Ísafold - 09.02.1901, Blaðsíða 2
30
og er jafnan á varðbergi, hvenær
setn nýir 8ölu-örðugleikar koma upp.
Og skilyrðið fyrir því, að úr pen-
ingaleysinu rætist, er öflug peninga-
stofnun í landinu.
Eéttlætið í heiminum.
[Frakkastjórn tók það óyndisúrræði i
vetar, að fá löggleidda appgjöf saka —
rannsóknarlaust og dómlaust yfirleitt — við
alla þá, er voru viðriðnir Dreyfus-mslið
alræmda, alla bófana, æðri og lægri stétt-
ar, er borið höfðu falsvitni í því máli,
dæmt rangláta dóma eða á annan hátt níðst
á sannleika og réttlæti. Þetta átti að vera
gert til þess, að bæla niður allar frekari
ýfingar, misklíð og óróa út af því máli.
En þar með er Alfr. Dreyfus sjálfum fyr-
irmanað að reka réttar sins framar, þ. e.
fá sannað með dómi fallkomið sakleysi sitt,
og eins Picqaart ofarsta, sem fjandmenn
Dreyfus höfðu gert að ljúgvott og mein-
særismanni fyrir það, að hann bar vitni
sannleikanum Dreyfus til bjargar; og mót-
mæltu þeir báðir fastlega þessu nýmæli, og
álikt hið sama gerði Emile Zola, skáldið
mikla, sem drengilegast hefir tekið svari
Dreyfus alla tíð. — Út af þessu máli reit
dr. Georg Brandfes eftirfarandi hug-
vekju í »Politiken« núna skömmu eftir ný-
árið.]
Undir árslokin síðusfcu var framinn
glæpur sá, á Frakklandi, er nefndur er
uppgjöf saka á stjórngarpamáli, og svo
komu fram öflugu^unótmælin gegn
henni, 22. des. frá Zola, 28. des. frá
Picquart og Dreyfus.
Væri ekki svo ástatt í Norðurálfunni,
að menn mundi furða langtum meira
á því, að sjá réttlætisverk unnið, en á
hinu, að horfa á nýja, gífurlega rangs-
leitni, þá mundí ekki alþýða manna
láta sér þetta liggja í létturúmi. En
réttlætistilfínningin er sljó með nútíð-
armönnum; að öllum jafnaði ofbýður
mönnum ekki rangsleitnin, neraa þeg-
ar þeir verða sjálfir fyrir henni. f>á
▼erður þeim alt í einu Ijóst, sér til
mikillar undrunar, hve ágætt réttlætið
er. |>e88 vegna er það, að það, sem
nú hefir við borið, hefir ekki vakið
nema mjög litla eftirtekt, jafn-afskap-
legt og það er.
Af þessum þremur mótmælum er
minst varið í þau, sem frá Alfred
Dreyfus hafa komið, þó að þau séu
stuttorð og göfugmannleg.
Hið mikla bréf Zola til ríkisforseí-
ans ristir míklu dýpra, er miklu víð-
tækara og snertir mikilsverð frumat-
riði.
Fyrst er þá þetta, sem fremur lítils
er um vert í samanburði við annað,
sem á eftir fer: Zola gerir grein fyr-
ir því, að í byrjun Dreyfusmálsins hafi
hann og vinir hans gert sér glæsileg-
ar vonir. Hér var að ræða um mjög
fágætan atburð, glæp, sem öll aftur-
haldsöfl þjóðarinnar höfðu unnið að,
hervaldið og kirkjuvaldið kaþólska, öll
þau öfl, sem tálma þroska mannkyns-
ins. þ>eir sáu, að þjóðin var leidd af-
vega; þeir gerðu sér von um það, að
á nokkurum mánuðum mundi þeim
takast að fræða hana um það, er gersfc
hefði, gera skilning hennar skýrari,
vekja samvizku hennar, og þá hefðu
þeir unnið meira að þroska hennar en
unt hefði verið að honum að vinna
með 8tjórnmálabarátta heillar aldar.
f>eir treystu afli sannleikans og bjugg-
ust við því, að hann mundi vinna
frægan sigur. |>eir hugsuðu sér, að
réttlætið mundiinnan skamms setjast í
öndvegi; að þjóðin, sem þá væri vís
orðin hins sanna, mundi verða upp til
handa og fóta, taka Dreyfus tveim
höndum með mestu fagnaðarlátum,
þegar hann kæmi aftur til Frakklands,
bæta honum meðferðina á allan hugs-
anlegan hátt, reisa réttlætinu altari
og halda hátíð í minningu þess, að
rétturinn sólbjartur, einvalaur væri
aftur fenginn.
