Ísafold - 20.06.1903, Qupperneq 4
I4b
Maður melddist
fyrir skömmu á hvalveiðastöð hr.
Bergs á Dýrafirði; varð fyrír brotum
úr katli, er sprakk.
Síðdegisguðsþjónusta í dómkirkj-
unni á morgun kl. 5: síra Bjarni Hjaltested.
Veðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson
1903 júní Loftvog millim. Hiti (C.) >- Cf <rf- <1 <x> cx cr 8 cx w pr 3 55 rc 2 Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld.13.8 770,5 7,8 w 1 10 7,0
2 769,5 8,7 w 1 10
9 768,4 7,4 w 1 8
Sd.14.8 768,1 6,8 WNW 1 10 0,2 5,8
2 769,1 9,7 w 1 2
9 768,9 9,9 0 10
Mdl5.8 768,1 8,1 WNW 1 10 6,7
2 766,9 9,7 88W 1 10
9 765,4 8,8 0 10
Þd.16.8 763,9 9,0 E 1 10 7,5
2 764,1 10,6 E 1 10
9 764,7 8,8 0 10
Mdl7 8 766,2 8,7 N 1 6 0,4 7,2
2 767,4 11,1 WNW 1 3
9 766,3 10,0 0 3
Fd 18.8 764,5 9,9 0 0 5,5
2 763,4 11,4 W 1 1
9 761,2 8,3 WNW 1 10
Fsd 198 755,9 7,5 0 10 6,2 6,4
2 753,9 7,9 0 10
9 754,1 7,3 0 10
Fórn Abrahams.
(Prh.)
Látið þér stíga dálítið liðugt, kallar
minni Búinn hvatskeytlega.
f>að fauk dálítið í lautinantinn við
þetta heldur óþýða ávarp. Hann
hálfsneri sér við og leit illúðlega til
Búans.
Búinn var næsta þungbrýnn og lét
sér hvergi bregða. Og er lautinantinn
sýndi sig líklegri til að halda aft.ur af
hestinum en að herða á honum, seg-
ir hann, byrstur í bragði:
Látið þér stíga dálítið liðugt, segi eg.
Og ef mér dettur nú ekki f hug að
gegna, hvað ætlið þér þá að gera?
Búinn reið fram við hliðina á hesti
lautinantsins, nísti saman tönnum og
mælti:
Fyrir þremur mánuðum átti hann
faðir minn þrjá sonu, en nú á hann
ekki nema einn eftir. Bnginn veit
hvar hinir eru.
Hann þagnaði við snöggvast og seg-
ir svo:
Ef þér gæfuð mér tilefni til að keyra
kúlu í gegnum hausinn á yður, þá
mundi eg vera yður mjög þakklátur.
Og hann dró upp bóginn á byssu
sinni, til þess að veita því áherzlu,
sem hann sagði.
Lautinantinn sat á sér og keyrði
hestinn sporum, Hann sí, að honurn
hafði skjátlast í meira lagi um auma
fjandmenn sína. það var viðbúið, að
meðal þeirra væru eigi allfáir, sem
teldu sig eiga sín í að hefna, eins og
maðurinn þar við hliðina á honum,
og það var auðséð á þungbúnum svip
hans, að ekki mundi hann hika sér.
Hinn ungi lautinant sá sér einn kost
nauðugan og hléypti hestinum á sprett,
þangað til hann náði í vagnana.
þessari hörðu og þreytandi reið var
haldið áfram tímunum saman, þótt ekki
væri að sjá neitt tilefni til þess. Leið-
in lá alla jafna áfram meðal öldu-
hryggja, sem krepti saman sjóndeild-
arhringinn, og hvert skifti sem hinir
herteknu menn ímynduðu sér, að nú
kæmu þeir út á stóra flatneskju, tóku
við nýjar hæðir og teptu sjóndeildar-
hringinn. Um hádegisbil var áð stund-
arkorn við á, sem var nærri því upp-
þornuð, og teknar upp nokkrar vatns-
melónur. f>eir flysjuðu í snatri hin
Stóru, safamiklu aldin, gleyptu nokkr-
ar sneiðar af þeim á hestbaki, og
bjuggust til að halda áfram, er þeir
höfðu látið hestana drekka nokkuð af
óhreinu vatni úr polli milli steina.
