Ísafold - 12.06.1901, Page 2
160
undirskriftum til vors 1903; séu uud-
irskriftir undir áskoranírnar í tvennu
lagi, sínar á hvoru blaði: a) kjósendur
til alþingis; b) allir vitnisfærir menn
aðrir, karlar og konur;
að áfengissala á gufuskipum kring-
um landið á höfnum og í landhelgi
(sé lagabrot, sem beri að afstýra og
hegna fyrir);
a ð sækja um 1500 kr. ársstyrk
handa félaginu úr landssjóði;
a ð inntökugjald í stúkur utan kaup-
staða megi færa niður í 1 kr. fyrir
fullorðna karlmenn og 50 aura fyrir
kvenmenn og unglinga yngri en 18
ára; annars 2 kr. og 1 kr.;
a ð ekki skuli eftirleiðis kjósa fleiri
fulltrúa á stórstúkuþing en 1 fyrir
hverja 100 félagsmenn í undirstúkun-
um eða brot úr 100 (í stað 50 áður);
a ð fara skuli fram á við útgerðar-
menn strandgufuskipanna lækkun á
fargjaldi fulltrúa á stórstúkuþing;
a ð bæta í yfirstjórn félagsins manni,
er nefnist stórgæzlumaður kosningaog
hafi á hendi að vinna að því, að al-
mennar kosningar(alþingis, sýslunefnda,
hreppsnefnda, presta o. s. frv.) verði
sem mest reglunni í vil.
|>essir voru kosnir í yfirstjórn fé-
lagsins — framkvæmdarnefnd — um
2 árin næstu:
Stórtemplar Indriði Einarsson revisor*.
Stórkanzlari Guðm. Björnsson héraðsl.
Stórritari Borgþór Jósefsson verzlm*.
St.varatempl. Har. Níelsson cand.theol.
Stórgjaldkeri Sigurður Jónsson fangav*.
St.gæzlum.ungtempl. Jón Árnason prent.
St.gæzlum.kosn. Sig. Jónsson kennari
Stórkapel. séra Jens prófastur Pálsson.
Fyrv. stórt. Ól.Rósenkranz biskupsskrif*.
jfpeir voru endurkosnir, sem auð-
kendir eru með *; hinir nýir.
Miðþingdaginn, um kveldið, var
haldið fjölment og fjörugt samkvæmj
meðal félagsmanna í Iðnaðarmanna-
húsinu, rúml. 130, karla og kvenna.
J>ar voru meðal annars fluttar ræð-
ur þær og kvæði, sem birt eru hér í
blaðinu.
Næsta stórstúkuþmg skyldi haldið
árið 1903, ef til vill á Akureyri.
Nýr fjármarkaður.
Fimm ár eru nú liSin síSan enska
innflutningsbannið var lagt á fó frá
íslandi. Sú hefir orðið raunin á, eins
og við mátti búast, að bændur hafa
fengið minna verð fyrir fó sitt en áður,
einkum fyrir væna sauði, sem nú eru
sendir í umboðssölu til Englands og
skornir, þegar þangað er komið.
Árið eftir að innflutningsbannið var
komið á á Englandi, gerði eg mér ferð
til /missa landa á meginlandi Norður-
álfunnar, þar sem fjársala er mikil, og
reyndi að útvega markað þar fyrir fó
frá íslandi. Sama árið var sendur fjár-
farmur til Belgíu og annar til Frakk-
lands, en sú tilraun mistókst af ýms-
um atvikum, sem hér er ekki ástæða
til að útskýra frekara. Það var mjög
slæmt, að svo skyldi fara, því verðið
hefir þar verið hátt á fó síðari árin,
einkum í fyrra, þegar fjársýki var í
Argentínu og fjárflutningur þaðan
bannaður um alla Norðurálfu.
í vetur gerði eg mér aftur ferð suð-
ur um lönd, til þess að reyna að út-
vega nýja markaði fyrir fó og fisk héð-
an. Fyrst fór eg til Hollands, á fund
stærstu fjárkaupmanna í Norðurálfu:
Poels fréres í Venroi. Kaupmenn þess-
ir hafa mjög víðtæka verzlun og aðset-
ur í mörgum löndum, Þýzkalandi, Hol-
landi, Belgíu, Frakklandi, Englandi og
Argentínu.
