Ísafold - 07.03.1903, Side 3
43
endur skiftast á um að stjórna baðinu.
Hyggur hann þá nvi færa um að stjórna
kláðalækningum undir hans umsjón. —
Haun ætlaði að hafa aftur kenslu í
kláðalækningum á Akureyri marzmán.
Fiskiveiðan:ufuskip
íslenzkt var hór á ferð nýlega, aust-
an af Mjóafirði, frá hr. Konráð Hjálm-
arssyni, er hann hefir látið smíða
handa sér fyrir skemstu í Norvegi,
100 feta langt, 201/,; fet á breidd og
1] á dýpt, með geymslu fyrir 60 tunn-
ur af síld til beitu og sem því svarar
fyrir ís. það fór héðan vestur til ísa-
fjarðar og ætlar að stunda þar fisk-
veiðar við Djúpið til páska með 5 bát-
um, fjölgar eftir það bátunum og færir
sig kringum land eftir því sem fiski-
göngur eiga að sér að vera, verða fyrir
sunnan laud um sumarmálin og fram
yfir lok, þá fyrir vestan land fram í
miðjan júlím. og síðan eystra, á Hér-
aðsflóa; þá er fiskur er vanur að vera
þar kominn og hann afbragðs-fallegur,
segir »Norðurl.« 8jö aðgerðarmenn
eiga að vera á skipinu, svo að fiski-
menn þurfi sem minst að tefja sig.
|>etta er mikið í ráðist af hr. K. H.
og vasklega að verið, enda er hann
annálaður atorku og framkvæmda-
maður.
Norður-Þingeyjarsýslu (Núpasveit)
i miðjum febr. — Tíðin hefir verið hér æski-
jega góð, og varla þurft að taka fé á
gjiif fram að þessum tíma.
Eigi að síður er allmikill Ameríku-
hugur i mörgum hér i hreppnum, og mælt,
að um 20—30 muni flytja sig héðan vest-
ur i vor. Er vafasamt, hvort það er meira
að kenna fortölum þessara tveggja Yestur-
heims-agenta, sem hafa hreiðrað sig hjá
guðsmanninum í Presthólum i vetur, eða
safnaðarlifinu hér, sem menn eru fyrir
löngu orðnir uppgetnir á; ef til vill hjálp-
ast þetta hvorttveggja að.
Tvær kirkjujarðir i hreppnum er mælt
að muni verða í eyði eða því sem næst í
vor: Katastaðir, sem lagðir verða undir
Presthóla, og Sigurðarstaðir á Sléttu. Það
er einhver stærsta og hlunnindamesta jörð
á SiéttunDÍ og hefir verið búið þar blóma-
búi um marga mannsaldra samfleytt, en nú
kvað prestur ætla að hagnýta sér sjálfur
hlunnindi jaröarinnar eftir föngum, en iáta
heilsulítið gamalmenni vera i bænum, vinnu-
kraftslausan. Lögtök á skyldugjöldum til
prestsius eru nú ekki sjaldgæf, en önnur
embættisverk lians til muna fátíðari.
Dalasýsla 31. jan.
í byrjun desembermánaðar komst loksins
brúin á Laxá, svo að hún er nú vel fær
með besta, þótt hún sé eigi aiveg fullgerð
að grindverki og máiun. Svo virðist sem
brú þessi sé traust,, og stór hagur er það
fyrir allan suðurhluta héraðsins, að fá brú
þessa, því oft er Laxá ill yfirferðar.
Tóvinnuvélarnar í Olafsdal hafa haft
i vetur nóg «ð géra og búnaðarskótinn
þar heldur áfram eftirleiðis, öllum góðum
ættjarðarvinum til gleði, þótt amtsráðið
hafi víst ætlast til, að hann legðist niður
og því slept hendi sinni af honum. Yerið
getur, að surnir amtráðsmennirnir hafi eigi
munað eftir þvi, að skólinn verður alis
eigi sviftur liinu lögboðna búnaðarskóla-
gjaldi, þótt hann sé einstaklings eign, og
að hann með því og landssjóðsstyrknum
getur vel lifað, þegar eigi þarf að leggja
í neinn nýjan og sérlegan kostnað til húsa-
gerðar og áhaldakaupa.
