Ísafold - 02.04.1902, Blaðsíða 4

Ísafold - 02.04.1902, Blaðsíða 4
I heljar greipum. Frli. Blámaðurinn sneri sér á hina hlið- ina og skreið burt lítinn spöl; þar hitti hann einn félaga sinn, Mehemet Ali, er ieit eftir úlföldunum. f>eir ræddu með sér máiið stundarkorn; því þeim þótti ógaman að missa af 300 vænum gullpeningum. því næst 8kríður Blámaðurinn sömu leið aftur til Cochrane hersis. • Mehemet Ali felst á það«, segir hann. »Hann er farinn að beizla úlf- aldana. En heimska er það, og við erum öll feig fyrir bragðið. Komið nú með mér; við vekjum kvenfólkid og segjum því frá þessu«. Hersirinn hnipti í félaga sína, og segir þeim, hvað í ráði só; og voru þeir Belmont og Fardet óðara fúsir að hætta á þetta. En Stephens var á öðru rnáli. Hon- um stóð enginn verulegur stuggur af því, þótt hann ætti að deyja aðgerða- laus. En það kom yfir hann óviðráð- anlegur felmtur, er hann hugsaði til að eiga að reyna á sig af öllum mætti til að forða sér. Hann nötraði og skalf á skónálabeinunum. Hann tók upp hjá sér Bædeckers-ferðabók sina og tók til að skrifa erfðaskrá sína á fremsta hvítt blað í henni; en svo var hann skjálfhendur, að það varð nærr ólæsilegt. Dauðinn átti eftir marg- þvældri lagavits-hugsun hans heima í skipulegri niðurröðun náttúrunnar, og það jafnvel voveiflegur dauði; en hitt, að deyja á flótta, ríðandí í loftinu eftir hrjóstugum öræfum, það kunni hann ekki við með neinu móti; það reið al- veg bág við allar hugmyndir hans um rétta hegðun. það var ekki tortím- ingin, sein hann var hræddur við; það var sneypan og skelfingin, meðan stæði á ónýtis-baráttu við að forðast hana. f>eir Cochrane hersir og Tippy Tilly höfðu skriðið báðir þangað sem kven- fólkið hafði lagst fyrir, þar er mest var forsælan. Sadie og móðureystir hennar höfðn handleggina hvor utan um aðra; hin unga mær hafði lagt höfuðið upp við brjóst frænku sinnar. Frú Belmont var vakandi og félst tafarlaust á ráðagerð þeirra. »En þið verðið að skilja mig eftir«, segir frk, Adams, mjög áfjáð. »f>að stendur á engu um mig, á mínum aldri hvernig sem slæst«. »Nei, nei«, segir Sadie; »eg hreyfi mig ekki úr sporum, nema þú sért með! þú skalt ekki ímynda þér það! Annaðhvort kemur þú með okkur taf- arlaust, eða við verðum hér kyrrar báðar«. • Heyrið þér nú, fröken; við höfum ekki tíma hér hvorki til aðræða mál þetta né vera með neiua heimsku* mælti hersirinn byrstur. »Allir eiga líf sítt undir því, að þér látið yður nú segjast, og það er ekkert viðlit, að við förum að skilja yður eftir«. »En eg dett af baki«. »Eg bind yður fasta með sólardúkn- um míuum. Eg vildi eg hefði núna silkiklútinn, sem eg lánaði honum síra Stuart veslingnum. Nú-nú, Tippy, þá held eg við reynum*. En dátinn svarti hafði staðið og blfnt örvilnaður á svip út yfir öræfin, og snerist nú um hæl bölvandi. *Lítið þið á!« segir hann reiður. »|>arna sjáið þið nú, hvað af því hefst, heimsku-þvaðrinu í ykkur! f>ið hafið farið með alt saman fyrir okkur og eins ykkur sjálfum«. þau sáu nú öll, hvar 6 menn ríð- andi á úlföldum bar við himin austan við dalverpið. þeir fóru mikinn og veifuðu riflum sínum, er þeir komu. Að vörmu spori kvað við lúður og varð alt í uppnámi þar í áningarstaðnum, eins og í kollvelta býflugnabúi. Hersir- inn flýtti sér aftur til félaga sinna og dát- inn svarti skundaði til úlfalda síns. Stephens varð léttari í bragði, en Bel- mont þungbúinn. Fardet varð æfur við og lamdi ósáru hendinn út í loftið. »En í heilögu hundsnafni!