Ísafold - 11.08.1900, Síða 4
204
dettur heldur engum í hug að nota í
smjörlíki.
Sjörlíkisgerð er því alls ekki hægt
að koma hér á fót með innlendum efn-
am, og dýrara að fiytja efnið í smjör-
líkið til landsins en smjörlíkið tilbúið.
|>að er því alt bull, sem þjóðólfur
segir um þetta, ekki bygt á mista vit-
neista*.
Síðdegisguðsþjónustur
verða ekki haldnar næstu sunnu-
daga, með því að síra Jón Helgason
leggur á 8cað í langíerð upp úr helg-
inni.
Hrútafirði, 24. júli.
Skarlatssóttinernú komin bér á næsta
bæ, Fögrubrekku i Hrútafirði. Að kveldi
hins 3. þ. m veiktist þar 12 ára gamall
piltur. Heimilisfólk þar á bænum mun eigi
hafa grunað fyrst i stað, að hér væri um
skarlatssótt að ræða, og forðaðist því litt,
samgöngur við aðra bæi. En jafnskjótt og
fregnin um sjúkleik piltsins barst út, grun-
aði marga á næstu bæum, að þetta væri
eitthvað hættulegt, og forðuðuit því af al-
efli samgöngur við bæinn og afskifti af
beimilisfólki þar. En þegar fleiri og fleiri
sýktust, var Sigurðar læknis Sigurðssonar
loks vitjað. Kvað hann veikiua vera »rauða
hunda«, en bannaði þó samgöngur um lít-
inn tima. Litlu síðar veiktist 5 ára gam-
alt barn þar, í sömu veiki, og varð mjög
þungt haldið. Var þá Júlíus læknir Hail-
dórsson sóttur, og taldi hann engan vafa á,
að veikin væri skarlatssótt. Hefir sýslu-
maður svo eftir tiliögum læknisins lagt
bann fyrir samgöngur og skipað sóttvörð,
er hefir daglega tal af einhverjum á heim-
ilinu, og færir á tiltekinn stað, i nánd við
bæinn, meðul og aðrar nauðsynjar.
Alls hafa sýkst þar á bænum 7 menn,
alt unglingar og börn; en enginn afarþungt
nema þetta eina barn, sem Júliusar læknis
var vitjað ‘tii. Þó munu það nú vera
heldur á batavegi og aðrir mikið farnir að
friskast.
Viðar hefir sóttin eigi borist, og mun
það eigi sízt þvi að þakka, að svo marg-
an grunaði þegar, hvað um væri að vera,
og forðaðist því af eigin hvötum öll mök
við menn af heimilinn.
Hvernig sóttin hefir borist að Pögru-
brekku vita menn eigi, en kelzt þykir þess
tilgetandi, að kaupafólk að sunnan (af Mið-
nesi?) hafi flutt hana Tveim dögum áður
en veikinnar varð vart, tjaldaði margt
kaupafólk nærri bænum, sumt af því kom
heim og fekk sér að drekka, og heilsaði
heimafólkinu með kandabandi, en ekki hafði
það komið inn í bæinn. Aðrar orsakir
vita menn ekki sennilegri.
Sláttnr alment hyrjaður fyrir hér um
hil hálfum mánuði, en siðan hafa verið si-
feldir óþurkar, og hefir hér ekkert náðst
inn enn þá. Tún eru viða langt komin og
búin. Grrasvöxtur góður á útjörð, en lak-
ari á túnum að sínu leyti, þó iiklega úm
það bil í meðallagi.
Þjóðsög’ur
Jóns Árnasonar.
kaupi eg fyrir hátt verð.
P. Hjaltesteð úrsmiður.
Bezti múrsteinninn
í bænum er hjá
Birni Kristjánssyni.
Athugið. Jörðin Álftanes í Mýra-
sýslu fæst til kaups og ábúðar í næstu
fardögum. Semja má við Svein Ní-
elsson á Lambastöðum.
