Ísafold - 19.01.1901, Page 1
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin vift
áramót, ógild nema komin sé til
átgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
Reykjavík laugardaginn 19. janúar. 1901.
4. blað.
Biðjið ætíð um
OTTO M0NSTEDS
DANSKA SMJ0RLIKI, sem er nlveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og
smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað
hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin.
Fæst hjá kaupmönnunum.
TCernur ut ýmist einu sinni eða
tvisv. í viku. Verð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l‘/s doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
XXVIII. árg.
I. 0. 0. F. 82l258‘/a. I._____________
Forngripasafnid opið mvd. og ld. 11 —12
Lanasbókasafn opið hvern virkau dag
kl. 12 — 2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
md., mvd og Id. til ntlána.
Okeypis lækning á spitalanmn á þriðjud.
og föstud. kl. 11—1
Ókeypis augnlækning á spitalanum
fyrsta og þriðja þriðjud. iivers mánaðar
kl. 11 — 1.
Ókeypis tannlækning í húsi Jóns Sveins-
sonar hjá kirkjunni 1. og 3 mánud. hvers
mán. kl. 11—1.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
ki. 11—2. Rankastjórn við kl. 12—1.
Presturinn-
Fresturinn er eini boðskapurinn,
sem afturhaldaliðið beíir að flytja.
Hið eina, sem mönnum hugkvæmist í
þeim hópi, er að bíða, — slá því á frest,
sem 088 liggur lífið á að gert sé.
Allar þjóðir, nema vér íslendingar,
róa lífróður, ganga með lífið í lúkun-
um af ótta við það, að aðrir fari fram
úr þeim t binu og öðru, sem sízt
skyldi. Með því einu móti, að neyta
allra krafta í framsóknarbaráttunni,
þykjast þær geta hnignuninni varist,
þeirri hnignun, sem óhjákvæmilega
leiðir af því, að dragast aftur'úr.
En vér eigum að láta oss fara fram
með því að slá brýnustu nauðsynja-
málum vorum á fresb — eftir þeim
boÓ8kap, sem afturhaldsliðið flytur.
Svo ólíkt öllum öðrum mannlegum
verum er oss farið, eftir því sem spek-
ingarnir þeim megin þykjast gera sér
í hugarlund.
þegar oss loks er boðin stjórnarbót,
mikilsverðar umbætur á stjórnarfarinu,
þá eigum vér ekki að þiggja hana,
heldur bíða eftir einhverju öðru. Með-
an vér fengum ekkert annað en a£-
svar, máttum vér ekki láta kröfunum
linna. En þegar farið er að bjóða oss
ákveðin og góð boð, þá eigum vér
ekkert annað að gera en leggja málið
á hilluna um óákveðinn tíma.
þetta kannast þeir við, afturhalds-
kapparnir, þegar þeir fá ekki undan
því komÍ3t. þjóðólfsmaðurinn kannað-
istvið það á kjörfundi Árnesinga, »eft-
ir nokkurn vafningn. Alt af öðru
hvoru má lesa þetta út úr málgagni
hans. Öll ummæli þeirra afturhalds-
manna, er kosningu hafa náð, benda
i sömu áttina. Rausið um alinnienda
stjórn, sem vér getum fengið, veit
hvert mannsbarn á landinu, að er eb k-
ert annað en hégómi. Hver trúir því,
að H. f>., Tr. G. og L. H. Bj. muni
útvega 088 alinnlenda stjórn? því
trúir vitanlega enginn maður — ekki
einu sinni allra einföldustu Húnvetn-
ingarnir, þeir er kjósa Vídalíns-liða á
þing í því skyni, að Vídalín skuli ekki
verða ráðgjafi, og skrifa í þjóðólf.
Fresturinn einn vakit fyrir þeim, þetta,
að tefja svo lengi, sem unt er fyrir
breytingum á stjórnarfarinu.
Alveg eins er því háttað, sem aft-
urhaldsliðið leggur til annarra nauð-
synjamála vorra. Hvernig taka þeir
mepin í bankamálið? þjóðin kemst
ekkert áfram fyrir peningaleysi. Svo
býðst henni öflug peningaatofnun. En
vér megum ekki fyrir nokkurn mun
þigsja hana. þegar ekki er reynt
beinlínis að telja oss trú um, að vér
séum þeir skrælingjar, að peningar séu
voði fyrir oss, þá er því haldið að
oss, að vér verðum að bíða eftir ein-
hverjum nýjum bappakjörum, slá þvf
áfrest, að afla þjóðinni peninga, þang-
að til vér getum sjálfir stofnað banka
með öllum þeim miljónum, sem oss
vanhagar um. Auðvitað fara þeir
nærn um það, hvað úr slíku muni
verða. þeir koma að eins orðum að
einu hugsjóninni, sem fyrir þeim vak-
ir, á þennan hátt, — þeirri hugsjón, að
draga nauðsynjamál þjóðar vorrar á
langinn. |>að er eins og vér eigum
að bæta úr peningaþörfinni tilfinnan-
legu með því að hafnaeinu peníngun-
um, sem oss bjóðast.
