Ísafold - 16.05.1903, Page 3
107
beztur plógruaður þeirra búfræðinga,
er hér eru kunnir, og plægði einn.
Hann var fjölhæfur og góður smiður;
hann smíðaði kerrur og önnur jarð-
yrkjuverkfæri. Auk þessa hafði hann
kynt sér vegabótastörf, 0{ stóð fyrir
ýmsum vegabótum hér í sýslunni hin
síðustu ár; eru þær vegabætur, er unn-
ar bafa verið undir stjórn hans, miklu
betur af hendi leystar en hér voru
áður dæmi til, og standa ekki að baki
vegabótum þeim, er unnar eru á lands-
sjóðs kostnaö.
Fyrir sveit sína hafði Grímur sái.
auk þessa ýms störf á hendi, svo sem
hreppsneíndarstörf, heyja og fjárskoð-
anir o. fl., og leysti hann þau öll vel
og samvizkusamlega af bendi; má ó-
hætt fullyrða, að fjárhirðingu og með-
ferð búpenings hafi mikið farið íram
um hans daga, og að hann hafi átt
góðan þátt í þeirri framför, enda var
hann öðrum til fyrirmyndar í því sem
fleiru, hversu vel hann fór með allar
skepnur.
Grímur sál. bjó allgóðu búi, efiir
því sem hér gerist, en hafði jafnan
fremur erfiðan fjárhag, enda byrjaði
hann félaus búskapinn og átti mikla
fjölskyldu að annast. Honum var
sem mörgum öðrum hæfileika- og fram-
faramönnum mikið mein að fjárskort-
inum, að því að vanta afl þeirra
hluta, sem gera skal. — Grímur sál,
var manna vandaðastur, eins og haun
átti kyn til; naut hann því að mak-
legleikum almennings álits og vinsælda,
og þykir öllum, er kynni höfðu af hon-
um, hinn mesti skaði að hinu skyndi-
lega fráfalli hans á bezta aldri.
Hann lætur eftir sig ekkju, Bjargeyju
Símonardóttur, og 6 börn á lífi af 10,
er þau eignuðust.
2% 1903. A.
Hmn 10. febr. þ. á. drukuaði J ó n
ívarsson, húsmaður í Innri-Fagra-
dal i Saurbæ, með þeim atvikum, að
hann var í kaupstaðarferð, en var orð-
inn hrumur og sjónlítill, og viltist um
kveldið út á ónýtan sjóarís, sem lá á
voginum við Skarðsstaðarkauptvm; fanst
böggull, er hann hafði meðferðis, fram
á ísskör, en inaðurinn hefir eigi fund
ist, þrátt fyrir margítrekaða leit. —
Jón heitinn var 69 ára gamall. Hann
bjó um nokkurra ára tíma blómlegu
búi í Gautsdal í Geiradal, og á þeim ár-
um var hann hreppstjóri í Geiradals-
hreppi, og stóð í þeirri stöðu með
vandvirkní og mestu samvizkusemi.
Hann var dulur í skapi, og framkoma
hans stundum barnsleg og einfeldnis-
leg; en þrátt fyrir það var hann vel
skynsamur maður og vel að sér, fróð
ur og lesinn. Samvizkusamari mann
og lausari við undirferli er vart hægt
að finna. Hann reyndi flestum frem-
ur hverflyndi hamingjunnar, því mörg
síðustu æfiár sín var hann félaus ör-
eigi, og heilsa og kraftar hans voru
að þrotum komnir; en hin staka vönd-
un, sem einkendi lff hans, fylgdi hon-
um til dauðadags, og þótt svo sýndist
sem hamingja og heimslán væri horfið
og hefði 8núið við honum bakinu, var
hann jafn-ánægður með kjör sín. Hann
var kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur óð-
alsbónda á Víðidalsá við Steingríms-
fjörð, bróðurdóttur Sigurðar heit. kaup-
manns Johnsens í Flatey. Hún lifir
mann sinn. O.
Strandmennirnjr þýzku
austan úr Skaftafellssýslu komu
hingað um daginn á Hólum frá Vík,
þangað fluttir landveg, 4 af 5, er leg-
ið hafa í sárum austur á Síðu frá því
er þeir fundust um miðjau vetur.
