Ísafold - 06.04.1901, Blaðsíða 1

Ísafold - 06.04.1901, Blaðsíða 1
ÍSAFOLD Keykjavík laugardaginn 6. apríl 1901. Keraur út ■ ýmist [einu sinni efla tvisv. i viku. Yerð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða l‘/» doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). XXVIII. árg. I. 0. 0. F. 824l28'/2 It. Jr'orngripasafnið opið mvd. og ld 11—12 Lanasbókasafn opið hvern virkau dag ki.12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) mi., mvd. og ld. til útlána. Okeypis lækning á spítaienum á þriðjud. og föstud. kl. 11 —1. Okeypis angnlækning á spítalanum fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar kl. 11-1. Ókeypis tannlækning i húsi Jóns Sveins- sonar hjá kirkjunni 1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Framfaramál höfuðstaðarins. III. Vatnið. f>að er eitt af lífsskilyrðam mann- anna, ög það er bæði ilt og lítið hér 1 höfuðstaðnum. Nú þegar er svo komið, að veruleg vandræði stafa af vatnsleysi í austur- hluta bæjarins, fyrir ofan lækinn. Og lítið vantar á, að þar eigi heima helm- ingur bæjarbúa. Vesturbærinn er nokkuru betur staddur, og eiga þó mörg heimili þar langt í vatn. Bkki er heldur til í bænum svo gott vatnsból, að ekki séu þar fleiri efni en þau, sem eiga að vera í góðu vatni. Afleiðingin af því, hve örðugt er að ná til vatnsbólanna, er sú, að vatnið er sparað. Og þeim sparnaði fylgir að sjálfsögðu yfirleitt óþrifnaður. Aðal- mælikvarðinn á þrifnaði í öðrum lönd- um er sá, hve mikið vatn þar er notað. Sá mælikvarði er vitaniega ekki ger- samlega órækur, að því er hvern ein- stakling snertir. f>að má hagtæra vatni vel og illa, eins og öðru. En •yfirleitt er mælikvarðinn talinn óyggj- andi. Sá bær eða sú þjóð, sem notar mikið vatn, er þrifinn bær eða þrifin þjóð. Og bærinn eða þjóðin er ekki þnfin, nema mikið sé notað af vatni. Eeykjavík er ekki þrifinn bær. |>að stafar af því, að mönnum veitir hér svo örðugt að ná sér í vatn. Hafn- firðingar eru að jafnaði þrifnari en Reykvíkingar, eftir því sem héraðs- læknir vor hefir afdráttarlaust fullyrt. f>að kemur til af því, að í Hafnar- firði er vatnið auðfengnara. Annar agnúi fylgir og vatnsskortin- um: hætta fyrir heilsu manna og líf. Af því að svo örðugt er að ná til þeirra vatnsbóla, sem bærileg eru, freistast margir til að nota vatn úr óþverraholum í grend við hús sín. |>að- an er talið að taugaveikin stafi að miklu leyti. Sömuleiðis magaveiki sú, aem hér liggur í Iandi og oft verða mikil brögð að, eins og t. d. í vetur. Vatnsbólin, sem almenningi eru ætluð, eru fráleitt óyggjandi í þessu efni. En margfalt hættulegri eru þó þessir smá- brunnar. Enda kveður og miklu meira að taugaveikinni í bænum austanverð- um en vestanverðum. Litlu vatni fylgir óþrifnaður. Vondu vatni fylgja veikindi. Eeykjavík hefir lítið vatn og ilt. Jafn-mikill og vatnsskorturinn er nú í bænum, verður hann þó mikln tilfinnanlegri, þegar fram líða stundír. Bærinn er í miklum vexti, bætir lík- lega við-sig nú alt að 1000 manna á ári hverju. Vöxturinn gétur orðið miklu hraðari, áður en nokkurn varir. Komi nægir peningar til landsins, mun það sannast, að hann eykst stórvægi- lega. En vatnsbólunum fjölgar ekkí að sama skapi. Góðum vatnsbólum getur að líkindum mjög lítið fjölgað, sízt í austurbænum. það leynir sér því ekki, að hin brýn- asta þörf er á að fara að veita vatni inn í bæinn. Málið hlýtur að komast á dagskrá hér hið allra-fyrsta. Með því einu móti er unt að afla sér nægi- legs vatns fyrir bæinn. Með því einu móti er unt að koma þrifnaðinum í bænum í gott horf. Með því einu móti