Ísafold - 02.03.1901, Síða 3
47
Aldamóta^arðurimi.
Sacoþyk var á aukafundi í Jarð-
ræktarfélagi Beykjavíkur 25. f. mán.
með öllum þorra atkvæða svofeld fram-
faravænleg tillaga :
1. Jarðræktarfélag Reykjavíkur gef-
ur í aldamótaminningu 600 kr. af
sjóði sínum til að girða 6 dagslátta
svæði, ætlað til matjurtaræktar og á
sínum tíma til stuðnings efnalitlum
bæjarmönnum, sem verjast sveit.
2. Stofnunin á sig sjálf; en leggist
hún niður, er landið með mannvirkj-
um eign Reykjavíkurbæjar. Forstað-
an skal skipuð 3 mönnum, er skifta
verkum með sér; kýs stjórn Jarðrækt
arfélagsins, bæjarins og Búnað-
arfélags Islands sín hvern manninn.
Skýrslur og reikninga stofnunarinnar
ska! í byrjun hvers árs leggja fyrir
bæjarstjórnina til athugunar.
3. Girta svæðið skal undirbúið til
góðs sáðgarðs, svo fljótt sem má, með
vinnu þeirra manna, sem eru þurfandi
sveitarstyrks.
Askotnist 8tofnuninni fó með gjöf
um einstakra manna eða félaga, skai
því varið til að flýta fyrir ræktuninni.
f>egar landið fer að verða arðberandi,
skal öllum nytjum og arði varið semhag-
anlegast tiláframhaldandi atvinnuefna-
litlumbæjarmönnum,er verjast sveit, og
er forstöðunefnd stofnunarinnar skylt
aðleita ráða hjábæjarstjórninni og Jarð-
ræktarfélaginu um nánari ráðstafanir
á meðferð landsins. þegar laadið er
ræktað, má selja það, só þá um eið
tekið jafnstórt nýtt land til ræktunar.
4. Ákvæðum þessum má eigi breyta,
nema bæði bæjarstjórnin og Jarðrækt
arfélagið samþykki.
Bæjarstjórn Ryíkur.
|>að gerðist helzt á síðasta bæjar-
stjórnarfundi 21. f. mán., að gengið
var að Aldamótsgarðstilboði Jarðrækt-
arfélagsins — bæði heitið landi undir
garðinn eftirgjaldslaust og þurfamanna-
vinnu, eftir því sem fært þætti.
|>á var vísað til athugunar fjárhags-
uefndar máliuu um ómagakostnaðar-
skiftingu milli Reykjavíkur og Sel-
tjarnarneshrepps út af því, er Laug-
arnes og Kleppur lagðist undir bæinn
fyrir 6 árum.
Ekki þótti þörf að kjósa mann í
veganefnd í fjarveru Sig. Thoroddsen
nokkurar vikur.
Rannveígu á Bakka heitið 50 kr.
styrk til varuargarðs íyrir lóð hennar.
Tveim vegarbeiðnum vísað til vega-
nefndar.
Samþyktar fáeinar brunabótavirð-
ingar: íbúðarhús Sveins Eiríkssonar
trésmiðs við Brborgarstíg 5282 kr.;
viðbót vestur úr húsi H. Andersens
skraddara 4690 kr.; hús Ólafs Gunn-
laugssonar járnsmiðs 1755.
Laust brauð.
Staðastaður (Staðastaðar og Búða
sóknir) í Snæfellsnessprófastsdæmi.
Metið 1747 kr. 83 a., að frádregnuár-
gjaldi til landssjóðs 300 kr. Prests-
ekkja er í brauðinu, sem nýtur eftir-
launa af því (eftir fyrra mati) kr.
203,44, samkv. lög. 3. okt. 1884 1.
gr. Yeitist frá fardögum 1901. Aug-
lýst 28. febr. 1901. Umsóknarfrestur
til 12. apríl.
Maður druknaði j
sunnudaginn var, 24. f. mán., af
fiskiþilskipinu Margrethe (skipstj.
Finnur Finnsson) úti við Garðskaga á
innsigling hingað, Kolbeinn Kol-
b e i n s s o n, ungur vaskleikamaður
hér úr bænum, um þrítugt. Ætlaöi
að rifa segl og steyptist yfir um segl-
ásinn, mun hafa lent á öldustokknum
og ef til vill rotast þar, hrökk svo
útbyrðis, en húfan af honum lenti
inn á þilfarinu. Skipinu var snúið
við og reyut að ná manninura, en
hann sökk þegar og skaut eigi upp
aftur.
