Ísafold - 30.07.1902, Side 2
186
SKRIFSTOFA ÍSAFOLDAR er
opin kl. 12—2; en afgreiðslan allan daginn
(7 árd,—8 siðd.). Þar, i afgreiðslunni, er
tekið við borgun fyrir blaðið, auglýsingum,
bókapöntunum og blaða, handritum til prent-
unar i ísafoldarprentsmiðju, m. m.; þar er
og bóka- og pappírsverzlun.
irnir að brjóta odd af oflæti okkar og
beygja okkur fyrir almennings heill.
Svona lít eg á þetta naál«.
þá minnist höf. lítillega á kosning
arnar núna hjá Húnvetningum og
Norðmýlingum. Húnvetningar hafna
öðrum eins manni og Páli amtmanni
Briem, manni, sem ritað hafi í vetur
manna bezt um stjórnarskrármálið,
»og rit hans önnur lýsi dæmafárrí elju
og umhyggju fyrir framtíð lands og
þjóðar. þrátt fyrir það álíta Hún-
vetningar hann ekki færan um að
eiga atkvæði um stjórnarskrármálið á
þingi*.
Um þessa, sem fleat fengu atkvæði
hjá Norðmýlingum, segir höf., að ekki
detti sér í hug að fara að varpa
skugga á þá að óreyndu, en telur hitt
mjög ófyrirsynju gert, að hafna Jó-
hannasi sýslumanni, er reynst hafi
•einkarnýtur þingmaður, manna harð-
fylgnastur sér,einbeittur, hreinskilinnog
góður drengur«. Segir sömul. um síra
Binar á Hofteigi þórðarson, að hann
sé»djúphygginnog skarpatbugall maður,
ákveðinn í skoðunum, frjálslyndur og
góður drengur og framfaravinur mesti,
en jafnframt gætinn og rasar ekki
um ráð fram, og þar að auki gildur
bóndi«.
Friður og eining•?
Harla ánægjuleg og lofsverð »eining
andans í bandi friðarins* lýsir sór
yfirleitt í embættaskipun þingsins núna
og deildaskipun.
Af embættismönnum þingsins og
varamönnum, sem eru 12 alls, réttur
þriðjungur þingmanna, eru 9 kosnir í
einu hljóði, ýmist með öllum atkvæð-
um, sem til voru, eða því Sem næst.
Eitt varaembættið og tvö skrifara-
embættin, þau er langminst kveður
að, eru skipuð með flokksfylgi, en
sýnilega án verulegrar mótspyrnu þó.
Framfaraflokkurinn hefir að eins
ekki getað felt sig við, að eiga þátt í,
að tildra þeim þjóðólfsmanni og
StykkÍ8hólms-goðanum í skrifaraem-
bættin í sameinuðu þingi, embætti,
sem ekki kemur þó raunar til að þjóna
nema kannske hálfan dag að saman-
lögðu í mesta lagi allan þingtímann,
né heldur hitt, að láta g e t a til þess
komið, að Guðjón okkar prýði íorseta-
sætið í efri deild, þótt ekki væri nema
fáeinar mfnútur alt þingið; hinn gamli,
reglulegi forseti þar er maður, sem
ekki á að sér að vera forfallagjarnt.
f>eir hefðu heldur verið til í, segja
sumir, að lofa Jósafat karltötrinu upp
í stólinn.
Sama er að segja um kosningu 6
þjóðkjörinna þingmanna upp í efri
deild. f>ar af eru 5 kosnir í einu
hljóði og með sama sem öllum at-
kvæðum, en að eins ágreiningur um
einn, sem marið er upp með 1 atkvæði
fram yfir helming þeirra, er atkvæði
gátu greitt. f>að var Skúli Thorodd-
sen, sem bæði mun hafa verið sjálfum
miður ljúft, að yfirgefa þá deildina,
er hann hefir setið í öll sín þingár,
og gömlum samdeildarmÖDnum hans
eigi síður óljúft að missa hann þaðan.
Fyrir þeim, sem verið hafa forgöngu-
menn þess tiltækis, hefir það líklegast
átt að vera svo sem eins og dálítil
uppbót fyrir vonbrigðin um, að fá hann
gerðan alveg rækan af þingi.
