Ísafold - 16.03.1901, Blaðsíða 2
54
Mjólkurbú og rjómabú.
Eftir
Sigurð Sigurðsson.
III.
(Niðurl.)
Um leið og bændur bindast sam-
tökum um, að koma á fóc mjólkur-
eða rjómabúum, þurfa þeir að semja
reglur fyrir félagið, er allir félagsmenn
séu skyldir að fara eftir. f>essar
reglur geta menc haft stuttar eða
langar eftir vild, en það, sem mestu
varðar, er, að þær séu ljósar oggreini-
legar, og kveði skýrt á um öli helztu
atriðin. Ef félagsmenn þurfa að taka
lán til að koma stofnuninni á fót,
þá þarf að taka fram í reglunum,
hvernig ábyrgð lánsins skuli hagað
innanfélags, og greiðslu þess. Sé bú-
ið sameignarmjólkurbú eða rjómabú,
sem er hið æskilegasta, þá fer bezt á
því, að einn ábyrgist fyrir alla og all-
ir fyrir einn. Vexti og afborganir
lánsins greiði félagsmenn eftir þeim
mælikvarða, er þeir koma sér saman
um, t. d. kúafjölda eða kúaeign hvers
einstaks, mjólkurmagDÍ o. s. frv.
Að öðru leyti skal hér ekki farið
frekara út í það, hvernig þessar
reglur eigi að vera; en það eru að
eins fá atriði, er eg vildi sérstaklega
benda á í þessu sambandi, og eg tel
nauðsynlegt að tekin séu fram í regl-
unum:
1., að kveðið sé skýrt á um það,
hvernig fara skuli með flutningaföt-
urnar, og þær þvegnar og hreinsaðar;
2., að ef mjólkin eða rjóminn er
illa útlítandi, óhreinn, súr, o. s. frv.,
þá sé bústýrunni heimilt að senda
föturnar með því, sem í þeim er, heim
aftur til eigandans;
3., að félagsmenn, er eiga þátt í
stofnun búsins, séu skyldir að vera í
því tiltekinn árafjölda, t. d. 3—5 ár
að minsta kosti;
4., að bústýran sé vel vön smjör-
gerð og hafi lært alt, er að því lýtur.
|>að er mjög áríðandi fyrir alla þá,
er hafa í hyggju að stofna mjólkur-
bú eða rjómabú, að leita sér sem beztr-
ar fræðslu þar að lútandi áður en
beir ráðast í að framkvæma það. Mik-
ið betra að fresta byrjuninni um eitt
ár, en að alt eða flest, sem til þess
heyrir, sé í ólagi.
En hver er nú tilgangurinn með
stofnun mjólkurbúa eða rjómabúa?
Hann er og hlýtur að vera aðallega
sá, að fá á þann hátt smjörið betur
verkað, svo að það geti orðið boðleg
vara á mörkuðum erlendis.
Ef það væri ekki, ef eigi væri um
það hugsað, að senda smjörið út, mundi
eg ekki ráða neinum til að leggja í
kostnað til að koma á fót mjólkur-
búum eða rjómabúum/ En það er einmitt
salan á smjöri til útlanda, eða vonin
um hana, sem gerir það óhjákvæmi-
legt, að búin séu stofnuð. J>að er að
vísu ekki einhlítt, að stofna þess kon-
ar samlagsbú til þess að fá betur
verkað smjör; það sjá allir. En mjólk-
urbú og rjómabú standa miklu betur
að vígi að framleiða eða búa til gott
smjör, en hægt er að gera á annan
hátt, ef gætt er tiltekinna skilyrða,
og þau eru þessi:
1. að búið sé stofnað á hagkvæman
hátt og með viðeigandi verkfærum og
áhöldum, er stuðla að því, að smjörið
verður betur verkað;
2. að allir hlutaðeigendur vandi sig
sem bezt í allri meðferð mjólkurinnar
og hafi fullkominn þrifnað í öllu, er
að mjólkurmeðferð lýtur;
3. að bústýran sé vaxin starfi sínu;
og það er hún því að eins, að hún
hafi í fyrsta lagi notið tilsagnar í
meðferð mjólkur og í smjörgjörð og
fengið vottorð um kunnáttu í þeirri
grein, og í 'óðru lagi, að hún sé þeim
kostum búin, er geri hana hæfa til að
færa sér í nyt kunnáttu sína og leysa
verkið vel af hendi.