Svo sem kunnugt er, fór þetta alt
nokkuð á annan veg. Dreyfus var
skotið á land á laun í myrkri og
bleytuslagviðri, og flufctur á laun í fang-
elsi sitt. Svo kom sjónleikurinn
blygðunarlausi í Eennes, sem lauk á
þann hátt, að saklaus maðuriun, sem
æðsti dómstóll ríkisins hafði sýknað,
var affcur dæmdur sekur með her-
mannadómi og svo náðaður í vitleysu,
til þess að firra landstjórnina verstu
vítum.
Með öðrum orðum: þetta fór eins
og slíkt er vant að fara í veröldinni.
Á þennan hátt á réttlætið að sér að
vinna sigur í raun og veru. Slíkum sigri
á gott málefni að fagna. Hægt kem-
ur hann og þunglamalega, í smásmökk-
um, og aldrai er hann boðaður með
lúðrahljómi. það er alt annað, sem
boðað er með lúðrahljómi, fæðing kon-
ungssona og keisara, ríkistaka kon-
unga, sigur hundrað þúsund hermanna
á fjórum þúsundum manna og þes3
háttar.
Óreyndir menn og óþolinmóðir ættu
að láta sér þetta að kenningu verða.
það eitt voru hin mestu býsn, að tak-
ast skyldi að fá manninn aftur frá
Púkey með nokkuru raóti. þeir, sem
bjuggust við meiru jafnframt, komu
því upp um sig, að þeim er ókunnugfc
um, hvernig rás viðburðanna hagar
sér hér í heimi.
Til þess að binda enda á þá æsing
sem afleiðingar Dreyfusmálsins valda
á Frakklandi, hefir stjórnin þá fengið
neðri málstofuna er vera mun hið ves-
almannlegasta þing, sem nokkuru
sinni hefir til verið á Frakklandi síð-
an er lýðveldið var stofnað, til að fall-
ast á, að öll málaferli, er af D eyfus-
málinu stafa, skuli kveðin niður, í því
skyni, að ekki skuli verða unt að
draga fram í dagsbirtuna og sanna
hina mörgu stórglæpi, sem æðstu
menn þjóðarinnar hafa gjört sig seka í.
Zola spáir því, að þessi tilraun
muni mistakasfc. Hann hyggur, að
ekki sé unt að kæfa sannleikann og
myrða réttlætið. Hann heldur, að
þegar búið sé að jarða sannleikann,
muni hann vakna, fara að brölta niðri
í jörðinni, rísa upp, hrópa, vekja berg-
mál eins og þruma. Hann veit ekki,
úr bverri átt þetta ofviðri sannleikans
muni koma; en hitfc veifc hann, að það
muni vera í vændum, og að þá muni
gremja frönsku þjóðarinnar snúast
gegn þeim mönnum, er drýgt hafi
þann glæp, að »gefa upp sakir« vönd-
uðum mönnum eins og honum og
Picquarfc jafnhliða landráðamönnum
eins og Esterhazy og skjalafölsurum
eins og Mercier. Og nú eins og áður
lætur hann uppi ótta sinn við þá sví-
virðing, er Frakkar muni verða fyrir,
þegar stjórn þjóðverja þyki hentugur
tími til þess kominn, að sýna, hvernig
í öllu liggur og meðal annars birta á
prenti allan þann haug af skýrslum
frá Esterhazy, setn geymdar eru í
skjalasafní hermálastjórnarinnar í
Berlín.