Eða þá þriðja stórmálið, ritsíminn.
þegar vór fórum loksins að geta gert
08s vonir um, að^bætt yrði úr einangr-
un þjóðar vorrar með ritsímasambandi
við önnur lönd og milli sveitanna hér
á landi — auðvitað með því skilyrði,
að vér leggjum sjálfir fram hæfilega
mikið til þeirra stórkostlegu umbóta
— ,þá vill afturhaldsliðið kenna oss
að bæta úr einangruninni með því, að
hafna ritsímanum, bíða eftir honum
þangað til vér þurfum engu til hans
að kosta.
Og nokkuð af landsmönnum lætur
fleka8t af þessum kenningum um fresc
á brýnustu nauðsynjamálum vorum.
Og í raun Og veru er það ekkí nema
eðlilegt. Eftir allan sveíninn eiga
menn örðugt að átta sig á því, að
nokkuð geri verulega til, hvort vér
vöknum og tökum til starfa einum
áratugnum fyr eða síðar.
En það gerir oss óumræðilega mik-
ið til — ekki að eins hver áratugur
inn, sem framförunum er frestað, heldur
og hvi-rt árið. Væri unt, að koma
fullum og ljósum skilningi á því at-
riði inn 1 huga allrar þjóðarinnar, þá
létu færri flekast en nú gera. |>á yrði
ekki unt að fleka nokkurn heilvita
mann 1 þessu efni. f>á afsegði þjóðin
með öllu að láta framfarirnar dragast
— alveg eins og menn afsegja, að láta
borga sér 100 kr. skuld með 25 kr.
einum, þegar nóg ráð eru til að ná
skuldinni allri.
því að framar öllu öðru er frestur
framfaranna féfletting á þjóðinni, fó-
fletting, sem nemur ógrvnnum fjár.
f>að er bæði ilt og broslegt, þegar
verið er að rífast út af svo sem 2—
300 kr. »bitling«, en menn sætta sig
jafnframt við það að láta hafa af
þjóðinni svo nemur tugum og hundr-
uðum þúsunda árlega með því að draga
framfaramál hennar á langinn.
Virðum hú stuttlega fyrir oss eitt
af nauðsynjamálum þjóðarinnar að
eins — bankamálið — og athugum,
hvort á sama muni standa, hvort því
verður framgengt einu árinu fyr eða
seinna.
Mundi Reykjavíkurbúum t. d. eiga
að liggja það í litlu rúmi.
Fráleitt er of mikið í lagC, þó að
ráð sé fyrir því gert, að þilskipum hér
fjölgi um 10 fyrsta árið, sem bæjar-
búar eiga kost á nægum peningum.
f>au veita 200 manna atvinnu; með
skylduliði þeirra verður það um 700
tnanna. Fólkið í bænutn mundi þá
fjölga um þetta fyrsta árið.
Fyrir bragið mundi þurfa að reisa
húsnæði handa svo sem 120 fjölskyld-
um, og virðist láta nærri, að innlend
verkalaun við þá húsagerð mundi
nema 100,000 krónum. f>ví yrði sam-
fara verðhækkun á bæjarlóðum, sem
mundi nema 10—20 þúsund kr.
Getur nokkurum heilvita manni
staðið á sama, hvort aðrar eins breyt-
ingar koma áriuu — að vér ekki nefn-
um áratugum — fyr eða síðar.
Og þó — þó er alkunnugt, að
Reykjavík stendur töluvert betur að
vígi með peningahjálp að láui o. s.
frv. en önnur kauptún landsins. Hve
mega þau þá eigi þrá banka! Svo
ónógur sem landsbankinn er og smá-
gerður í alla staði, þá hefir hann átt
drjúgan þátt í hinum mikla vexti og
viðgangi höfuðstaðarins síðasta áratug
hinnar nýliðnu aldar. En vitaskuld
mundi almennilega öflugur banki hafa
útibú víðsvegar um land, í helztu
kaup8töðunum.
