Ísafold - 24.11.1900, Side 4
286
fyrir avo sem Yio hluta verða á við
hitt, þá væri það miklu verra en ekki
neitt.
þeir létust samsinna því, að rétt-
ara væri að halda sér við bögumæli
og dönskuslettur heldur en að nota
fornar orðmyndir, hve lftið sem frá-
brugðnar eru daglegu tali, þó að
stórmeistarinn beri jafnan ekki síður
en aðrir fyrir sig fornan rithátt til
sönnunar því, hvernig orð eigi að rita
— eftir þvl sjálfsagt réttara að rita
«hjirti« heldur en »hirti«, »miskun« og
»vorkun« heldur en »miskunn« og »vor-
kunn«, og líklega lieldur »þekir« en
»þykir« (af »að þykja«).
f>eir létust trúa því, að þeir Pálmi
Pálsson og G. T. Zoega væru alls
ekkert eða sama sem ekkert við kver-
ið riðnir, þrátt fyrir það sem í for-
málanum stendur með þeirra sam-
sinni, og þrátt fyrir það, hvernig
þeir tóku yfirlýsingu stórmeistarans í
málgagninu ónefnda (sbr. lsafold 3.
þ. m.).
|>eir samsintu því, að örfáar, hverju
barni auðráðnar prentvillur í bókinni
væru engu öðru um að kenna en
frámunalegu þekkingarleysi höfundar-
ins og aulaskap.
|>eir samsintu því, að úr því að
hinar örfáu línur aftan við formálann
— »nokkurar stafsetnÍDgarreglur*, sett-
ar þar að eins til bendingar um,
hverjum helztu meginreglum hefði verið
farið eftir í bókinni, — úr því að þess-
ar línur hefði eigi inni að halda full-
komna íslenzka staffræði, með öllum
þar til heyrandi útlistunum, un’dan-
tekningum o. s. frv., þá bæru þær
vott urn ódæma-fákænsku höfundarins
og asnaskap.
Ollu þessu samsintu þeir hver með
öðrum, einn fyrir alla og allir fyrir
einn, eins og til stóð, meðal anDarrat.
d. tveir norir nafnfrægustu málvitring-
ar og staffræðingar, þeir Valgarður
Breiðfjörð og Tryggvi Gunnarsson; svo
vandlega sátu þeir á sinDÍ vísindalegu
samvizku, og virðast þó hafa verié sér-
staklega tilkvaddir á þessa minnilegu
hátíðarsamkomu, jafnframt og þeim
Jóni Ólafssyni og Einari Hjörleifs-
syni var beint b a n n a ð þar að
koma.
|>að er vel farið, að þessi snjalla og
hugvitsamlega lækningatilraun tókst
avona vonum framar. því kastið v a r
alæmt, hálfu verra en það í hitt eð
fyrra f>að mátti og ávalt við því bú-
ast, er farið væri að gera frekari gang-
skör að almennri upptöku Blaðam,-
stafsetningarinnar með dálitlu orða-
gafni, h v e r svo sem það gerði. |>að
v a r einstök ógætni; nærri ;því sam-
vizkulaus ógætni, hver svo sem verið
hefði höf. slíks safns. En þá kastaði
samt fyrst tólfunum, er til þess varð
maður, sem annað eins hafði fyrir sér
gert í garð stórmeistarans og kunnugt
er að bann hefir gert síðustu missir-
íd, og eigij þarf hér að lýsa, nema ef
til vill síðasta tilviki hans — að neyða
stórmeistarann til að bera vitni í máli
í móti einkavin hans og fóstbróður,
landlækninum!
Vonandi tefur það ekki fyrir bata
stórmeistarans, þótt ísafold yrði það
á um daginn — hún er svo málug —
að geta um návist nál. 20 skólapiltaí
leikhúsinu »til að klappa«, f>ví nú er
þ a ð lagað — nafnlaus náungi
akýrir frá því í n a f n i þeirra allra
í málgagninu ónefnda í gær, að þeir
hafi e k k i verið sendir í leikhúsið til
að klappa fyrir rektor sínum!