Það þykir mörgum annars skritin ráðs-
menska hjá amtsstjórninni, að vilja heldur
gefa hálft 18. þúsund krónur af almannafé
einstökum manni heldur en kaupa eigulegan
og þarfan hlut fyrir sanngjarnt verð og
réttlátt, svo sem því stóð til boða; og eiga
þar að auki að fá gefnar til þess af lands-
sjóði 10 þúsund krónur. Þarna hafa þeir
því fleygt frá sér 27*/„ þúsundi. Sumir
hér vestra halda nú, að úr þvi að amtsráð-
ið leyfir sér slíkt að fornspurðum gjald-
endunum, þú megi hreppsnefndirnar alveg
eins fara að gefa úr hreppsjóðunum; en
hætt «r við að það yrði eigi látið ganga
af orðalaust. Talið er víst af mörgum í
þessari sýslu, að þingið í sumar muni eigi
geta látið sér til hugar koma, að taka
aftur inn í jandssjóð þær 10,000 kr., sem
amtið átti að fá ti! að kaupa skólann en
þáði eigi, heldur muni það verða veitt
Torfa sem heiðursgjöf; enda er hann þess
marg-maklegur, og með þvi að hann hefir
unnið öllu landinu gagn, en ekki einum
landsfjórðungi að eins, þá er réttlátt að
alt iandið þóknist honnm með einhverju
sem er skýi vottur góðrar viðurkenningar
um veiðleika hans.
Pöntunarfélag Dalasýslu lifir enn og
heldur aðalfnndinn nú í næsta mánuði.
Verð er þar miklu betra en hjá kaupmönn-
um. »Kaupfé!ag Saurbæinga* og »Kaupfélag
Hvammsfjarðar« erubæðiheldur að blómgast.
Þjóðólfa-kálfarnir.
Svo segj’a menn, að leit muni á ófé-
legra skepnukyni. fiorgeirsboli fleginn
með húðina á eftir sér mesta metfé
hjá þeim. Hinn síðasti eða yngsti
heitir Ríkisráðssetan, og er raunar ekki
markaður undir nafn húsbónda síns,
heldur annarra, líklega til þess að villa
á honum heimildir, enda nokkuð annað
fjárbragð á honum en hinum, en var
þó látinn fylgja »gamlabola« með póst-
um um daginn, í laumi og lagaleysi;
það kvað fóstri þeirra hafa játað á sig.
Hann (ábm. |>jóðólfs) var einn þeirra,
er dansinn stigu við leiði Jóns Sig -
urðssonar í surnar. En nú gefur hann
út og dreifir úí um land í pukri flog-
riti, þar sem leitast er meðal annars
við að rýra orðstír Jóns Sigurðssonar.
Ekki vantar samkvæmnina. |>ess mun
hafa verið sérstakleg nauðsyn nú, eða
þvað? — Annan ná þarf og flogrit þetta
að leggjast á. |>að er Benedikt heit.
Sveinsson. Talað um meðal annars,
að hann hafi verið í sífeldum fjárkrögg-
um, og gefið greinilega í skyn, að hann
hafi látið fjárhagsástæður sínar hafa
áhrif á landsmálastefnu sína. Hitt
vita þeir, sem þann mann þektu og
vilja láta sannmælis njóta, — en það
ætti öllum að vera útlátalaust nú, er
hann er löngu kominn undir græna
torfu —, að hann var einlægur og á-
kafur hugsjónamaður, og sást ekki fyrir.
Enginn skyldi láta sér í hug koma,
að dreifa meiri hluta flokksbræðra
f>jóð.-ábyrgðarmannsins við þetta til-
tæki hans. |>að er vafalaust eitt af
mörgum dæmum þess, að framkoma
hans og málgagns hans er þeím bæði
skaði og mikil skapraun. En vitaskuld
eru þeir ekki ábyrgðarlausir af því
að hafa annað eins tól að höfuðmál-
gagm sínu. jþað er þeim óverjandi.
Mannalát
Hinn 2. október. mán. f. á. andaðist að
heimili sínn Torfastöðum i Torfastaðahreppi
fremri i Húnavatnssýslu Jón Bjarnason,
fæddur að Lambastöðum i Laxárdal í Dala-
sýslu 1830. Foreldrar hans voru Bjarni
Jónsson og Sigrlður Magnúsdóttir, hjón, er
þar bjuggu. Hann kvæntist 1854 Kristmu
Böðvarsdóttur frá Sámsstöðum i sömu sveit,
og reistu þan bú þar. Flest búskaparár siu
bjó hann á G-oddastöðum þar í sveit; en
árið 1889 fluttist hann að Torfastöðum, til
sonar sins Jóns óðalsbónda, og dvaldi hjá
honum til dánardægurs í húsmensku. Börn
þeirra hjóna eru 5 á lífi: Jón, sjálfseignar.
bóndi á Torfastöðum; Anna, vinnukona s. st.;
Bjarni, vinnumaður á Haugi; iisgerður, i
Stykkishólmi; og Guðrún, gift i Yesturheimi.
