Ísafold - 07.12.1901, Blaðsíða 3
307
Ekki vel vakandi
í síðasta tbl. afturhaldsmálgagDsins,
3. þ. m., er örstutt grein með yfir-
skriftinni »Heimastjórn« og undirskrift-
inni »X«, þar sem svo segir, að ef vér
viljum fá forræði yfir sérmálum vor-
um, verðum vér að flytja stjórn þeirra
inn í landið og afnema stjórn þeirra í
Khöfn. »þá fyrst geta Islendingar
fengið sjálfsforræði yfir sérmálum sín-
um, er þeir hafa heimastjórn«,
segir svo. Ritstjórinn hefir eigi gert
neina athugasemd við greinina um
þetta; líklega eigi skilið, hvað í henni
felst. f>að er alveg rétt, að innlenda
stjórn eða heimastjórn í r é 11 u m
s k i 1 n i n g i fáum vér eigi fyr en
lagastaðfestingar-vftldið og hið æðsta
úrskurðarvald í sérmálum vorum er
flutt inn í landið (o: skipaður hér
landsstjóri, ábyrgðarlaus fyrir alþingi,
en hafandi ráðgjafa, er beri ábyrgð á
stjórnarathöfninni fyrir alþingi). þetta
stjórnarfyrirkomulag girnumst vér
Stjórnarbótarmenn, að því tilskildu, að
sambandi voru og samskiftum við
hina dönsku ríkisstjórn í Khöfn sé
viðunanlega fyrir komið. Tíu-manna-
frumvarpið sæla fer í alt aðra átt, og
Sömuleiðis alt hið fárránlega, illa hugs-
aða og heimskulega ráðgjafa »búsetu«-
brask, sem nú er efst á baugi, og
auðsælega Btefnir að því, að selja úr-
slit málefna vorra í hendur hinum
dönsku ráðgjöfum annaðhvort öllum í
einni bendu eða forsætisráðherranum
einum að nafninu til, en í raun og
veru í hendur einhverri svonefndrí ís-
lenzkri skrifstofu í Khöfn. þessu sýn-
ist ábm. afturhaldsmálgagnsins eigi
hafa haft athugun á, er hann tók á-
minst greinarkorn. Hann hefir ekki
verið »vel vakandi« þá. Hann
hefði líklega annars ekki farið að
hirða mótmælalaust hugvekju, sem fer
í svona þver-öfuga átt við hugsjón
hans og hans félaga um þessar
mundir.
Stjórnarbótarvinur
Mikiisverð iðja.
Mörgum mun þykja einkar fróðleg
og merkileg skýrsla sú eftir herflota-
höfuðsmann K. Haramer, sem ísafold
flytur í dag.
það er harla mikilsverð iðja, hans
og fyrirrennara hans, mjög merkur og
áríðandi þáttur í viðleitninni að gera
landið sem byggilegast, sem ekki er
minna í varið en margt það, er kent
er við stórkostlega föðurlandsást og
stórmikið af látið. Að þessu verki
er unnið í hægð og kyrþey, að manni
liggur við að segja, en með frábærri
elju og samvizkusemi, ár eftir ár, af
útlendum ágætismönnum, sem sjaldan
eru nefndir á nafn, og fyrir útlent fé.
það er mikil eftirsjá í því, að hr.
R. Hammers skuli ekki vera von
framar hingað til þessa starfs. Hann
hefir getið sér hér bezta orðstír, og
það er vÍ3t, að landsmenn, ekki ein-
ungis þeir, er kynni hafa af honum
haft, heldur og allir þeir, er meta
kunna hið mikilsverða starf hans,
senda honum og hans mönnum í hug-
anum einlæga þakkarkveðju.
þá skyldu og landsmenn, þeir er
þess eru megnugir, sízt undir höfuð
leggjast að verða við áskorun hr.
Hammers um að láta í té allan fróð-
leik, er þeir geta, og koma kynni að
einhverju haldi þeim er umbæta vilja
sjóbréfin fslenzku. Bezt að senda alt
slíkt til »S0kortarkivet, Kobenhavn*.
Vopnaflrði, um veturnætur:
Héðan er fátt markvert að frétta. Afla-
brögð heldur treg, svo útvegsbændur munu
hafa gjört litlu betur en standast kostnað
í sumar, og sumir alls ekki. Hafa því
valdið stormar og ógæftir, enda hefir fisk-
ur oftast verið mjög hvikull. Sildarafli
hefir aftur verið með meira móti og stund-
unj mjög mikill, en engin útgerð er hér
fyrir þá veiði, nema litil lagnet til beitu-
veiða, og er það skammsýni mikil.