----- — m -------
Úti varð
gömul kona 8. þ. mán. á leið frá
Olafsdal út í Saurbæ, þar sem hún
átti heima, Kristín Hanneadóttir;
það var daginn sem hríðin skall á.
Skarlatssóttin
er Isafold skrifað austan yfir fjall,
að geri alvarlega vart við sig bæði í
Villingaholtshreppi og Gaulverjabæjar;
á öðrum staðnum dáinn úr henni
maður á 19. ári; en bæirnir í strangri
sóttkvíuD; hefir læknir gengið rögg-
samlega fram þar.
Vendetta.
Eftir
Archibald Clavering Gunter,
Ofurlitla stund stendur hann graf-
kyr og er enn meira forviða en nokk-
urt hinna.
»í>ú hér, Enid !« segir hann. »Mar-
ína! Hvað gengur á ?« því að brúður-
in hefir fært sig einu skrefi nær hon-
um með skelfingarsvip í augunum,
starir framan í hann og æpir:
»f>etta er svipurinn hans — kominn
hingað til að saka mig um líflát hans!«
• Marína mfn elskuleg, þekkirðu mig
ekki, manninn þinn?«
Hún slítur sig áf honum, hrindir
honum frá sér með ákefð^og hrópar:
»f>ú ert ekki maðurinn minn! f>ú
ert svipurinn hans! Lík mannsins
míns liggur þarna fyrir utan dyra-
tjöldin!«
»Guð almáttugurh segir Anstruther
og stendur á öndinni; »konan mín er
orðin brjáluð!«
»Nei«, segir Barnes og gengur til
hans; »en hún verður það, ef þessu
heldur áfram«.
»Hver eruð þér?« spyr Edvin; hann
hefir ekki séð Barnes fyr en nú.
»Guði almáttugum sé lof fyrir það,
að þér þekkið mig ekki«, segir Vestur-
heimsmaðurinn; síðan Anstruther kom
inn, hefir hann horft á hann alvöru-
og forvitnisaugum og nú léttir honum
fyrir brjósti. »Eg heiti Barnes !«
»Ó — Barnes, unnusti systur minn-
ar!«
»Já, eg kom hingað til þess að tálma
þessu. Eg skal 6kýra það fyrir yður
síðar. Við systir yðar heyrðum hljóð,
og þegar við komum inn, finnum við
brúðurina í óviti á gólfinu. HúnTiélt,
að þér hefðuð verið myrtur!«
»Eg myrtur! Nú sér hún sjálf að
eg er lifandi«.
»Já, en hún trúir ekki sínum eigin
augum. f>ér vitið að eg hefi numið lækn-
isfræði?«
»Já«.
»Lofið þér mér þá að vera læknir
yðar og hennar í kvöld«.
»Viljið þér gera það"« segir Anstru-
ther og tekur innilega í höndina á
Barnes. »Eg skal muna yður það
alla mína æfi, ef þér gefið konunni
minni vitið aftur«. Honum vöknar
um augu.
•Viljið þér þá hlýða boðum mínum í
blindni?
»Auðvitað!«
»pott og vel, eg ætla þá að reyna«,
segir Barnes. Farið þér nú til kon-
unnar yðar og reynið aftur að faðma
bana, en neyðið hana ekki, ef hún
vill það ekki. Lítið þér nú framan í
hana og hlustið á það, sem hún segir
yður».
Meðan hann er að segja þetta, tek-
ur hann eftir þvi, að Marína hrindir
Enid frá sér — Enid hefir, meðan á
þesBU stóð, verið að reyna að sann-
færa hana um, að Edvin sé lifandi —
og að hún færir sig um nokkur skref
nær dyratjöldunum. En hún þorir
ekki að sjá það, sem er fyrir utan
þau, hrollur fer um hana og hún hop-
ar aftur á bak frá tjöldunum aftur.
