
15. dags nóvbr. þ. á., en þann dag
verður skiftafundur haldinn í búinu.
Skiftaráðandinn í SnæfellsnesB- og
Hnappadalss. Stykkish. 2C. júlf 1900.
Lárus H. Bjarnason.
Uppboðsauglýsing
Laugardaganna 18. ágúst, 1. og 15.
september verða opinber uppboð hald-
in á Norðurfirði á timburhúsi tilheyr-
andi dánarbúi M. S. Árnasonar kaup-
manns. Húsið var ætlað bæði til
verzlunar og íbúðar — ekki fullgert, en
þó virt á 1600 krónur.
Hin fyrri tvö uppboðin fara fram
hér á skrifstofunni á hádegi; hið 3. og
síðasta verður haldið í sjálfu húsinu
kl. 10 f. h.
Söluskilmálar verða birtir á öllum
uppboðunum.
Skrifstofu Strandasýslu, 20. júlí 1900.
Marino Hafstein.
'ingtUIS'BlQQS UOSSIJJOri 'Ilflui
•gg níoSanjso^ p nSt9[ jij jsijj
So JBiihbuij
TAPAÐUB úr Hafnarfirði mó-
brúnn hestur með miklu faxi aljárn-
aður, mark: gat hægra blaðstýft fr.
vinstra aðfaranótt 30. f. m. Skilvís
finnandi skili til Jóns Ólafssonar á
Bústöðum eða Einars Finnssonar Bók-
hlöðustíg 8 Eeykjavík.
T a p a s t hefir rauð hryssa úr Skild-
inganeshögum, illa afrökuð, með hvít-
um blett á milli nasanna, mark: sneitt
aftan hægra, sneiðrifað aftan vinstra,
aljárnuð með sexboruðum skeifum.
Finnandi er vinsamlega baðinn að skila
henni til Hinriks Gíslasonar í Grænu-
borg.