Heyskapur er hér aftur í bezta lagi,
því tíðin hefir verið ágæt fyrir landbúnað,
og grasvöxtur i betra iagi.
Verzlun er hér danf og fjörlítil, og lit-
ur út fyrir, að það liggi hér í laudi. Flest-
ar útlendar vörur dýrari en á Seyðisfirði,
og svo mikill vöruskortur, að til vandræða
horfði með nauðsynjavöru um hásumavið,
Kaupstaðarskuldir eru hér mikiar, eu sam-
kepni í verzlun nauðalitil. Pöntunarfélag
var stofnað hér fyrir nokkrum árum, og
bætti það talsvert úr skák við það, sem
áður var, en það er nú liðið undir lok.
Banamei í þess mun hafa verið efnaleysi
og samhaldsleysi bænda, og loks ekki sizt
verzlun sú, er þeir Zóllner og Vídalin settu
hér á stofn fyrir fám árum. Hugðu bænd-
ar gott til, og að pöntunarfélag mundi nú
óþarft. En raunin hefir orðið sú, að hin
nýja verzlun fetar dyggilega í fótspor hinn-
ar eldri verzlunar, siðan hún náði bænd-
um á skuldaklafann.
Margt er hér rætt um stjórnarbótar-
mál, en sorglega fáir menn hugsa það
mál ofan i kjölinn; og svo mun þvi miður
vera um alt Austurland. Það eru að eins
örfáir menn, sem áhuga hafa á því máli,
en allur fjöldinn fylgir þessum leiðtogum
hugsunariaust Ræður þá oftast vinátta,
auðvald eða ótti, hverjum fylgt er. Plest-
ir Vopnfirðingar efldu harðsnúinn fRkk i
fyrra gegn valtýskunni, undir forustu
þeirra Ólafs verzlunarstjóra Davíðssonar
og Jóns læknis Jónssonar. Munu forkólf-
arnir halda fast við þá stefnu enn; en svo
virðist mér sem ýmsir hinir gætnari menn
séu farnir að skoða huga sinn betur um
þetta mál. Æsingar þær, sem Seyðisfjarð-
arblöðin hafa haft i frammi bæði við
kosningarnar síðustu og um málið síðan,
hafa eflaust komið mörgum til að athuga
betur tákn timanna, og einknm ýmsar hug-
vekjur i ísafold í sumar. Mörgura er þvi
eflaust kunnari afstaða þessa máls en áður.
og ætti það að vera góður undirbúningur
undir næstu kosningar.
Meðallandi 11. nóv,:
Tiðarfar næstliðinn vetur, vor, sumar
og það sem af þessum vetri er, má heita
gott. Reyndar hafa rigningar og hvass-
viðri verið tið, i köflum. Slátturinn var
með köflurn rigningasamur og yfirleitt
þerridaufur, svo hey þornaði ekki svo vel
sem þurfti. Einungis eina viku, siðla í á-
gúst, var góður þerrir. Skömmu eftir
höfuðdag brá til rigninga og óþerris, svo
eftir það var úti með allan heyafla, svo
sumt liggur úti óhirt, en hitt náðist blautt
og skemt.
Heilsufar yfirleitt hærilegt. A stöku
bæjum stakk sér niður inflúenzaveiki, held
eg, heldur en önnur brjóstveiki eða lungna-
bólgusnertir; sem þó kvað ekki mikið að.
Skarlatssóttin gerði vart við sig hér í
hreppi, dó einn maður úr henni, stúlka um
tvitugt; en fyrir stranga einangrun og
sterkan vörð tókst að girða fyrir að hún
færðist út.
Slys engin og höpp heldur ekki, nema
síra Bjarni Einarsson fekk hvalkálf á fjöru
sína i haust. Engir nafnkendir hafa dáið.
Yegna hausthríðanna aflaðist litið af ís-
lenzka melnum. Yerður því harðrétti
manna á milli, ef ekki ber neitt til happa.
Sveitarútsvör óþolandi.
Bæjarstjórn Reykjavikur.
Bæjarstjórain samþykti ð. þ. mán.
svofelda skifting á áætluðu vegafé
bæjarins 1902:
Til Laugavegar (gangstéttar 75 f.,
púkklagningar 30 f.).......... 1100 kr.
auk efnis, sem til er 240 kr.
virði.
Hverfisgata 115 f........... 460 —
Klapparstígur 120 m. á 1
kr. og 160 m. á xj^.......... 320 —
Lindargata, grjóthreinsun
og ofaníburður .............. 100 —
Amtmannsstígur, stéttar-
steinar samkv. reikningi..... 100 —
Grettisgata, austurhluti ... 350 —
Tjarnargata, lóðarkaup til
breikkunar og vegalagning ... 200 —
Vegur að Lágholti gegn 30
dagsv. hjá búendum og ó-
keypis lóð .................... 165 kr.
