Ísafold - 01.05.1901, Síða 3
103
r
ir
0 Verzlun 0
IH
í Keykjavík
|
Með s/s »Laura« og Thyra« hafa komið mildar vörubirgðir til allra
deilda »Edinborgar« og skal hér telja nokkrar þær helztu.
í veínaöarvöradeiláina:
Hattar — Húfur drengja og kárlm. — Stráhattar — Prjónatreyjur. —
Léreft bl. og óbl. margar teg. mjög gott og ódýrt — Sirts Ijómandi falleg
munstur — Tvisttauin frœgu — Lakaléreft — Svuntutau yndisleg — Flonel
og flonclettc góð og væn — Regatta — Zepliyrtau — Tvinni allskonar —
Handklæðatau og Handklæði væn og ódýr — Herðasjöl — Höfuðsjöl — Líý-
stykki og Bolpör — Fóðurtau allsk. Ital. klæði — Reiðýataeýni — Dagtreyjutau
—1 Cashmere — Astrachan — Angola — Java — Stramai — Kvenn-Regn-
slög. — Regnkápur karlm. — Sængureýni — Gardínutau mikið úrval — Blúnd-
ur — Lissur — Kantahönd — Fataeýni allsk. — Borðdúkar hv. og misl.
— Vasaklútar — Rúmteppi og margt fleira, sem oflangt yrði upp að telja.
Eitt er víst, að hvergi hér í bæ munu fást betri kaup á vefnaðarvöru en í
»Edinborg«.
í nýlenduvörudeildina:
Tóhak: Roel, Skraa og Reyktóbak ■—. Niðursoðnar vörur — Lax, Lobster,
Nauta- og Sauðakjöt — Sardínur — Rúsínur — Fíkjur — Döðlur — Leirtau
allskonar — Kaffibrauð marg. teg. — Ostur fl. teg. — Skinke — Kryddvara
allskonar — Brjóstsykur — Sultutau — Handsápa margar sortir — Ljáhlöð
og Brýni o. m. fl.
í pakkhúsin:
Þakjárn — miklar birgðir -
matvara, mjög miklar birgðir
Þakpappi — Saumur — Cement
- Kaffi — Sykur o. fl. o. fl.
Allskonar
Rvík 27. apríl 1901.
Ásgeir Sigurðsson.
Botnvörpunga-ósóminii.
Merkur maður hér við flóaun fer
þar um svofeldum orðum í bréfi til
ísafoldar þessa dagana:
»Hörmulegt er að sjá landa vora
vera að elta á þilskipum botnvörpung-
ana hér inni á Sviði, innan um bátana
á okkar beztu fiskimiðum!
Eg á ekki orð til að lýsa þeim
svívirðilega hugsunarhætti, sem búa
má í brjóstum slíkra manna. Og að
engin lög skuli vera til, sem aftra
slíku! Lagalega er kannske örðugt að
s a n n a, að þeir teymi botnvörpunga
inn á miðin, en ekki verður annað
séð en að 'svo sé — fyrir whisky!
»fleimdal« á sannan heiður skilið
fyrir vernd sína, það sem af er. Hann
hefir að vísu engum náð enn, en
»gott er að lækna sjúkdóminn, en
betra er að afstýra honum«, segir enskt
máltæki. Og Hovgaard hefir hrætt
þá svo, að þeir hala ekki verið innan
landhelgi«.
Laus prestaköll.
Laufás (Laufáss og Svalbarðssóknir)
í Suður-þingeyjarprófastsdæmi. Mat
1421 kr. 04 a. að frádregnu árgjaldi
af brauðinu, 40C kr, sem er greitt
með útlögðum jörðum (385 kr. 83 a.)
og 14 kr. 17 a. í peningum í lands-
sjóð.
Prestsekkja er í brauðinu, sem nýt-
ur náðarárs og eftirlauna af því lög-
um samkvæmt.
Yeitist frá fardögum 1901 að telja.
Auglýst 27. apríl. Umsóknarfrestur
til 12. júní.