Saltfiskur
vel verkaður, stór og smár, og ýsa,
verður keyptur ísumar fyrir peninga
við verzl. »EDINBORG« í Keflavík,
Stokkseyri og Reykjavík.
8nndmaga
kaupir hæstu verði fyrir p e n i n g a
Ásgeir Sigurðsson.
Sauðakjöt - ull - rjúpur.
Eg kaupi í haust nokkuð af sauðakjöti og uli. Sömuleiðis íslenzkar rjiipur.
S \ g V. L U n d e, Kristjania, Norge.
*
Þyrilskilvindur
(Kronseparatorer)
eru nú taldar lang-beztar allra skil-
vindna og eru til sölu hjá allflestum
kauprnönnum hér á landi.
Þessir seljendur hafa óskað nafns síns
getið: Hr. kaupm. B. Kristjánsson, Rvik,
hr. kanpm. H. Th. A. Thomsen, Reykjavik,
hr. kanpm. 0. Árnason, Stokkseyri, hr.
kaupm. Jón Bergsson, Egilsstöðum; allar
verzlanir hr. Tuliniusará Austurlandi, allar
verzlanir Gránufélagsins, hr. verzlunarstjóri
Eggert Laxdal, Aknreyri, hr. kaupm. Y.
Claesen, Sanðárkróki, hr. kaupm. L. Popp,
Sauðárkróki, hr. kaupm. 1. G. Möller, Blöndu-
ósi, hr. verzlunarstjóri P. Sæmundsson,
Blönduósi, hr. kaupm. R. P. Riis á Borð-
eyri. IslandskHandels & Fiskerikompagni á
Patreksfirði, Flatey, Skarðstöð, Hvamms-
firði, Olafsvík og Búðum.
Frá Patreksfirði geta kaup-
menn, að jafnaði, fengið þær til út-
sölu með lægsta verði, þar fást og
ýmsir vara-hlutar skilvindunnar.
Smásöluverð gegn peningum er þannig:
Nr. 0 skilur 25 pt. á kltíma kr. 80.00
— 00 — 50 - - — ■ 100.00
_ 1 _ 75 - - _ - 120.00
Skilvindurnar fást a ð a 11 e g a til
útsölu hjá
Islandsk Handels & Fiskeri-
kompagni, Kjöbenhavn C.
CRAWFORDS
ljúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið
af CRAWFORDS & Son
Edinborg og London
StofnaS 1813.
Einkasali fyrir Island og Færeyjar :
F. Hjorth & Co.
Kjöbenbavn.
UIBOÐ
Undirskrifaðir taka að sér að selja ísl.
vörur og kaupa útlendar vörur gegn
sanngjörnum umboðslaunum.
P. J. Thorsteinsson & Co.
Tordenskjoldsgade 34. Kjöbenhavn K.
Leiðarvísir til Iífsbyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunnm og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja lif sitt, allar upplýsingar.
•iUQICUS'BigpS UOSSIJOq -ilflui
•qq nipSaniso^ y nfltoi jii ps"pj
J^ÍQÖS So
Tapast hefir
grá hryssa úr pössnn á Bústöðum, aljárn-
uð með 6-boruðum ópottuðum skeifum.
Mark: standfjöður. Finnandí skiii hryss-
unni gegn borgun til
Carl Bjarnasen
verzlunarm.
Gullhringur fundinn (merktur). Ritstj.
visar á finnanda.
TIL LEIGU 1 herhergi handa ein-
hleypnm i húsi Steingrims Guðmundssonar
Laugaveg 23.
Uppboðsauglýsing.
Hér með auglýsist, að jörðin Steiná
í Bólstaðarhlíðarhreppi hér í sýslu,
30.6 hdr. að dýrleika, verður eftir kröfu
landsbankans og að undangengnu fjár-
uámi hinn 7. þ. m. seld við 3 opinber
uppboð, sem haldin verða miðvikudag-
ana 29. ágúst og 12. og 26. september-
mánaðar næstkomandi kl. 12 á hádegi,
2 hin fyrstu á skrifstofu sýslunnar, en
hið 3. og síðastauppboð ájörðinnisjálfri.