þá varð dálítil töf fyrir það, að
Stephens lautinant gat ekki setið leng-
ur á hestbaki. Honum hafði versnað
á leiðinni, af því að svo hart var rið-
ið, og fekk hann áköf akjálftaköst
hvað eftir annað, þótt ónotalega heitt
væri í veðri. Hann hafði ætlað að
kvelja sig til að borða melónusneið,
þegar þeir áðu, en gat engu komið
niður. Nú hneig hann alt í einu til
jarðar af hestbaki, áður en nokkur
gat varnað því.
Trúboðinn gamli var óðara þar kom-
inn. Hann gerði tveimur riddurunum
bendingu að hjálpa sér og lét þá taka
hinn sjúka mann og leggja hann upp
í aftasta vagninn, er ætlaður var sjúk-
um mönnum eða sárnm. Jpar bjó
hinn gamli maður um hann, svo vel
sem hægt var, í skiunfeldum og ullar-
ábreiðum, settist síðan hjá honum og
hélt undir máttlaust höfuðið á honum.
Búi sá, er fyrir sveitinni réð í fjarveru
van der Naths, gaf bendingu um að
leggja af stað aftur, og riðu þeir leið-
ar sinnar eins hart og áður. En ekki
var stefnt sömu leið og áður, heldur
haldið niður í uppþornaðan árfarveg
og hann þræddur úr því.
Kennedy lautinant hélt sig nærri
vagninum, þar sem félagi hans lá.
Honum komu illa veikindi hans, og
hvarf hann að sinni frá að hugsa um
að strjúka, en slepti þó ekki allri von
um að fá hentugt færi á því. Hann
gat nú við engan talað nema sjálfan
sig, þó að margt flygi honum í hug;
en alla tíð gaf hann því vandlegar
gætur, er gerðist í kringum hann.
f>ví gekk hacn að vísu, að losna
mundi hann úr greipum Búa; en hitt
vissi hann ekkí, hvernig það mundi
atvikast. Hesturinn var orðinn svo
þreyttur undir hontim, að ekki var að
hugsa til að hleypa bonum, enda
höfðu Búar þeir tveir, er gæta skyldu
hans, jafnglöggar gætur á honum alla
tíð. Hve nær sem hann gægðíst um
öxl sér, varð fyrir honum ískyggilegt
augnatillit hins unga Búa, og ef hann
sýndi sig líklegan til að staldra við
og vita hvað hinn gerði, tók hann
hendi til bvssu sinnar. Hér var þvf
ekkert að gera nema bíða. En til
þess að fá sér einhverja dægrastytting,
reið hann að vagninum, þar sem hinn
sjúki maður lá með óráði, horfði um
stund á, hve þolinmóður trúboðínn
var að hjúkra honurn og mælti:
þér eruð mjög góður maður, prest-
ur minn.
Hann er maður, anzar hann.
Hm, eg hélt að hann væri í yðar
augum ekkert annað en fjandmaður.
E g á enga óvini, svaraði hinn gamli
maður blíðlega; og þó í ávítunarróm.
Slglingr. Hér kom 10. skonn. Ellen
(94, S. P. Hansen) frá Halmstad með timb-
urfarm til Sveins kaupm. Sigfússonar. —
Enn fremur 17. Gjertrud (144, M. Jörgen-
sen) frá Halmstad með timburfarm til
Magn. Blöndahl & Co. Og loks s. d. Salus
(133, L. J. Bager) frá Fredriksstad með
timburfarm til Godthaabs-verzlunar.
Stjórnarvalda-augl. (ágrip).
Skiftafundur í þrotabúi Helga kaupmanns
Helgasonar í Reykjavik verður haldinn á
bæjarþingstofunni miðvikudag 24. þ. m. á
hád. til þess að ráðstafa fasteignum búsins
I/ U |T M Á morgun kl. 11 árd. göngu-
IV. f. Ui llli tl;r fyrir yngri deild (hefst
frá Melsteðshúsi); kl. 8‘/s siðd. fundur fyrir
eldri deild (stud. theol. Ouðm. Einarsson
heldur fyrirlestur).
eru beðnir
að vitja J sa-
foldar í af-
greiðslustofu blaðsins, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum.
Vín og vindlar
bezt og ódýrust í Thomsens magasíni.
smábátar með árum. Saltað kindakjöt,
ágætlega vel verkað. Aktýgi ný og
tómar kjöttunnur brúkaðar og nokkrir
reiðhestar eru til sölu. Menn snúi
sér til
Matthíasar Matthíassonar-
Brúkuð ísl. frí-
merki keypt.
Skildingafrímerki, 5 aura blá, 20 a.
fjólublá, 40 aura græn og 5 aurafrímerki
yfirstimpluð með »þrír . 3’ græn« — er
gefið fleiri krónur fyrir stykkið.