Eða st -.ndur á sama, hvort það er
árinu fyr eða síðar, að allur saltfiskur
hér við flóann yrði keyptur fyrir pen-
inga? Kunnugir menn gizka á, að
hagnaðurinn af þeirri breytingu mundi
nema um 90,000 kr. um árið. Eða
stendur á sama, hvort það er árinu
fyr eða síðar, að farið verður að gjalda
öllum sjómönnum hér við flóann kaup
þeirra i peningum ?
Vafalaust yrði J hluti verzlunar
innar hér í Reykjavík rekinn fyrir lán,
sem fengjust hér á staðnum án miili-
göngumanna, ef hér væri komin öflug
peningastofnun. Við það mundu spar-
ast að minsta kosti 4°/0 af þessum
þriðjungi verzlunarinnar, eða 24,000
kr.-á ári. Stendur á sama, hvort sú
breyting verður árinu fyr eða árinu
síðar ?
Lítum vér nú út fyrir Reykjavíkur-
nágrennið á landbúnaðinn einan, þá
verða jarðabæturnar fyrst fyrir oss.
Jarðabótadagsverkin eru nú um 60,000
á ári. f>egar landsmenn eru farnir
að eiga kost á peningum, virðist ekkj
of mikið 1 lagt, að búast við, að þau
muni tvöfaldast — verða 120 þús. á
ári. Samkvæmt því, sem reyndur og
góður búmaður skýrir frá í ísafold f
síðustu viku, ætti ágóðinn af þeirri
viðbót að nema 36 þús. kr. Stendur
landsmönnnm á sama, hvort sá ágóði
kemur árinu fyr eða síðar?
Kæmi öflug peningastofnun upp í
landinu, má gera ráð fyrir, að víða
til sveita mundu verða stofnuð láns-
félög. f>eim yrði miklu hægra fyrir,
að fá fé að láni en mörgum einstök-
um mönnum, og þau lánuðu svo aftur
mönnum í sveitinni, sumpart til
jarðabóta, sumpart — og engu síður —
til þess að auka bústofn á jörðunum,
sem víða er svo lítill, að engin von
er til, að bændur geti lifað sómasam-
lega á þeim fyrir þá sök eina. f>au
gætu og veitt mönnum lán til að
koma ull sinni í klæðaverksmiðjur, í
stað þess að selja hana óunna.
Bændur, sem það hafa reynt, segjaat
hafa einnar krónu ágóða af hverju
ullarpundi. — Ssepnur mundu hækka í
verði að miklum mun, bæði fyrir það,
að þær verða arðsamari, og jafnframt
vegna hins, að fé verður fyrir hendi
til þess að kaupa þær. Stendur
mönnum á sama, hvort þessi breyting
verður árinu fyr eða síðar?
Kaupstaðarhús og jarðir á landinu
hlytu að hækka í verði, jafnskjótt
sem hér væri komin peningastofnun,
sem alt af hefði peninga á boðstólum.
Ekki virðist fjarri sönnu, að gera ráð
fyrir, að sú verðhækkun mundi nema
5°/0. Með öðrum orðum: fasteignir
landsmanna mundu hækka í verði um
750,000 kr. f>að mun nú standa á
sama, hvort það verður árinu fyr eða
síðar ?
petta eru ekki nema litlar bending-
ar. En þær ættu að uægja til þess, að
vekja hjá mönnum nokkura hugsun um
það, hve þarfir þeir menu muni vera
þjóðinni, sem leggja kapp á það eitt,
að fá hana til að fresta nauðsynja-
málum sínum. f>að er átakanlegur
vottur um hugsunar- og athugaleysi
manna, að unt skuli vera að fleka þá
til að sinna öðrum eins kenningum —
að ekki skuli vera öllum mannlegum
kröftum ofvaxið að fá nokkurn hluta
þjóðarinnar til þess að berjast hnúum
og hnefum gegn jafn-auðsæjum hags-
munum sjálfra sín eins og þeim, að
hraða af alefli framgangi nauðsynja
mála sinna.
íraun og veru eruekki ótrúlegri skrök-
sögur til í f>jóðsögum vorum og f>ús-
und og einni nótt. En það er lfka
útlenc máltæki, að sannir viðburðir
séu oft skáldskapnum ótrúlegri.
Laust brauð.
Hof á Skagaströnd í Húnavatns-
prófastsdæmi (Hofs og Spákonufel! -
sóknir). Metið 967 kr, 01 e.; þar í er
fólgið árgjald frá landssjóði, 300 kr.,