Jón -sál. var vel skynsamur maður og
skemtinn i viðræðum, djarflyndur og trygg-
ur vinum sinum, ráðdeildarsamur og sérstak-
ur atorkumaður; sýndi hann öllum, sem við
hann kyntust, velvild og staka greiðasemi;
hann var góður faðir barna sinna og ást-
ríkur og umhyggjusamur konu sinni, og
sýndi henni staka umönnun þati 10 síðustu
ár af samvistartima þeirra, sem hún var
svift sjón og þjáð af margvíslegum heilsu-
bresti. J. G.
Nýársdag á hádegi andaðist á Sauðár-
krók frú Jóhanna Hallsdóttir, ekkja
prófasts sira Jóns sál. Lallssonar, síðast
prests í Glaumbæ. Húu fæddist árið 1817
í Hvammi i Hjaltadal. F’oreldrar hennar
voru Hallur bóndi i iívammi og Kristjana
Lovisa Pétursdóttir. Með manni sínurn,
síra Jóni, eignaðist hún 15 maunvænleg
börn. Af þeim lifa nú þessi: Stefán
verzlunarstjóri á Sauðárkrók; Sigurður
bóndi á Reynistað; Björg, kona Sigurðar
óðalsb. á Hofstöðum; Ingveldur, ekkja
Stefáns sál. frá Krossanesi; og Þorbjörg,
Stefania og Alaria, ógiftar heirna. Frúin
sál. giftist manni sinum sál. hinn 8. okt.
1841.
Hún var fyririnynd kvenna um marga
hluti: aðdáanlega stilt og þrekrcikil, ráð-
deildarsöm og starfsöm, góðviljuð og hjálp-
fús, og bæði bezta móðir og umhyggju-
samasta‘húsmóðir, og lifir minning hennar
í virðingu og þakklæti hjá öllum, sem
þektu hana, en þeir voru eðlilega mjög
margir, þar eð hún vai ein af atkvæða-
mestu konum héraðsi is nær 60 ár.
Líf hennar var mjög uppbyggilegt.
Biessuð sé minning liennar. Z.
Við hádegisguðsþjónustu á morg-
un, stigur oand. theol. Sigurbjörn Á. Gísla-
son .1 stólinn.
Rúmar 300 kr. hefir síra Björn B.
Jónsson, prestur í Minneota í Ameríku,
sent »Norðurlandi« frá löndum þar (i haDs
sóknum?) til handa sjúkraskýli því í Höfða-
hverfishéraði, sem Sigurður héraðslækni
Hjörleifsson er að berjast fyrir að koma
upp. Það er fallega af sér vikið, og á-
þreifanlegur vottur um alt annað en kala
til landsins i brjóstum bræðra vorra vestan
hafs.
Teðurathugranír
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
19 0 3 s r~í ’-*> « >- <1 CD ox p œ 3 cj — is
febr. marz B S OQ 3 cr ct- >-t cr 8 ox 3 p 3 I p 00 5« '-i
Ld.28.8 735,2 -1,3 E i 9 0,4 -4,7
2 737,3 0,3 8W i 9
9 739,3 -1,2 sw i 10
Sd. 1.8 737,0 -2,5 E i 7 6,0 -4,5
2 736,2 -1,2 E i 8
9 / 3o,3 0,6 E 2 9
Md 2.8 735,5 0,8 E 2 8 -4,0
2 742,6 0,4 E 1 6
9 743,7 -3,4 E 1 9
Pd. 3.8 741,7 2,9 ENE 2 10 -5,0
2 737,9 -1,4 ENE 2 10
9 733,1 -1,3 ENE 2 10
Mv 4.8 730,2 -1,4 E i 9 -4,1
2 731,8 0,4 E i 9
9 731,7 -2,0 E i 9
Fd. 5.8 732,1 -1,5 KNE 2 8 -4,3
2 735,5 0,6 E 1 9
9 738,1 -1,6 E 1 4
Fsd 6.8 740,9 -1,2 E 1 9 -4,1
2 744,6 0,9 E 1 7
9 746,5 -4,6 ! ENE 1 2 1
t
Min kæra kona Jóhanna Frið-
riksdcttir andaðist i dag á St.