« segir hatm. »Ætlar þetta þá aldrei að enda" Eigum vér aldrei að komast úr klóm þessara désk.... dervisja?« »Jæja, þeir eru þá til, þessir der visjar«, segir hersirinn meinlegur. »það er svo að sjá, sem þér hafið skift um skoðun. Eg hugsaði að þeir væru ekki annað en tilbúningur úr ensku stjórninni«. En andstreymið hafði reynt heldur mikið á geðsmuni þeirra vesalinga. Napuryrði hersisins voru eins og eld- «pýta í púðurskemmu. Fardet rauk upp eins og naðra og réð sér ekki fyr- ir vonzku. Hann jós úr sér botn- lausri reiðiyrða runu. Hann þreif fyr- ir kverkar Cochrane, áður en þeir Belmont og Stephens fengu við ráðið. •Væru það ekki hærurnar yðar«, sagði hann. •Farið þér norður og niður, svo ó- svífinn sem þér eruð«, hrópar hersir- inn. »Ef vér eigum að deyja, þá deyjum eins og prúðmenni, en ekki eins og ósiðugir strákar, sem unmð hafa til að vera stórsneyptir*, segir Belmont al- varlega. *Eg sagði ekki annað en það, að mér þætti vænt um, að Fardet hefði látið sér að kenaingu verða þettasem fynr okkur hefir borið«, anzar hersir- inn snúðugt. •Hættið þér, Cochrane! Hvað á það að þýða að vera að espa hann«, mælti Belmont. • Heyrið þér, Belmont, þér gleymið yður. Eg geri mér ekki að góðu, að talað sé svona við mig«, anzar hers- irinn. •Reynið þér að hafa eichvern hem- il á hegðun yðar sjálfs«, segir hinn. •Góðir hálsar! góðir hálsar! þarna kernur kvenfólkið okkar«, kallar Step- hens, og sljákkaði þá í þeim. f>eir rásuðu hljóðir fram og aftur og tættu sig í skeggið. Geðvonzkan sýkir frá sér. Stephens fór jafnvel að verða ilt í geði út af vonzk- unni í hinnm og gaut til þeirra horn- auga, er þeir gengu fram hjá honum. þarna voru þeir staddir á vegamótum lífs síns, þar sem dauðinn stóð þeim til annarar handar, og þó létu þeir svo lítið stygðarefni á sig fá, að varla var hægt að koma að því orði. Mót- lætið lyftir anda mannsins langt yfir vanamark; en á ýmsu veltur þá aem eudraruær. En athygli þeirra beindist brátt að því sem miklu meira skifti. Yfir hjá brunninum var haldin heratjórnarráð- stefna og hlýddu höfðingjarnir gneypir á hraðmæltan framburð útvarðarfor- ingjans. Bandingjarnir tóku eftir því, að þótt hinn gamli maður grimmúð- legi stæði eins og líkneski, þá strauk hinn yngri sér um skeggið 1—2 sinn- um, sem honurn væri órótt niðri fyrir. »Mér er nær að halda, að Egiptar muni vera á leiðinnú, segir Belmont, »og séu jafnvel ekki langt undan, eftir þessu uppnámi*. *Svo lítur út. Eitthvað hefir gert þeim bilt«. *Nú skipar hann fyrir. Hvað ætli það sé? Heyrið þér, Mansoor, hvað er um að vera?« Túlkurinn kom hlaupandi. Vonar- bjarma lagði yfir mórautt andlitið á honum. »Eg hygg að þeir hafi séð eitthvað, sem hefir gert þá smeyka. Eg hygg að hermennirnir egipzku séu í hælun- um á okkur. f>eir hafa skipað að fylla leðurbelgina vatni og að vera viðbúnir að leggja upp áður en fer að dimrna*. SKILVINDAN „A L F A“ sem notuð er mest allra skilvinda i Evröpu kostar: ALFA L aðskilur 40 potta á klt. og kostar 95 kr. ALFA KOLIBRI--175 — - — — — 150 — ALFA D ---200 — - — — — 225 — ALFA BOBY-----250 — 290 ALFA BOBY H---300 — - — — — 325 — ALFA B ---450 — - — — 500 — Skilvindan ALFA hefir fengið yfir 500 fyrstu verðlaun, og 250,000 af þeim eru nú notaðar í Evrópu. Nánari npplýsingar siðar. Menn snúi sér til hr. verzlunarstjóra Arna Einarssonar i Reykjavik, eða aðalumboðsmanns Flóvents Jóhannssonar á Hólum í Hjaltadal. Vín og Vindlar fæst ódýrast í verzluninni NYHÖFN ísíélag Ólafsvíkur hefir nægar birgðir af fsvarinní s í 