Ísafold - 13.06.1903, Side 2
138
fólbi, ef ekki væri jafnframt aéð fyrir
nægum bókum handa því til að
glæða og auka við þekkingu sína,
þegar úr skólunum væri komið.
Nú verSur þá fyreta íhugunarefnið,
hvernig þetta megi verða, og skal eg
leitast við að svara því.
Setja þarf á stofn bókasöfn að
minsta kosti í hverri sýslu landsins,
t. a. m. í líking við amtsbókasöfnin.
|>au eiga að fá fjárstyrk af landssjóði
móts við jafnan fjárstyrk annarsstaðar
að, svo sem úr sýslusjóðúm og frá
þeim, sem söfnin nota. Ef landssjóð-
ur legði hverju safni 200 krónur á
ári og ef safnið hefði 200 kr. annars-
staðar að, yrðu tekjurnar 400 kr. á
ári. Væri nú bókasöfnin jafnmörg
sýslunum, og væru þau 3 amtsbóka-
söfn, sem til eru, gerð að sýslubóka-
söfnum, sem sjálísagt virðist — þaú
eru líklega ekki annað í reyndinni
hvort sem er — þá væri þetta rúmra
3000 króna gjaldauki fyrir landssjóð.
Eg hygg nú samt, að koma mætti
upp mikið góðum bókasöfnum fyrir
þetta fé, og með þeim hætti, er áður
er bent á. Tilgangurinn á ekki að vera
sá, að hauga saman svo m ö r g u m
bókum, heldur að menn gætu átt kost
á að lesa alt hið bezta, sem prentað
er árlega af íslenzkum bókum, og svo
beztu bækurnar, sem koma út á norð-
urlandamálunum.
íslenzkar bókmentir eru svo fátæk-
legar, að hver maður, er nokkurn
veginn vill mentaður heita, hlýtur að
leita til erlendra bókmenta; en, eins
og flestir vita, er það efnalega ókleift
öllum þorra manna.
Maður veit minst um, hvað heim-
urinn hefir fyrir stafni í orði og verki
af íslenzkum bókum einum, sem von er.
Sagt kann að verða, að þeir séu svo
fáir, er hafi not bóka á öðrum tungu-
málum, að til lítils komi að eiga að-
gang að þeim í söfnunum. En bæði
er nú það, að allir lærðir menn og
allmargir alþýðumenn skilja að minsta
kosti norðurlandamálin, og svo er þá
fyrst, en fyr ekki, fengin veruleg hvöt
til að læra erlend mál, er til væri að
grípa góðra bóka á þeim; og án þess
er eiginlega ekkert vit í að læra þau.
f>á er að ræða um staði fyrir bóka-
söfnin.
Að reisa sérstök hús fyrir þau yrði
of dýrt fyrst um sinn, enda þyrftu
söfnin ekki mikið rúm í bráðina.
Mér dettur í hug, að nota mætti
kirkjurnar. f>ær eru flestar úr timbri,
og eru því rakalitlar, og það er mikill
kostur. Nógu stórar munu þær einn-
ig reynast; sjaldnast eður aldrei eru
þær fulUkipaðar við messugerð utan
kaupstaða; virðist því rétt að nota
sem bezt á ekki óviðeigandi hátt
þessi hús, sem eru nokkuð dýr móts
við afnotin. Frá kirkjulegu sjónar-
miði getur ekki verið á móti neinu,
sem ekki vekur hneyksli eða glepur
fyrir fólki í kirkjunni, en það gera
ekki bókahirzlur t. a. m. á kirkjulofti.
f>á er bókvarzlan.
Af því að ekki ætti að draga inn í
söfnín hverja bók sem byðist, heldur
safna saman úrvalsbókum, þyrfti vit-
anlega valinn, góðan fróðleiksmann til
að útvega hverju safni bækur. f>á
menn ættu sýslunefndir að útvega.
Annað um bókvörzlu þarf hér ekki að
ræða.
