Ísafold - 12.06.1901, Page 4
V
Verzlunin ,NYHÖFN‘
Mestu birgðir og flestar tegundir a£ Niðursoðnu.
Lágt verð!
í þeirri yon og með þeirri ósk, að
þessi kærleikur glæðist, bið eg yður
að minnast íslands.
I»ýzkt herskip
kom hér í fyrra dag, frá Wilhelms-
hafen, til þess að líta eftir þýzkum
botnvörpungum hér við land, og svo fyrir
kurteisis sakir (að sýna flaggíð). það
heitir »Zieten«, er 980 smál., hefir 14
mílna hraða og er með 120 manna.
Yfirmaðurinn heitir Lautenberger. —
Skipið fer aftur í dag, til Lerwick og
Leith, en lítur eftir um leið þýzkum
fiskiþilskipum hér við suðurströnd
landsins. f>a:) átti að standa við viku-
tíma, en tafðist um of hingað í leið
vegna stórviðris og varð að koma við
í Færeyjum að fá sér kol.
Bæjarstjórn Reykjavíkur.
Síðasti fundur, 6. þ. mán., hafði til
meðferðar meðal annars málið um
mælingu bæjarins og uppdrátt, sem
. Knud Zímsen mannvirkjafræðingur
vildi taka að sér fyrir 7000 kr. eða
þá ganga í þjónustu bæjarins um 2
ár fyrir 2700 kr. á ári. Málinu frest-
að til nánari samninga.
Frumv. um breyting á byggingar-
nefndarlögunum samþ. með 4 : 2 atkv.
Lögregluþjónn kosinn Pétur f>órð-
arson aukanæturvörður, ef hann léti
sér lynda laun þau, er starfið var
auglýst með.
Yeganefnd skýrði frá, að til breikk-
unar Hafnarstræti þyrfti að nema af
stakkstæðunum rúmar 1800 ferh.álnir,
er matsmenn hefðu virt á 1 kr. alin-
ína. f>ví máli frestað.
Afsalað forkaupsrétti að erfðafestu-
landi Jarðþrúðar Pétursdóttur, er hún
selur Binari Pinnssyni ásamt húsi
fyrir 5000 kr.
Samþyktar nokkurar brunabótavirð-
ingar: hús Bjarna Jónssonar í Grjóta-
götu 6000 kr., hús Guðmundar Guð-
mundssonar við Grettisgötu 4347,
Bjarna Jónssonar í Hverfisgötu 4125,
Guðm. Sveinssenar stýrimanns 2155,
Jóhannesar Pálssonar 1760, smíðahús-
Bjarna Jónssonar í Grjótagötu 2042.
I heljar greipum.
Frh.
Oxford-maðurinn hló við.
»Nú er verið að leggja upp aftur«,
mælti hann og þeir greikkuðu báðir
sporið til þess að komast á sinn stað
í þessari kynlegu prósessíu.
Leið þeirra lá nú innan um stór
björg, sem þar voru á víð og dreif, og
svartir, grýttir ásar voru á báðar
hendur. Gatan var þröng og lá í sí-
feldum bugðum. Að baki þeim lokað-
ist útsýnið af sams konar hæðum,
8vörtum og furðulega löguðum, líkust-
um gjallhrúgum við námagöng.
Ferðamannahópurinn varð hljóður
og harðneskja náttúrunnar speglaðist
í öllum andlitunum, jafnvel á bjarta
andlitinu á Sadie. Fylgdarliðið var
nú komið til ferðamannanna, gekk við
hlið þeirra og skrjáfaði í grjótinu und-
ir stígvélum þess. Cochrane ofursti
og Belmont voru enn á undan.
»Á eg að segja yður nokkuð, Bel-
mont?« sagði hersirinn lágt; syður kann
að finnast það flónska, en eg kann
ekkert vel við þetta ferðalag#.
Belmont rak upp snöggan hlátur.
»Alt sýndist felt og smelt, meðan
við vorum í salnum í »Korosko«, en
þegar við erum hingað komnir, verð-
ur því ekki neitað, að þetta er ekki
sem glæsilegast«, sagði hann.
»Á herferðum er eg þess albúinn að
taka hverju, sem að höndum ber«,
hélt hersirinn áfram. »f>að er ekki
nema sjálfsagt og eins og það á að
vera. Bn þegar kvenfólk er með
manni og jafn-varnarlaus hópur eins
og þetta, þá er verulegur voði á ferð-
um, hvað sem út af ber. Auðvitað
eru líkindin eins og hundruð gegn
einum fyrir því, að ekkert beri út af;
en skyldi nú samt svo fara — eg þoli
ekki að hugsa til þess. Dásamlegast
er, hve meðvitundarlaust fólkið er um
það, að nokkur hætta sé á ferðum*.
»Mér þykir útifötin, sem búin eru
til á Englandi, fremur falleg, hr. Steph-
ens«, sagði frk. Sadie að baki þeim.