Einn var ekki ferðafær og liggur enn
undir umsjón læknisins, Bjarna Jens-
sonar á Breiðabólsstað.
f>að var fyrir tilmæli þýzka kon-
súlsins hér, er Hólar komu við í Vík
í suðurleið til að taka hina, ef þeir
væri þangað komnir. Kapt. Öst-Jak-
obsen hafði þá í 1. farrými og hjúkr-
aði þeim svo vel á leiðinni, sem frek-
ast var kostur á.
þessi, sem eftir liggur eystra, er
sá sem teknir voru af báðir fætur
fyrir neðan hné. Hann heitir Fritz
Wutzo.
Af tveimur hinna, Emil Lange og
Carl Meckert, hafa verið teknir báðir
fætur um hælbein, og tveimur annar
fótur í sama stað. f>eir heita Hein-
rich Hagemeyer og August Pittke.
f>eir hafa nú fótavist.
f>eir bera mjög vel söguna læknun-
um, er stunduðu þá eystra, og eigi
síður Guðl. sýslum. Guðmundss., er leit-
aðist við á alla lund að gera þéim gott
og láta fara svo vel um þá sem hægt
var.
Hór er og auðvitað látið fara vel
um þá, á hótel ísland, að ráðstöfun
koDSÚlsins.
þeir halda heimleiðis héðan á morg-
un með Ceres.
Nýtt þinfrmannsefnl
er upp risið þessa dagana hér í
næsta kjördæmi. f>að er hr. August
Flygenring, kaupmaður í Hafnar-
firði, og kvað vera settur til höfuðs
þeim dr. Valtý og B. Kristjánssyni,
við hlið Halldórs Jónssonar. Enda
hefir máltól afturhaldshöfðiugjanna
þegar helgað sér hann og innsiglað í
gær með miklum fögnuði.
Straiidasýsin (miðri) 25. marz. fléð-
an eru engin markverð tiðindi; tiðin frem-
ur góð og snjór venju fremur litill, eftir
þvi sem vant er að veva.
En ofviðri og umhleypingar hafa verið
með mesta móti í vetur.
í einu sliku roki um 20. jan. fank 120
kinda fjárhús með hlöðu við, hvorttveggja ■
undir járnþaki, hjá Magnúsi bónda Jóns-
syni á Ljúfuhtöðum. Hafði hann keypt
hús þessi ásamt jörðnnni og fleiri húsum
af Guðjóni alþingismanni siðastliðið vor
fyrir 3000 krónur. Skaðinn nemur mörg
hundruð krónum, þvi búsin brotnuðu í
spón.
Kíghósti er kontinn liér nýlega og eitt
harn dáið úr honum.
Sama stað 3. mai: Ailir firðir full-
ir af hafís og fjalfella yfir undir miðjan
flóa; þar er að sjá autt, en eftir því sem
sagt er að uorðan, breikkar ísspildan eftir
því er norðar dregur með Ströndunum.
Frost ern furðulítiþen sifeldar þokur og
snjókoma öðru hverju.
Haglaust má heita fyrir aiiar skepnur;
að eins hnottasnöp í góðu veðri.
Heyskortur mjög almennur, og enginn
að kalla aflögufær; eiga þeir, sem bezt eru
staddir, Í1—7 vikna gjöf, en flestir minna.
Stöku menn hafa þegar rekið fénað sinn
suður yt'ir fjall. Þar er auð jörð, og
veiða það því efaiaust úrræði margra, að
leita þangað til þess að reyna að hjarga
skepnum sínum.
V ©ðurathuganlr
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson
1903 maí Loftvog millim. Hiti (C.) <rr ci- CD cx c æ a\ Skýmagn Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld. 9.8 769,6 0,9 NW i 9 -2,8
2 769,5 4,6 NW i 10
9 768,2 3,7 NW i 9
Sd. 10.8 765,2 4,7 w i 10 2,3 0,3
2 763,8 4,7 NW i 10
9 761,7 5,2 NW i 10
Mdll.8 759,5 5,3 NW i 10 3,4 3,9
2 761,2 7,6 WNW i 7
9 757,7 6,9 8 i 10
Þd.12.8 752,2 5,6 w í 10 5,2 4,2
2 747,3 6,7 E i 10
9 740,8 5,7 NE i 10
Mvl3.8 735,1 6,5 E i 10 5,1 3,4
2 734,1 7,7 N i 10
9 733,6 6,2 N i 8
Fd.14.8 736,1 6,9 » i 10 0,5 3,6
2 738,6 7,1 0 10
9 740,1 6,2 NNw í 10
Fsdl5.8 745,2 5,8 wsw i 10 1,5 3,2
2 749,2 7,4 w í 6
9 752,1 5,3 ; N i 3
Vestur uudir .Jökli.
