Ísafold - 10.07.1901, Page 4
184
Vín og Vindlar
fæst ódýrast í verzluninni NYHÖFN, sérstaklega skal mælt með frönsku
rauðvíni, sem selst fyrir 80 aura flaskan.
mætti ekkert annað gera en dæma um
þær ritgjörðir, sem henni væru sendar.
Prófessorinn neitaði því, með öðr-
um orðum, skýlaust, að nokkuru sinni
gæti verið ástæða til þess að vekja
athygli þjóðarinnar i tímariti á nokk-
urum málum öðrum fremur; að nokk-
uru sinni geti verið skynsamlegt að
ræða fremur eitt efni en annað, og að
sanngjarnt sé að afstýra því, að heil-
ir árgangar af alþýðlegu tímariti séu
fyltir efni, sem langfæstir kaupendur
þess hafa nokkura ánægju eða gagn af.
Mikilsverðar og vandlega hugsaðar
eru þær leiðbeiningar, sem vér Is-
lendingar fáum hjásumum þeim menta-
mönnum vorum, sem mesta vísinda-
virðing hafa hlotið!
Bkki er furða, þó að vér höfum ríka
tilfinning fyrir þeim notum, er vér
höfum af lærdómi þeirra og vitsmun-
um !
Með gufusk. Botníu, sem kom aft-
ur i gær af Vestfjörðum, kom aftur skóla-
stjóri Jón Pórarinsson.
Maður druknaði af Botníu á leið-
inni að vestan, datt útbyrðis, bróðir Sig-
hvats Bjarnasonar bankabókara, Þorbjörn
Bjarnason.
Mokafli við Isafjarðardjúp enn sem
fyr í sumar.
Presthólamálið.' Tilrauninni til
málamiðlunar með Núpsveitingum og fyrv.
sálnabirði þeirra, síra Halldóri Bjarnársyni,
svo að hann gæti komist að brauðinu aft-
ur, lauk svo á þar til kvöddum fund-
um nú um Jónsmessuleytið, sem settur
prófastur stýrði, að Presthólasöfnuður af-
segir hann nær einum rómi, en Ásmundar-
staðasöfnuður óskar mestallur prestsþjón-
ustu hans; vill þá ganga aftur í þjóðkirkj-
una; en — hinn, Presthólasöfnuður, jafn-
ráðinn í að ganga þá úr henni.
Veðuratlmganir
i Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
19 0 1 júlí Loftvog millim. Hiti (C.) CT- Cl" < CD Cfc P <-t cr S <5f SkfmagnJ Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld. 6. 8 754,5 9,8 E 2 9 1,9 7,5
2 752,9 13,5 S 2 10
9 752,6 10,5 8 1 10
Sd. 7. 8 751,8 12,1 8 1 10 0,1 9,0
2 749,9 12,8 SE 1 10
9 744,4 11,7 s 1 10
Md.fi, 8 748,5 10,2 sw 2 10 11,3 9,0
2 754,3 12,8 sw 2 10
9 757,4 8,8 8 1 9
Þd. 9. 8 759,5 9,3 0 9 0,8 6,9
2 760,1 11,6 8SW 1 10
9 760,0 9,6 8 1 10
I heljar greipum.
Frh.
tSegið þér honum, að vér Frakkar
teljum öll trúarbrögð jafngóð*.
•B’oringinn segir, að enginn nema
guðlastshundur og hundssonur mundi
láta Bér þau orð um munn fara, að
öll trúarbrögð séu jafngóð. Hann eeg-
ir, að ef þér séuð í raun og veru vin-
ur kalífans, þá veitið þér kóraninum
viðtöku og verðið sannur Múhameðs-
trúarmaður tafarlaust. Ef þér gerið
það, þá lofar hann fyrir sitt leyti að
koma yður lifandi til Khartúmt.
»Og ef eg geri það ekki?t
»þá verður farið með yður eins og
hina«.
»|>á getið þér skilað kveðju minni
til foringjans og sagt honum, að Erakk-
ar séu ekki vanir að láta neyða sig
til þess að skifta um trúarbrögði.
Foringinn sagði nokkur orð, sneri
sér svo við og ráðfærði sig við þrek-
vaxinn Araba, sem stóð við hliðhans.
»Hann segir, hr. Fardet«, mælti túlk-
urinn, »að ef þér lúkið upp munni
framar, þá muni hann fara svo með
yður, að hundamir eti yður á eftir.
Segið þér ekkert, sem geti orðið til
þesB að spana hann upp; þvf að nú
er hann að tala um, hvað gera eigi
við okkur«.
»Hvar er hann?« spurði hersirinn.
•þetta er Ali Wad Ibrahim; sami
maðurinn sem fór ránsförina í fyrra
og drap alla íbúana í núbiska þorpinu«.
»Eg hefi heyrt á hann minsti, sagði
hersirinn. »Hann er alkunnur að því
að vera hugaðastur og ofstækisfylstur
af öllum foringjum kalífans. Guði só
lof að konurnar hafa ekki komist í klær
hans«.