Mannalát.
Skrifað er ísafold nýlega austan úr
Landeyjum sem hér s-gir:
»Hinn 24. nóv. f. á. andaðist hér
að Vestra-Fíflholti ekkjan þorg<T(’ur
Grímsdóttir, 90 ára; og 29. des. f. á.
í Voðmúlastaða-suðurhjáleigu ekkjan
Guórún Ólafsdóttir, 94 ára. Báðar
voru þessar öldruðu konur vænar og
guðhræddar, vandaðar og vel hugs:
andi. Guðrún sál. var sérstakloga
gestrisin meðan hún »mátti og hét«.
Af fráfalli Sigurðar Benediktasonar
á þúfu, sem getið er uní í 3. tbl. þ.
á., segir sóknarpresturinn þar þetta
ítarlegar eða róttara en þar er gert:
• Sigurður heitinn var við gegningar
2. í jólum og gekk heim að bænum
fjósmegin. En forskáli er þar fyrir
fjósdyrum, sem var illa uppgerður og
ekki regnheldur. Vildi Sig. heitinn,
sem var stakur hirðu- og iðjumaður,
ekki að svo væri, og tók því til að
umbæta skálann, en féll þá mður um
hann og beið bana af þeirri byltu á
3. degi, 28. des. Hann var ekki bú-
andi á f>úfu, heldur húsmaður, kvong-
aður, og 48 ára gamali«.
Maður varð úti eða druhiaði í Leir-
vogum í Mosfellssveit mánud. 11. þ.
mán., á heimleið upp að Víðineei úr
Reykjavík, roskinn maður, þórður að
nafni Sigurðsson; bjó fyrrum austur í
Mýrdal í Reynishverfi. Líkið fanst
viku síðar, 18. þ. mán.
Yíiiisiegt utan úr heimi.
Hann kvað vera að hugsa um að
kvongast aftur, Franz Jósef Aust-
urríkiskeisari, þótt aldraður 3é, sjö-
tugur. Hann misti konu sína fyrir 3
árum rúmum, Elizabst drotningu,
með þeim hörmulega dauðdaga, að
hún var mvrt, lögð með rýting, suður
í Sviss, af óstjórnarliðanum og illmenn-
inu Lucheni. Nú ætiarhann að ganga
að eiga unga leikkonu fræga og for-
kunna^fríða, frú Schratt að nafni.
Hún fór í vetur suður í Róm á fund
páfa og með henni systir keisarafrúar-
innar sál., greifafrú de Trani. Erind-
ið fyrir frú Schratt að fá hjá páfa
skilnað við mann sinn, Kisch barón,
er átt hafði með henni 1 son. Páfi
veitti henni þá bæn, enda studdi
sendiherra Austurríkiskeisara það mál
fastlega, og þóttust menn þá sjá í
hendi sér, hvað til stæðí. Síðan hefir
keisari veitt henni greifafrúrnafnbót—
greifafrú Höchstenberg — og er mælt,
að brúðkaup þeirra muni standa mjög
bráðlega. En drotningartign mun hún
ekki eiga að hljóta.
Ríkíserfinginn í Austurríki, Franz
Ferdinand erkihertogi, bróðursonur
Franz Jósefs keisara, kvæntist og í
fyrra ótiginni konu ungverskri, er
keisari veitti áður greifadóm og kall
aði greifafrú Hohenberg.
Maður er nefndur Murray Hall,
amerískur, og einn af höfðingjum
Tammany-8amkundunnar alræmdu í
NewYork, atkvæðamaður mikill og
vaskur fyrirliði þar um 80 ár. það
komst upp að honum látnum, sem
engan hafði grunað, að þetta var —
kona!
Stúdentaóeirðir miklar urðu fyrir
fám vikum við háskólanní Kiew á Rúss-
landi, og var Kósakkaherlið látið skerast
í leikinn, en í þeirri viðureign féllu 18
stúdentar, en 30 urðu sárir og 200
handteknir.