Væri þetta komið á stofn, og að
því ætti að vinda bráðan bug, væri að
minni hyggju stórt spor stigið í menn-
ingaráttina.
f>eir verða að vísu nokkrir, sem
ekkert mundu nota þessi mentatæki;
en þótt ekki yrði annar árangurinn
en sá, áð 1—2 mentuðum mönnum
fleira yrði í sveit hverri en nú eru þeir,
yæri mikið fengið; því að frá þeim
gæti mentun og fróðleikur runnið út
til margra. f>ess mun á þann hátt
sjást merki, þar sem afburða-fróðleiks-
menn hafa verið eða eru í bygðarlög-
um. Nægír í því efni að benda á
Skagfirðinga fyrrum, og Suður-f>ing-
eyinga nú á dögum.
Sagt kann að verða, að nógur tími
sé að koma upp bókasöfnunum, er
skólarnir séu kornnir á stofn; þá fyrst
færu menn að hafa þess þörf og not.
f>ar til liggur það svar: margir eru
þeir, sem mentast geta svo, að þeir
hafí not bóka án skóla, en án bóka
er skólagangan iítils virði. f>að sem
mestu varðar er að fá nægilega marga
mentaða menn í hverju bygðarlagi,
sem svo gætu verið leiðarstjörnur
fjöldans og fullnægt þeim störfum,
sem vinna þarf og fróðleik og mentun
þarf til, í hverju þjóðfélagi, sem siðað
er og sjálfstjórn vill hafa. f>ví meira
sem frelsið er, því meiri mentunar
þarfnast hver þjóð.
Eg skal leyfa mér að geta þess,
að sýslunefnd Borgarfjarðarsýslu hefir
riðið á vaðið og heitið styrk til að
koma á stofn bókasaíni fyrir sýsluna;
mun verða leitað styrks hjá alþingi
þessu til framkvæmdar. Ættu fleiri
sýslunefndir að fylgja því dæmi, og
skora á þingið um nauðsynlegt fé í
þessu skyni; mun varla standa á því,
ef fram kemur almennur vilji í þá
átt.
Þó að eg hafi ekki getað ritað svo
ljóst og vel um þetta efni, sem vera
bæri, og að margt fleira hefði mátt
taka fram því styrkingar, vona eg að
þessar bendingar nægi til þese, að
mentavinirnir hér á landi muni sann-
færast, er þeir hugleiða málið, að hér
er um verulegt þjóðmenningaratriði
að tefla, og að þeim takist að afla
því þess fylgis, sem þarf til þess, að
koma því í æskilega framkvæmd.
Fitjurn, sumardaginn fyrsta 1903.
St. Guðmundssov.
Uppdráttur Reykjavikur m. m.
Landmælingadeild herforingjaráðsins
í Khöfn hefir gera látið landsuppdrætti
af Reykjavík og Hafnarfirði með ná-
grenni, eftir raælingum þeim, er
gerðar voru í hitt eð fyrra og í fyrra.
Uppdrátturinn af Reykjavík tekur
alla leið frá því innan við Rauðará
og fram fyrir Eiðstjörn,og suður fyrir
Laufás, enda er býsnastór, 26 x 14
þml., og svo nákvæmur, að þar er
markaður nær hver húskofi hér um
bil, hver kálgarður og hver smágirðing,
og gerður greinarmunur á, úr hverju
garðurinn er (torfi, grjóti, vír o. s.
frv.); enn fremur tún, engi, mýri, mel-
ar, möl, stórgrýtisblettir, klettar og
klappir, svo og hæðamunur allur og
vegalengd, — yfirleitt alt með mikilli
nákvæmm; að eins ofurlitlar afstöðu-
skekkjur sumstaðar, hvernig sem á
þeim stendur. Götunöfn og önnur
örnefni villulaus að sjá og stafrétt;
og er það nýlunda af útlendingi.
Uppdrátturinn er mjög fallega prent-
aður og sélegur, með hæfilegum lit-
breytingum. Og gjafverð er á honum.
f>á er uppdráttur af Hafnarfirði,
frá Hvaleyrargranda að Fiskaklett og
upp fyrir Hamarskot, með sömu ná-
kvæmni gerður og sama frágangi og
sá af Reykjavík.
Loks er í þriðja lagi uppdráttur af
•nágrenni Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar«, þ. e. nesin bæði (Seltjarnar
og Álfta) með Akurey og Engey og
landið upp af Hafnarfirði alt suður
að Helgafelli. Fyriríerðin er að eins
7x/2 x 4 þml., en stærðin þó ð sinnum
meiri en á Uppdrætti íslands (B. Gunnl.)
og nákvæmni að því skapi meiri.