Helzt átti eg þar tal við herra Jean
Poels, vel mentað lipurmenni, á þrítugs-
aldri, sem að miklu leyti sór um fram-
kvæmdir þessa víðtæka verzlunarhúss.
Honum voru vel kunnugar þær til-
raunir, sem gjörðar höfðu verið með
flutniugi á fó á fæti frá Íslandi til
Belgíu og Frakklauds, og ástæðurnar
fyrir því, að tilraunir þessar höfðu mis-
hepnast. Hann sagðist oft hafa viljað
kaupa farm af íslenzku fó fyrir sinn
reikning, en ekki getað fengið, og var
nú mjög feginn, að fá nánari fræðslu
um ísland og um það, hvernig hægt
væri að kaupa fó héðan. Eg hólt því
fast fram við hann, að eina ráðið væri
að koma hingað sjálfur og kaupa fóð
fyrir peninga hér, beint af bændunum,
án nokkurs milliliðs. Niðurstaða sam-
tals okkar varð sú, að hann lofaði að
koma hingað í sumar, til að kynna sór
skilyrði fyrir fjárkaupum hóðan í haust.
Með síðasta póstskipi fekk eg bréf frá
honum, þar sem hann segist hafa afráð-
ið, að koma hingað með »Ceres«, er
leggur á stað 15. júní frá Leith, og
vona eg því, að við fáum að sjá hann
hór í sumar.
Það þarf engrar útlistunar við, hversu
mikilsvert er fyrir bændur og fyrir
efnahag landsins alls, að geta farið að
selja aftur útflutningsféð hór á staðn-
um fyrir peninga út í hönd, og í annan
stað, að geta fengið nýjan markað, sem
að kunnugra manna dómi er miklu arð-
vænlegri en enski markaðurinn. En
ekki er alt fengið með því, að hingað
komi maður, sem hefir vilja og mátt
til þess að gera tilraunir í þessa átt.
Það þarf að greiða íyrir honum svo sein
hægt er, gera honum kosti alla svo að-
gengilega sem unt er, og sýna honum
áreiðanleik í öllum viðskiftum.
Einnig þarf að sjá um, að vel só
farið með féð, bæði hór á landi og á
leiðinni út. Það er enginn efi á því,
að hægt er að flytja fó hóðan til
Frakklands, Belgíu og Hollands, þegar
þess er gætt, að mesti sægur fjár er
þangað flutt yfir Atlantshaf frá Argen-
tínu í Suður-Ameríku, og er sú vega-
lengd þó margfalt meiri en hóðan.
Alls er flutt til Frakklands og Belgíu
um 2 miljónir sauðfjár á ári og mundi
því ekki muna mikið um 70—80,000
kindur héðan.
Reykjavík 8. júní 1901.
D. Thomsbn.
Fimtíu-ára-afmæli
Good-Templarreglimnar.
Samsæti í Beykjavík
8. júní 1901.
Kantate.
I.
Elding nýrrar aldar
' íslands kyssir fjöll,
röðulroðf tjaldar
rósum skýin öll;
blær frá öðrum álfum
andar frjáls um ský. —
Einnig í oss sjálfum
öld er byrjuð ný.
Sviftu, vindur, sviftu
sorta burt af strönd;
lyftu, geisli, lyftu
ljóss til sala önd.
Fæddu fjör og glæddu
framhug, nýja tíð,
fræddu fólk og græddu
fornan þrótt hjá lýð.
Burt með alt, sem eyðir
okkar vonasjóð;
inn með alt, sem leiðir
upp til starfsins þjóð.
Burt með vanans veldi:
vondra siða blót;
inn, með vígðum eldi,
alda- og tímamót!
Yinn þú, vopna njóttu,
vit hvar starf þitt er.
Brjóttu virkin, brjóttu
braut til frægðar þór.
