Ísafold - 03.06.1903, Qupperneq 1
'Kemur út ýmist einu sinni eða
tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l'/j doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
Uppsögn (skrifleg) bundin viö
iramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
Reykjavík miövikudaginn 3. júní 1903.
32. blað.
I. 0. 0. F. 856129. Er.
Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þrd. á
hverjum mán. kl. 11—1 í spltalanum.
Forngripasafn opið md., mvd. og ld.
11—12.
K. F. XJ M. Lestrar- og skrifstofa op-
dn á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 siðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
'Sunnudagskveldi kl. 8‘/2 siðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
ag kl. 0 á hverjum helgnm degi.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
<kl. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
md., mvd. og ld. tii útlána.
Náttúrugripasafn, í Doktorshúsi, opið
<1 sd. kl. 2-3.
Tannlœkning ókeypisiPósthússtræti 14b
í. og 3. mánud. hvers rnán. kl. 11—1.
Synodus, sjá auglýs.
Mannfjölgun og yesturfarir.
Einn kaflinn í aldar-landshagsskýrslu
hr. Indriða Einarssonar er um fólks-
flutninga og áhrif þeirra á fólksfjölda
í landinu. Hann á þar við flutning
fólks bæði inn í landið og út úr því
yfirleitt. En roeð því að þar gætir
lítið sem ekkert annarra fólksflutninga
en vesturfaranna, þykir vel mega kalla
þann þátt í fólkstöluáhrifunum nafn-
inu vesturfarir.
Oldina sem leið fæddust hér á Iandi
alls 43J/2 þús. fleiri en dóu.
En fyrsta ár aldarinnar (1801) var
fólkstala á landinu 47x/4 þús.
Eftir því hefði hún átt að vera
orðin í aldarlokin nær 91 þús.
Hún hefði átt að vera orðin það,
ef ekki hefðu verið neinar vesturfarir
alla öldina, eða réttara sagt raunar,
ef ekki hefði fleiri fluzt búferlum burt
af landinu en inn í það.
Hún h e f ð i vitanlega e k k i verið
það, þ ó a ð engar vesturfarir hefðu
verið. þvi að þar koma aðrar orsakir
til sögunnar og valda því, að þess
kyns h e f ð i gildir ekki að fullu.
En í stað þessara nær því 91 þús.
voru nú landsbúar í aldarlokin ekki
nema 78y2 þús.
Hafa því búferlaflutningar af landi
burt numið alla öldina samtals nær
12J/2 þús.' umfram það lítið, sem
fluzt hefir af fólki til landsins á sama
tímabili.
Sex tugi alaarinnar framan af telst
höf. mannflutningar af landi burt hafa
numið alls rúmum 1000 hræðum um
fram það er hingað fluttist. það verða
um 17 sálir á ári. Útstreymi þó
meira en aðstreymi, það lítið það er.
En þá þektust engar vesturfarir.
Næstu tvo áratugina skiftir um.
þá kemst útflytjendatalan töluvert á
þriðja þúsund (2159), þ. e. fram yfir
innflytjendur. þá hefjast vesturfar-
irnar, á því tímabili miðju.
En ekki kastar tólfunum fyr en
næsta áratuginn, 1881—1890.
f>á kemst brottflytjendatalan upp
í 6300.
Og það eru vitanlega mestalt vest-
nrfarar.
Síðasta tuginn fækkar þeim aftur
að mun. Brottflytjendur eru þá ekki
nema rúm 2800 umfram innflytjendur.
Sízt mun fjarri fara, að sjálfar vest-
urfarirnar á öldinni nemi svo sem 10
þúsundum. f>á ættu að hafa fluzt
lítið eitt fleiri af landi burt til ann-
arra landa en Vesturheims síðari 40
ár aldarinnar en 60 hin fyrri. f>eir
hafa og sjálfsagt verið nokkuð fleiri, svo
sem einkum til Noregs og Danmerk-
ur. En hins er líka að gæta, að
mannflutningar t i 1 landsins hafa verið
miklu meiri það tímabilið en hið fyrra,
einkum af Norðmönnum, eftir það er
þeir hófu hér síldveiðar og hvalveiðar,
— þótt aldrei hafi þeir miklir verið.
Höf. víaar að lokum í það sem hann
hefir ritað fyrir mörgum árum (í
landshagssk. 1884) um hag og óhag
fyrir Iandið að mannflutningum héð-
an. f>á voru skoðanir almennings á
því máli ákaflega óþroskaðar og hleypi-
dómakendar. f>ær hafa breyzt mikið
síðan, með vananum. Nú er almenn-
ing8álitið orðið það, að hóflegar og
jafnar vesturfarir, svo sem 100—200
eða 300 á ári jafnvel, séu landinu alveg
bagalausar og raunar heldur til bóta
að sumu leyti. Mikil stökk eru skað-
leg og einkum ef burt þyrpist meira
af fólki í broddi lífsins og á bezta
vmnuskeiði.