1 d og í s til sölu. Síldin er öll mjög stór og fryst innan fjögra klukkutíma frá því hún kom í netin. Til tryggingar fyrir gæðum síldarinnar er eftirfylgjandi Vottorð. Vér undirritað/r vottum hér með, að síld sú, sem nú er í íshúsi Olafs- víkur, er hin bezta ísvariu síld, er vér höfum haft kynni af Ólafsvík, 26. febr. 1902. Pétur Finmson Jón Vigfússon (skipstjóri). (skipstjóri). Jónas Jónsson Arni Daniclsson (formaður). (formaður). Kristófer Sigurðsson (formaður). Öllum hinum mörgu, er hafa sýnt mér hiuttekningu og velvild i banalegu mannsins míns sáluga H Kr Friðrikssonar yfirkenn- ara, og heiðrað útför hans 'á ýmsan hátt, votta eg i minu nafni og barna minna inni- legasta þakklæti. Reykjavik, 2. april. 1902. Leopoldine Friðriksson. Uppboð. Á 3 opinberum uppboðum, sem haldin verða laugardagana 19. apríl og 3. og 17. maí næstkomandi, verð- ur boðin upp til sölu húseignin Kross- hús á Skipaskaga ásamt lóð, tilheyr- andi dánarbúi Guðmnndar P. Otte- sen. 1. og 2. uppboð fer fram hér á skrifstofunni, en hið síðasta í hús- inu, sem selja á. Söluskilmálar verða birtir á uppboðunum. Skrifstofu Mýra- og Borgarfj.sýslu 29. marz 1902. Sigurður pórðarson. Herberjti til leigu frá 14. maí i Kirkju- st.ræti 4. Þægileg og ódýr íbúð Á Bókhlöðustíg 8ern til leigu frá 14. mai n. komandi 2 góð herbergi i kjall- ara ásamt eldhúsi. Mánudaginn 7. þ. m. kl. 1 r f. h. verður opinhert upphoð haldið i Bergstaðastræti nr. 2, og þar selt: kvennfatnaður, rúmstæði, úr, rúm- fatnaður, borð, skápar, stólar og fl. tilheyrandi dánarbúi frú Olínu Vig- fússon o. fl. Söluskilmálar verða birtir á upp- boðsstaðnum. Bæjarfógetinn í Reykjavík 1. apr. 1902. Halldór Danlelsson. Samkvæmt 17. gr laga 12. apríl 1878 eru erfingjar stúlkunnar Eirnýjar Vilhelminu Þórðardóttur á Hvanneyri sem andaðist 26. ágúst f. á., hér með boðaðir á skiftafund, er haldinn verður hér á skrifstofunni mánudag 30. júní þ. á. á hádegi. Skrifstofu Mýra. og Borgarfj.sýslu 22. marz I902. Sigurður pórðarson. Með því að vafi er á því, hvort eg á kind, er seld var í haust í Engihlíðarhrepp i Langadal, þá óska eg þess hér með, að ef einhver á sannmerkt við mig, þá láti hann mig vita það sem fvrst. Mark mitt er: gagnbitað hægra, hvatt vinstra«. Langhúsum í Yiðvíkurhrepþ í Skagafirði, 8. marz 1902. Hermann Þorláksson. Jörundarsaga hundadagskon- ungs, með 16 myndum, fæst í bók- verzlun ísafoldarprentsmiðju kostar að eins 1 kr. Stranduppboö. Mánudaginn 7. apríl 1902 verður uppboð haldið á Vogsósafjörum f Sel- vogi og þar selt mikið af nýjum og nýlegum seglum og köðlum, blakkir, færi, ýmÍ8leg skipsáhöld o. s. frv., er bjargað hefir verið af hinu strandaða fiskiskipi »Skrúður«, svo og skipið sjálft. Uppboðið byrjar á hádegi og verða söluskilmálar birtir á uppboðsstaðnum fyrir uppboðið. Skrifstofu Árnessýslu, 29. marz 1902. Sigurður Ólafsson. Sunnanfari kostar 2'/2 kr. árg.. 12 arkir, auk titilbl. og yfirlits. Aðalútsala í Bókverzlun ísa- foldarprentsm., og má panta hann auk þess hjá öllum bóksölum landsins, svo og öllum útsölnmönnnm Isafoldar. Ny iM. Lyrik, 10 Sange komponerede for dyb Mezzosopran eller Baryton af F r e d e- r i k R u n g. Fæst í bókverzlun ísafoldarprentsmiðju. CRAWFORDS ljúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið af CRAWFOJEtDS & Son Edinborg og London Stofnað 1813. Einkasali fyrir Island og Færeyjar F. Hjorth & Co. Kjöbenhavn. Ritsitjóri Björn Jónsson. ísafoldarprentsmiðja

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.