Ornefnaval er þar nokkuð að handa-
hófi gert og ekki laust við skekkjur
í örnefnum eða afbakanir, t. d. Apo-
thekernes f. Nes við Seltjörn, Valhús-
bakki, Nauthóla, Smalholt; sumt er
prentvillur: Skilðinganes, Unðirhlíðar,
Hlíðsnes, Fifuhvammur, Vifilsstaðir.
þetta eru smávægileg lýti að vlsu, en
nóg til að stingi í stúf við hinn vand-
aða frágang að öðru leyti, endaþraut-
arlaust að sneiða hjá þeim.
f>að er eigi lítilla þakka vert, þetta
landmælingastarf herforingjaráðsins,
alt unnið á kostnað ríkissjóðsins
danska, fyrir ærið fé, án 1 eyris útláta
fyrir oss eða landssjóð.
Illgirnisleg ösannindi.
Herra ritstjóri! Vilduð þér ekki
ljá eftirfarandi línum rúm í yðarheið-
raða blaði.
Af tilviljun hefir mér borist í hend-
ur auglýsingablaðið »Reykjavik«, sem
ritstjóri þe88 fer með sem honum er
Iagið. Stendur þar meðal annars
dæmafá illyrðagrein, sem ætlast er
til að segi frá þrælmensku Odds í
Skaftárdal, en gerir þar í móti að
ráðast persónulega á einstaka menn,
sérílagi Svein prest Eiríksson í Ásum,
með mannorðsketnmandi ó-
sannindum.
Orð blaðsins vil eg ekki taka hér
upp, með því að þau eru langt of
svívirðileg til að sjást í heiðvirðu blaði;
en sannleikur þessa »vottorðs«-mála-
rekstur er sá, er hér greinir:
Síra Sveinn Eiríksson gefur »vottorð«
eða álit sitt snemma í desember í
vetur, er leið, eftir beiðni oddvita,
um það, að þessi umræddi staður
(hjá Oddi í Skaftárdal) verði að telj-
ast »for8varanlegur«, þar sem ekki
verði annað séð en að drengnum
lfði þar bærilega (eða eitthvað því um
líkt), og þar sem hann (o: drengurinn)
vilji alls ekki fara þaðan. —
Dauða drengsins ber að seint í marz-
mán., og sér hver heilvita maður, að
staðurinn gat verið »forsvaranlegur«
snemma í desembermán., þótt hann
væri óhæfur seint x marzmán., enda
er þegar sannað, að hið gefna
vottorð síra Sveins var al-
gerlega sannleikanum sam-
k v æ m t; er og enginn efi á því, að
sýslumaður Skaftfelliuga mun gefa
yfirlýsingu um þetta, er honum berst
þessi óhróðursgrein.
Sjálfur hefir ritstj. »Rvíkur«, að því
er ætla má, ekki smíðað þennan á-
burð, heldur mun óhætt að fullyrða,
að á þessu sjást fingraför Páls Hans
sonar (föður drengsins). Mættu menn
ætla, að Páll Hansson hafi gripið til
þessara svívirðilegu ósanninda af hrygð
eða gremju út af þessum hryllilega
atburði; en heldur veikist maður í
þeirri trú, er kunnugir segja þannig
frá, að svo hafi verið langt í frá, að
hann hrygðist, að hann hafi miklu
fremur verið hróðugur, þótt, ótrúlegt
sé; geta menn þess til, að hann muni
hugsa sér að nota þetta framvegis til
að núa hreppsnefndinni um nasir,
sem hann hefir nú upp á síðkastið
átt í brösum við. Páll þessi kvað
sem sé vera miður vel þokkaður, að
eg komist sem vægast að orði; hefir
hann nú t. d. hætt að vinna á bezta
aldri og er því »á sveit«.
Auðsætt er, að Páll hefir ekki treyst
sér að koma þessum illyrðum að ann-
arsstaðar en hjá ritstjóra »Rvíkur«. —
En freraur virðist það bera vott um
samvizkuleysi hjá ritstjóra, að birta
þetta í blaði sínu, þótt honum berist
það, reyndar sjálfsagt frá manni, sem
hann þekkir ekkert, en hefði með ör-
lítilli umspurn getað komist að raun
um, að ekki mátti henda reiður á.