Anstruther færir sig þá nær brúður-
inni, eins og honum hefir verið sagt,
nefnir hana á nafn ástúðlega og ætl-
ar að faðma hana að sér. Hún hörf-
ar frá honum, eins og áðar, en lítur
þó í þetta sinn á hann vingjarnlega
og segir : »Okkur auðnast aftur að
láta okkur þykja vænt hvoru um ann-
að, þegar eg er líka dáin«. Eétt á eft-
ir æpir hún, eins og hún sé dauð-
hrædd: »Nei. nei ! Ekki núna! f>ú
ert svipurinn hans. Líkið hans er
þarna fyrir utan dyratjöldin!»
Edvin hefir gengið fast að henni
meðan hún lét dæluna ganga, og nú
fyrst sér hann dökkrauða rákina eftir
fingur Tómassós á hálsinum á henni.
•Einhver manndjöfull hefir ætlað
að myrða konuna mína«, segir hann
hræddur og reiður; »en honum hefir
ekki tekist meira en að svifta hana
vitinu!«
Hann blótar þessum fanti hranalega
og hún svarar:
»Já, það eru rákir á hálsinum á
mér eftir höndma á honum. Vei hon-
um — hann drap Gerard minn!«
Barnes bindur enda á þessa óvið-
feldnu samræðu með því að taka í
handlegginn á Anstruther og segja við
hann í hálfum hljóðum : »Er þetta
hlýðnin, sem þér hétuð mér? Hvern-
ig á hún að geta náð sér aftur, ef þér
eruð ekki annað en vanstillingin ?«
Hann gerir Enid bendingu um, að
hún skuli aftur reyna að stilla Mar-
ínu, sern er að tauta sundurlaus orð
fyrir munni sér.
Anstruther starir á hana og svarar:
»J>ér fynnið að því, að eg sé vanstilt-
ur! Hvernig ætti eg að vera stiltur
upp frá þéssu? Eg hefi nú einskis
annars að leita en hefndar. Hver er
fanturinn, sem hefir svift hana vitinu?
Vitið þér, hver það er?«
Kjöt og slátur
á máuudaginn kemur í verzl.
Jóns Þórðarsonar.
Föstudaginn 23. þ. m. tapaðist
kvenngalosja frá Hafnarstræti upp
til Jóns |>órðarsonar. Skila má í af-
greiðslu ísafoldar. ___________
,Aldan4
Pundur næstkomandi miðvikudag á
vanalegum stað og tíma. Allir félags-
menn beðnir að mæta.
S t j ó r n i n.
Uppboðsanglýsing.
Eftir kröfu kaupmanns og kaupfé-
lagsstjóra Skúla Thoroddsen á ísafirði
og að undangengnu fjáraámi verður
huseign Guðmundar skipasmiðs Guð-
mundssonar, virðingarnr. 68 hér í
kaupstaðnum, boðin upp við 3 opinber
uppboð, er haldinn verða laugardagana
22. desbr. þ. á. 12. og 26. janúar 1901
til lúkníngar dómsskuld, að upphæð
2953 kr. 21 eyri og áföllnum kostnaði;
tvö hin fyrstu uppboð verða haldin
á skrifstofu bæjarfógeta, en hið 3. við
húseignina. Á þriðja uppboðinu verða
ennfremur seldar nokkrar útistandandi
skuldir, ýms stofugögn og aðrir munir.
Á húseigninni hvíla þessar þinglesn-
ar, óaflýstar veðskuldir :
með öðrum veðrótti til Guðm. Árna-
sonar á Nauteyri kr. 135,
með 1. veðrétti til Vilhjálms’ Pálsson.
ar frá Hnífsdal kr. 700,
með 2. veðrótti til Jóns JónBSonar á
Hrauni kr. 800
og verður húseignin því að eins seld,
að bærra boð fáist en veðskuldum
nemur.
Uppboðin byrja kl. 11 f. h.ogverða
söluskilmálar lagðir fram á skrifstofu
bæjarfógeta degi fyrir hið fyrsta upp-
boð.
