Ísafold - 22.09.1900, Side 4
232
f>au sfcanda skarrma stund að borð-
um; því að ungfrúrnar eru þreyttar
og eiga enn eftir að aka góðan spotta,
áður en þær komast Jieim til Marínu.
Aður en þau leggja á stað, fer
greifinn með Marínu til hliðar og mæl-
ir hratt þessum orðum :
•þjónninn minn er búinn að fara
heim til yðar. |>ér þurfið ekki að
láta yður vera neitt órótt. Enginn
muu kvelja yður með smánaryrðum
fyrir það, að þér hafið gleymt því, að
morðingi Antóníós er á lífi«.
Stúlkan stynur þungan, en tekur
ekki i höndina á honum.
í sama bili, sem Edvin hjálpar
Marínu og Enid upp í vagninn þeirra,
kemur farangursvagninn. »Farið þið
upp með dót hr. Anstruthers !« segir
greifinn hratt. »Hitt fer með ung-
frúnuma. Um leið og vagninn veltur
á stað með þau, lítur Danella með
háðslegu brosi á Edvin, sem stendur
8Úlnagöngunum við húsið og er að
^reykja vindil í tunglsljósínu, og því
næst á Tómassó, sem bar ferðapokann
litla, með stöfunum G. A., upp riðíð
og inn í forsalinn.
Á leiðinni heim til Marínu tekst
Danellu að koma Enid til að skelli-
hlæja í sífellu og Marína hlær jafn-
vel ofurlítið við og við. En glaðværð
Marínu virðist samt ekki aukast eítir
því, sem hún færist nær heimili for-
feðra sinna.
Meðanþau eru í trjágöngunum löngu,
sem liggja upp að aðalhúsinu,
horfir bún í gaupnir sér og segir við
sjálfa sig: «Eg fyrirverð mig fyrir að
hitta gamla vinnufólkið mitt!«
Eítil eldavél óskast í skiftum fyrir iít-
inn magasinofn. Ritstj. vísar á.
Fseði og húsnæðl geta stúlkur feng-
ið 1 góðu húsi i miðjurn bænnm fyrir sann-
gjarna borgun. Ritstj. visar á.
Sveitamenn!
Eins og í fyrra kaupi eg undirskrif-
aður fé í haust, á fæti og eftir nið-
urlagi, eftir því sem um semar, gegn
lægstu þóknun. Peningaborgun út í
hönd.
Reykjavík 15. september 1900.
Siggeir Torfason
(Laugaveg 10).
Húsnæði og fæði
geta 2—3 menn fengið fyrir að eins
1 kr. um daginn, á góðum stað í
bænum. Ritstj. vísar á.
T O M B Ó L A.
Samkvæmt leyfi landshöfðingja yfir
Islandi ætlar sjómannaftlagið »Báran«
nr. 1 í Reykjavík að halda tombólu
í byrjun næsta mánaðar, til eflingar
húsbyggingu félagsins.
Nánaraauglýsist síðar scund og stað-
ur.
Allir góðir menn og konur, sem vildu
styrkja þetta fyrirtæki, eru vinsamlega
beðnir að koma munum þeim, er þeir
kynnu að vilja gefa, til undirritaðrar
manna, er fúslega munu veita þeim
viðtöku.
Ottó Þorláksson. Þorsteinn Egilsson.
Kristinn Guðmundsson. Guðjón Jónsson.
Hjðrtur Jónsson. Guðm. Bjarnason
Olafur Jónatansson. Tómas Jðnsson.
Þorbergur Eiríksson.
Reykjavík 22. september 1900.
Virðingarfylst
Tombólunefndin.
Hjukrunarnemi
frifin, greind stúlka getur fengið að
læra hjúkrunarstörf í Laugarnesspí-
talanum. Læknir spítalans gefur nán-
an upplýsingar.
Proclama.
Samkvæmt opnu bréfi 4. janúar
1861 og skiftalögum 12. apríl 1878
innkallast hér með allir þeir, er til
skulda eiga að telja í dánarbúi Mar-
kúsar Finnboga Bjarnasonar, forstöðu-
manns stýrimannaskólans í Reykjavík,
er andaðist 28. júní þ. á., til þess inn-
an 6 mánaða frá síðustu birtingu
þessarar auglýsingar að lýsa kröfum
sínum og sanna þær fyrir mér undir-
ritaðri, ekkju hins látna, er hefir feng-
ið leyfi til að sitja í óskiftu búi.
Reykjavík, 28. ágúst 1900.
Björg Jónsdóttir
Haila Waage
tekur að sér G u i t a r-k e n s 1 u eins
og að undanförnu.
Hjá undirrituðum geta þeir sem
óska fengið k o s t í vetur.
S. E. Waage.
Eg undirrituð veiti stúlkum tilsögn
í alls konar hannyrðum eins og að
undanförnu, svo sem kunstbroderi og
rósabandasaum; alls konar hvítu bro-
deríi: flatsaum, hedebosaum, Veuedi-
gsku broderíi, Harðangursaum og
Point-lace-broderíi. Einnig teikna eg
á alls konar tau og klacði, og hefi til
sölu mikið af áteiknuðu bæði á hör-
léreft, klæði og angóla, og fleira sem
til hannyrða heyrir, svo sem rósa-
bönd og bæði fantasi- og vaska- egta
silki.
