Ísafold - 18.07.1903, Qupperneq 3
179
»Verdens Gang« segir frá lalsverðum
Kosningabtellum og misfellum í Berlin.
Bréf og blöð höfðu veriö send með póst-
um til 81000 kjósenda, af þeim voru
5000 endursend, og á þau ritað: »Dá-
inn« eða »horfinn« o. s. frv. Af þeim
5 þús. kjósendum, sem þannig voru
dotnir úr sögunni, greiddu þó 1000 at-
kvæði þegar til kosninga kom; sannað-
ist að sumir þeirra höfðu alls eigi verið
í Berlín á kjördegi en aðrir setið í fang-
elsi.
Róstur urða sumstaðar talsverðar og
uppþot eftir kosningarnar, barið á þing-
mannaefnum og tekið á móti lögregl-
unni með grjótkasti, er hún skarst í
leikinn, svo að hún varð að beita vopn-
um.
Líflátsdómur Arthur .Törgensens, móð-
urmorðingjans danska, staðfestur af
hæstarétti.
Afengisnefndin í Danmörku, er mest
varð rimman um í ríkisþinginu, er nú
skipuð 11 mönnum. Hefir þjóðþingið
kosið 3 menn í nefndina, landsþingið 3
og stjórnin 5. Formaður nefndarinnar
er yfirréttarmálaflutningsmaður Zahle.
Innanríkisráðaneytið leggur fyrir nefnd-
ina: að gefa glögga og áreiðanlega skýrslu
um áfengisnautnina í Danmörku, eftir
stéttum og aldri, meðal karla og kvenna,
að leggja á ráð um, hversu stjórn, þjóð-
félag og einstakir menn fái komið í veg
fyrir ofnautn áfengra drykkja, að skýra
áfengismálið vísindalega og lagalega og
benda á allar þær leiðir, er legið geti
til þess, að leiða bindindismálið til far-
sællegra lykta, með aðstoð löggjafar-
valdsins eða án hennar, á hvern þann
hátt, er mest og bezt áhrif hafi á þjóð-
fólagið.
Frá alþing'i.
Dinginaniiafrunivörp.
31. Um aðra skipun á biskupsem-
bættinu — um að sameina það við
forstöðumannBembættið við prestaskól-
ann, er núverandi biskup lætur af em-
bætti. Árslaun 5000 kr. og skrifstofu-
fé 500. Flm. Lárus H. Bjarn., Magn-
ús Andrésson.
32. Um ráðstafanir til útrýmingar
fjárkláðanum — um að veita lands-
stjórninni heimild til að gera ráðstaf-
anir til algerðrar útrýmingar fjárkláð-
anum og ráða til þess einn fram-
kvæmdarstjóra fyrir land alt. Nefnd-
in í kláðamálinu.
33. Um kosningu fjögurra nýrra
þingmanna — um að þeir 4 þjóð-
kjörnir þingmenn, er við bætast, er
stjórnarBkrárbreytingin kemst á, skuli
kosnir sinn í hverju amti. Kosningar-
laganefndin.
34. Um kennaraskóla í Reykjavík
— um að verja alt að 55,000 kr. úr
landssjóði til að setja á stofn kenn-
araskóla í Rvík með þremur ársdeild-
um, en kenslunni jafnframt hagað svo,
að farkennarar geti lokið sér af á ein-
um vetri. Kennarar skulu vera þrfr
við skólann: forBtöðumaður með 2600
kr. árslaunum, auk ókeypis bústaðar,
og 2 undirkennarar með 2000 og 1600
kr. árslaunum. Mentamálanefndin.
35. Um ófriðun á sel — um að
selur sé réttdræpur í ám, vötnum og
lónum, ósum og fyrir ósamynnum, þar
sem lax gengur, þó eigi í friðuðum
selalátrum nema eftir úrskurði gerðar-
dóms, er sýslumaður kveður til. Flm.
Hannes forst., Ólafur Ól.