Höf. sýnir fram á það á fyrnefnd-
um, tilvitnuðum stað, að séu burt-
flytjendur fátækari að meðaltali en
þeir, sem eftir eru, koma meiri efni
á hvern þeirra eftir en áður. Losið,
sem hér kemur á margt fyrir mann-
flutningana af landi burt, er að sumú
leyti til bóta: rýmkar t. d. um jarð
næði fyrir þá sem eftir eru; lönd og
lausafé kemst í hendur nýjum eigend-
um, oft þeim í hag; vonleysisfargi
léttir af mönnum og framkvæmdar-
deyfð, er þeir eiga annars úrkosta til
reynslu en að hanga fastir á sörnu þúf-
unni, hversu örðugt sem þeir eiga
uppdráttar og andstætt við að búa.
Fyrir ásiglingr
varð það slys í f. m. fram undan
Dýrafirði, að fiskikuggur, er átti Síg-
fús kaupmaður Sveinsson í Hafnar-
firði og Winfred hét, sökk að vörmu
spori — á 4 mínútum. |>etta var um
nótt, og björguðust menn, næsta fá-
klæddir sumir, upp á skip það, er á
þetta sigldi, en það var Karólína, eign
Bunólfs Ólafssonar í Mýrarhúsum.
Strandferðaskipið Vesta
kom hingað hvítasunnumorgun, norð-
an um land og vestan, 4 dögum eftir
áætlun. Hafísjaki braut 2 blöð úr
skrúfunni á Skagafirði, skamt frá Sauð-
árkrók; þar var dálítið hafíshrafl, mein-
laust að öðru leyti. Skipið skreiddist
því næst við illan leik vestur á ísa-
fjörð og fekk þar bráðabirgða-viðgerð.
Farþegar hingað voru meðal annarra
þeir Páll prófastur Ólafsson í Vacns-
firði, á amtsráðsfund, og nokkrir Good-
Templara-fulltrúar á stórstúkuþing, er
byrjar 6. þ. m., þar á meðal Helgi
Sveinsson verzlunarmaður á ísafirði,
David Östlund trúboði af Seyðisfirði,
og Gunnl. J. Jónsson kennari frá Stykk-
ishólmi. Ennfremur ekkja síra Jósefs
Hjörleifssonar á Breiðabólsstað, frú
Lilja Ólafsdóttir, með 5 börnum þeirra,
alkomin hingað.
Erleml tíðindi.
D a n m ö r k. Mikið afrek liggur
eftir ríkisþingið í þetta sinn, þar sem
eru ný ekattalög, er unnið hefir verið
að eigi skemur en 8 ár samfleytt.
Skattalöggjöf Dana hefir lengi þótt
ábótavant og var það eitt aðalatriði f
stefnuskrá vinstrimannastjórnarinnar,
er hún komst til valda, að koma fram
hæfilegri umbót á henni. Nú hefir
henni loks tekist það, með tilstyrk
flokks þess f landsþinginu, er kallar
sig »de frikonservative«. |>ar stóðu í
móti Estrupsliðar og sósíalistar. Breyt-
ingarnar eru aðallega í því fólgnar,
að fasteignaskattur er afnuminn, en í
stað hans lagður á eigna- og tekju-
skattur. jþað er mjög mikill léttir
fyrir landbúnaðinn, miklu meiri en
réttlátt er að dómi Estrupsliða og
sósíalÍ8ta. I Kaupmannahöfn lækka
raunar gjöld til bæjarins, en sú lækk-
un vegur hvergi nærri upp hækkunina
á ríkissköttunum. Sósíalistum finst
verkmannastéttiu og þeir hinir efna-
minni verða of hart úti i samanburði
við efnamennina. En alment þykir
þetta vera mikil réttarbót, og þrek-
virki af stjórninni að hafa kornið
henni á. |>að er mest þakkað fjár-
málaráðherranum, C. Hage.
Ejársvik og féglæfrabrögð ágerast
mjög í Danmörku. Rétt nýverið varð
málfærslumaður nokkur í Khöfn, er
Valdemar Madsen heitir, uppvís að
margvíslegum fjársvikum, er nema
mundu samtals 2—300 þús. Hann
hafði verið haldinn mjög svo áreiðan-
legur maður og vandaður, og haft á
sér almenningstraust. Fyrir því brá
mönnum ákafl.ega í brún, er uppvíst
varð athæfi hans. Hann játaði síðan
sjálfur á sig klæki þá, er hann hafði
haft í framrni.