Vellir í Svarfaðardal (Valla- og
Stærra-Árskógssóknir). Mat 1420 kr.
60 a. að frádregnu árgjaldi af brauð-
inu, sem er greitt m ð útlögðum jörð-
um.
Prestsekkja er í brauðinn, sem nýt-
ur af því náðarárs og eftirlauna lög-
um samkvæmt.
Veitist frá fardögum 1901 að telja.
Auglýst 27. apríl.
Umsóknarfrestur til 12. júní.
Mannalát.
Hinn 27. febr. þ. á. andaðist bónd-
inn porgrímur Kristjánsson á Tuma
Brekku í Óslandshlíð, 45 ára. Hann
var sómamaður og gæðamaður, og 9
ár oddviti hrepps síns, og vann hann
sveitarfélagi sínu hið mesta gagn og
stýrði hreppnum með lipurðog ráðdeild
og ávann sér velvild og virðingu. Konu
sinni, Goðmundu Sigmundsdóttur, var
ástríkur maður og börnum sínum
elskulegur faðir. Z.
Nýlega er dúinn Jón bóndi Jónsson
á Minna-Núpi í Gnúpverjahreppi, nær
sextugur að aldri, bróðir Brynjólfs
fornfræðings, mesta góðmenni.
Dáinn er 24. marz þ. á. presturinn
að Völlum í Svarfaðardal, síra T ó m a s
H a 11 g r í m s s o n, á sextugsaldri —
f. 23. okt. 1847, stúdent 1873, útskrif-
aðist af prestaskólanum 1875, vígður
sama ár prestur að Stærraárskógi, en
fluttist síðan að Völlum, er brauðin
voru sameinuð. Hann var systursou
arson Jónasar Hallgrímssonar skálds;
maður vel látinn og snyrtimannlegur,
og kennimaður allgóður. Kona hans
var Valgerður Jónsdóttir prófasts í
Steinnesi Jónssouar.
Sigling.
Gufuskip kom 26. þ. m. frá Eng-
landi með saltfarm til þeirra G. Zo-
ega og Th. Thorsteínsson, »A 1 e k 10«;
fer aftur í dag.
f>á kom í nótt seglskip »F e r o n a«
(130, Petersen) með timburfarm frá
Mandal til B. Guðmundssonar.
Lofsverð björgunartiiraun var
ger<? bér 4 Skipaskaga föstudaginn 11, þ.
m. (apríi). I byrjun ofsavcðurs, sem þá
gjörði liér af austri, sást til ferðabáts, er
kom innan úr Borgarfirði, en sýnilegt var
að eigi næði hér lendingu; brugðu þá við
nokkurir ötulir og hjálpfúsir sjómenn, flest
Goodtemplarar, er þá voru staddir á stúku-
fundi, og fóru þaðan án frekári undirbún-
ings; urðu 14 á skipi, er létu undan landi,
en náðu eigi bátnum, sem setti upp segl-
bleðil og hleypti, enda náði landi inn í
Melasveit, en hafði eigi haft neitt til að
leggjast við, og gat því eigi beðið neitt;
en eftir harða sókn á móti veðrinu náðu
skipverjar aítur landi hér kl. 12 um nótt-
ina. — Ber þvi að geta þessara mannúð-
legu hjálpfýsi bæði til maklegs lofs þeim,
sem til þess liafa unnið, og til upphvatn-
ingar fyrir aðra, sem kynni fyr eða siðar
að gefast tækifæri til að gjöra samkynja
miskunnarverk. Þ. J.
Póstþjófnaður. Piltur sá, er hafður
hefir verið til að bera póstbréf hér um
bæinn nokkur missiri undanfarin, varð 27.
f. m. uppvís að stuldi á peningum og pen-
ingabréfum í vörzlum póststjórnarinnar
Er að svo stöddu ekki fullsannað, hve milsil
brögð eru að þjófnaði hans né hversn
lengi hann hefir legið á því lúalagi; er
hætt við, að það sé þó til nokkurra muna.
