Ísafold - 14.08.1901, Side 3

Ísafold - 14.08.1901, Side 3
228 neitt, neraa meir en helmingur þingmanna eé á fundi og greiði þar atkvœði. 12. gr. (2. ákv. um stundareakir). £>ungað til lög þau, er getið er um í 2. gr. (3. gr. stj.skr.), koma út, skal hæsti- réttur ríkisins dæma mál þau, er alþingi höfðar á hendur ráðgjafanum fyrir Island út af emhættisrekstri hans, eftir þeim mál- færslureglum, sem gilda við téðau rétt. Ráðaneytisbreytingin clanska. Eins og nærvi má geta, var ráðaney tis- breytingin aðalumræðuefni danskra blaða fyrstu dagana eftir er hún komst í framkvæmd. Yér prentum hér kafla úr rit- stjóruargrein í aðalmálgagni núverandi stjórnarflokksins, »Politíken«, 24. júlí síðastl. •frjátíu ára baráttu er nú lokið á þann hátt, að frjálslyndar hugsjónir og lýðstjórnar-skoðanir hafa unnið sigur. Fyrir sigrinum verður ekki gerð grein með neinu einstöku orðatiltæki, svo sem að nú hafi sjálfstjórnarhugmynd- in komist í framkvæmd, þingræðinu sé borgið, vald fólksþingsins sé viður- kent, yfirráð landsþingsins séu brotin á bak aftur; slík ummæli lýsa ekki til fulls sögulegu mikilvægi hins nýja ráða- neytis. því væri jafnvel ekki lýst til fulls, þó að sagt væri, að stjórnarskip- uninni só nú aftur konaið í rótt horf, því að hún nýtur sín ekki til fulls, eins og hún á að njóta sín í stjórn- frjálsu landi, fyr en komnir eru upp tveir stjórnmálaflokkar, sem að sjálf- sögðu taka við völdunum hvor af öðr- um, eftir því hvorum mönnunum þjóð- in hefir traust á í það og það skiftið. Nei, þetta, að þessi mikla stjórn- málabylting er nú loksins komin i framkvæmd í landinu, táknar, mun tákna og á að tákna nýjan tíma, nýj- an anda. f>egar öldur baráttunnar risu hæst fyrir mörgum árum og Estrup með fylgisveit sinni bauð byrg- inn með mestum ofsa og smánaði ó- sleitilegast stjórnmála-siðgæði og borg- arlega réttlætistilfinningu, þá sagði sá maður, sem hefir verið ritstjóri þessa blaðs frá því, er það var stofnað og þangað til nú, að ekki væri mikils um það vert, hvort Estrup væri við völd- in langa stund eða skamma, og það jafnvel þótt hann væri við völdín fram á næstu öld; aðalatriðið væri það, að þegar hann loksins færi frá, þá væri þjóðin í Danmörk orðin önnur en hún hefir verið, þegar hann tók við yfirráð unum. Önnur þjóð í Danmörku — það er þetta, sem þrjátíu ára baráttan hefir skapað: sveitalýður, sem hefir ákveð- ið takmark í fjárhagsmálum og stjórn- málum, með sívaxaDdi valdi; öflugur erfiðismannaflokkur með félagsskap, sem neytt hefir ríkið og vinnuveitend- ur til að viðurkenna sig, jafnvel und- ir afturhaldsstjórn hægrimanna; og loks er það, sem ekki er minst um vert, að borgalýðurinn er leystur úr læðingi, Kaupmannahafnarbúar orðnir vinstrimenn —------------- RáíSaneytið hefir öflugan stuðning í fólksþinginu, enda tekið úr meiri hluta þess. Hœgrimenn hafa beðið algerðan ósigur og eru á tvístringu; núfyrstgeta þeir farið að koma skipun á lið sitt aft- ur. Af mörgum ástæðum verður ekki búist við rmkilli mótspyrnu af hálfu landsþingsins, meðal ^inars vegna þess, að fyrir vánhyggju hægrimanna ‘táknar ráðaneyti vinstrimanna einmitt ósigur landsþingsins: ráðaneytin, sem þaðþing