verður fyrir það girt, að ilt vatn spilli heilsu bæjarbúa. En 3vo verður fyrst sá vaDdi fyrir manni, hvert eigi að sækja vatnið. Um það hefir töluvert verið rabbað fram og aftur. Sumum hefir hugkvæmst, að grafa eftir vatni fyrir ofan bæinn, utan í Eskihlíð. Tilfæringar til að reyna fyrir sér munu kosta um 3000 kr. En jarðfræðingum þykir, að sögn, lítil von um, að þar sé nægilegt vatn að fá. Álíka mikið mun kosta að fá hing- að verkfræðing til þess að rannsaka, hvaðan vér ættum að veita ofanjarð- arvatni inn í bæinn. Og að líkindum væri miklu hyggilegra að snúa sér að því. Vatnið mundi þá verða sótt inn í Elliðaár eða upp í Elliðavatn. Vegur- inn er lengri upp í vatnið; en væri vatnið sótt þangað, mundi ekki þurfa dælivél til þess að lyfta því upp, og, eins og bráðlega skal verða frá skýrt, fer kostnaðurinn mjög eftir því, hvort hennar þarf eða ekki. Auk þess er ekki ólíklegt, að auðveldara kunni að verða að komast að samningum um vatnið en árnar. Vitaskuld rennir maður að miklu leyti blint í sjóinn um allar ágizkan- ir um kostnaðinn. Ofurlítið kann þó kostnaðaratriðið að skýrast við það að athuga, hvað sams konar vatnsveiting- ar kosta annarstaðar. Vér höfum fyrir framan oss skýrslu um þær í kaupstöðunum í Danmörk. f>ar hafa 25 kaupstaðir komið þeim tipp. Stofnfúlgan er mjög mis- jöfn, alt frá 15,770 krónum (íLemvig) og upp í 624,700 kr. (í Horseus). Eins er mjög mikill munur á árskostnaðin- um, frá 250 kr. upp í 41,000. Hvorttveggja er mjög undir því kom- ið, hvort dælivél þarf til þess að lyfta vatninu upþ, eða hvort vatnið, sem veitt er, liggur svo hátt, að heunar þúrfi ekki. í 7 af dönsku kaupstöðunuin þarf hennar ekki, en nákvæmlega er kunn- ugt um kostnaðinn í 6 af þessum bæj- um. Stofnfúlgan nemur þar sam- tals 457,520 kr. Samanlögð íbúatala í þessum bæjum er 30,045. Stofn- fúlgan nemur þv 15,220 krónum á hverja 1000 bæjarbúa. |>ar á móti nemur stofnfúlgan 22,030 kr. á hverja þúsund manna í þeim 18 bæj- um, sem þurfa dælivél til þess að lyfta vatninu upp. Af árskostnaðinum er það að segja, að í þeim bæjum, sem ekki þurfa dæli- vél, nemur hann að meðaltali 335 kr. á hverja 1000 bæjsrbúa. En í hinum 870 kr. Hér eru þó hvorki taldir með vextir af stofnfúlgunni né heldur af- borgun. Vér gerum ráð fyrir, að vér mund- um að minsta kosti ætla 10,000 manna vatn, ef vér færum að brjótast í að afla oss vatns á þennan hátt. Mætt- um vér nú gera ráð fyrir meðalkostn- aði eftir því, sem í Danmörk gerist, þá yrði stofnfúlgan rúmar 152 þús. króna, og árskostnaður, auk vaxta og afborguuar, 3350 krónur, ef vér þurf- um ekki dælivél. Að viðbættum 4y. vöxtum yrði þá árskostnaðurinn allur 9430 krónur. Ef vér aftur á móti þurfum dæli- vélina, yrði stofnfúlgan rúmar 220 þúsundir króna og árskostnaður allur um 17,500 krónur, að meðtöld- um 4°/o vöxtum. Vitanlega er þetta ágizkun ein. Vel getur verið, að vatnsveitingin yrði oss dýrari en hún hefir orðið Dönum að jafnaði. Ura það verður ekkert sagt, fyr en sá maður kemur til sög- unnar, sem ber fult skyn á málið. En óneitanlega ætti samt reynsla Dana að gefa oss góðar vonír um, að hér sé að ræða um fyrirtæki, sem ekkert vit sé í að kalla ókleift. Sannleikurinn er sá, að þó að vér þyrftum að borga svo sem 17,000 krónur um árið fyrir vatnsveiting inn í bæinn, mundn Reykvíkingar beint græða fé á því frá því sem nú er. Auðvitað vantar allar skýrslur um, hve mikið menn borga fyrir að láta sækja fyrir sig vatn. En engin lík- indi eru til þess að það nemi ekki meiru fé, þegar öll kurl koma til grafar. En aðalmunurinn er sá, að með