Josefs Hospitali. eftir 4 mánaða legu
þar og fleiri ára vaxandi lasleika. Hún
fékk blítt og rólcgt andlát að meðtekn-
um öllum náðarmeðulum.
Jarðarförin fer fram frá kirkjunni,
þriðjudaginn 10. þ. m. kl. II.
Þetta tilkynnist hér með ættingjum
og vinum nær og fjær.
Reykjavik 3. marz 1903.
Gun. Einarsson.
Nokkrir duglegir
fiskimenn
geta fengið skiprúm um lok eSa fyrir
lok.
Góö kjör.
Menn snúi sér til herra J>orsteÍHS
Gnðmimdssonar hjá Thomsen,
sem gefur upplýsingar og ræður menn-
ina.
ee
Uinboðsmaðm-
beztu
fe Klæðaverksmiöjunnar fl
er kaupmaður Jón Helgason.
Auk hinna eldri sýnishorna er
nú komið stórt úrval af öðrum
nýjum, bæði fyrir frúr og herra.
Sérhver hyggin húsmóðir komi
sínum ullarsendingum sem fyrst
til umboðsmannsins.
Jón JHolgason kaupmaður
(Aðalstr. 14).
Sá sern tekið hefir til hirðingar (í frí-
kirkjunni vigsludaginn) koralbók Jónasar
Heiga8onar. geri svo vel og komi henni
sem allra fyrst til undirskrifaðs.
Gísil Finnsson.
eru beðnir
að vitja Isa-
foldar í af-
greiðslustofu blaðsin's, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum.
Gjafir til orgelssjóðs Fríkirkjunnar:
Guðm. Einarsson, Nesi . . . . 10 kr.
Erlendur nullsm. Magnússon . . . 5 —
Jón BryDjólfsson skósmiður 20 -
Björn Kristjúnsson kaupmaður . . 100 —
Gisli Finnsson járnsmiður. . . . 50 —
Guðjón Jónsson járnsm. . . . . 5 —
Vilhjálmur Jakobsson skósm. . . 10 —
Hjalti Jónsson skipstj. . . . 10 —
Arni Nikulásson rakari . . . . 10 —
jí IJ |I I Á morgun kl. 6 siðd. fundur
U' 1,11 fyrir yngri deild (sira Fr. Frið-
riksson talar); kl. 8x/2 síðd. fyrit eldri deild
(sira Jón Helgason talar).
MálfundarfélaKÍð. Fundur á morg-
un kl. á1/^. Þorsteinn Erlingsson flytur
eitthvað til skemtunar. Þjóðhátíðarnefnd,
m. fl.
Barnaguðsþjóiiustur
verða haldnar í samkomusal K.F.U.M’
við Lækjartorg í fyrsta skifti á morg-
un kl. 93/4 árdegis og framvegis á
hverjum sunnudegi á sama tíma.
Öll börn eldri en átta ára eru
velkomin. Barnasálmabókin verður
notuð.
Fyrir liönd stjórnar K. F. U. M.
Knud Zimscn
heldur ársfund sinn í I ð n a ð a r-
manDahúsinu mánudaginn
9. marz kl, 8l/.2 síðdegis. |>ar verður
ársreikningur lagður fram, kosin ný
stjórn og haldið uppboð á bókum og
blöðum.
Jón Helgason
p. t. form.
Jarðræktarfél- Rvíkur
heldpr ársfund sinn mánudnginn 9.
þ. m. kl. 5 e. h., í fundarsalnum í
Breiðfjörðshúsi.
Reikningur fram lagður og vinnu-
skýrsla 1902.
Rædd félagsmál, þar á meðal plæg-
ingar á næsta sumri.
Kosin stjórn og endurskoðunarmenn.
Reykjavík 6. marz 1903.
I»órh. Bjarnarson.
Innilega þökkum við þeim, sem sýndu í
gær hluttekningu i sorg okkar við jarðarför
okkar sárt söknuðu dóttur.
Reykjavík 6. marz 1903
Helga Magnúsdóttir.
Bjarni Valdason.
Hjermeð auglýsist almenningi, að
bæjarstjórnin hefur skipað húsmann
Pál Árnason í Ingólfsstræti 6 auka-
lögregluþjón (frá 15. marz til 1,
september) og aukanæturvörð (frá I,
september til 15. marz) hér í bæn
nm.
Bæjarfógetinn í Rvík 6. marz 1903.
Halldór Daníelsson-