Ísafold - 16.05.1903, Blaðsíða 1
!£emur út ýmist einu sinni eða
tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
1 */2 doll.; borgist fyrir miðjan
júli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstræti 8.
XXX. árg.
Reykjavlk laugardaginn 16. maí 1903.
27. blað.
Jíuóyfadi
Kosningarógur afturhaldsliðsins.
I. 0. 0. F. 855299.
Augnlækning ókeypis 1. og 3. þrd. á
hverjum mán. kl. 11—1 í spltalanum.
Forngripasafn opið md., mvd. og ld.
11—12.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op-
in á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 siðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
aunnudagskveldi kl. 8l/2 siðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
og kl. tí á hverjum helgum degi.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
'ki. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
md., mvd. og ld. til útlána.
Náttúrugripasafn, í Doktorshúsi, opið
& sd. kl. 2—3.
Tannlœkning ókeypisí Pósthússtræti 14b
1. og 3. mánud. bvers mán. kl. 11—1.
Myndarammar og
Gardínustengnr
af haldbeztu og vönduðustu sort
fást hjá
cJónasicJonassyni
trésmið Laufásveg 37.
Erlend tíðindi.
Borist hafa ensk blöS frá 4. þ. m.
Bretar hjálpa Búum um 30 milj.
punda peningalán, að tilhlutun Chamber-
lains ráðherra, til viðreisnar landinu,
með góðum kjörum. Það er svo að
skilja, að stjórniu ábyrgist lánið. Því
var svo vel tekiðaf almenningi, bæði auð-
mönnum og öðrmn, að samdægur bauðst
meir en 8-föld sú fjárhæð eða 250 milj.
pd. Þó er ekki greitt af því nema 3
af hundraði í vöxtu. Þetta þykir með-
al annars órækur vottur þess, hvert
traust og gengi Chamberlain hefir.
Játvarður konnngur nýlega heim
kominn úr suðurför sinni. Frakkar á-
kaflega hrifnir af komu hans til París-
ar, og mikil vinmæli milli þeirra og
Breta um þessar mundir.
Enn helzt nppreistarófriðurinu í Mar-
okko. Skæð orusta 24. apríl. Barist
10 stundir samfleytt, og höfðu upp-
reistarmenn sigur.
Bandaríkjamenn eiga enn í skærum
við Filippseyjabúa. Segir svo frá, að
Bandaríkjaherinn hefir unnið nylega 10
kastalavirki á Mandanao og margt fallið
af eyjamönnum.
Ekki friðsamlegt enn á Balkanskaga.
Búlgarar s/na sig í að vilja liðsinna
Makedónurn. Fyrir það hótar soldán
þeim aðför. Það segist Austurríkis-
keisari eigi munu láta viðgangast, og
biður Búlgara jafnframt að hafa sig
hæga. brakkar ráðgera að senda flota-
deild frá Toulon austur eftir til að
skerast í leik, ef þurfa þykir. Þá
munu og Bretar og Þjóðverjar þykjast
þurfa að vera nærri staddir með fleyt-
ur frá sór.
þessa dagana er eðlilega alt gert
sem unt er af hálfu afturhaldsmanna
hcr til þess að hnekkja kosningu
ýmissa nýtra manna meðal Framsókn-
ardokksins, með staðlausum ósann-
indum og rógi af versta tægi.
Eins og skiljanlegt er, óttast aftur-
haldsliðið, að þvl muni verða á kné
komið á næsta þingtímabili, og að hin-
ar skaðvænJegu kenningar, er fluttar
hafa verið með svo mikilli ofstæki úr
þeirri átt gegn öllum framfaratillögum
mætra manDa innan þings og utan,
muni nú verða kveðnar niður á hin-
um nýja tíma, er fer í hönd.
þessi ótti afturhaldsliðsins hefir
knúð aðalraáltól fáfræði, rógs og per-
sónulegra skamma hér á landi til þess
að flytja í síðasta blaði getsakagrein
nokkra til Framsóknarflokksins, fyrir
þá Bök, að »Landvarnarmenn« svo
nefndir hafa farið ómjúkum höndum
um máltólið og félaga þess, og sett
það í gapastokk fyrir fáheyrða ósam-
kvæmni við þær skoðanir, er áður
voru bornar fram af þeirra hálfu gegn
forvígismönnum stjórnarbótarinnar.
Hefir máltólið í þeBsari grein gert til-
raun til þess að skríða inn undir
verndarvæng Framsóknarflokksins, með
því að vísa til þess sameiginlega sam-
þykkis, er goldið var við stjórnarskrár-
breytingunni á síðasta þingi, en hefir
þó jafnframt viljað gera það tortryggi-
legt, hve illa meðferð afturhaldsliðið
hefir fengið af hinum fyrri fylgismönn-
um sínum, »Landvarnarmönnum«.