En úr því að stjórnin þýzka hefir
ekki gert það hingað til, þá er naum-
ast hætt við öðru en að hún saltí þær,
þangað til engum gerir neitt til fram-
ar, þó að þær séu birtar. En eins
og menn sjá, er öll rökfærsla Zola
bygð á þeirri hugmynd, að Waldeck-
Rousseau og hans mönnum muni
befnast fyrir þá rangsleitni, sem þeir
hafa nú í frammi; því að hún sé jafn-
heimskuleg eins og hún sé fjarri því,
að henni verði bót mælt frá siðferðis-
legu sjónarmiði. Hann getur, með
öðrum orðum, ekki varist þeirri trúar-
og siðgæðishugsun, sem lamið hefir
vérið inn í hann, að sannleikurinn og
rétfclætið hljóti áð eiga sigri að hrósa,
þrátit fyrir alt og alt, og að rangsleifcn-
in muni koina mönnUm í koll á til-
finnanlegasta hátt. — Betur að svo
væri! verður hver sá að segja, sem
kennir í brjósti um þá, er fyrir rang-
sleitni hafa orðið. En er þessi trú
annað en kredda, sem ekki hefir
reynst eiga víð neitt að styðjast? Sýn-
ir mannkynssagan, að þessu sé svona
farió í raun og veru? Eða réttara
sagt: sýnir hún það ekki því að eins,
að einn viðburðaliðurinn sé af handa
hófi slitinn út úr sambandinu og gerð-
ur að afbroti, annar liður viðburðanna
só svo gerður að hegningu, og þeir
svo skeyttir saman af einberu gjör-
ræði?
Lítum á mannkynssöguna! Títus
lagði Júdeu undir sig árið 70, Gvð-
ingar voru saxaðir niður og krossfest-
ir þúsundum saman; ein miljón og
hundrað þúsundir manna fórust, þeg-
ar Jerúsalem ein var unnin; síðustu
Gyðingauppreistinni lauk árið 135 með
manndrápum, þar sem bálf miljón
manna lézt, og þjóðin tvístraðist út
um heiminn. þetta telja guðfræðing-
arnir hegningu fyrir þá hlutdeild, er
Gyðingar áttu mörgum áratugum áð-
ur í krossfesting Krists, þó að öll
mannleg líkindi mæli með því, að
þeim kynslóðum, sem fyrir bölinu
urðu, hafi verið með öllu ókunnugt
um hana.
Karl VII. Frakkakonungur gerði
ekki minstu tilraun til að bjarga Je-
anne d’Arc, — meynni frá Orleans —
sem hafði yfirgefið hann vegna and-
stygðar á lítilmensku hans, bauð ekki
einu sinni lausnargjald fyrir hana;
franskur biskup, Pierre Cauehon, sótti
hið níðinglega mál gegn henni og léfc
brenna hana kvika á báli. Mjög er
örðugt að finna hvar hegningin fyrir
þann glæp hefir fram komið. Frakk-
ar voru ekki brendir, né heldur tvístr-
uðust þeír út um veröldina, og Eng-
Iendingar ekki heldur, þó að þeir ættu
upptökin að því, að mærin var dæmd
til að brennast á báli. Hér verðum
vér að spyrja: Hvar er hegningin? Eins
er þessu farið á vorum dögum; lýð-
veldin í Suðurafríku bera lægra hlut
og sjálfsforræði þeirra er niður brotið.
Finnar eru þjakaðir og þjóðmenning
þeirra hnekt með ofbeldi. Hvað hafa
þessar þjóðir til unnið?
Menn komast ekki langr, með sið-
ferðislega skilningnum á rás viðburð-
anna í mannkynssögunni.
Bréf Picquarts hersis tilfranskaráða-
neytisforsetans bsr vitni um göfugmann-
legan hugsunarhátt......... Síðast í
bréfi sínu heldur hann því fram, að
sfcjórnin hafi talið sór eínn kost nauð-
ugan, að gefa upp sakir verstu fjand-
mönnum þjóðarinnar vegna þess, að
annars hefði hún orðið að hegna helzt
of miklum stórmennum fyrir helzti
hroðalega glæpi, Og jafnframt, segir
hann, eru öll fangelsin full af mönn-
um, sem hafa það mest til saka unn-
ið, að þeir hafa ekkert á að lifa!
Hér minnisfc Picquart á mjög veru-
legt atriði og mótmæli hans risfca hér
dýpra en mótmæli Zola. Hvað sem
þvl líður, hvort segja má yfirleitt, að
sannleikurinn komist upp svo snemma,
að þeir bíði halla af, sem hafa afneit-
að honum, þá er það alveg áreiðan-
lega frámunalega hæfctulegt atferli, að
láfca verstu þorparana í æðri stéttum
þjóðfélagsins sleppa óhegnda, af því
að menn þora ekki til við þá, en beita
jafnframt grimmilegustu refsingum við
mannræfla fyrir yfirsjónir, sem hæfi-
legt væri að hegna fyrir með einum
löðrungi. Hérna um daginn dæmdi
hæstiróttur í Kaupmannahöfn pilfc einn
í þriggja ára, h"gningarhússvist; hann
hafði stolið pípu og einum stívelum,
85 aura virði, og tafarlaust fengið sór
í staupinu fyrir þá fjárhæð; getið var
þess í dómnum, að hann hefði aukið
ávirðing sína með því að óhl/ðnast lög-
regluskipan um að forðast gamla unn-
ustu sína(!).