Auk þess fanst á heimili hans allmikið af
einföldum bréfum, sem hann hafði svikist
um að skila. ýmist opin eða lokuð, og hefir
sjálfsagt glatað nokkurum. Peningabréfin
hafði hann ónýtt, er hann var búinn að
hirða úr þeim peningana. Hann er nú í
haldi og prófaður daglega Hann er 16
ára að aldri.
Póstskip Laura, kapt. Aasberg, lagði
á stað í gærkveldi. Með henni sigldi Ólaf-
ur kaupmaður Árnason á Stokkseyri til
Khafnar og eittlivað kvenfólk til Englands.
Ve ð urathuganir
í B.eykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
19 0 1 Apríl Loftvog millim. Hiti (C.) Þ- c-t- crb <4 O ox '-t tr SB 0*: Skýmagn Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld.27. 8 760,9 6,2 wsw 1 10 1,6 3,8
2 761,9 8,3 sw 1 10
9 758,7 4,7 E 1 10
Sd.28. 8 754,8 5,5 s 2 9 4,9 2,0
2 758,2 7,3 ssw 2 6
9 759,8 4,2 0 5
Md.29.8 756,9 4,7 SE 1 10 1,2
2 754,5 8,6 SB 2 10
9 752,9 7,9 SSE 2 8
Þd.30. 8 756,3 7,9 SSE 2 10 3,1 3,8
2 759,7 9,6 SSE 2 8
9 763,0 7,5 SSE 1 7
Menn orðið úti.
Miðvibudaginn fyrir skírdag, 3. f.
mán., í mesta harðviðrinu á vetrinum,
varð maður úti á Mýrdalssandi, por-
steinn Bjarnason, bóndi á Herjólfsstöð-
um í Álftaveri, en annan, samferða-
mann hans, Jón Sigurðsson, bónda í
Skálmarbæ í Álftaveri, kól svo, að
hann beið bana af fám dögum síðar.
|>eir voru á heimleið úr kaupstað í
Vík. þeir skildu við á austarlega á
sandinum, Blautukvísl, er orðin var
svo spilt, að Jón komst við illan leik
yfir hana hestlaus, en hinn varð að
snúa aftur með hestana; hann fanst
þar örendur daginn eftir, á skírdag,
en Jón komst sama dag að Mýrum,
mállaus og kalinn — búinn að ganga
af sér sokka og skó og sár orðinn á
öðrum fæti. þorsteinn var rúmlega
fimtugur; Jón yngri nokkuð — hann
var bróðursonur Eiríks heit. í Hlíð
í Skaftártungu.
Tapast hefir kvenúr á götum bæjar-
ins, á leiðinni frá Skildinganesmelun-
um og inn að Rauðará. Finnandi er
beðinn að skila úrinu í húsið nr. 10
f Suðurgötu.
r
vlllifuglaegg kaupir Asgeir
Gunnlaugsson, verzlm. hjá Birnj
Kristjánssyni.
Hvaða skilvindu á e@
aÖ kaupa?
Það er fullvíst að skilvindan »Perfeet«,
sem mikið er gumað af nú á dögum, fekk
ekki »Grand Prix« á heimsýningunni í
París 1900 af þvi, að hún væri reynd;
enda vita fróðir menn ekki til að hún hafi
verið reynd á Frakklandi fyrir þann tíma.
Af ÞYRIL8KILVINDUM (Kronsepara-
torer) frá Svenska Centrifug Aktiebolaget
i Stokkbólmi hafði þá verið selt á Frakk-
landi um Í000 (nú nál. 3000), og þær lík-
að mjög vel. Frakkar höfðu áður haft i
miklum metum skilvindu, sem kallast
»Melotte«; var hún reynd til jafnaðar við
þyrilskilvindur í Le Mans 1899; báru þyr-
ilskilvindurnar sigur úr býtum, og fengu
þá gullverðlaunapening.