Mætti og ætla, að ritstjórar væru
eigi svo blindir, að þeir sjái ekki, að
slíkt getur verið mannorðs-spillir heið-
virðum manni, þótt í engri sök
sé, að um hann séu höfð þvílík orð,
enda þótt vitanlegt væri, að fáir eða
engir legðu trúnað á orð blaðsins,.
sem þau flytti.
Reykjavík 11. júní 1903.
Gísli Sveinsson.
Byggingarefnarannsöknir.
Samkvæmt. fjárveitingu síðasta al-
þingis hefir cand. polyt. J ó n |> o r -
1 á k s s o n (frá Yesturhópshólum) ver-
ið ráðinn eftir tillögum Búnaðarfélags
íslands til að halda áfram byggingar-
efnarannsóknum þeim og leiðbeining-
um í húsagerð, er Sigurður heitinn
Pétursson dó frá. Hann hefir verið
að búa sig undir það erlendis frá því
í vetur, kom hingað um daginn með
póstskipinu, og ætlar að ferðast hér
um land í sumar til slíkra rannsókna.
Honum lízt að svo stöddu einna bezt
á, að gerðir séu steinar úr steinsteypu
til að hlaða úr húsveggi; telur það
munu verða kostnaðarminna en að
steypa veggina í einu lagi; þá mundi
og verða hægra að hafa veggi hola.
Hann ráðgerir að flytja fyrirlestur
hér um þetta efni innan skamms.
Hann hugsar og til að athuga kalkið
á Kjalarnesi (í Esjunni) í því skyni,
að kalkbrensla geti komist hér á sem
fyrst, ef nóg fyndist kalkið. Enn
fremur ætlar hann sér að leita að
leir til tígulsteinsbrenslu, og sömu-
leiðis að steintegund þeirri, er »trass«
nefnist, og blanda má við kalk og
sement. f>að segir hann vera ágætt
byggingarefni, og ímyndar sér að gera
mætti það að útflutningsvöru, ef fynd-
ist á hentugum stað.
Hann kveðst þurfa að fara utau
með haustinu og ferðast um þýzka-
land og England til þess að afla sér
frekari þekkingar í þessum efnum.
Stjórn Landsbúnaðarfélagsins hefir fal-
ið honum eftir tillögu hans að láta
gera tilraun til að búa til fram-
ræslupípur úr sementsteypu. Að þvf
væri hin mesta framför, ef tækist,
með því að útlendar framræslupípur
eru of dýrar, vegna flutningskostnað-
arins einkanlega.
Sláttuyél.
Hugvitsmaðurinn Ólafur Hjalte-
sted, sem hÍDgað kom frá Khöfn um
um daginn og fer aftur þangað 16. þ.
m., hefir hugsað upp þá tilbreyting á
sláttuvélum, er hann hyggur koma
mundi að fullum notum hér á landi,
á snögt gras o. 8. frv., og ekki yrði
erfiðari en það eða fyrirhafnarrneiri,
að nota mætti með handafli, jafnvel
af kvenmönnum, og slægi þó þrefalt
á víð það er góðir slátturnenn gera nú
með orfi. Hann sýndi nákvæman
uppdrátt af vélinni á síðasta stjórnar-
fundi Landsbúnaðarfélagsins.
Hr. Ó. H. hugsar til að koma hér
upp f Reykjavík hugvitssmíðastofu,
er annast gæti ýmsar vandasamar
smíðar og viðgerðir, þær er ella hefir
orðið að leita með til útlanda. Hann
ætlar að sækja um í því skyni til
þingsins 10,000 kr. lán, er endurgreið-
ist á 15 ára fresti.
„Heima8t,iórnar‘'-liðið
og fjárkláðinn. Hann fer merkilega
villur vegar, Páll amtmaður Briem,
er hann bendlar nýlega í »Norðurl.a
Magnús dýralækni Einarsson við
»heima8tjómar«-flokkinn og lætur hann
vera meira að segja einn í flokksstjórn-