»En mér finst meiri stíll í samkvæm-
iskjólunum frönsku en ensku. Sniðíð
er eitthvað þunglamalegra hjá ykkur
og smáborðarnir og lykkjurnar fara
ekki jafn snoturlega«.
Hersirinn brosti framan í Belmont.
tHún er að minsta kosti örugg«,
sagði hann. »Auðvitað dytti mér ekki
í hug að segja öðrum en yður það,
sem mér býr í brjósti, og eg geng að
því vísu, að allur ótti reynist ástæðu-
laus«.
»Eg get vel hugsað mér flokka af
dervísjum á ránsferðum, »sagði Bel
mont. »En hitt get eg ekki gert mór
í hugarlund, að þeir rekist að »Pré-
dikunarstólnum« einmitt þennan morg-
un, þegar okkar er von þangað«.
»Ekki finst mér það væri neitt frá-
munalega furðulegt, þegar þess er
gætt, að ferðalag okkar hefir verið
auglýst óspart, og að allir vita viku
fyrir, hvað við ætlum fyrir okkur og
hvar okkur er að hitta«.
•Líkindin eru einstaklega lítil«,
sagði Belmont hressilega; en vænt
þótti honum um það undir niðri, að
konan hans var kyr á gufuskipinu.
Nú var ferðamannahópurinn kominn
fram úr klöppunum og falleg spildaaf
föstum, gulum sandi lá fram undan
honum, alt að keilumynduðu hæðinni,
sem við þeim blasti.
Strákarnir æptu og lögðu í asnana
með stöfum sínum; asnarnir brugðu
á stökk eftir síéttunni. |>á fyrst, er
komið var að götunni, sem liðaðist
upp eftir hæðinni, hrópaði túlkurinn,
að nú skyldi numið staðar.
V eðurathuganir
í Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson.
190 1 ir ffl <1 <t> cx œ 3 <3 — pr
Júní ft aq "p ct- ct- rmS rr cx 3 s» OQ 3 B p œ 3$
Ld. 8. 8 743,5 7,1 S 2 8 5,4 5,1
2 744,1 8,4 S 3 5
9 744,0 5,3 SE 1 4
Sd. 9. 8 745,5 5,9 E 1 6 2,0 1,3
2 747,3 8,1 W 1 4
9 747,7 6,6 W 1 4
Md.10.8 746,0 5,9 w 1 5 2,3 2,3
2 747,4 6,7 NW 1 7
9 750,2 6,5 NNW 1 5
Þd.ll. 8 754,1 6,1 W 1 7 2,2 2,4
2 755,8 8,4 w 1 7
9 758,2 8,2 WNW 1 7
Hjer með er samkvæmt lögum 12.
apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar
1861 skorað á alla þá, sem telja til
skulda 1 dánarbúi Jóns Laxdals Gísla-
sonar tómthúsmanns frá Sellandi hjer í
bænum, sem druknaði 2. apríl þ. á., að
l/sa kröfum sínum og sanna þær fyrir
skiftaráðandanum í Reykjavík áður en
6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birt-
ingu þessarar innköllunar.
Bæjarfógetinn í Rvík 10. júní 1901.
Halldór Danielsson.
Handa Eyfellingum hefir hæzt við
á skrifst. ísaf.: Frú L. Finnhogason 10 kr.
Frá 5 telpum 5 kr. Frá ónefndum 25 a.
Guðm. Þorkelsson Pálshúsum 2 kr. Alls
62 kr. 25 a.
Proclama.
Samkvæmt opnu bréfi 4. jan. 1861
og skiftalögum 12. apríl 1878 innkall-
ast hér með allir þeir, er til skulda
eiga að telja í dánarbúi Einars heit.
Ásgeirssonar á Firði í Múlasveit inn-
an Barðastrandasýslu, sem andaðist
30. október f. á., til þess innan 6
mánaða frá síðustu birtingu þessarar
auglýsingar að lýsa kröfum sínum og
sanna þær fyrir undirritaðri ekkju
hins látna, sem fengið hefir leyfi til
að'sitja í óskiftu búi.
Firði 12. maí 1901.
Jensína Jónsdóttir.
hestar óskast keyptir,
ungir, báðir einlitir.
Helgi Zoega.
Hið bezta er ekki ofsrott.
Brúkið því aldrei annað
Exportkaffi en »Geysir«
tilbúið af Rich é Sönner í Kaupm.h.
* * *
Þess skal getið, að send hafa verið
frá verzlun minni í mörg af helztu hús-
um bæjarins sýnishorn af Exportk iffinu
»Geysir« og að allir sem reynt hafa,
ljúka lofsorði á kaffið fyrir gæði þess.
Reykjavík í júní 1901.
B. H. Bjaraason.
17* Allir þurfa að reyna
Exportkaffið »Geysir«.