En þessir sjálfsögðu kostir, er mjólk-
urbúa-bústýra þarf að bafa, eru:
þrifnaður, vandvirkni og reglusemi.
Hver sú stúlka eða kona, sem er
ekki þessum kostum búin að upplagi,
ætti ekki að byrja á því, að gefa sig
í að vera bústýra á mjólkur-eða rjóma-
búi. |>að kemur henni í koll fyr eða
síðar og er þá ver farið en heima
setið.
Af þessu, sem tekið hefir verið fram(
má sjá, að þeir, er ætla sér að koma
á fót mjólkurbúum, þurfa meðal ann-
ars að útvega sér bústýru, er lært hef-
ir smjörgjörð. Verði því eigi komið
við, tel eg langhyggilegast að fresta
stofnuninni, þar til er bústýran er
fengin, sem fullnægi skilyrðum þeim,
er áður hafa verið nefnd. Nú sem
stsndur er einmitt hörgull á stúlkum,
er lært hafa smjörgjörð, sem og eðli-
legt er. En vonandi er, að því verði
eigí lengi til að dreifa, að skortur á hæf-
um bústýrum tálmi stofnun mjólkur-
búanna. það er skylda þíngsins að
sjá um, að kensla í meðferð mjólkur
o. s. frv. geti orðið svo fullkomin og
fullnægjandi, sem kostur er á. Og eg
efa alls eigi, að næsta alþingi gangi
svo frá því máli, sem þörf krefst og
ástæður leyfa; ella er sómi þess í veði.
Kenslan þarf að vera ókeypis, eins og
hún er nú; en þingið þarf einnig að
veita námsstyrk þeim, er kenslunnar
njóta, og það svo ríflegan, að nógar
stúlkur fáist, sem til þess eru vel hæf-
ar, að læra þetta nytsama starf.
það eru margir orðnir þeirrar skoð-
unar, að stofnun mjólkur- og rjóma-
búa og kensla í meðferð mjólkur sé
eitt af vorum allra mikilsverðustu mál-
um. Eg hefi fengið mörg bréf frá
ýmsum mórkum mönnum, er bera
þetta með sér og taka það skýrt fram,
að vonir þeirra um framför landbúnað-
arins byggist að mestu leyti á fram-
gangi þessa máls. Sjálfsagt eru þeir
nú margir, er líta alt öðrum augum á
mjólkurbúin og telja þau heimsku
eina. En það er spá mín, að sú skoð-
un breytist smátt og smátt, og að
þeir, sem nú eru þeim móthverfir,
viðurkenni áður langt um líður kosti
þeirra og yfirburði fram yfir núver-
andi ástand.
Um eitt geta sjálfsagt allir orðið
samdóma, og það er, að búnaðinum sé
nú svo komið, að eittbvað verði að
gjöra honutn til viðreisnar. Yér höf-
um hingað til dregist æ lengra og
lengra aftur úr nágranna-þjóðum vor-
um í búnaði sem öðru; en það má
eigi svo lengur ganga. Nú ríður oss
á að feta oss áfram, ekki hægum,
heldur hröðum fetum, .svo að vér
miss m ekki sjónar á þeim, sem á und-
an eru, og oss dagi ekki uppi sem nátt-
tröll. Umbætur búnaðanns eru lífs-
skilyrði þjóðarinnar. Fari honum aft-
ur eða standi hann í stað, er oss
hætta búin. Mun þá reka að þvi,
fyr eða síðar, að þjóðin veslist upp og
hverfi í gleymskunnar Ginnungagap.
Fyrir því er áríðandi, að auka áhug-
ann á málefnum landbúnaðarins, og
að allir leggist á eitt að hefja hann
upp og koma honum í betra horf. Og
eitt, sem miðar að því, er stofnun
mjólkur-og rjómabúa. Ef þetta tekst:
að auka áhugann og framkvæma um-
bæturnar, sem þörfin krefst, þá mun
hugsunarhátturinn breytast og þjóðin
taka framförum.
V erðlagsskrár.
þetta er meðalalin næsta ár í þeim
3 sýslum, er vantaði um daginn: Ár-
nessýslu 46 aurar, Dala ð4 a., og
þingeyjar 47 a.
íshúsaviðkoman.