vatnsveitingunni stígum vér langt spor áfram í menningaráttina, ef til vill lengsta menningarstigið, sem vér getum stigið með nokkuru einu framfarafyrirtæki. Með því gerum vér bænum unt að vera þrifinn, sem honum er nú í heild sinni um megn. Og með því lengjum vér vafalaust líf og bætum heilsu fjölda manna. Að vér ekki tölum um þau stórvægilegu þægindi, sem því eru samfara, að fá vatnið inn í húsin — þurfa ekki ann- að en snúa krana á veggnum, hvort sem er hátt eða lágt f húsinu, þegar vatn þarf að nota til eínhvers, í stað alls þess ómaks og allra þeirra snún- inga, sem s&mfara eru vatnsburðinum. Daglegt líf manna, ekki sízt kvenfólks- ins, verður alt annað en áður. Hér er því ekki um neitt smáræði Uppsögn (skrifleg) bnndin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er Austurstrœti 8. 19. blað. að tefla. Framkvæmdir mega með engu móti dragast. Aburðarplöntur. Fyrirlestur, sem Einar Helgason flutti í vetur í Jarðræktarfélagi Reykjavikur. Jarðvegurinn batnar á ýmsan hátt við sáningu og ræktun. En hann batn- ar misjafnlega mikið, eftir því, hvaða plöntur eru ræktaðar og hvort þær eru fluttar burt eða ekki. Sé þær fluttar burt, þá skerðast ýms frjóefni jarðvegarins; en sé plönturnar pældar eða plægðar niður, þá aukast þau. Bóndinn ræktar jörðina í þeim til- gangi, að upp skera plönturuar og breyta þeim í mannafæðu eða hafa þær til iðnaðar. En þó má og, ef svo á stendur, rækta plöntur í þeim til- gaugi eingöngu, að bæta jarðveginn. Venjulegast eru ekki allar hinar ræktuðu plöntur fluttar burtu þaðan, sem þær uxu. Eftir verður vanalega rótin með neðri hluta stöngulsins, eða þá að rótin er flutt burtu, en blöð og leggir verða eftir. þessi plöntu-úrgang- ur getur bætt jarðveginni — Plöntuefnin skiftast í tvo aðalflokka: lífræn (organisk) og ólífræn (óorgan- isk). Lífrænu efnin eru að miklu leyti til orðin af þeim efnum, sem plönt- urnar taka úr loftinu. Eúni plönturn- ar niður í jarðveginn, þá bætast hon- um lífræn efni og moldarlagið vex. Ólífrænu efnin fá plönturnar úr jarð- veginum; fyr því aukast honum ekki beinlínis þessi efni, þótt plönturnar verði skildar eftir. Plönturnar sækja næringu sína mis- jafnlega djúpt niður í jarðveginn. Verði eitthvað af þeim plöntum, sem sækja næringarefni sín djúpt niður, eftir við uppskeruna, þá hafa þessar plöntur flutt næringarefni upp á við, þangað sem aðrar plöntur geta haft þeirra full not. Gróðrarmoldin getur með þessu móti orðið frjórri en áður en þessar plöntur voru ræktaðar og það enda þótt mikið af þeim hafi verið flutt burtu. Gróðurinn bætir ennfremur eðli og ásigkomulag jarðvegarins. Ræturnar bera sig eftir gróðrarmoldinni í allar áttir. f>egar ræturnar deyja, verða auðar pípur eftir þar, sem þær voru. Vatnið gufar út um þær og loftið fer inn um þær. f>etta hefir bætandi á hrif á jarðveginn. f>að sem eftir verður af plöntúnum þegar upp er skorið, getur því á ýms- an hátt bætt jarðveginn; en meiri yrði sú bót, ef plönturnar yrðu plægðar nið- ur óskertar. f>á kæmu öll þeirra efni jörðinni að notum, bæði þau, sem þær hafa tekið úr loftinu, og eins þau, sem þær hafa sótt langt niður í jarð- veginn. f>að er auðvitað dýrt að plægja alla uppskeruna niður, einkum af því, að sjaldan er hægt að fá upp- skeru af sama bletti oftar en einu sinni á sumri. Sú aðferð var notuð í forn- öld í menningarlöndunum; lagðist síð- an niður að miklu leyti, en er nú tekin upp af nýju í þeim löndum, þar sem jarðrækt er komin lengra á veg en hér á landi. f>ær plöntur, sem ræktaðar eru í

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.