Söluskilmálar verða til sýnis hér á
skrifstofunni nokkra daga fyrir hið
fyrsta uppboð.
Skrifst. Húnavatnssýslu, 19. júlí 1900.
Gísli íslcifssori.
Uppboðsauglýsing.
Samkvæmt Akvörðun skiftafundar
6. þ. m. í dánarbúi Ólafar sál. Ste-
fánsdóttur frá Krossavík verða fast-
eignir búsins seldar við opinber upp-
boð, sem haldin verða að eins eitt á
hverri jörð og á jörðunum sjálfum eins
og hér segir:
I. Skjalþingsstaðir í Vopnafirði, 9.8
hdr. að nýju mati, verða seldir
fimtudaginn 6. september næst-
komandi kl. 2 e. h.
II. Búastaðir í sömu sveit, 16.4 hdr.
að nýju mati, verða seldir föstu-
daginn 7. september næstkomandi
kl. 12 á hád.
III. Ljósaland í sömu sveit, 14.8 hdr. að
nýju mati, verður selt sama dag
kl. 4 e. hád.
IV. Djúpilœkur í Skeggjastaðahreppi, 5
hdr. að fornu mati, ásamt hjáleig-
unni Gunnarsstaðir 22.7 hdr. að
nýju mati, verður seldur laugar-
daginn 8. september næstkomandi
kl. 12 á hád.
V. Hálfir Gunnarsstaðir í sömu sveit,
3 hdr. að fornu mati, en ásamt
Djúpalæk 22.7 hdr. að nýju mati
öll jörðin, verða seldir sama dag
kl. 2 e. hád.
Jarðirnar verða seldar frá næstkom-
andi fardögum að telja og veitist áreið-
anlegum kaupendum gjaldfrestur á mest-
öllu kaupverðinu til júlímán.loka 1901.
Skjöl og skilríki áhrærandi þessar
jarðir svo og uppboðsskilmálar verða
til sýnis hér á skrifstofunni frá 1. sept-
ember og á uppboðsstöðunum rétt fyr-
ir uppboðin.
Skrifst. Norður-Múlasýslu 16. júlí 1900.
Jóh. Jóhannesson.
Proclama.
Með því að Guðmundur skósmiður
Ogmundsson á Vopnafirði hefir fram-
selt bú sitt til gjaldþrotaskifta, þá er
hér með samkvæmt lögum 12. apríl
1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861
skorað á alla þá, er telja til skulda
hjá honum, að koma fram með kröf-
ur sínar og færa sönnur á þær fyrir
skiftaráðandanum hér í sýslu áður en
6 mánuðir eru liðnir frá síðustu (3.)
birtingu þessarar ínnköllunar.
Skrifst. Norður-Múlasýslu 16. júlí 1900.
Jóh. Jóhannesson.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og
opnu bréfi 4. janúar 1861 er hér með
skorað á alla þá, sem telja til skulda
í dánarbúi Stefáns sáluga þórarinsson-
ar frá Teigi í Vopnafirði, sem andað-
ist 14. maí þ. á., að koma fram með
kröfur sínar og færa sönnur á þær fyr-
ir skiftaráðandanum hér í sýslu, áður
eD 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu
(3.) birtingu þessarar innkölluuar.
Erfingjar taka ekki að sér ábyrgð á
skuldum.
Skrifst. Norður-Múlasýslu 16. júlí 1900.
Jóh. Jóhannesson.
Dönsk stúdentshúfa befir lent í ó-
skilnm I samkvæminu 7. þ. m. Ekki ann-
að en koma henni til Einars Árnasonar
faktors.