Vér sem höfum áður orðið að lesa
níðrit afturhaldsliðsins og gegndarlaus-
ar getsakir í garð Framsóknarflokks-
in8, meðan áminst máltól flaggaði með
landsréttindunum, getum að vísu ekki
átalið það, þó að þetta lið hafi nú snú-
istá 8Ömu leið sem Framsóknarflokkur-
inu á síðasta þingi. En hitt getur
engum manni dulist, að þessi kúfvend-
ing afturhaldshöfðingjanna gerir lýð-
um ljóst, hve gersamlega óhæfir þeir
eru til þess að vera leiðtogar og lög-
gjafar íslendinga.
Framkoma þeirra n ú sýnir, hve
herfilega rangsnúinn rógur þeirra var
áður gegn þeim mönnum, er höfðu
sörnu skoðanir um ríkisráðsdeiluna sem
afturhaldsforkólfarnir játast nii undir.
Getur nokkur maður treyst samvizku-
semi og hyggindum manna í öðrum
landsmálum, er rægja og atyrða á
báða bóga með og móti einni og
sömu stefnu á sama árinu?
þetta ættu kjósendur landsins nú
að íhuga vandlega. Hamskifti aftur-
haldsmanna í stjórnarskrármálinu hafa
verið svo herfileg, að þeim er ekki trú-
andi í neinu öðru landsmáli, hvorki
til þess að bera skyn á, hvað þeir
fara sjálfir með, né heldur til þess, að
vera ósvikulir jafnvel við sínar eigin
skoðanir.
Enginn réttsýnn maður mun heldur
verða til þess að gefa Framsóknar-
flokkDum neina sök á því, þó að »Land-
varnarmenn* hafi að sjálfsögðu aðal-
lega snúið máli sínu að sfnum eigin
fyrri erindrekum meðal afturhalds
liðsins.
Afstaða þess til stjórnarskrármálsins
var þannig vaxin, að enginn gat furðað
sig á því, þó að áminst máltól yrði
gert að skotspæni af hálfu þeirra, er
halda vildu fast við fyrri skoðanir þess
um stjórnarskrármálið. Og það er og
verður gagnslaus iðja fyrir máltólið,
að vilja saka Framsóknarflokkinn um
það, hve sárt blaðinu svíður, að sjá
mis8agnir sínar og öfugstreymið í öll-
um sínum kenningum sett í gapa-
stokk.
En á þ e s s a r i getsök ætlar blað-
ið sér nú að byggja meðal annars í
kosningarógi sínum, — nú þegar aft
urhaldssamkundan finnur, hve snauð
hún er að öllum falslausum rök-
semdum gegn mótstöðumönnum sín-
um.
þar kemur fram hið sama sem áð-
ur úr þeirri átt í flestum landsmál-
um, og höfundar rógsins og getsak-
anna byggja á því, að réttsýni og
heilbrigð skynsemi só ekki til í land-
inu.
Eeykvíkingue.
Ymnumenska og lausamenska.
Eftir
GDÐMUND PEIÐJÓNSSON.
II.
Lesendur blaðsins verða að vera
þolinmóðir, þó að eg verði langorður,
því að hér er um mál að ræða, sem
er mibið nauðsynjamál alls landsins
og jafnframt vandræðamál. íslenzkur
sveitabúskapur getur ekki þrifist, án
þess að vinnuhjú séu ársföst. Og ef
landið á að vera eintóm sjómanna
þorp, þá verða margir strengir slitnir,
sem mór og mörgum öðrum eru við
kvæmir, — og rneira en viðkvæmir.
þess vegna settist eg niður til að
rita um þetta efni. Eg er ekki að
kvarta fyrir sjálfan mig, því að eg
hefi fengið vinnufólk, það sem af er
mínum litla búskap. En eg sé hvar
skórinn kreppir að náunganum, og
vildi feginn geta rýmkað hann.
Samt sem áður; ef heill þjóðar-
innar er betur borgið með því móti,
að alt fólk sé í lausamensku heldur
en vinnumensku, þá er ekki um það
að fást. Eg er ekki upplagður til að
toga hönk einnar stéttar í blindni.
Hitt vildi eg, að hagur alls landsins
væri trygður sem bezt. En það er
sannfæring mín, að þá sé hagur þjóð-
félagsins beztur, ef sveitir lands
vors blómgast og eflast, jafnframt því,
sem sjávarútvegurinn nýtur sín.