Svo voru miklir kuldar í vetur um
þorrabyrjun snður á Tyrklandi, að
úlfar gengu þar um bygðir í nágrenn-
inu við Miklagarð og lögðust á menn.
Fanst eitt líkið hálf-etið nærri sumar-
höi! sendiherrans brezka í Miklagarði.
þ>að bar til í vetur fyrir fám vikum
í borginni Gent í Belgíu, að þar var
opnuð leghvelfing til þess að bæta
þar við kistu með líki nýdáins manns
af íólki því, er leghvelfinguna átti.
þ>ar lá þá á neðsta þrepinu niður í
jaröhvelfinguna beinagrind ungrar
stúlku, er þar hat'ði jarðsett verið fyr-
ir nokkurum árum, en ki.sta hennar
opin á sínum stað ÍDnar í hvelfiDg-
unni. Hún hafði sýnilega verið kvik-
sett, og sprengt af sér kistulokið, er
hún raknaði við, en ekki heyrst köl!
hennar, og orðið loks hungurmorða.
Uppreisuarófriður í Venezúela í Ame-
ríku. Beið stjórnarliðjð mikinn ósigur
í öndverðnm f. mán. og féllu mörg
hundruð manua.
Brúðkaupshátíð Vilhelmínu Hol-
landsdrotningar og Hinríks hertoga af
Mecklenburg-Schwerin var haldín í f.
mán. í Haag og stóð fulla viku. Sam-
an voru brúðhjónin gefin fimtudag 7.
f. mán., með tvennu móti, fyrst í að-
seturshöll drotningar af veraldlegu yf-
irvaldi, dómsmálaráðherranum, en síð-
an í höfuðkirkju borgarinnar af hirð-
presti drotningar. Hún hét að vera
hlýðin manni sínum," en ekki að vera
honum fylgisöm hvar sem hann hefð-
ist við; hún hafði verið undanþegin
þeim viðauka með lögum skömmu áð-
ur. Brúðhjónin óku til kirkju í gull-
búnum krýningarvagni drotningar (frá
1898), gjöf frá borginni Amsterdam
og mesta völundarsmíði. Eftir vígsl-
una í kirkjunni var skotið 101 fall-
byssu8koti. Hátt á 4. hundrað saka-
manna veitti drotning uppgjöf á brúð-
kaupsdegi sínum. Hún er á 1. ári
um tvítugt, en maður hennar 4 árum
eldri.
Slys varð mikið í Baku við Svarta-
haf snemma í f. mán. (5.): kviknaði
þar í nafta-birgðum miklum, og brunnu
5 geysistór naftageymsluhús og 10
verksmiðju-stórhýsi. J>ar eru nafta-
brunnar og steinoliu geysimiklir rétt
hjá bænum. Olían rann eins og log-
andi hrauneðja alt í kringum íbúðar-
hús verkmanna og fórust 30 roanna í
eldinum. Skaðinn metinn 6 miljónir
rúfla eða um 17 milj. kr. Um 100 fjöl-
skyldur urðu húsnæðislausar. Mælt
er, að burtrekinn vökumaður hafi vald-
ið voða þessum, kveikt í til hefnda.
Auðkýfingarnir Rothschild áttu nokk-
uð af því, sem brann. — (Ýkt var
fyrst um skaða og manDtjón).
Ráðaneytisskifti á Ítalíu. Atferli
ráðherranna vítt í fullcrúadeild þings-
ins með 318 atkv. gegn 101. Viðþað
báðust þeir lausnar, Saracco yfirráð-
herra og hans félagar. J>etta var 6.
f. máo.
Ekkert hafði sögulegt gerst í ófrið-
inum með Búum og Bretum framund-
ir miðjan f. mán. (febr.), er enskblöð
ná síðast til. Smáorustur og hlaup-
víg, sem áðu^. Brigzl á báðar hendur
um misindisátferli við vopnlausa menn.
Tvo friðarerindreka brezka átti Búa-
hershöfðingi einn að hafa látið skjóta
án dóm8 og laga.
f>ing Breta ætlaði Játvarður kóngur
að helga 14. f. mán., með slíkri viðhöfn,
sem framast gerist. |>að átti móðir
hans heit. ekkert við síðustu 15 árin,
sem hún lifði. Eftir það ætlaði kon-
ungur að taka sér ferð á hendur til
þýzkalands, að heimsækja systur sína
Viktorfu keisaraokkju og svo Vilhjálm
keisara.