studdi,urðu smámsaman veikari og veik- ari, þanguð til þau urðu að engu. Ráðaneytið er því óvenju-öflugt, hvert sem litið er. En það tekur við stjórn- inni á örðugum tímum, eftir margra ára stjórnarólag, og rfkissjóður er tæmd- ur. Ráðaneytið á mikið verk fyrir hönd- um; taka þarf í taumana andspænis mönnum og margvíslegu háttalagi, koma skipulagi á margt og setja n/ lög, út- vega peninga ogsparafó; umboðsstjóru- in á $8 eflast og skriffiuskan bælast nið- ur; mikilsverð löggjafarmál, skattalög, róttarfarslög, skólalog o. s. frv., eiga að komast í framkvæmd. Með öðrum orð- um, ráðaneytið á fyrir sér örðugt og víðtækt starf, og kröfurnar til þess og vonirnar um það eru jafnmiklar. En það liggur í augum uppi, að stjóruin, sem tekur við völdunum á elleftu stundu — tveim mánuðum áður eti ríkisþing- ið verður sett — á heimting á því að vinir þess syni því langlundargeð. Róma- borg var ekki bygð á einum degi, og n/tt skipulag kemst ekki á á eiuu þingi né heldur á einu ári<í. Við sama tón kveður yfirleitt í hlöð- um vinstrimanna og sósíalista, eindreg- inn fögnuður út af því að hafa losnað við stjórn, sem barist hefir gegn marg- földum meiri hluta þjóðarinnar, og að hafa fengið stjórn, sem sá mikli meiri hluti hefir gott traust á. I þeim blöð- um 6i' það talið einkar-vænlegt fyrir sig- ursældir ráðaneytisins, að í því eiga sæti foringjar fyrir hinum /msu sveitum í liði vinstri manna. Aftur á móti gera blöð hægrimanna sér auðsæja von um, að það muni valda deilum í ráðaneytinu og verða til þess að veikja það. Berlingatíðindi eru í átakanlegum vandræðum. Það blaðhefir, eins og kunn- ugt er, verið stjórnarinnar sórstaka mál- gagn og ætlar sér að vera það áfram, þó að nú sé komin stjórn með þveröf- ugum skoðunum við það er áður hefir verið fram haldið í blaðinu. Þess vegna eru hreyfingarnar nokkuð kynlegar, þeg- ar það er að synda milli skerjanna og varast að reka sig hvergi á — þorir í raun og veru ekkert að segja annað en 1/sa yfir ást sinni á konunginum og ættjörðunni. Milliþinganefnd í fátækramálum. IJáðar deildir alþingis hafa samþykt svo felda þingsályktun: 1. Alþingi ályktar að skora á lands- stjórnina að skipa 3 manna nefnd milli þinga til þess: að safna saman í eina heild fátækra- og sveitarstjórnarlöggjöf landsins og endursemja hana með þeim breytingum, er þurfa þykir; að láta uppi álit um, hvort eigi væri heppilegt, að landssjóður legði ellihrumu alþyðufólki, sem eigi hefir þegið af sveit, ellistyrk til móts við og í sambandi við styrktarsjóði handa alþ/ðufólki; að láta uppi tillögur um, hvort eigi muni ráðlegt, að landssjóður styðji að stofnun ábyrgðarsjóðs, • er veitir alþ/ðumönnum tækifæri til að tryggja sér ellistyrk. Frumvörp og tillögur nefndarinn- ar um þessi málefni skulu lögð fyrir alþingi 1903. 2. Alþingi skorar á landsstjórnina, að leggja fyrir embættismenn og sveit- arstjórnarvöld landsins, að láta nefnd- inni í tó allar þær skyrslur og upp- lysingar, sem þeim er unt og nefnd- in kynni að óska eftir. Bankinn. Samþykt var hlutaféiags- bankafrv. vifJ2.umr.