Hafnarstræti ............... 300 —
Ofaníburður (þar á meðal á
Laugavegi og Hafnarfjarðar-
vegi)......................... 905 —
Amtm. tilkynnir, að staðfest hafi ver-
ið afnám fiskisamþ. 17/2 ’97.
Eiríkur Magnússon selur f>. Tóm-
assyni erfðafestublett á Melunum fyr-
ir 30 kr.; bæjarstjórnin notar eigi for-
kaupsrétt.
Ljósker. skyldi setja við Nýlendu-
götu og annað við Vesturgötu and-
spænis Stýrimannaskólastígnum.
Veganefnd falið að íhuga beiðni Um
brunn í Sauðagerði.
þiessar brunab.virðingar samþ.: hús
Andr. Bjarnas. eöðlasm. við Lauga-
veg 18,797 kr.; þvottahús nýtt við
Laugarnar 1700; bær í Kaplaskjóli
(Svb. Ól.) 1405; bær á Selsholti (Ól.
og Sig. Ólafss,) 1125 kr.
Allir á fundi nema Tr. G.
V eðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson
1901 nóv. des. Loftvog millim. Hiti (C.) >- erÞ < o ox I" c* œ yr 3 p 15. Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld. 30.8 752,9 4,4 8W 2 10 9,6 3,2
2 755,8 1,6 W 1 9
9 75S,3 0,9 0 9
Sd. 1. 8 741,7 2,1 E 2 9 2,4 -1,1
2 742,2 4,6 S 1 10
9 740,1 2,9 E 1 7
Md. 2. 8 750,9 1,5 0 5 2,1 0,4
2 755,8 2,7 S 1 9
9 758,3 1,7 0 10
Þd. 3. 8 750,2 3,3 E8E 2 10 1,7 0,2
2 744,0 8,2 S8E 3 10
9 748,4 2,7 WSW 2 10
Mvd 4. 8 741,3 4,4 S8E 3 10 11,2 0,3
2 732,1 5,5 8SW 3 10
9 732,0 1,5 SW 2 6
Fd. 5. 8 732,5 0,2 8SW 1 6 18,6 -0,5
2 735,0 -0,2 SSW 3 9
9 736,7 0,9 sw 3 10
Fad 6. 8 722,2 0,8 E 2 9 0,8 -1,1
2 721,2 1,9 E 1 10
9 727,4 1,1 S8W 2 7
Póstskipið Laura, kapt. Aasberg,
komst ekki á stað i gær, vegna rosa und-
anfarna daga. Með því fara nú í dag
kaupmennirnir Björn Kristjánsson og W.
Ó. Breiðfjörð, yfirbakari Carl Frederiksen,
Þorst. Gnðmundsson verzlm., Bjarni trésm.
Jónsson og Eyvindur Arnason trésm., Ólaf-
nr Hjaltested o. fl.
i
I heljar greipum.
Frh'
það var ákaflega fárránlegt, að heyra
þetta hljóð í fjarska í þessari mikil
fenglegu, tilbreytnislausu auðn.
Nú heyrðist vot£a fyrir alkunnu lagi
í þessum fjarlæga óm og það lá við
að þeim fyndist þau heyra orðaskil,
erindin þessi:
Með degi hverjum dagleið nær
Oss diramum skilar ranni.
f>au vissu ekki, hvort heldur var,
að síra Stuart hafði fengið aftur ráð-
ið, eða svo hafði hizt á, að hann fór
að syngja þetta ósjálfrátt í hitasóttar-
órum sínum. Félagar hans rendu tár-
stoknum augum í áttina til hans;
þeim duldist það ekki, að þeim veg-
faranda »skilaði» nú skjótt »nær dimm-
um ranni«. Köddin hljóðnaði smám-
saman og varð að óskýrum óm, þar
til er hún sloknaði alveg í ómælilegri
auðnar aldeyfunni.
•Aldavinur minn kær! Eg vona að
hann hafi ekki skaðmeitt yður«, mælti
Belmont og studdi hendi á kné Coch-
rane hersi.
Hann sat nú keikur aftur, en nokk-
uð andstuttur enn.
*Nú er eg alveg jafngóður aftur.
Viljið þér gera svo vel, að sýna mér
þann, sem lagði í raig«.
»f>að er hann þarna á undan —
úlfaldinn hans gengur við hliðina á
þeim, sem hann Fardet ríður«.
•Pilturinn með yfirskeggið? f>að er
svo dimt, að eg sé hann ekki glögt.