f>að sein hr. Guðm. Friðjónsson seg-
ir þaðan í sinni ágætu grein um vinnu-
mensku og lausamensku, á auðvitað
einkanlega við fyrri tíma. Hann þekk-
ir þar til að eins af því sem hann
hefir lesið um ástandið. Kunnugir
vita, að þar er uú margt að taka breyt-
ingu til batnaðar, einkum í Ólafsvík
og þar í grend, síðan er þangað flutt-
ust ýmsir mjög uýtir og merkir fram-
faramenn, og eru þeirra nafnkendastir
þeir mágar Einar kaupm. Markússon
og Helgi prestur Árnason.
Fórn Abrahams.
(Frh.)
Vitið þið, ungu menn, hvað þessi
ófriður er ? segir hann enn fremur
eftir litla málhvíld.
Hann beið ekki svars og heldur
áfram þegar í stað:
Nei, það vitið hvorki þið, nó neinn
hinna 200,000 Englendingar, sem eru
að sveima fram og aftur um þetta
auma land. f>eir vita ekki, hvers vegna
þeir eru að berjast og vega menn. Og
eg held mér sé óhætt að fullyrða, að
það viti enginn annar heldur, hvorki
eg né þið. Eg finn það eitt, að hér
gerist hvarvetna eitthvað ömurlegt, að
það er ítrekað dag eftir dag, að það
verður æ meira og óviðráðaclegra, og að
hatur og illmenska drotnar umhverfis
mig. Eg get ekki gefið yður neina
hugmynd um harmleik þann, þar sem
yður hefir og verið fengið hlntverk af
hendi að inna. Eg stend svo sem
steini lostinn og fæ hvorki skynjað
né skilið.
Kennedy lautinant ypti öxlum óþol-
inmóður; og er hinn gamli maður sá
það, flýtti hann sór að bæta við:
En hitt veit eg, að sá guð, sem
allir þykjast tilbiðja, hefir skipað oss,
að elska uáunga vorn eins og sjálfa
oss; en hver gerir það? Hver þá?
spyr eg. Allir, bæði þér og vér, höf-
um lög, sem oss er skylt að hlýða;
ella er þeim hegnt, sem óhlýðnast.
Harðasta hegningu fá morðingjar, og
það er róttlátt; er ekki svo? Hér eru
menn vegnir hundruðum saman og
bæði mannleg lög og guðdómleg
vettugi virt; og svo hafa verið búin
til ný lög, er umbuna glæpi með
hreystiverðlaunum, lofi og ymsum
hagsmunum. f>að er hernaður, svarið
þér. En er það nokkur skýriug eða
afsökun? Blóðsúthelling er andstæð
trú þeirn, er vér játum allir, andstæð
boðorðum siðalögmálsins, andstæð þjóð-
menning þeirri, er þér látið svo mikið
yfir, eins og rótt er. Glæpamenn eru
líflátnir og þeim meinað að gera ilt af
sér; en hjá yður og oss eru það beztu
mennirnir, lastvarir sæmdarmenn, sem
hegnt er. Getur það verið, að róttar-
meðvitund kristinna þjóða sofi svefn-
inum eilífa í þessu efni? Jörðin er öll
föðurland mannanna, og hvar svo sem
einhver maður er, þá er hann til öðrum
mönnum til góðs. Hvaða vit er þá í
því, að svifta þá lífi, sem vér þekkj-
um ekki ? Hvaða vit er í því, að vera
að reka hernað?
f>ér svarið, að þér hlýðið skipunum
frá þeim, sem hafi fengið vald til að
gefa þær út. En er það samboðið
manni, sem er gæddur frjálsum vilja,
að hlýða jafnan, en hugsa aldrei? En
hvaða gagn gerir þá skynsemi sjálfra
ykkar? Hvernig farið þið að líta með
fyrirlitningu niður á villumennina,
sem treysta vopnum sínum og láta
þau skera úr, er eitthvað í milli ber.