Bæjarfógetinn á ísafirði, 7. nóv. 1900.
H- Hafstein
Gráhryssa 2 vetra með mark:
heilrifa hægra, er í óskilum í þormóðs-
dal.
Jörðin Bjarnarhöfn í Snæfells-
nessýslu fæst til kaups og ábúðar í
næstkomandi fardögum (1901). Gangi
ekki saman með kaupin, fæst jörðin
eigi að síður til ábúðar. Semja verð-
ur um kaup og ábúð við Stefáu Bene-
diktsson í Bjarnarhöfn, helzt Sem
fyrst-
Uppboðsauglýsing.
ViS opinbert uppboð, er haldið verð-
ur á Garðskaga í Rosmhvalaneshreppi
fimtudaginn hinn 6. desbr. næstk.,
verða seldir ýmsir munir frá botn-
vörpuskipinu »SpanieI» frá Hull, er
þar strandaði síðastl. sumar, svo sem
keðjur o. fl. Uppboðið byrjar kl. 12
á hádegi og veröa söluskilmálar þá
birtir.
Skrifst. Kjósar- ogGullbr.s. 20.nóv.l900.
Páll Einarsson-
Pað er alkunnugt meðal skipstjóra
hér við Faxaflóa, að kompásarnir
í fiskiskipunum, því nær öllum
hér, eru að meira eða minna leyti
óáreiðanlegir sökum segulvillu (Devi- .
ation), er orsakast af járni i skipuDum.
Til þess að koma í veg fyrir hættu
þá, er segulvillan getur haft í för með
sér, leyfir undirskrifaður sér að bjóð-
ast til þess, að rannsaka villuna á
hverju skipi og búa til töflu (o: Devia-
tionstabel), er sýuir, hve mikil hún or
fyrir hvert einstakt strik á kompásn-
um.
j?eir útgerðarmenn eða skipstjórar,
sem kynnu að vilja sinna þessu til-
boði fyrir næstkomandi vertíð, bið eg
að geri mér sem fyrst viðvart um
það, eða Hjalta skipstjóra Jónssyni í
Reykjavík.
Aug. Flygenring.
TAPAST hefir á síðastliðnu sumri
rauðskjóttur fóli 4 vetra, taumvanur, gæfur,
vakur, með miklu faxi, taglskeltur, og
skorið innan úr taglinu; mark: standfjöður
fr. vinstra, (kannske óglögt). Foli þessi er
á síðastliðnu vori fenginn af suðurlandi
Hver sem hitta kynni fola þennan er beð-
inn að gera sem fyrit aðvart Goðna Guðna-
syni á Keldum i Mosfellssveit, eða eiganda
folans Gísla Jónssyni i Stóradal í Húna-
vatnssýslu.
Tombóla
kristilegs íélags ungra stúlkna
byrjar í kvöld kl. 5 og verður í dag
og ó morgun. Góðir drættir. Gagn-
legir munir. Núllalaus barna-
kassi-
Tombólan stendur frá 5—7, 8—10
í dag og á sama tíma á morgun.
Fr. Fr.
porbjörn pórðarson stud. med.
óskar eftir einu herhergi til leigu í
2 mánuði: desember og janúar, helzt í
austurbænum.
Húsgögn verða að fylgja-
Með því eg hef heyrt víða utan
úr bæ, að eg ætti að vera veikur af
skarlatssótt, vil eg tilkynna heiðruð-
um almenningi, að það er tilhæfulaus
ósannindi, eins og meðfylgjandi vottorð
sannar.
Reykjavík 16. nóv. 1900.
Reinh. lAndcrson.
Veiki bú sem skraddari Reinh. And-
erson hefir verið lasinn af nú um
tíma, er ekki skarlatssótt; það vott-
ast hér með.
Reykjavík 16. nóv. 1900.
Guðm. Magnússon
læknir.
Ritstjórar: Björn Jónsson(út,g.og ábm.)og
Einar Hjörleifsson.
Isaf o! darprcntsmiðj a.