ígæríneðri deild, þetta frá meiri lil. nefndarinnar (sbr. siðasta bl.), þrátt fyrir megna mótspyrnu afturhalds- lið’sins, sem vill fyrir hvern mun halda uppi heigi landsbankans og aðhyllast held- ur vonlausar káktilraunir til að efla hann. Stjóruarbótin á þingri. Siðasta hriðin. Hún var samþykt í gær í efri deild við 3. umr. með 6 atkv. gegn 5. — Þessir 6 voru hinir sömu og nefndir voru um daginn að samþ. hefðu frum- varpið' við 2. umr. Ekki töluðu aðrir en þeir Guðjón, til að kvitta íyrir það, sem Kr. J. vék honum um daginn, og Sigurður Jensson (gerði grein fyrir atkv. sínu). Það gerðist og þar að auki, í fundar- byrjun, að forseti las upp langt skjal frá afturhaldsliðinu í neðri deild, sem var heit askorun til efri deildar um að samþykkja ekki frumvarpið(!); er þannig vaxin málaleitun líklega eins- dæmi í sögu löggefandi þinga, og virðist ásamt fleiru vera þess órækt vitni, að meira só um kapp en forsjá eða vits- muni í hóp afturhaldsliða á þingi voru. Kr. Jónsson hreyfði efa um, hvort nokkur heimild mundi fyrir því í þing- sköpunum, að slíkt skjal væri lesið frá forsetastólnum ; en frekara var ekki við það gert Hann sk/rði og um leið frá, að hann hefði í höndum tilmæli frá hinum flokkn- um í neðri deild til flokksbræðra þeirra í efri deild um að láta málið ganga fram án frekari tafa. Fyrnefnd áskorun frá afturhaldsliðinu í neðri deild er að eins ein af mörgum atrennum, sem það hefir gert í sumar til þess að koma málinu fyrir kattar- nef, /mist samkvæmt þingsköpum eða þingskapalaust, með taumlausum undir- róðri og blekkingum. Og nú, eftir að málið er gengið fram, ber það upp tillögu í neðri deild til þingsályktunar um, að skora á stjórniua að gefa e k k i gaum hinu ný-samþykta frumvarpi, heldur koma með á næsta þingi öðru vísi lagað frumvarp, helzt sjálfsagt sem líkast »heimskustjórnar- frumvarpinu« þeirra sæla. Með óðrum orðum: þeir vilja láta déildina verða beint tvísaga — afgreiða frá sér a sama þingi gagnstæðar lög- formlegar ályktanir um sama málið ! Það er naumast láandi, þótt margur maður só fariun að efast um, að for- ingjar afturhaldsliðsins séu með öllum mjalla. Hin ofsalega geðshræring, sem þeir eru í út af vonbrigðunum um afdrif málsins á þinginu, virðist hafa svift þá allri stjórn á sjálfum sér. Fallin frumvörp. Um stofnun land- spitala í Reybjavik (nd); nm eftirlaun (ed); nm afnám gjafsóknarétts embættism. (ed); um breyting á læknishéraðaskipun — í Húnav. og Strandas. (nd.); nm að létta ftr- gjaldi af Prestbakka í Hrútaf.; um að gera Einholtssókn að brauði sér; um kjörgengi kvenna; nm hrú á Jökulsá í Axarfirði; um breyting á bæjargjöldum í Reykjavík; um hreyting á bæjarstjórnarlögum Isafjarðar- kaupstaðar, o. fl. Fjárlögin eru uú húin í neðri deild og komin i nefnd í efri: Kr. Jónsson (form.), Magnús Andrésson, Sigurður Jensson, Ei. ríkur Briein, Guðj. Guðl. Allar áður taldar (52. tbl.) styrkveiting- artillögur fjárlaganefndarinnar í neðri d. voru samþyktar. Sömuleiðis lánveitingatil- lögur hennar (sjá 53. tbl.), nema um lán til þurrar sfcipakviar; því var breytt i 30,000 kr. lán »til skipakvíar eða 2 dráttar- biauta (slip) í Hafnarfirði eða í grend við Reykjavík*. Ennfremur var eftir tillögu fjárlaganefnd- ar veittar 2250 kr. styrknr til að varna skemdum