það er eftirtektavert hins vegar, að
í helztu þingembættin eru kosnir alveg
sömu mennirnir og síðast: allir forset-
arnir sömu og eins varaforsetinn í
sameinuðu þingi. f>ar er þvf ekki að
sjá, að aðrir ráði meira á þingi nú
en síðast. Varaforseti í neðri deild
er og kosinn í einu hljóði gamall
Valtýingur og fyrverandi forseti þar.
Af skrifurum deildanna 4 síðast eru
nú eigi á þingi nema 2, og var annar
þeirra endurkosinn (Sig Jenss.), en
hinn, Guðl. Guðmundsson, færðist
undan kosningu. Kosinn er því næst
í hans stað nýr Framfaraflokksmaður,
Jón Magnússon, og f hitt sætið í þeirri
deild gamall þingskrifari, Arni Jóns-
son.
f>etta eru nú vitaskuld smámunir í
samanburði við sjálf þingmálin, eða
stórmálin á þingi.
En að svo stöddn ber eigi á öðru
en sama bróðerninu hér um bil, og
þá fyrst og fremst í stjórnarskrármál-
inu.
Eftir að landshöfðingi hafði á fund-
inum í fyrra dag lýst því yfir fyrir
stjórnarinnar hönd, að enga breytingu
mætti gora á stjórnbótarfrumvarpi
hennar, ekki einu sinni neina orða-
breyting, nema full vissa væri fyrir
því, að ekki fælist þar í nokkur hin
minsta efnisbreyting, kváðu fram-
sögumenn beggja þingflokka upp úr
um það afdráttarlaust, að þeirra áform
væri hvorratveggja að samþykkja
frumvarpið óbreytt. Framsögumanni
afturhaldsliðsins (L. H. B.) tókst að
vísu ekki að stilla sig um dálitlar
ýfingar í orði um leið, enda munu
fáir hafa við öðru búist af honum og
ekki getað annað en virt honum til
vorkunar, þótt honum þætti beiskt,
að verða að renna niður öllu því, er
hann hafði barist í móti af öllum
mætti á síðasta þingi, og þar með í
ofanálag því, er samflokksmenn hans
höfðu hamast gegn áður: ríkisráðssetu
o. s. frv. En hinn framsögumaðurinn
(Guðl. G.) var þeim mun stiltari, að
hann lét sem hann heyrði það ekki,
og varð því ekki af neinni eldkveikju
í það sinn.
Eina verulega villusporið eða ófriðar
til þessa er framkoma snæfelska þing-
mannsins í kjörbréfarannsóknarmálinu
gagnvart fornkunningja sínum Skúla
Thoroddsen. En það munaði líka um
það. Og er sú ein bót í máli þar, að
ýmsum flokksmönnum hans gramdist
svo sú framkoma, hranaskapur sá og
ósvinna í orðum, er hann beitti í fram-
sögu málsins, að sögn þvert ofan í það,
sem þeir höfðu áskilið við hann fyrir
fram, að líklegt er, að þeir vari sig á
að trúa honum of vel eftirleiðis, þótt
ekki hefði kjark eða snarræði til að
snúa þá svo við blaði samstundis, sem
við átti, heldur hefir fundist sér vera
skylt, að standa við flokksfundarsam-
þykt um, hvern úrskurð málið skyldi
hljóta.
Veðrátta.
þurviðri óvenjumikil hafa geugið
hér lengi, og mun þetta vera eitt hið
mesta þurkasumar í manna minnum.
J?ví fylgir vitanlega grasbrestur all-
mikill víða, með því líka að kuldi
fylgir þurviðrunum, með frosti og snjó
til fjalla öðru hvoru. Og hafís hafa
fiskiþilskip hitt fyrir mjög nærri
Hornströndum nýlega.
Meira um rannsóknina broslegu.
í grein minni í »ísafold«, sem prent-
uð var í síðasta nr. blaðsins, gat eg
þess, að þegar eg sendi Á r n a bónda
Sigurðssyni í Skáladal fjárupp-
hæð þá, 70 kr., er gefið hefir tilefni
til rannsóknagauragangs mótkandídats
míns, hefði eg lagt ríkt á við hann,
að féð mætti ekki misbrúka til at-
kvæðakaupa.