En jafnframt er það trúa mín, að
hóflaust ferðalag fólksins úr sveitunum
til sjávarins sé opinn ógæfuvegur bæði
fyrir einstaklingana flesta og þjóðina
yfirleitt. þetta er ekki gripið úr lausu
lofti, heldur úr skýrslum sjálfrar sög-
unnar. Saga þjóðar vorrar ber kvið-
inn á lausamenskuna og óræktar-
hugann til landbúskaparins, og teiur
þau sönn að sökinni.
»Fer fiskisaga«. þegar glamrað hefir
í þorskkvörnunum upp undir land-
steinunum, hefir lýðurinn gengið á
hljóðið og þust í veiðÍBtöðvarnar. En
jafnksjótt sem þorskurinn hefir snúið
sporðinum að fjörunni og kafað til
djúpsins, þá hafa þurrabúðirnar lagst
1 eyði og fólkið farið á vonarvöl.
Siðmenningin og veiðimenskan hafa
aldrei átt samleið, hvort sem litið er
til Eauðskinna í Vesturheimi, eða
búðsetumanna undir Snæfellsjökli. Eg
neita því ekki, að mentaðir menn geti
verið meðal sjómanna. En eg tala
um aðal-regluna.
Margar skepnur, sem eru þroska-
seinar, endast vel og verða langlífar.
Eins er um landbúnaðinn og jarðrækt-
ina. þjóðirnar hafa æfinlega byrjað á
veiðilífinu og hafið sig síðan til korn-
yrkju og kvikfjárræktar. Á þessu er
auðséð, að sú þjóð er á niðurgöngu,
sem hættir við jarðrækt og fjárrækt
og gerist veiðiþjóð.
Eg hefi komið með þessar athuga-
semdir vegna þess, að vinnufólksekl-
an í landinu stafar að miklu leyti af
því, að lausamenskan og sjómenskan
taka höndum saman móti landbún-
aðinum og vinnumenskunni. Ef
lausafólkið væri í sveitunum eftir sem
áður, þá væri minni vandræði en nú
eru.
Nú er að svara þeirri spurningu:
Hvernig fóru gömlu mennirnir að því,
að græða meira fé í vistum en lausa-
mennirnir græða nú?
Kaupið var þó lágt. Faðir minn
hafði 50 kr. í árskaup og græddi líkt
og Stefán gamli á Heiði.
Gömlu mennirnir voru lengi í sömu
vistinni. Faðir minn var 8 ár í sama
stað. þessi var ein ástæðan til þess,
að þeir græddu fé.
Fyrsta sporið var það, að smalan-
um var gefið stekkjarlamb, oft og
tíðum fermingarvorið hans. Húsbónd-
iun gaf honum gimbur, sem seinua
varð ær og undirrót fjárstofnsins.
Smalinn lagði ást á lambið, einu
skepnuna, einu eignina, sem hann
átti, og gaf líf sitt út fyrir hana, eins
og góði hirðirinn. þessi ást hans óx
upp og færðist yfir á hjörðina, jafn-
framt því, sem hún óx. Smalinn
gerðist vinnumaður; hann varði öllu,
sem hann eignaðist og afgangs var
klæðnaði hans, í sauðfé. Skepnunum,
sem hann lógaði eða misti, varði
hann í lifandi pening. Hann heyjaði
fyrir kindum sínum í tómstundum
sinum og á sunnudagskvöldum, keypti
fóður o. 8. frv.
þessir vinnumenn höfðu hlunnindi
hjá húsbændum sínum, þau hlunnindi,
að þeir fengu að hafa kofa fyrir
kindurnar og hirða þær ókeypis.
þetta kom bændunum betur en að
gjalda hátt kaup beinlínis, og var
vinnumanninum notadrjúgt, þar sem
hann gerði tvent í einu: jók efni sín
og lærði að búa fyrir sjálfan sig.
Báðir höfðu ábata, bóndinn og
vinnumaðurinn; og þá er vel að verið,
þegar báðir þeir, sem hlut eiga að
viðskifium, hafa hag af þeim.
Jafnframt því sem fjáreignin jókst, óx
að sama skapi hvötin vinnumannsins
til þess að verja öllu því, sem hann
eignaðist, í fé, í bústofn, sem hann
ætlaði sér að hafa til taks, þegar þar
kæmi, að hann reisti bú og kvongað-
ist. Segja má með sanni, að þessir
menn hafi staðfest ráð sitt undir eins
og þeir gerðust vinnumenn; þá voru
þeir búnir að taka sér stefnu í lífinu.
það þótti á gullöld landsins hamingju-
drjúgt og virðulegt hverjum manni, að
staðfesta ráð sitt, og þá fyrst voru