Gálgahæð var örnefni nokkurt á
einum stað vestan og norðan við
Kaupmannahöfn. þar er nú komin
bygð; Khöfn hefir færst það út. þar
var verið að grafa fyrir húsi fyrir
skemstu, og fanst þar mikið nokkuð
af mannabeinum, nokkrar beinagrind-
ur. En þar hafði aldrei kirkjugarður
verið. Beinin sum báru menjar eftir
eggjárn og ímynduðu menn sér fyrst,
að þetta væri valköstur frá umsát
Svía um Khöfn 1659, eða þá frá því
er Bretar sóttu borgina 1807. En þá
var því veitt eftirtekt, að eitt líkið
eða tvö vantaði bæði höfuð og hendur, og
báru þess menjar, að þetta hafði verið
höggvið af. Og þykir nú líklegt, að
þettaséulik þeirraStruensee ogBrandts,
er höggnir voru 1772 á Austurvelli
við Kaupmannahöfn, en líkin hjól-
brotin síðan og hengd í gálga á þess-
um stað, Gálgahæðinni. f>ar hafði
Kristján konungur sjöundi haft sér
til skemtunar að horfa á líkin í gálg-
auum heiman úr höll sinni á Frið-
riksbergi.
Hryðjuverk þau, er drepið er á í síð-
asta bl. að B ú 1 g a r a r hafi framið í
Saloniki, tyrkneskri borg allmikilli við
flóa samnefndan norður úr Grikklands-
hafi, gerðust 29. apríl og dagana þar á
eftir, og urðu að bana nokkrum hund-
ruðum manna. f>au hófust á þá leið
að kveldi dags, er myrkt var orðið,
að gert var koldimt í borginni með
þeim hætti, að slitin var meginæð
allrar gaslýsingar í staðnum, og því
aæst varpað dýnamit-sprengikúlum
víðs vegar um hana, svo að ákafleg-
um felmti sló á borgarlýðinn, sem
von var. þessu hélt áfram fram á
nótt, og tók sig upp aftur næstu
kveldin tvö — varð ekki stöðvað fyr
en á 3. degi. f>á fanst höfuðbæli ill-
virkjanna, í smágötu einni í borginni,
þar næst, er stóð einn helzti banki
Tyrkja. Höfuðforkólfur illvirkjanna, er
Jourdan hét og var sagður ítalskur
að kyni, skaut sig, er hann sá sér
ekkert undanfæri, en varpaði áður frá
sér nokkrum sprengikúlum, er gerðu
töluverð spell. Slíkt hið sama gerði
félagi hans einn á eftir honum.
»f>annig deyr Búlgari* mælti hann, er
hann skaut sig í gegnum brjóstið.
f>að komst upp, er tekið var til að
kanna verksummerki eftir aðfarir
spellvirkjanna, að grafin höfðu verið
leynigöng neðan jarðar langa leið að
undir baukann og hefir átt að sprengja
hann í loft upp. En ekki komist þó
svo langt.
Tyrkjasoldán sendi her manns til
borgarinnar að hafa hemil á illvirkj-
unum; og stórveldin stefndu þangað
nobkrum bryndrekum úr Miðjarðar-
hafsflota þeirra.
Brytt hefir síðan á samkynja óeirð-
um og spellvirkjum víðar í löndum
Tyrkja, og Makedónum um kent.
f>að mun vaka fyrir þeim, að valda
svo miklum býsnum og ósköpum í
manndrápum og eignaspjöllum, að
stórveldin neyðist til að skerast í leik
og soldán verði smeykur um sig.
Gyðinga-ofsóknum bryddir enn
á í Rússlandi. f>að gerðist þar um
páskaleytið, í borginni Kitchenew, að
göbuskríll tók til að brjóta hús á
Gyðingum með grjótkasti og hafði í
frammi ýmsan ósóma við þá, svívirtu
konur, drápu karlmenn og misþyrmdu
börnum eða bönuðu þeim í augsýn
mæðra þeirra. En lögreglustjóri bæj-
arins lét það hlutlaust, enda heldri
menn slegist í lið með skrílnum, jafn-
vel embættismenn keisarans. Róstur
þær urðu að bana á 2. hundrað Gyð-
ingum og ollu fjártjóni, er nema
mundi nær 10 milj. kr. Stjórnar-
völd skárust þá fyrst í leik, er skipun
kom um það frá Pétursborg. En
engra bóta munu Gyðingar von eiga
fyrir illvirkin.
Vestan fráAmeríku, New-York,
er ein voðafréttin, af ægilegu tilræði til
að granda ensku gufuskipi geysistóru,
er var ferðbúið austur um haf með
mikinn fjölda fólks. f>etta var 9. f.
m. og heitir skipið Umbría. f>á fær
lögregluliðið í New-York skriflegt skeyti
um, að f ráði sé að láta Umbríu
springa í loft upp, er hún sé látin í
haf, og hafi verið í því skyni komið
með henni kassa, er hafi að geyma
100 pd. af skæðasta sprengitundri
(dynamit), og þar með tól nokkurt í
stundaklukkulíki, þann veg útbúið, að
hægt sé að láta kvikna í tundrinu á
þeirri stundu, er henta þykir, og
mundi þá engin örmul eftir sjást af