Rauður graðfoli, heilrifað h.
stýft v., í vörzlum hreppsnefudarinnar,
samkvæmt kynbótasamþ., verður seld-
ur, ef eigandi eigi vitjar hans og borg.
ar áfallinn kostnað innan 14 daga.
Varmá, 8. ágúst 1900.
Björn Þorláksson.
W. öifisiensens-'^i""
hefir sem að undanfömu nægar birgð-
ir af alls konar mðursoðnum matvæl-
u m og ávöxtum. Nýjar birgðir koma
með hverri ferð. Miklar birgðii af
gleruðum eldhúsgögnum og talsvert
af Öðrum húsbúnaði.
Allxr kornvörutegundir eru ávalt til
við sömu verzluu; einnig Nýlenduvör-
ur og krydd.
Vindlar, tóbak og drvkkjarföng.
Plet og Silfur, Mataráhöld, Ost,
Smjör, Flesk, Pylsu, Kex, Skonrok,
Kringlur. Kol og Steinolía og mjög
rnargr, fieira.
Cokes
koma síðast í þessum mánuði og
nokkur hundruð föt af góðri Steinolíu
og ýmislegt af öðrum vörutegundum.
í lok ágústmán. fæ eg birgðir af
bankabyggi, rúgmjöli,
hveiti, fóðnnnjöli, grjónum,
kaffi, exportkaffi, sykri
og fleíru, sem alt verður selt við lægsta
verði. Allir þekkja, að matvörur þess-
ar eru þær beztu, sem hiogað flytj-
ast.
Reykjavík 10. ágúst 1900.
Björn Kristjánsson.
Bogi Sigurðsson, faktor í Skar-
stöð áður, biðnr þess getið, að hann
er kominn að Búðardal í Dölum alfar-
ið, og óskar blöðurn og bréfum til sín
beint þangað.
Eg hefi síðustu 6 ár verið þungt
haldinn af geðveiki og brúkað við því
ýmisleg meðul, en árangurslaust, þar
til eg fyrir 5 vikum fór að brúka
Kínalífselixír Waldemars Petersen í
Friðrikshöfn. þá fekk eg undir eins
reglulegan svefn; og þegar eg var bú-
inn með 3 glös af elixírnum, kom
verulegur bati, og vona eg, að mér
batni alveg, ef eg held áfram með
hann.
Staddur í Reykjavík
Pétur Bjarnason frá Landakoti.
Að framanskráð yfirlýsing sé af frjáls-
um vilja gefin og að hlutaðeigandi sé
með fullri skynsemi, vottar
L. Pálsson, prakt. læknir.
KínaTífs-elixírinn fsest hjá flest-
um kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-líís-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að
standi á flöskunní í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn, Danmark.
Með því að bú Gests Guðmunds-
sonar, sem síðastliðíð ár bjó í Kúskerpi
í Éngihlíðarhreppi, og sem hinn 10.
þ. m. strauk til Ameríku, er tekið til
skiftameðferðar sem þrotabú eftir kröfu
8kuldaheimtumanna hans samkvæmt
lögum 13. apríl 1894, þá er hér með
samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og
opnu bréfi 4. jan. 1861 skorað á alla
þá, er telja til skuldar hjá nefndum
Gesti Guðmundssyni, að lýsa kröfum
sínum og sanna þser fyrir skiftaráð-
anda Húnavatnssýslu áður en 6 mán-
uðir eru liðnir frá síðustu (3.) birtingu
þessarar innköllunar.
Skrifst. Húnavatnssýslu, 25. júní 1900.
Gísli Isleifsson.
í gamla »Doktorshúsi« rétt hjá sjó-
mannaskólanum geta piltar, sem stunda
þar nám, fengið gott fæði með
sanngjörnu verði hjú Guðnýju
JónBdóttur, sem áður var á »Ho-
tel Akranes#.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)og
Einar Hjörleifsson.
ísafol darprentsmiðja.