Ritstjórar: Björn Jonsson(utg.og ábm.)og
Einar Hjörleifsson.
Prjónavélar
Þeir sem panta hinar ágætu
prjónavélar Simon Olesenshjá
P. NIELSEN 4 Eyrarbakka
fá hentugar vélar fyrir íslenzkt
band frá 23 til 60 krónum u n d i r
verksmiðjuverði, eftir stærð.
Leiðbeining' við pöntun og' prís-
listi verður sent hverjum sem vill.
Frí flutniugur til allra hafna
sem strandferðaskipin koma við á.
íoyrilsltilvindur (Kron-
separatorer) 3 stærðir.
Creolsápa, bezta og ó-
dýrasta baðlyf, sem áreiðanlega
drepur maur, en skemmir ekki
ullirla,
Sápa til ullarþvotta (»Union«
Brand soap) pd. 20 a.
Fæst við
Lefoiiisverzluii á Eyrarb.
G. Björnsson
læknir
er í s u m a r (til 30. sept.) heima
á degi hverjum kl. ÍO—11.
Dugle^ar saumastúlkur
geta fengið strax vinnu á
Saumastofunni í Bankastræti 14
Gunnar Gunnarsson snikkari
selur Vesturfara-koffort og rúm-
stæði, mjög ódýrt.
Hér með er skorað á alla þá,
er bækur hafa að lá,ni úr Lands-
bókasafninu, að skila þeim í safn-
ið 15.—30. þ. m., samkv. Regl.
um at'not Landsbókasafnsins 24.
apr. 1899, et þeir eigi vilja, að
bækurnar verði sóttar til þeirra í
kostnað lántakanda. Utlán hefst
aftur mánud. 1. júlí,
Lbs 8. júní 1901.
Hallgr. Melsteð.
Beztu kolin hér í bænum
Samkvæmt áskoran ýmsra
sem undanfarin ár fengu kol hjá
mér, fæ eg g ó ð »Dysar t«-kol
nú í sumar. Þeir sem ekki hafa
skrifað sig fyrir kolum hjá mér
geta gjöit það í búð minni til
næsta sunnudagskvelds. Því eg
flyt ekki meiri kol en þá verða
pöntuð. Vinsaml.
W. O. BREIÐFJ0RÐ.
Mjólkurskilvindan
Alexandra
JBÍp" Nlðursett verð
ALEXANDRA nr.
12 lítur út eins og hér
sett inynd sýnir. Hún
er stórkasta ogvand-
aðasta skilvindan
sem snúið er með
handafii.
Alexöndru er
fljótast að hreinsa
af ölluin skilvindum.
Alexandra skil-
ur fljótast og bezt
mjólkina.
Alexondru erhættuminna að brúka
en nokkra aðra skilvindu; hún þolir
15000 snúninga á mínútu, án þess að
springa.
Alexandra befir alstaðar fengið
hæstu verðlaun þar sem hiín hefir ver-
ið sýnd, enda mjög falleg útlists.
Alexandra nr. 12 skilur 90 potta
á klukkustund, og kostar ml að eins
120 kr. með öllu tilheyiandi (áður
156 kr.)
Alexandra nr. 13 skilur 50 potta
á klukkustund og kostar nú endur-
bætt að eins 80 kr. (áður 100 kr.)
Alexandra er því jafnframt því
að vera b e z t a skilvindan líka orðin
sú ódýrasta.
Alexandra-skilvindur eru til sölu
hjá umboðsmönnum mínum þ. hr.
Stefáni B. Jónssyni á Dunkárbakka í
Dalasýslu, búfr. þórarni Jónssyni á
Hjaltabkka í Húnavatnssýslu og fleir-
um, sem síðar verða auglýstir. Allar
pantanir hvaðan sem þær koma verða
afgreiddar og sendar strax og fylgir
hverri vél sérstakur leiðarv. á íslenzku.
Á Seyðisfirði verða alt af nægar birgð-
ir af þessum skilvindum.
Seyðisfirði 1901.
Aðalumboðsm. fyrir Ísland og Færeyjar
St. Th. Jónsson.
Hjer með er samkvæmt lögum 12.
apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar
1861 skorað á alla þa sem telja til
skuldar í dánarbúi GuSmundar Guð-
mundssonar tómthúsmanns frá Brúar-
enda hjer í bænum, sem druknaSi 17.
apríl þ. á., að lýsa kröfum sínum og
sanna þær fyrir skiftaráðandanum í
Reykjavík áSur en 6 mánuðir eru liðn-
ir frá síðustu birtingu þessarar innköll-
unar.
Bæjarfógetinn í Rvík 10. júnf 1901.
Halldór Danielsson.
Saga Jörandar hundadaga-
kÓngS (með 16 myndum) fæst núfyr-
ir 1 kr. í bók/everzlun ísafoldarprentsm.
Isafoldarprentsmiðja