Bréf þetta er dagsett 17. maí þ. á.
og er sá kafli þess, er hér að lýtur,
orðrétt þannig:
»Fari nú svo, að »Ásgeir litli«
komi norður, svo að fundarmenn geti
komist með honum á kjörfundinn, þá
býst eg við að ýmsir noti þá ferð, og
má þá ekki horfa í, að greiða fargjald
fyrir vora menn, því að líklega lætur
Árni Jónsson Hafsteinsmenn
hafa ókeypis far; en vel verðið þér
að gæta þess, að ekki má bjóða nein-
um fé til þess að kjósa svo eða svo,
því að atkvæðakaup eru hegningar-
verð, bæði fyrir þann, sem veitir og
þiggur; en að greiða fargjöld fyrir
menn, sem hafa ásett sér að fylla
manns flokk, er í alla staði löglegt*.
þar sem nú euginn annar maður í
Sléttuhreppi hefir af mér, eða fyrir
mitt tilstilli, meðtekið eins eyris virði,
til kjörfylgis, og enginn haft mína
heimild til að bjóða fé eða nokkra
aðra þóknun eða gneiða, hverju nafni
sem nefnist, þá væntir mig, að hér
með sé nægilega vísað á bug hinum
svívirðilegu aðdróttunum til mín, er
felast í ofannefndum »réttarrannsókn-
um«(!) mótkandídats míns.
Bessastöðum 27. júlí 1902.
Skúli Thoroddsen.
Uppistandið í Miðdölum.
þjóðólfur flytur 23. f. m. frétta
pistil úr Dölum, sem auðsýnilega^|r í
þeim tilgangi ritaður, að sverta mig;
og til frekari áréttingar er hnýtt aft-
an við hann áskorun frá 23 Miðdæl-
um til stjórnarnefndar unglingaskól-
ans í Búðardal um að ráða mig ekki
fyrir kennara við skólann eftirleiðis,
nema eg lofi hátíðlega að bæta ráð
mitt.
Enda þótt eg geti látið mér í léttu
rúmi liggja, það sem sagt er um mig
í þjóðólfi, þingkosningum viðvíkjandi,
þá finst mér þó eigi rétt að eg leiði
alveg hjá mér það, sem að mér er
sveigt í þessu tbl. hans. Einkum er
það þó áskorun þeirra Miðdæla, sem
þarf athugunar við. Svo framarlega
sem hún er ekki gjörð út í loftið, þá
felst í henni sú aðdróttun, að eg hafi
talað eða ritað »skammir, ónot eða
óhróðursgreinar« um menn hér í Döl-
um, gjört »uppÍ8tand með afskiftasemi
minni af málum sýslunnar« og með
þessu haft óholl áhrif á nemendur
unglingaskólans.
Ókunnugir mættu nú ímynda sór,
að sá kennari, sem fær þannig lagaða
ofanígjöf, væri eitthvað meir en lítið
gallaður, og því verður ekki neitað,
að væri þetta satt, þá væri hollast fyr-
ir hvern skóla að vera laus við mig.
Og sennilegt getur þetta sýnst, þar
sem undir áskorunina hefir ritað
þjóðkunnur prestur (sr. Jóh. L. L. Jó-
hannsson) og margir myndarbænd-
ur úr sveitinni (Miðdölum).
En á hverju byggja þeir þessar að-
dróttanir sínar?
Eg hefi ekki skrifað aðrar blaða-
greinar, snertandi menn hérí sýslunni,
en greinina: »Úr Dölum vestan« í
81. tbl. ísafoldar f. á., þessa grein, sem
pistilhöfundurinn segir, að bezt sýni
mitt »göfuga innræti« eða hitt þó
heldur.
En hefi eg þá í þeirri grein ritað
•skammir, ónot eða óhróður* um sýslu-
búa?
Eg veit ekki, hvaða nöfn Miðdælir
vilja gefa orðum mínum; en hitt er víst,
að í greininni er ekkert það sagt, sem
nokkur maður, mér vitanlega, hefir
treyst sér til að hrekja, enda get eg
auðveldlega sannað alt það, sem í
henni stendur, nema ef vera skyldi
það, að sýslumaðurinn njóti fremur
bónþægni sinnar hjá Suðurdalamönn-
um en frægilegrar framkomu á síðasta
þingi. Eg íór þar eftir sögusögn ýmsra
kjósenda úr Suðurdölum; en vel get-
ur verið, að síðan sé búið að kenna
þeim eitthvað um »framkomu hans í
stjórnarskrármálinu og öðrum málum,*
sem fréttaritaranum finst auðsjáanlega
mikið til koma, svo að þeir vilji nú
ekki lengur kannast við þetta, enda
nenni eg ekki að gjöra neina reki-
stefnu út af því.