Arabarnir tveir höfðu borið saman
ráð sín á þann óþýðlega hátt — eins
og fáleikar væru með þeim —, sem
tíður er með Suðurlandaþjóðum, en
öðrum þykir svo kynlegt að sjá. Nú
sneru þeir sér báðir að túlkinum, sem
enn kraup á knó á sandinum; þeir
létu hverja spurninguna reka aðra og
bentu á hvern eftir annan af band-
ingjum sínuin. Svo báru þeir ráð sín
saman af nýju, sögðu loks eitthvað við
Mansoor og létu honum skiljast með
fyrirlitlegri bendingu, að hann gæti
skýrt hinum frá.
»Guði sé lof, herrar mínir! Nú held
eg, að okkur sé óhætt fyrst um sinn«,
sagði Mansoor og þurkaði af sér sand-
inn, sem sat í svitanum á, andlitinu á
honum. »Ali Wad Ibrahim segir, að
þó að vantrúaðir menn eigi einskis að
njóta nema sverðsoddanna af hálfu
sona spámannsins, þá kunni samt að
verða ábatavænlegia fyrir hersveitir
Omdurmans að fá gull það, er látið
verði af hendi sem lausnargjald fyrir
ykkur. þangað til það kemur, getið
þið unnið þrælavinnu hjá kalífanum,
nema ef honum þóknast að drepa
ykkur. þið eigið að setjast á bak
lausu úlföldunum og verða hinum sam-
ferða«.
Foringinn hafði beðið, meðan á
þessum skilaboðum stóð. Nú skipaði
hann eitthvað með fám orðum; svert-
ingi kom fram úr hópnum og hélt á
löngu, dökklituðu sverði. Túlkurinn
ýlfraði eins og héri, sem sér mörð, og
fleygði sér aftur niður á sandinn eins
og brjálaður maður.
»Hvað er nú um að vera, Cochrane?«
spurði Cecil Brown; — því að hers-
irinn hafði verið í herþjónustu í Aust-
urlöndum og var eini maðurinn í
ferðamannahópnum, sem hafði ofurlitla
hugraynd um tungu Araba.
•Eftir því, sem eg kemst næst, seg-
ir hann, að ekki sé til neins að halda
túlkinum, því að enginn muni vilja
gjalda neitt fyrir hann; og haun só of
feitlaginn til þess að nokkurt gagn
verði að honum sem þræl«.
»Aumingja maðurinn !« sagði Brown.
•Heyrið þér, Cochrane, segið þeim, að
þeir skuli gefa honum grið. Við get-
um ekki látið það við gangast, að
honum verði slátrað hér fyrir augun-
um á okkur. Segið þér þeim, að við
skulum í samlögum útvega lausnar-
gjaldið fyrir hann. Eg skal ábyrgjast
hverja fjárhæð, sem mér er unt að
standa skil á«.
Embætti. Héraðlækni í Miðfjarðar-
héraði befir landshöfðingi skipað i vor (15.
maí) Björn G. BlöndaL, prakt. lækni á
Blönduós, frá 1. júni þ. á.
Frá sama tíma er Júlíus P. Halldórsson
(í Klömbrum) héraðslæknir í Blönduóshér-
aði.
Pétur Jónsson. bóndi á Gantlöndum og
alþingismaður, hefir af landshöfðingja
verið skipaður nmboðsmaður yfir Norður-
sýsluumboði frá fardögum þ. á.
Brynjólfur Þorldksson landsh.skrifari
skipaður af landshöfðingja 27. f. mán. í
söngkenslusýslanina við lærða skólann.
Skrifstofustjóri alþingis er nú dr.
Jón Þorkelsson.
Proclama.
Hér með er samkvæmt skiftalögum
12. apríl 1878 sbr. opið bréf 4. jan.
1861 skorað á alla þá, er til skulda
eiga að telja í dánarbúi síra Tómasar
sál. Hallgrímssonar á Völlum, að koma
fram með kröfur sínar og sanna þær
fyrir undirrituðum skiftaráðanda inn-
an 6 mánaða frá síðustu birtingu
þessarar auglýsingar. Erfingjar á-
byrgjast eigi skuldir búsins.
Skrifst. Eyjafjarðarsýslu, 10. júníl901.
Kl. Jónsson.
Proclama.
Með því að Jón bóndi Sveinsson í
Staðartungu hefir framselt bú sitt til
gjaldþrotaskifta, þá er hér með sam-
kvæmt skiftalögum 12. apríl 1878 sbr.
opið hréf 4. janúar 1861 skorað á alla
þá, er til skulda telja í nefndu búi, að
lýsa kröfum sínum fyrir undirrituðum
skiftaráðanda innan 6 mánaða frá síð-
ustu birtingU þessarar auglýsingar.
Skrifst. Eyjafjarðarsýslu, 10. júní 1901.
Kl. Jónsson.
Undirritaður annast um sölu á Is-
lenzkum vörum og innkaup á útl'end-
um vörum.
Innkaupareikningar fylgja hverri
vöruskrá.
Sýnishorn af erlendum vörum hefi
eg, viðskiftavinum til hægðarauka við
pantanir sínar. Svo og líka verðlista.