En eg held þó, að eg mundi átta
mig á honum. f>akka yður fyrir,
Belmont!«
»Eg hélt, að þór hefðuð rifbeins-
brotnað*.
»Nei. Eg gerði ekki nema fekk
andköf«.
»f>ér hljótið að vera af stáli gerður,
en ekki holdi. f>etta var voðahögg.
Hvernig fóruð þér að jafna yður svona
fljótt aftur?«
Hersirinn rumdi við og anzaði, hálf-
hikandi:
*Eg skal segja yður, Belmont minn
góður — eg veit, að þér farið ekki,
að segja frá því, sízt kvenfólkinu —
eg er farinn töluvert að eldast, og til
þess, að geta borið mig hermannlega
— og kann ekki við annað — þá er
eg í —«
»Spanga-upphlut!« greip Irinn fram
í, alveg forviða. »Hamingjan hjálpi
mér!«
'*Já, ofurlitlum, léttum reimaskorðum«,
anzaði hersirinn, stuttur í spuna, og
beindi talinu að því, hvað fyrir þeim
mundi liggja daginn eftir.
Oft ber þeim í drauma, er enn
eru á lífi, þetta öræfa-ferðalag þá löngu
nótt. f>að var og draumi líkast, þetta
ferðalag, hljótt eins og draumur, er
úlfaldarnir tifuðu áfram á lungamjúk-
um löppunum, en förunautar þeirra
hvarflandi eins og vofur á báða bóga.
f>að var eins og algeimurinn lægi
útþaninn fram undan þeim. f>ar blik-
aði skær stjarna jafn-lágt veginum og
önnur þar fyrir neðan undir eins og
spölkorn skilaði áfram. Hver himin-
hnötturinn og hvert himinhnatta-
kerfið á fætur öðru sveif hátignarlega
yfir höfðum þeim og leið í hvarf bak
við dimman sjónbauginn.
f>eim var ofurlítill hugarléttir, að
horfa á þá mikilfenglegu dásemd drott-
ins: það var eins og þeim fyndist ör-
lög sfn og einka-hagir verða að fánýtu
hjómi móts við slík regin-öfl. Hin
mikla himintungla-fylking leið um
þveran himin og seig síðan niður á
við hátignarlega, þar til er loks vott-
aði fyrir gráleitri dagsbrún í austri,
og bandingjunum varð bylt við, er þeir
litu hver framan í annan og sáu, hve
hreldir og ömurlegir þeir voru ílits.
Askorun. Yér undirskrifaðir, sem er-
um í etjórn skipstjórafélagsins »Aldan«,
skorum hér með fyrir vora eigin hönd, og
allra einstakra meðlima nefnds félags, á
átgefanda biaðsins »Reykvikings«, kaupm.
V. O. Breiðfjörð, að lýsa því yfir opin-
berlega, að hverjum skipstjórum, stýri-
mönnum eða þilskipasjómönnum hann bein-
ir illmælum þeim og aðdróttunum, sem
finnast í grein nokkurri í nefndu biaði
hans 10. og 11. tölubl. XI. árgangs, með
fyrirsögninni: »Af hverju eru þilskipa-
sjómenn álitnir óvirðulegri en landvinnu-
menn?«,og að nafngreina þá jafnframt
þannig, að þeir hinir sömu geti borið á-
mælin af sér, en að aðrir félags- og stétt-
arbræður vorir megi um leið vera undan-
þegnir lastmælum þeim og ærumeiðandi á-
burði, sem nefnd grein flytur lesendum
Reykvíkings. Vér skulum geta þess, að í
skipstjórafélaginu eru um 70 félagsmenn,
og eru þá að eins tiltölulega fáir skipstjór-
ar utan félags a'f þeim, sem eiga heima hér
í Reykjavík. A hinn bóginn segir nú í
greininni, að ámæli þau, sem sérstaklega
eru borin á skipstjórana hér, séu verðskuld-
uð af öllum þorra þeirra, að eins með
nokkurum undantekningum, og er þannig
auðsætt, að félag vort hefir fulla ástæðu
til að fara fram á slíka yfirlýsingu af
hálfu ábyrgðarmanns greinaiinnar, sem að
framan er sagt.
En vcrði V. O. Breiðfjörð kaupmaður
ekki við þessari áskorun, er það sýnilegt,
að hann þorir ekki að standa við það,
sem í greininni er borið sjómönnum á
brýn, og lýsum vér því þá jafnframt yfir,
að vér álitum hann minni mann eftir.
Reykjavík */„ 1901.
Þorsteinn Þorsteinsson, Jafet Olafsson,
pt. form. pt. skrifari.
Finnur Finnsson,
pt. gjaldkeri.