ÞYRILSKILVINDURNAR fengu hæstu
verðlaun (»Grand »Prix«) á sýningunni í
Paris 1900 fyrir, hve vel þær hafa reynst
á Frakklandi, en ekki af þvi, a.ð þær væru
smiðaðar af stærstu skipsbyggingarstöð
á Norðurlöndum (!)
ÞYRILSKILVINDUR voru fyrst gjörð
ar árið 1898. Til ársloka 1900 var selt
af þeim um 23000, og höfðu þær þá feng-
ið þessi 3 árin: 1 »G-rand Prix», 1 ríkis-
verðlaun, 7 heiðursmerki (hin æðstu), 30
fyrstn verðiaun; og enn ýms önnur sæmd-
armerki.
ÞYRILSKILVJNDURNaR hafa reynst
vel á Islandi. Vér erum sannfærðir um,
að eigi eru aðrar skilvindur betri og því
engin ástæða að hlaupa eftir auglýsinga-
gumi um óþektar skilvélar.
Sannleikurinn er sagnabeztur, en skrum
skaðvæniegt!
Panlið þyrilskilvindur hjá þeim, sem
þið skiftið við.
Til heimalitunar viljum vérsér-
staklega ráða mönnum til að nota
vora pakkaliti, er hlotið hafa verð-
laun, enda taka þeir öllum öðrum lit-
um fram, bæði að gæðum og litarfeg-
urð. Sérhver, sem notar vora liti,
má öruggur treysta því, að vel muni
gefast. — 1 stað hellulits viljum vér
ráða mönnum til að nota heldur vort
svo nefnda »Castorsvart«, því þessi lit-
ur er miklu fegurri og haldbetri en
nokkur annar svartur litur. Leiðar-
vísir á íslenzku fylgir hverjum pakka. —
Litirnir fást hjá kaupmönnum alstað-
ar á íslandi.
Buchs Farveíabrik-
Uppboðsaugiýsing.)
Samkvæmt beiðni skiftaráðandans í
Skaftafellssýslu verður hálf jörðin
Tjarnir í Vestur-Eyjafjallahreppi, 9,95
hndr. að nýju mati, tilheyrandi dán-
arbúi Einars Einarssonar frá Hemru,
seld við opinber uppboð laugardagana
ix. og 25. maímán. og 8. júnimán.
riæstkomandi, tvö fyrri uppboðin,
sem byrja kl. 8 e. hád., verða haldm
á skrifstofu sýslunnar, en hið síðasta
að Tjörnum og hefst það ki. 4 e. hád.
Söluskilmálar verða til sýms á öll-
um uppboðunum.
Skrifst. Rangárvallasýslu, 16. apríl 1901.
Mag-nús Torfason.
Hér með er skorað á alla þá, er
telja til skulda i dánarbúi Guðmund-
ar Olafssonar, tómthúsmanns í Mýr-
arholti á Akranesi, sem andaðist 14.
f. m., að lýsa kröfurn sínum og
sanna, þær fyrir skiftaráðanda hér í
sýslu áður en 6 mánuðir eru liðnir
frá síðustu birtingu þessarar auglýs-
ingar. Erfingjar ábyrgjast ekki skuldir.
Skrifst. Mýra-og Borgarfjarðarsýslu
12. apríl 1901.
Sigurður Þórðarson
Hér með er skorað á alla þá, er
telja til skulda í dánarbúi Guðmund-
ar P. Ottesen, fyrrum kaupmanns á
Akranesi, sem andaðist 3. febr. þ. á.,
að lýsa kröfum sínum og sanna þær
fyrir skiftaráðanda hér í sýslu áður
en 12 mánuðir eru liðnir frá síð-
ustu birtingu þessarar auglýsingar.
Erfingjar ábyrgjast ekki skuldir.
Skrifst. Mýra-og Borgarfjarðarsýslu
11. apríl 1901.
Sigurður Þórðarson.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)og
Einar Hjörleifsson.
Isafoldarprentsmiðja