Drepsóttir
á
Englandi og’ Skotlandi.
Svo segir í ensku blaði 10. f. mán:
•Brytt hefir á bólusótt eða kýlapest
(svarta dauða) eða hvorutveggja í
borgunum Glasgow, Dundee, fíull og
Cardiff, og veldur yfirvöldum þar mik-
illar áhyggju. Föstudaginn var (8.
febr.) lágu 462 bólusjúklingar í sjúkra-
húsum í Gíasgow.
Til þess að reyna að stemma stigu
fyrir kýlapestinni, hefir bæjarstjórnin
í Cardiff boðió 30 aura (4 d.) verð-
laun fyrir hverja rottu, er veiðist þar
í bænum. f>ær skiíta miljónum þar«.
(f>að er sannað fyrir löngn, að rottur
bera með sér kýlapestina).
f>á segir svo í sama blaðinu á öðrum
stað: »Á fundi heilbrigðisnefndarinnar
í Bristol á þriðjud. (5. febr.) gaf læknir-
inn skýrslu um kýlapestarskipið frá
Smyrna, er þaDgað kom fyrir skemstu
með byggfarm. Rotturnar, sem fund-
ust dauðar í skipinu, reyndust hafa
drepist úr kýlapest, og voru 226 aðr-
ar drepnar. Skýrt var frá, að 114
manna hefðu verið hafðir undir lækn-
isskoðun, en ekki orðið vart við sótt-
ma í þeim neinum«.
I»ilskipavertíðin.
Nú eru þilskipin héðan flest farin út
eða þá að farS. Fáein voru lögð út
fyrir mánaðamót. |>að, sem fyrst fór,
.12. f. m., Swift (skipstj. Hjalti Jóns-
son), hafði fengið á 6. þús. af þorski
fyrir mánaðamótin, mest í Miðnessjó.
Annað, Margrethe, sem manninn misti
fekk þar á 1 degi 1000.
Veðuratliuganir
í Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson.
190 1 Febr. Marz Loftvog millim. Hiti (C.) >• et- ct- <3 cx c § o* œ •ST B JO 15 Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld. 23.8:759,4 2,6 ESE 1 10 3,1 1,6
2 758,9 3,4 E 1 10
9 760,6 1,3 0 10
Sd. 24.8 756,4 -0,3 E 2 7 2,1 -1,0
2 753,5 0,3 E 2 9
9 751,8 0,3 E 2 10
Md.25.8 752,9 -1,1 0 7 -2,0
2 753,1 0,0 0 4
9 753,0 -1,1 0 2
Þd. 26. 8 750,7 -4,4 E 1 3 -5,4
2 749,6 -0.4 E 1 3
9 746,6 0,0 Nw 1 9
Mv.27.8 743,3 0,0 E 2 5 -4,8
2 743,2 -0,3 SSE 2 10
9 743,5 1,0 0 4
Fd.28.8 740,2 0,5 SE 1 6 5,9 -0,7
2 739,3 1,7 SE 1 4
9 738,3 0,3 E 1 7
Fsd. 1.8 735,5 2,7 ESE 2 9 -0,1
2 734,2 2,9 E 2 5
9 730,3 1,0 NE 2 | 4
Bangárvallas. 12. fehr.:
Tíðarfar hefir verið hér í vetnr ómuna-
gott. Mjög litil snjókoma og frost engin
að kalla má. Nú siðastl. hálfan mánuð
hefir verið stiililogn á hverjum degi, og
heiðríkja, en þó svo frostlaust, að eigi
hefir lagt polla um nætur. Slika öndveg-
istið muna varla elztu menn. Er því von-
andi, að hændur hafi nóg hey, og að
skepnur verði i góðu standi í vor.
Heilsufar yfirleitt gott, utan það sem
skarlatssóttin hefir verið að stinga sór
niður á stöku bæ í sumnm hreppum sýsl-
unnar.
Fátt er hér talað um landstjórnarmál
um þessar mundir, en óhætt mun að full"
yrða, að meiri hluti skynbærra og máls-
metandi manna aðhyllist valtýskuna, og
óski að hún fái framgang á fyrsta þingi
20. aldarinnar. Ekki heyrist annað en að