Maðurinn hefir skyldur ekki einungis
við aðra, heldur og við sjálfan sig, og
því meiri maður, sem hann heldur sig
vera, því meiri eru skyldur hans. Og
hefir hernaður nokkurn tíma iagað
meira en aðrar styrjaldir hafa úr lagi
fært eða tortímt? Er vaninn sá, að
hugsa, ekki svo ríkur, að mentuðum
mönnum sé alvara að selja frumburð-
arrétt sinn um fram allar skapaðar
skepnur aðrar til þess eins, að losna
við að nota heilann ? Hvað eiga þeir
með hann að gera ella? Að hugsa,
að nota skynsemi vora, það er alt
og sumt, sem vér þurfum að gera, og
það er hið eina, sem vér gerum ekki.
Hvers vegna? Hvers vegna?
f>að eru margar spurningar, sem eg
hefi borið upp, og allir vita, hvernig
á að svara þeim; en enginn hefir hag-
að sér eftir þeim. Ekki á mannkyn-
ið hernaði að þakka framfarir sínar,
og þó viðgengst hann. Hvað þýðir
það ?
Og allir þeir, sem verða fyrir hrell-
ingum þeim og harmkvælum, sem
geisa yfir land, þar sem ófriður er
háður, karlar, konur og börn, hvað
hefir það fólk fyrir sér gert? Ekki
minstu vitund. f>að eitt var að, að
það vissi ekki, hvað ófriður var; á þá
að hegna því með lífs og lima tjóni
og eignamissi fyrir þá fákænsku? f>að
hefir látið tælast . . . . já, en það er
ekki glæpur, er só í neinu sennilegu
hlutfalli við hegninguna. Og jafnvel
þið sjálfir, hvað vitið þið um hernað-
inn, hvort heldur er þessi eða annar?
Jafnmikið eins og vér. Æ, frið, frið,
frið biður ailur heimurinn um, og ófrið,
ófrið, ófrið! er honum hvarvetna svar-
að. Hve nær mundu mennirnir hætta
að hafa ranglætið í frammi hver við
annan ?
Enginn svaraði, enda var auðséð að
hinn garnli maður hafði ekki búist við,
að neinn mundi gera það. Hann
hætti talinu suögglega, svo sem hon-
um væri þrotinn allur þróttur, og þeim
heyrðist hann vera að segja eitthvað
í hljóði, er þeim skildsit sem mundi
vera þetta: Friður á jörðu og mönn-
,unum velþóknun.
f>á setti alla hljóða stundarkorn.
f>eir voru svo sem utan við sig.
Kennedy lautinant var fyrstur til að
rakna við sér og virti fyrir sér hinn
gamla mann, svo vandlega sem myrkr-
ið leyfði. Ekki gat hann hrósað því,
hinn ungi maður, að hann bæri mikið
skyn á skapferli manna og hugarfar;
en þó hafði hann séð það fljótt, að
merkiavaldurinn tröllvaxni og gamli
maðurinn við hlið honum voru góð
börn, er hann hugði sig hafa í öllum
þumlum við í kappræðum. Honum
rann í skap fyrst i stað út af þrá-
kelkni hins gamla manns; en svo fór
honum að þykja gaman að þreyta við
þá rökræður, þessa tvo úr þeirra hóp,
er hann hafði ásett sér að kalla fjand-
menn sína. Auk þess þótti honum
það í meira lagi djarft af hinum gamla
manni, og meira að segja barnalega
heimskulegt, að ætla að fara að neyða
skoðunum sínum upp á ókunnan
mann, — svo barnalega heimskulegt, að
mentaður maður, og það vissi hann
að hann var, gat ekki vel komist hjá
að sýna af sér meðaumkunarbros, og
það varð einnig til að örva hann.
Stjórnarvalda-augl. (ágrip).
Húsavíkur-sparisjóðsbœkur nr. 3, 4,
48, 49. 54, G9, 70, 92, 107, 112, 118, 120,
og 124 skv. innlegsbók A. eru taldar glat-
aðar. Haudhafar gefi sig fram þar við Jó ias
Sigurðsson og Bjarna Bjarnarson innan 6
mánaða frá 15. þ. m.
Uppboð þrítekið fer fram 25. þ. m., 8.
og 22. júní n. k. á þessum fasteignum þrota-
bús Helga kaupm. Helgasonar: húsinu nr. 11
og 12 i Þingholtsstræti, nr. 2 í Pósthússtræti,
og erfðafestulandi við Grænuborg.
Glas(gow7-bruna-sainskotin. Þeim,
sem eiga enn óvitjað sins bluts i þeim, á
skrifstofu ísafoldar, er hér með gert við-
vart um að gera það sem fyrst, helzt á
mánudaginn 18. þ. m. kl. 11—12.