á Örfirisey, gegn öðru eins úr hafnarsjóði, og Stefáni kennara Stefánssyni veittar 1000 kr. til að rannsaka fóður- og beitijurtir. Aðrar styrkveitingatillögur féllu flestar. Þó gekk fram 4000 kr. fjárveiting til bygg- ingar skólahúss á Blönduós og tvennar 600 kr. handa Halldóri nokkrum Guðmundssyni i Khöfn til að læra elektroteknik; ennfr. tvennar 1000 kr, til imglingakenslu í Dala- sýslu. Löff frá alþingi. Loldð nr við þessi frumvörp og þau af- greidd frá alþingi. 1. Um bann gegn þvi, að flytja vopn og skotföng ’frá Islandi til Kína. 2. Um útvegun á jörð banda Fjallaþinga- prestakalli. 3. Um tilhögun á löggæzlu við fiskiveiðar i Norðursjónum. 4. Um laun sýslumannsins í Suðurmúla- sýslu (hækkun þeirra upp i 3000 kr.) 5. Um forgangsrétt veðhafa fyrir vöxt- um. 6. Um manntal í Reykjavik. 7. Um stofnun slökkviliðs á Seyðisfirði. S. Um bólusetningar. 9. Póstlög. 10. Um undirbúning verðlagsskráa. 11. Yiðankalög um prentsiniðjur. 12. Um breyting á bæjarstjórnartilsk. fyrir Reykjavik. 13. Um próf í gufuvélafræði við stýri- mannaskólann í Reykjavik. 14. Um beilbrigðissamþyktir í kaupstöð- um, kanptúnum og sjóþorpum á Isaúdi. 15. Um skipun sótara i kaupstöðum öðr- um en Reykjavík. 16. Viðaukalög við lög 31. jan. 1896 um varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma. 17. Um samþykt á landsreikningnum 1898 og 1899. 18. Fjáraukalög 1818 og 1899. 19. Um sildarnætur. 20. Um greiðslu verkkaups. 21. Um breyting á opnu br. o. fl. um byggingarnefnd í Reybjavík. 22. Um skifti á jörðinni Vallakoti i Reykdælahreppi og jörðunni Parti i sama hreppi. Slgling. Frithiof (589, Pedersen) i dag frá Netvcastle með kol til gufuskipafélags- ins og steinolíu til verzlunar J. P. T. Bryde og Nýhafnar. Seglskip »August« frá Dysart með kol til H. Th. A. Thomsen. Veðuf*athuganir i Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson. 1901 ágúst Loftvog millim. Hiti (C.) >- <r r <rt- <1 CD OX C cr 8 Skjmagnl Urkoma millim. Minstur hiti (C.) Mvd.7.8 745,5 10,0 s i 10 4,4 8,2 2 744,4 10,6 8 i 9 9 743,3 8,7 E i 10 Fd. 8. 8 745,0 9,0 w i 9 5,2 6,8 2 746,5 11,5 wsw i 10 9 748,2 10,7 NNW i 9 Fsd 9. 8 753,0 10,2 NNW 2 4 7,9 2 755,3 11,3 N 3 2 9 758,6 8,6 N 1 2 Ld.10. 8 762,9 9,6 N 1 2 3,1 9 764,7 12,0 NW • 1 5 2 765,5 9,8 ' o 6 Sd.l 1. 8 764,8 9,9 o 6 3,8 9 764,5 13,6 Nw 1 5 2 763,7 10,0 0 3 Md.12.8 761,6 10,7 0 9 5,6 2 760,5 12,8 WNW 1 9 9 759,3 11,6 0 10 Þd.13. 8 753,£ 12,0 NW ; 1 9 9,9 2 750,4 10,4 NW 1 1 10 9 750,9 9,5 ssw 1 101 I heljar greipum. Frh. »Hér er nokkuð, sem eg ætla að láta yður fá«, mælti hanD í hálfum hljóðum. »f>að getur svo farið, aðvið verðum bráðum aðskilin, og þess vegna er jafngott, að við séum nú þegar við öllu búin«. »Aðskilin !« át frk. Adams eftir hon- um veinandi. »Talið þér ekki svona hátt; mann- skrattinn hann Mansoor getur vel komið upp um okkur aftur. Eg vona, að við þurfum ekki að skilja; en fyr- ir getur það komið. Við verðum að búast við öllu því versta. þeirgætu, til dæmis að taka, tekiðþað tilbragðs að losa sig við okkur, en halda ykkur«. það fór hrollur um frk. Adams. »Hvað á eg að gera? í guðs bæn-

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.