Leitið í gömlum skjölum; það borg-
ar sig.
011 frímerki yfirstimpluð með *I
gildi 02—03« eru keypt háu verði;
sömuleiðis þjónustufrímerki. Venjuleg
5—10 aura frímerki eru keypt, helzt í
hundraða tali.
Frímerki sendist í lokuðu umslagi
með árituðu nafni og heimili seljanda
annaðhvort til L. Popps verzlunar á
Sauðárkrók eða beint til undirritaðs.
Eftir að eg hefi veitt frimerkjunum
móttöku sendi eg strax aodvirði þeirra
til herra kaupm. L. Popps á
Sauðárkrók eða beina leið til seljanda.
M. H. Kromaitn,
Sönderho, Damnark.
VOTTOEÐ.
Eg undirritaður, sem í mörg ár hefi
þjáðst mjög af s j ó s ó 11 og árangurs-
laust leitað ýmsra lækna, get vottað
það, að eg hefi reynt Iv í n a-1 f f s-e 1-
ixír sem ágætt meðal við sjósótt.
Tungu í Fljótshlíð 2. febr. 1897.
Guðjón J ó n s s o n.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest-
um kaupmönnum á íslandi, án toll-
álags á 1,50 (pr. fl.) glasið.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að
standi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn Kontor og
Lager Nyvei 16, Kjöbenhavn.
Chr. Junchers Klædefabrik
Randers
er viðurkend að vera meðal hinna
bezta og áreiðanlegustu ullarverksmiðja
í Danmörku; hún afgreiðir mikið fljót-
ara, og býr til betri og fjölbreyttari
vefnaðarvöru en flestar aðrar verk-
smiðjur.
Aðalumboðsmenn fyrir Vesturland
erum við undirritaðir. Sendið okkur
ull og munum við. útvega yður ódýr
og vönduð fataefni.
Bíldudal 19. marz 1903.
P. J. Thorsteinsson & Co.
THE EDINBURGH ROPERIE
& SAILCLOTH
Co. Ltd. Glasgow
stofnsett 1750,
búa til fiskilínur, hákarla-
línur, kaðla, netagarn, segl-
garn, segldúka, vatusheldar
presenningar o. fl.
Einkaumboðsmenn fyrir ísland og
Færeyjar:
F. Hjorth & Co.
Kjobenhavn. K.
cTioíié íœRifœrié I
Til júníloka verður
ísienzkt srnjör
selt mjög ódýrt, sé minst keypt 10 pd.
í einu, í verzlun
Jóns l>órðarsonar, Rvík.
CRAWFORDS
ljúffenga 15ISCU1TS (smákökur) tilbúiö
af CRAWFORDS £ Son
Edinborg og London
Stofnað 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar
F. Hjorth & Co.
Kjöbenhavn.
Havet,
deta Opdagelse og Erobriug
af
dlrtRur d'aóóarsan.
Indhold : 1. Fra Havdybeta Dyre-
verden. 2. Vort Kendskab til Havets
Vilkaar. 3. Havets Nyttedyr. 4.
Fiskeriets Udvikling. 5. Nutidens
Fiskefangst (Skandinavernes- og Po-
larfolkenes Fangst, andre Folkefærds
Fangst, Kontrolleret Fiskeavl í Havet)
6. Industnen paa Havprodukter. 7.
Fiskerfolket. Udkommer" til 18—20
rigt illustrerede Hefter (24 Sider) á
65 Ore og ledsages af 4 farvetrykte
Bilagsbilleder.
Duglegur skósniiöiir
getur fengið ágæta atvinnu á Norður-
landi, annaðhvort í haust eða nú þeg-
ar. Nánari upplýsingar gefur
Björn Kristjánsson.
Reykvíkingar
og nærsveitamenn, sera pantað hafa
hvalreiiííi
í verzl. Jóns Þórðarsonari Rvík,
eru beðnir að vitja þess hið allra-bráð-
asta.
fyrir börn, kvenmenn og karlmenn.
Sjöl
stór og smá.
Kjólatau.
Enskt vaðmál.
Tvisttau og Sipts.
fást áreiðanlega fallegUSt, bezt og
ódýrust, hjá
cTR. cTRorsfeinssQn.
Fjármark Ingimunds Guðmundssonar
á Bakka á Vatnsleysuströnd er stúfrifað h.
og stýft v.
Ritstjóri Björn Jónsson.
Isafol darprentsmiöja