í lýsingu Eeykjavíkur eftir B. Grön-
dal í 6. árgangi Eimreiðarinnar stend-
ur meðal annars:
»þar á malarfletinum er íshúsið,
sem Tryggvi bankastjóri hefir stofnað,
einhver þarfasta bygging bæjarins, og
enda alls landsins, því þaðan bafa
aðrír haft hugmyndina að mestu leyti.
En aðalfrömuðurinn að þessu, og sá
einasti, er kunni að því.var Jóhannes
Nordal, sem kom frá Ameríku og
hafði lært þetta þar, og er það hið
einasta, er Island hefir grætt á Ame-
ríkut.
það er leiðinlegt, að þessi frásaga
um íshúsíð skuli vera jafn-röng og
hún er; manni dettur í hug, að fleira
kunni að vera jafn-rangt í lýsiugu
Eeykjavíkur.
það, sem skakt er sagt frá hér, er
þetta:
1., að Jóh. Nordal sé aðalfrömuð-
ur að íshúsbyggingunni;
2., að frá íshúsi Beykjavíkur hafi
aðrir fengið hugmyndina;
3., að Jóh. Nordal hafi verið sá
eiui, er kunni að íshúsbyggingum.
Eg skal sanna þetta með því, að
telja upp ishúsin í röð, eftir því sem
þau voru rsist á ‘Zl/2 ári eftir að við
Jóh. N. komum frá Ameríku.
það var haustið 1894, er við kom-
um heim. það sama haust var byrjað
á íshúsinu í Eeykjavík og stóð Jóh.
N. fyrir því.
Um sama leyti var byrjað á ís-
húsi á Brekku í Mjóafirði eystra, und-
ir minni umsjón, og síðar sama haust-
ið á öðru á BrimEesi í Seyðisfirði.
Bæði þessi hús vóru í fullri brúkun
sumarið eftir, 1895. þriðja húsið var
reist á Nesi í Norðfirði, en varð of
seint fyrir að ná sér í ís, svo það kom
ekki til notkunar fyr en næsta sumar.
Um haustið 1895 var eg við að koma
upp 4. íshúsinu fyrir ö. Wrtthne sál.
í febrúar 1896 var 5. húsið reist á
Háuefsstöðum í Seyðisfirði en í marz
sama árið hið 6. á Vopnafirði, í maí
og júní hið 7. á Búðum í Fáskrúðs-
firði og 8. á Vattarnesi; þau húsbæði
voru smíðuð á sama tíma.
I júlí sama ár var reist 9. íshúsið
á Húsavík í þingeyjarsýslu, og um
sama léytí 2 í Eyjafirði, á Litlaskóg-
sandi og í Grenivík. I september var
hið 12. smíöað í Breiðuvík í Beyðar-
firði, í desemberm. hið 13. á Djúpa-
vogi. í apríl 1887 var fullgert hið
14. í Svarfaðardal og í maí hið 15.
á Bæjarklettum í Skagafirði. þennan
vetur, 1896—97, var og smíðað 16. ís-
húsið í Borgarfirði.
það var um haustið 1896, síðast í
októberm., er eg fór til Beykjavíkur.
þá var ekkert íshús komið á Suður-
eða Vesturlandi, nema-þetta eina í
Eeykjavík.
Eg vona, að háttvirtur höfundur
téðrar greinar sannfærist nú um, að
það er ekki aðallega frá Jóh. N. eða
íshúsinu í Beykjavík, er íshúsaþekk-
ingin hefir færst út, og eins fellur
það um sjálft sig, að Jóh. N.
hafi verið sá eini, sem þetta verk
kunni; því að öll þessi framangreindu
hús hafa verið gerð eftir minni fyrir-
sögn.
Síðan í maí 1897 hafa og verið
smíðuð íshús á ýmsum stöðum austan
lands og norðan, ýmist eftir minni
fyrirsögn eða eg hefi sjálfur verið við
þau, og skal eg telja upp þau helztu,
er eg man eftir; það er þá: 1 á Stöðv-
arfirði, 1 á Bakkagerðiseyri við Beyð-
arfjörð, 1 á Nesi í Norðfirði — annað
þar —, 2 í Mjóafirði, — 3 þar —, 1
á Eskifirði — íshús með 3 tilheyr-
andi frystihúsum —, 1 á þórshöfn, 1
á Baufarhöfn, 1 á Ólafsfirði, og nú
síðast í vor 1 á Oddeyri, hús O.