Laugaveg nr. 10 (Schaus hús).
I»uríður Lange.
í Reykjavíkur
apóteki íæst til
fjárböðunar
óhreinsuð karbólsýra og
sápublönduð karbólsýra.
Dýralækningaráðið í Kaupmanna-
höfn hefir mælt frarn með jpeSSUm
meðölum, þar eð þau hafa reynsfc
skaðlaus fyrir ullina og eru
bráðdrepanái fyrir kláðamaur-
inn, fremur öðrum baðlyfum.
Einnig fæst
pur karbólsýrusápa, >Kresólsápa«
og Pr im a Kr e olin
Leiðarvísir til notkunar fæst.
Michael L. Lund.
I. Paul Liebes Sagradavin og
Maltextrakt með kínin og járni
hefi eg nú haft tækifæri til að reyna með
ágætam árangri. Lyf þessi eru engin
leyndarlyf (arcana), þurfa þau því ekki að
hrúkast í blindni, þar sem samset.ning þess-
ara lyfja er ákveðin og vitanleg. Sagrada-
vínið hefir reynst mér ágætlega við ýms-
nm magasjúkdómum og taugaveiklun, og er
það hið eina hægðalyf, sem eg þekki, er
verkar án allra óþæginda, og er lika eitt-
hvað hið óskaðlegasta lyf.
Maltextraktin með kína og járni er hið
hezta styrkingarlyf, eins og efnin benda á,
hið bezta lyf gegn hvers konar veiklun, sem
er, sérstaklega taugaveiklnn, þreytu og lúa,
afleiðingum af taugaveiki, þróttleysi mag-
ans o. s. frv. — Lyf þessi hefi eg riðlagt
mörgum með hezta árangri og sjálfur hefi
eg brúkað Sagradavínið til heilsubóta, og
er mér það ómissandi lyf.
Reykjavik 28. nóv. 1899. L. Pálsson.
Einkasölu á I. Paul Liebes Sag-
radavíni og Maltextrakt með
kínín Og járni fyrir Islaad hefir
undirskrifaður. Útsölumenn eru vin-
samlega beðnir að gefa sig fram.
Reykjavík í nóvember 1899.
Björn Kristjánsson-
Loiðarvísir til iífsbyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefnr þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar upplýsingar.
Ritstjórar: B.jörn ,Tónsson(útg.og ábm.)og
Einar Hjörleifsson.
ísafol darprentsmiðja.
Proclama.
Hér með auglýsist, samkvæmt 9. gr.
laga nr. 7 frá 13. apríl 1894 um ýmis-
leg atriðí, sem snerta gjaldþrotaskifti,
að bú Jakobs skraddara Jónssonar á
Vopnafirði hér í sýslu, sem er strok-
inn af landi burt, hefir verið tekið til
gjaldþrotaskifta, samkvæmt 2. gr.
nefndra laga.
Jafnframt er, samkvæmt skiftalög
unum frá 12. apríl 1878 og opnu bréfi
frá 4. jan. 1861, skorað á þá, erskuld-
ir kunna að eiga í búinu, að segja til
þeirra og Sanna þær fyrir skiftaráð-
andauum bér í sýslu innan 6 mánaða
frá seinustu birtingu auglýsingar þess-
arar.
Skrifst. Norður-Múlasýslu 25.ágústl900
Jóh. Jóhannesson.
Proclama.
Samkvæmfc lögum 12. apríl 1878,
sbr. opið bréf 4. jan. 1861, er bér með
skorað á alla þá, sem til skuldar telja
í dánarbúi ekkjuunar Margrétar Hálf-
dánardóttur frá Oddstöðum í Prest-
hólahreppi, er andaðist 21. aprílþ. á.,
að lýsa kröfum sínutn og sanna þær
fyrir skiftaráðanda í þingeyjarsýslu áð-
ur en 6 mánuðir eru liðnir frá 3 birt-
ingu auglýsingar þessarar.
Skrifstofu þingeyjarsýslu, Húsavík
20. ágúst 1900.
Steingrímur Jónsson.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878,
sbr. opið bréf 4. jan. 1861, er hér
með skorað á alla þá, sem til skulda
telja í dánarbúi Stefáns bónda Bryn-
jólfssonar frá þverá í Axarfirði, er and-
aðist 2. marz þ. &., að lýsa kröfum
sínum og sanna þær fyrir skifta-
ráðanda í jhingeyjarsýalu áður en 6
mánuðir eru liðnir frá þriðju birtingu
auglýsingar þessarar.
Skrifstofu þingeyjarsýslu, Húsavík
20. ágúst 1900.
Steingrlmur Jónsson-
Biðjið um :
Skandinv Export kaffi Surrogat.
Khavn K. F. Hjorth & Co.
Skandinavisk export- kaffi- surrogat,
sem vér höfum búið til undanfarin ár, er
nú viðurkent að hafa úgæta eiginlegleika.