Hross annast eg um sölu á. Sömu-
leiðis sauðfé, ef skipsfarmar bjóðast í
tíma.
f>eir sem vilja senda út saltað
sauðakjöt áminnast um að panta tunn-
ur í tæka tíð.
Eg tek á móti pöntunum meðan eg
dvel hér; annars sendast þær til mín
í Kaupmannahöfn Gothersgade 135.
Beykjavík í júní 1901.
Jón Vídalín.
Tvíloftað hús í austurbænum er til
sölu. Ritstj. vísar á.
Barnaskóli
Stykkishólmshrepps.
f>eir sem kynnu að hafa hug á að
sækja um aðalkenslustarfið við barna-
skóla Stykkishólmshrepps, snúi sér
skriflega til oddvita hreppsinB fyrir
lok júlímánaðar næstkomandi, og
gefur hann nánari upplýsingar um
kennarakaup o. fl.
Stykkishólmi 4. júní 1901.
Fyrir hönd hreppsnefndarinnar í
Stykkishólmi.
Björn Steinþórsson.
oddviti.
Uppboðsauglýsing.
Samkvæmt ákvörðun skiftafundar
15. þ. m. í búi Garðargfélagsin8 hér á
Seyðisfirði, verður opinbert uppboð
haldið á eignum nefnds félags hér í
bænum fimtudaginn 26. september
næstkomandi og næstu eftirfarandi
daga. Verða þar seldar:
Húseignir félagsins: 2 í-
búðarhús, salthús og fiskihús saman-
bygð; 2 skúrar á Búðareyri til niður-
rifs; 3 samanbygð íflhús.
Hafskipabryggja með j á r n-
B p oru m.
5 stór f i s k i s k i p með útbúnaði.
Veiðarfæri: botnvörpur nýjar
og brúkaðar, botnvörpuslöngur, bóm-
ur, botnvörpupokar, trawlböjur, kola-
net, síldarnet, línur og línubjóð, tráss-
ur, strengir, dufl, kútar o. fl.
Húsbúnaður ýmiskonar. Smíða-
áhöld. Björgunarbelti. Saumur. Farfi.
Hnifar. Timburrusl. Tómar tunnur.
Járnbrautarklossar. 6 járnbrautarvagn-
ar. Olía. Tjara. Járnvara. þakjárn.
Ismaskína með gufukatli. Hjólbörur.
Rambúkki með tilhéyrandi. Jarð-
yrkjuverkfæri. Múrsteinn. Kol. Lúru-
kassar. Baðker. Stór eldavél. Stigar.
Peningaskápur o. fl. o. fl.
Skjöl áhrærandi húseignirnar og
skipiu, svo og uppboðsskilmálar, verða
til sýnis hér á skrifstofunni viku á
undan uppboðinu, sem byrjar kl. 12
á hádegi fyrnefndan dag.
Gjaldfrestur langur.
Bæjarfógetinn á Seyðisf. 20. júní 1901.
Jóh. Jóhannesson.
Proclama.
Með því að Jón Jónsson Vestmann
á Melum í Seyðisfjarðarkaupstað hef-
ir strokið af landi burt sökum skulda
og jafnframt óskað þess, að bú hans
verði tekið til gjaldþrotaskifta, þá er
hér með samkvæmt lögum 12. apríl
1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861
skorað á alla þá, er telja til skulda
hjá honum, að koma fram með kröfur
sínar og færa sönuur á þær fyrir skifta-
ráðandanum hér í sýslu áður en liðn-
ir eru 6 mánuðir frá síðustu birtingu
þessarar innköllunar.
Skrifst. Norður-Múlasýslu 4. júní 1901.
Jóh. Jóhannesson.
Nýkomnar myndir og kort Bræðra-
borgarstíg. nr. 3.
þorsteinn Tómasson járnsmið-
ur Lækjurgötu 10, selur alls konar
stangajárn og plötujárn með mjög vægu
verði.
Fundur
í Kennarafélaginu.
ASalfundur hins ísl. kennaraféJags
verður haldinn kl. 6 e. h. hinn 12. þ.
m. i Iðnaðarmannahúsinu.
Aðalumræðuefni, eins og áður hefur
verið augl/st:
Alþýðumentun hér á landi-
Alþingismenn velkomnir, þó að eigi
séu þeir í Kennarafélaginu.
p. t. Reykjavík 9. júlí 1901.
Jón Þórarinsson
p. t. forseti.
Verzlunin
„N YHÓFN“
hefur nú með Botníu fengið »Síróp«
ásamt möigu öðru.
Undirritaðar taka að sér alls konar
prjón með mjög vægn verði. Alt fljótt og
vel af hendi leyst.
Vindheimum í Ölfnsi, í júlí 1901.
Helga Sœmundsdóttir.
Vigdís Sœmundsdóttir.
T J A L D hæfilega stórt fyrir 7—8 menn
óskast leigt; nánari upplýsingar gefur
Jón Jónathansson, Kirkjustræti 4.
á Alafossi tekur á móti ull til að
vinna úr dúka.
Halldór Jónsson.
Ritstjórar: Björn J6nsson(útg.og ábm.)og
Binar Hjörleifsson.
Isafoldarprentsmiðja