W. A., sem er 30 x 15 al.; þar í eru
3 frystiklefar, sem rúma um 400 tunn-
ur síldar; og nú er eitt í smíðum hér,
eign konsúb J. V. Havsteens.
Svo er einnig nýbúið að koma upp
íshúsi á Sauðárkrók, Skagaströnd og
Blönduós. Hvaðan þeir hafa fengið
leiðbeining, er mér ekki fullkunnugt;
þó er mér nær að halda, að húsin
hafi verið smíðuð af þeim mönnum,
er áður hafa verið undir minni tilsjón,
eu ekki Jóh. N. Íshús þau, sem
reist hafa verið á Suður- og Vestur-
landi, get eg búist við, að hafi
fengið leiðbeiningar sínar frá Beykja-
vík. Vist er um það, að þau eru
svo nauðafá og skamt síðan þau
komust upp, enda sumt af þeim, sem
ekki verður að tilætluðum notum.
Af þessu framansagða geta allir séð,
að það er eg, en ekki Jóh. N., er
mest og bezt hefi fjölgað íshúsunum,
þessum þörfustu húsum landsins, eins
og B. G. segir.
Hver sé fyrsti frömuður íshúsanna
á íslandi, má lesa í 16.—17. tbl.
Stefnis f. á.
En þrátt fyrir það, sem hér er
sagt, dettur mér ekki í hug, að gera
lítið úr því, sem Jóh. Nordal hefir
gert.
Eins og áður er sagt, smíðaði hann
íshúsið í Beykjavík og hefir stjórnað
því síðan og gert það vel. þó sýnist
bæði mér og fieirum, að Jóh. N. hefði
unnið landinu fljótara gagn, ef hann
hefði haldið áfram vestur og starfað
þar, meöan eg var fyrir auBtan og
norðan, og að við hefðum mæzt. En
hann sá, að það var tryggari atvinnu-
vegur fyrir hann, að sitja við 1 ís-
húsið í höfuðstað landsins með 10—
1100 kr. launum, hvað svo sem hinu
leið.
En sú tilraun B. G., að plokka feg-
urstu fjaðrirnar af einum fuglinum til
að klína þeim á annan, er ekki komin
frá hans eigin höfði. f>að þekkja ná
orðið nógu margir þá undiröldu.
I janúarm. 1901. 7sak Jónsson.
Umbætur á Safamýri.
Með þessari fyrirsögn er grein í 6.
tbl. Ísafoldar þ. á. eftir p., og er það
fyrir áskorun, að eg leyfi mér að gera
athugasemd viðt fá atriði í henni.
|>ar sem hr. p. talar um jarðabót
þá, sem nú stendur yfir í Safamýri og
væntanlega verður lokið á næsta
Bumri, segir hann:
»En sá galli er á jarðabót þessari,
að hún ver engu vatni inn á mýrina,
en flytur að eins það vatn burtu,
sem kemur ofan úr iágmýrinni, og eigi
að síður mun skurður þessi vera til
bóta, en því miður eru það tiltölulega
fáir, sem haía gagn af þessu verki*.
Að skurðurinn, sem grafinn er eftir
Flóðakeldu, fyrir öllum norðurjaðri
Safamýrar, varni engu vatni inn á
hana, en fiytji að eins það vatn burtu
sem kemur ofan úr lágmýrinni —
það skiljum við ekki. Við köllum
Hagmýri háu mýrina, sem er fyrir
norðan Safamýri, og þegar skurðurinn
tekur alt vatnið, þegar ekki rignir því
meira, sem úr henni sækir niður á
Safamýri og þar með Hestalæk, hvað
er þá því til fyrirstöðu, að hann varni
því inn á hana?
íhleðslurnar, sem gerðar hafa verið
í Bjóluósana m. fl. efst með vötnun-
um, þar sem þau sækja mest inn á
Safamýri og geta fylt hana alla, nefn-
ir p. ekkert, enda er ekki víst að
að hann viti af þeim; því hann hefir
mér vitanlega hvorki litið á þær nó
á skurðinn.
Ekki er það rétt, að tiltölulega fáir
hafi gagn af þessari jarðabót, því það
eru — ef hún kemur að tilætluðum