Elding nýrrar aldar
austan ljóskrýnd fer;
hugsjón hálfrar aldar
hún til sigurs ber.
II.
Recitativ.
Vor hugsjón varð til fyrir hálfri öld —
sem himinsend skjaldmær, sem gengur
að verki
með leiftur í augum, með ljómandi skjöld
hún lyfti þá hátt sínu merki.
Hún tigin var og ágæt, og öflug var
höndin,
sem Orleans-mærin hún frelsaði löndin
frá þrælkandi ofríki, afarhörðu,
frá einu því versta á jörðu.
Sterkur var vaninn og stór eins og tröll,
stæltur var skallinn, sem fram hann atti,
hann þrammaði þungt og hann lið sitt
ei latti,
en landanna illvættir gegn henni hvatti.
En bitgott og fallþungt er sannleikans
sverð,
og sigursins dís var með henni í ferð.
Nú liggur hann víða í valnum, snauður
að vopnum og kröftum — og næstum
því dauður.
Og austur um hafið úr Yesturvegi
hun vatt sér með sigurs- og baráttu-þrá;
og hjálmana hvítu, sem hófust úr legi,
frá heiminum gamla hún sá.
Þar móðir vor, fjallkonan fannkrýnda,
beið
með fegurð og tign yfir raunmæddum
vanga,
og barnanna ólán og böl henni sveið-
Hún barðist gegn flekkan og spilling
um dagana langa.'
Ó, blessaða stund, er hún steig hór á
landið,
svo stórráð sem drotning, sem velur sór
lónd,
og fjallkonan rótti’ henni fagnandi hönd
og þær frelsandi leystu margt óheilla-
bandið.
Ein hugsjón, hún lifir sem eilífur andi,
því aðrar hún glæðir og nýjar hún fæðir.
Hún ryður því burtu, sem hugann hræðir
og hnýtir traustar að fólagsins bandi.
Þeir menn, sem berjastvið hver annars
hlið,
þeir halla sér saman í stríði og frið’,
og sigri þeir loks, vex þeim orka og
áræði
að eiga við fleira en það, sem er smáræði.
Já, heill vorri reglu, og heill voru stríði!
Vór höldum brátt velli, vór farsælum lýði!
III.
Þá hugsjónir fæðast, fer hitamagn um
önd,
þá hugsjónir sigra, fer þrumurödd um
lönd.
Því gset þess vel, sem göfgast hjá þér
finst,
og glæddu vel þann neista, sem liggur
inst.
Vor regla var hugsjón í heimsins ónáð
fædd,
um helming af öld nú við stríð og
sigur glædd.
Sá neistinn smár er orðinn brennheitt bál,
sem birtir, vermir, yngjandi marga sál.
Só takmark þitt hátt, þá er alt af
örðug för;
só andi þinn styrkur, þá lóttast stríðs
þíns kjör.
Só merkið hreint, sem hátt og djarft
þú ber,
snýr hindrun sórhver aftur, sem mætir
þór.
G. M.
Skrum-auglýsingar.
Alt til þessa hefir ekki horið svo mikið
á skrnm'-auglýsingum hér á landi, að orð
sé á gerandi; og aldrei mun hafa fyrir
komið, að auglýsandi auglýsti, að keppi-
nautur sinn, ákveðin persóna, seldi dýrara
en allir aðrir i nálægum löndum. Auglýs-
ingarnar hafa verið meinlausari en svo. En
nú á síðustu tímum hafa auglýsendur fært
sig allmikið upp á skaftið, og hefst sú menn-
ing hér fyrst með hr. Þorsteini Arnljóts-
syni, sem auglýsir þannig:
»Heimsins vönduðustu og ódýrustu Orgel
og Fortepiano fást með verksmiðjuverði
beina leið frá Beethoven Piano & Orgel
Co og frá Cornish & Co, 'Washington, N
T. U. S. A.
Orgel úr hnotutré með 5 áttundum (122
fjöðrum), 13 tónfjölgunum, 2 hnéspöðum,
með vönduðum orgelstól og skúla kostar i
umhúðum a: 125 krónur (Orgel með sama
hljóðmagni kostar í hnotutréskassa hjá
Petersen & Steenstrup minst a: 340 kr, og
litið eitt minna bjá öðrum orgelsölumönn-
um á Norðurlöndum). Flutningskostnaður-
inn frá Ameríku til Kaupmannahafnar er
frá 26—40 krónur eftir verði og þyngd
orgel8Ín8. Öll fullkomnari orgel og piano
tiltölulega jafn ódýr og öll með 25 ára
ábyrgð .... « —
Fyrst og fremst hlýtur það að vera
skrum og ekkert annað, að þau orgel og
fortepiano, sem hér eru auglýst, séu heims-
ins vönduðustu og ódýrustu orgel og piano.
Eg hefi sjálfur séð og reynt eitt af hinum
skárri barmonium frá þessari verksmiðju
fyrir nokkrum árum. Það var nýtt, þegar
eg reyndi það; en ekki hefði eg viljað
kaupa það fyrir það verð, sem það kost-
aði, og enga ánægju hefði eg haft af að
leika á það, þó mér hefði verið gefið það.
Var það þó ekki af þvi, að það hefði
ekki nógu marga tóna eða nógu mikil
hljóð, og ekki heldur af því, að það væri
ekki nógu laglegt að ytra útliti, heldur af
því, að allan nákvæman innri frágang
vantaði, þann frágang, sem einmitt gerir
orgelið dýrt, og einnig gerir það hljómfag-
urt, og hrifið getur gott söngeyra. Mátti
því vel lýkja þvi við *óaftrekt« úr.
Verksmiðja sú, sem hr. Þ. A. auglýsir
fyrir, mun ekki liafa neinn útsölumann í
Danmörku né á Þýzkalandi, og bendir það
ekki á, að þetta séu heimsins vönduðustu
og ódýrustu orgel og piano, því að allar
hinar betri amerisku orgelverksmiðjur hafa
þar þó útsölumenn, svo sem Carpenter,
Mason & Hamlin, Chicago Cottage Orgel
Co, Needham, 1. Estey & Co. o. fl.
Auglýsandi lætnr á sér skilja, að hér sé
um tvær verksmiðjur að tefla, er hann
hafi umboð fyrir. En verksmiðjan er ekki
nema ein, svo að sá liður auglýsingarinn-
ar er þá líka ósannur.
Þá segir hr. Þ. A., að 5 áttunda har-
monium, sem hann selji á 125 kr. fyrir ut-
an flutningskostnað til Khafnar (26—40
kr.), sé með 122 fjöðrum, eða tvöföldu hljóði,
orgelstól og skóla, og kosti orgel með
sama hljóðmagni hjá Petersen & Steenstrup
minst nm 340 kr., »en litið eitt minna hjá
öðrum orgelsölumönnum á Norðurlöndum«.
Við þetta er fyrst það að athuga, að
harmoníum með sama hljóðmagni geta ver-
ið mjög misdýr, þó þau séu gerð úr sama
við, þvi að tónarnir geta verið mjög mis-
vandaðir, og auk þess fer einnig verð org-
elsins eftir því, hvernig kassinn er gerður,
hve vandlega hefir verið gengið frá öllu
trésmíðinu bæði að utan og innan, en það
er það, sem mestu skiftir um endingu
orgelsins. Lýsing þessi er þvi mjög vill-
andi og röng. Sé flett upp verðskrá frá
Petersen & Steenstrup, sem kom út löngu
ádur en hr. Þ. A. tók að auglýsa, má
þegar sjá, að þar eru auglýst harmonium
með tvöföldu hljóði fyrir 250 kr. að frá-
dregnum 10°/0, sé horgað útihönd. Verð-
nr þá verðið 225 kr., en ekki »minst o:
340 kr.«, eins og hr. Þ. A. segir. Og hér
er að eins um vönduð harmonia að
ræða.
Hvers vegna kemur hr. Þ. A. fram með
þessi ósannindi? Og hvers vegna bætir