Alt það sem eg sagði í greininni
um framkvæmdir Björns sýslumanns,
vita Miðdælir ofurvel, að er satt.
Og þetta kalla þeir svo »skammir,
ónot og óhróður,« sem hafi óholl áhrif
á nemendur unglingaskólans. Með
öðrum orðum: það er, eftir þeirra
skoðun, óholt nemendunum, að kenn-
arinn segi sannleikann, ef það er óþægi-
légt fyrir einhvern mann í sýslunni.
En þá fer dú kennarastaðan að
verða vandasöm og máske vandfeng-
inn inaður í hana, ef hann á að lifa
samkvæmt þessari kenningu. Honum
er þá ekki einungis bannað að rísa
upp á móti hvaða siðspillingu, gjörræði
og lögleysum, sem einhver, æðri eða
lægri, gjörir sig sekau í, heldur er
honum og algjörlega fyrirmunað að
bera hönd fyrir höfuð sér, ef einhverj-
um rangindum er beitt gagnvart hon-
um sjálfum.
Gjörum t. d. ráð fyrir, að kennarinn
yrði fyrir einhverjuœ svæsnum mót-
gjörðum, yrði t. d. fyrir miklu eigna-
tjóni af annarra völdum eða líkamlegri
misþyrmingu. Samkvæmt kenningu
Miðdæla mætti nann ekki gjöra nokkra
tilraun til að reka réttar síns á
mótpartinum, því ef hann skýrði
satt og rétt frá málavöxtura, færi hann
með »skammir, ónot og óhróðúr.« Eða
gjörum ráð fyrir, að hann yrði fyrir
sams konar yfirgangi og lögleysum og
dánarbúið í Hjarðarholti varð fyrir
síðastliðinn vetur af hálfu skiftaráð-
andans. Bkki mætti hann þá nefna
á nafn að ná rétti sínum með því að
snúa sér til háyfirvaldanna eða leita
úrskurðar dómstólanna, því hann má
ómögulega segja nokkrum manni frá
því, hversu miklum rangindum, sem
við hann er beitt, — nema kannske
ef utansýslumaður á í hlut!
Annar sá brestur í fari mínu, sem
Miðdælir heimta að eg bæti, er af-
skiftasemi af málum sýslunnar. þeir
gefa fullkomlega í skyn, að með þess-
ari afskiftasemi hafi eg gjört mppi-
stand.«
Mér er nú alveg ókunnugt um, hvar
eða hvenær þetta uppistand hefir orð-
ið. Eg hefi ekki orðið var við neitt
uppistand, sem eg hafi getað verið
valdandi, nema ef því nafni er nefnd
gremjan, sem gagntók suma vini sýslu-
mánnsins út af grein minni í ísafold;
er það þó naumast hægt, þar sem
enginn hefir haft uppburði í sér tií
að mótmæla mér. Viti Miðdælir um
eitthvert annað uppistand af mínum
völdum, þá væri vel gjört af þeim að
fræða mig um það.
En hvort sem þessi aðdróttun er
sönn eða ekki, þá er eg hræddur um
að hver skynsamur maður mundi
hugsa sig tvisvar um áður en hann
gæfi þetta loforð, sem Miðdælir vilja
heimta af mér, því það gæti auðveld-
lega riðið í bága við skyldur hans sem
heiðvirðs borgara þjóðfélagsíns. Ger-
um ráð fyrir, að kennarinn í Búðardal
væri maður, sem hefði kosningarrétt
og kjörgengi í hreppsnefnd og sýslu-
nefnd, og að hann hefði svo gott traust
sveitunga sinna, að hann væri kosinn
í þessar nefndir. Samkvæmt kröfu
Miðdæla mætti hann þar ekki halda
fram nokkurri þeirri skoðun á málum
sýslunnar, sem kæmi í bága við skoð-