Kobenhavn K. F, Hjorth & Co.
Fyrir 2 árum veiktist eg. Veikin
byrjaði á lystarleysi og eins varð mér
ilt af öllu sem eg borðaði, og fylgdi
því svefnleysi, magnleysi og taugaveikl-
un. Eg fór því að brúka Kínalífsel-
ixír þann, er hr. Waldemar Petersen
í Eriðrikshöfn hefir búið til. Eg brúk-
aði 3 glös og fann undir eins bata.
Er eg hefi nú reynt hvorttveggja,
bæði að brúka haun og vera án hans
annað veifið, þá er það full sannfær-
ing mín, að eg megi ekki án hans
vera, að miusta kosti í bráðina.
Sandlækjarkoti. Jón Bjarnason
KínaJífs-elixírinn fæst hjá flest-
um kaupmönnum á ÍBlandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að
standi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn, Danmark.
Með því að viðskiftabók við spari-
sjóðsdeild Landsbankans, Nr. 4075 (M.
472), er sögð glötuð, stefnisfc handhafa
téðrar viðskiftabókar hér með sam-
kvæmt 10. gr. laga um stofnun lands-
banka 18. sept. 1885 til þess að segja
til sín innan 6 mánaða frá síðustu
birtÍDgu auglýsingar þessarar.
LandsbankinD, Reykjavík 18.sept. 1900.
Tryggvi Gunnarsson
Sóttvarnafauglýsing.
Hjer með tilkynuist öllum hlutað-
eigendum að efUr tillögum hjeraðs-
læknisins er ákveðið að fresta skóla-
haldi í barnaskóla Reykjavíkur fyrst
um sinn til 1. nóvember næstkomandi,
til þess að varna útbreiðslu skarlats-
sóttar, sem onn gengur hér í bænum.
Bæjarfógetinn í Rvík 21. sept. 1900.
Halldór 'Daníelsson.
Kenslubækur i stýrimannafræði t.il
sölu Ritstj. visar á.
Sa sem tekið hefir af misgáningi stimp-
ilinn á skrifstofu Hjálpræðishersins 13. eða
14. þ. m , er beðinn að skila honum þang-
að hið hráðast.a.
Sá sem hefir tapað beizliskoparstengum
nálægt Langavatni á Langavatnsdal, vitji
þeirra til Jóns Guðmundssonar á Yal-
hjarnarvöllum og borgi um ieið fundar-
laun og anglýsingu þessa.
Tvíhleyptur aftanhlaðningur til sölu.
Ritstj. visar á
«1111 .Nýhöfn-
hefir margar Fóðurmjölstegundir, á-
gætt Hveiti ódýrt, gleruð Eldhúsgögn
Oll nauðsynjavara seld vægu verði.
Tvær snemmbærar k ý r til sölu.
Matthías Matthiasson.
Óvanaleg kjör.
Frá í dag og allan október verður
í kramvörudeildinni í verzlun J ó n 8
pórðarsonar gefið til baka 5—15
aurar af hverri krónu, sem keypt er
fyrir. jpetta ætti fólk að nota sér.
Sömuleiðis fá þeir, sem kaupa fyrir
vörur og milliskrift, betri kjör en áður
yfir sama tíma.
Scííifestagrjót,
10—15 faðmar, verður keypt nú í haust
við verzlun
Th. Thorsteinsson.
Blómkál fsBSt í Laufási 20 a. pd.
íslenzkt smjör
fæst alt af í verziun Jóns l>órðar-
sopar- Verð : í smákaupum 60—70
aur. pr. pd.t í stærri kaupum 55—68
aur pr. pd. M i k i ð a f v ö n d u ð u
skilvindusmjöri.
Ódýrt
fóðurmjöl
fæst í verzluu
Th. Thorsteinssou.
8kiptafundur
í þrotabúi Eyþórs kaupmanns Felix-
sonar verður haldinn á bæjarþingstof-
unui mánudaginn 15. október næstk.
kl. 12 á hád.; verður þá lögð fram til
yfirskoðunar skrá yfir skuldir búsins,
svo og yfirlit yfir fjárhag þess, að því
leyti, sem því verður við komið
Bæjarfógetinn i Rvík 18. sept. 1900.
Halldór Daníelsson.
Húskennari óskast í kaupstað á Norð-
nrlandi hjá ágætu fólki, reglusamur, vel að
sér í dönsku og ensku, auk almennra
kenslugreina, og nokknð færi sönglist. Semja
má víð síra Jón Helgason prestaskólakennara.
Steinfarfi, Fiskilínur
Lóðaröngla, baðlyfln beztu
selur
Björn Kristjánsson.
Stofa er til leigu frá 1. okt. Ennfrem-
ur fæst fæði á sama stað ef óskað er.
Yitja má í afgreiðslu ísafoldar
Öllum þeim, sem við jarðarför systur
mlnnar Markúsínu Markúsdóttur sýndu mér
hluttekningu, eða liðsintu henni i banaleg-
unni, votta er hér með innilegt hjartans
þakklæti
Reykjavík 17. septemher 1900
Jónína Magnússon.