Siðgæði og réttlæti þjóðfélagsins á
Frakklandi er eins farið og í Dan-
mörk, að þvi, er fcil smælingjanna
kemur. Og þegar svo jafnframt au-
virðilegustu þorparar, Bem heyra hin-
um æðri stéttum til, aðrir eina menn
og Mercier og Esterhazy á Frafeklandi
— í Danmörk nefnum vér enga —,
eiga fullkominni sýknu að fagna, þríf-
ast jafnvel ágætlega og hljóta umbun
gjörða sinna, þá kemur óneitanlega sú
spurning fram í hugum matina, hve
lengi múgurinn, sem maunflestur er,
hvað sem öðru líður, murti una þessu.
Franska stjórnin, sem áreiðanlega
er að miklu leyti skipuð vönduðum
mönnum, færir sér eitt atriði til máls-
bóta. Hún heldur því fram, að nauð-
syn beri til að vernda Picquarfc fyrir
sjálfum sér. Hún fullyrðir, að fyrir
hverjum hermannadómi á Frakk-
landi yrði hann dæmdur sekur af nýju.
Svo er ofstækin megn og hatrið. . . .
Auðvitað er það ávalt málsbætur
fyrir hverja stjórn, er hún verður að
segja við sjálfa sig, að mennirnir, sem
hún á §ð tefla með, séu hraklegri en
8VO, að unt sé að nota þá til þess að
styðja sannleikann og réttlætið ....
En samt stoðar sú afsökun ekki. (Af-
sakanir stoða yfirleitt ekki). Sá, sem
ætlar sér að stjórna öðrum, getur ekki
farið eftir neinni annarri reglu en
þeirri að efla réttlætið og leiða sann-
leikann í ljós svo ósleitiluga, að undr-
an og ótta slái á illþýðið. Bíði hann
ósigur, þá fellur hann með sæmd. En
með þessu atferli sínu hefir frönsku
stjórninni ekkert annað tekist en að
spilla frönsku þjóðinni og gera hana
enn ruglaðri en áður.
Jardræktarfélag
Rey kj avíkur.
Það hélt ársfund sinn 28. f. m.
Uunar jarðabætur síðastliðið ár voru
framt að 3200 dagsv. Sléttaðar höfðu
verið 20 dagsláttur. Fólagið átti í sjóði
1 árslokin 1193 kr., auk geymsluskúrs
og áhalda. Félagar eru 82 að tölu.
Úr fólagssjóði hafði verið varið tæpum
600 kr. til að styrkja menn til jarða-
bóta, auk þess sem áhöld fólagsins voru
lánuð ókeypis.
Flest dagsvcrk höfðu unnið á liðnu
ári: W. Ó. Breiðfjörð kaupmaður 485,
Sturla Jónsson kaupmaður 322, H.
Anderseu klæðsali 312, Gróðrarstöðin
261, Kr. Þorgrímsson kaupniaður 143,
landlæknir dr. J. Jónassen 138, Þorleif-
ur J. Jónsson í Mjóstræti 97, Þórhallur
Bjarnarson lector 90, Jóhannes Nordal
ishfisráðsmaður 79, Vilhjálmur Bjarnar-
son á Rauðará 68, Jón Tómasson á
Grimsstaðaholti 63, Benedikt Jónsson
verzlunarmaður 56 og Bojsen dróttstjóri
54.
Samþykt var að verja mætti á árinu
50 kr. til uppörfunar plæging og herf-
ingu og 600 kr. til vinnustyrks með öll-
ura sömu skilyrðum og síðastliðið ár.
Þar sem fáeinir félagsmenn höfðu eigi
getað orðið aðnjótandi vinnustyrks-
ins á liðnu ári, var heimiluð útborgun
hans þ. á., ef þeir þá fullnægðu styrk-
skilyrðunum. Aðstoð búfræðings til
hallamælinga og áætlana skyldi áfram
veitt með styrk úr fólagssjóði.
Fólagið gjörðist meðlimur Búnaðarfé-
lags íslands.
Starfsmenn félagsins voru allir endur-
kosnir, i stjórnina lektor Þórhallur
Bjarnarson (form.), docent Eiríkur Briem
(skrifari), bankagjaldkeri Halldór Jóns-