36. Um túngirðingar — um að
landsstjórnin annist um kaup á gadda-
vír og járnteinum, er nægi til að girða
tún allra jarðeigenda og ábúenda á
íslandi, ér þess óska, með því skilyrði,
að verkinu sé lokið innan ársloka
1908. Á landssjóðsjörðum og kirkju-
jörðum skal girðingarefnið kostað að
öllu leyti af landssjóði, en á eignum
einstakra manna og stofnana að ‘!/s
hlutum. Ábúandi greiðir árlega, í 30
ár, 4 kr. af hundraði af þeim kostnaði,
er landssjóður leggur fram til girðing-
anna. Flm. Guðjón Guðl., Guttormur
Vigf., Jón Jak.
37. Um heimild til lántöku handa
landssjóði, — að landsstjórninni veit-
ist heimild til að taka alt að 500,000
kr. lán handa landssjóði til að kaupa
fyrir efni í túngirðingar á íslandi.
Sömu flm.
Þingnefndlr.
Bæjarstjórn í Hafnarfirði: Júl.
Havst., Kristján Jónes., ValtýrGuðm.
Skifting Kjósar- og Gullbr.sýslu:
Björn Kristj., Hannes þorst., Jón
Magnúss.
Mentamál: Björn Bjarn., Hannes
Hafst., Hermann Jónass., Stefán Stef-
ánss., þórh. Bjarn.
Áfengisverzlun: Hannes þorst.,
Hermann Jónass., Lárus Bjarn., Ól-
afur Ól., J>órh. Bjarnarson.
Breyting á sveitarstjórnarlögum:
Björn Kristj., Herm. Jónass., Jóhannes
Ólafss., Jón Magn., Pétur Jónsson.
Samgöngumál (ed.), Guðjón Guðl.,
Jón Jak., Sigurður JenBS.
Fiskiveiðamál: Björn Kristj., Jó-
hannes Ólafss., Ólafur Thorl., Skúli
Thor., Tryggvi Gunn.
þjóðjarðasala: Árni Jónss., Björn
Kristj., Hannes Hafst., Ólafur Briem,
Ólafur Ólafss.
Vörumerki: Jón Jak., Júl. Havst.,
Kristján Jónsson.
Fólksinnflutningar: Guttormur Vigf.,
Júl. Havsteen, Valtýr Guðm.
Hagfræðisskýrslur: Hannes þorst.,
Jóh. Jóh., Lárus Bj., Ólafur Briem,
Pétur Jónsson.
Stjórnarskrárnefnd f efri deild: Ei-
ríkur Briem, Guðjón Guðl., Guttormur
Vigf., Kristján Jónss., Valtýr Guðm.
jE»iiigsályktunartillögur.
11. Um milliþinganefnd í kirkju-
málum. Flm. Hallgr. Sveinss., Sig-
urður Jenss., Kristj. Jónsson.
12. Um lestrarbók handa alþýðu-
skóium — um að landsstjórnin skipi
3 manna nefnd til þess að annast um
samningu lestrarbókar. Mentamála-
nefndin.
Lög frá alþingi.
1. Um löggilding verzlunarstaðar á
Óspakseyri við Bitrufjörð í Stranda-
sýslu.
2. Um breytingar á gildandi á-
kvæðum um almennar auglýsingar og
dómsmálaauglýsingar.
Út af kosningakærunni
úr Suður-Múlasýslu var kosin nefnd í
sameinuðu þingi 15. þ. m. Kosningu
hlutu: Guðl. Guðm., Hannes Hafstein
og Júl. Havsteen,; en auk þeirra eru
forsetar beggja þingdeildanna sjálf-
kjörnir í nefndina samkvæmt þing-
sköpunum.
Fallið frumvarp.
5. Um bæjarstjórn í Hafnarfirði
(ed.).
Óveitt prestakall
Gaulverjabær (Gaulverjabæjar
og Villingaholtssóknir) í Árnes pró-
fastsdæmi, metið kr. 1335, 46. Prests-
ekkja nýtur eftirlauna af brauðinu með
kr, 135,46. Á því hvílir embættislán
til íbúðarhúsbyggingar, upprunalega að
upphæð 3200 kr., tekið 1892, sem á-
vaxtast og endurborgast með 6% ár-
lega á 28 árum (stj. tíð. 1891. B. bls.
157). — Veitist frá fardögum 1903.
Auglýst 16. júlí. Umsóknarfrestur til
30. ágúst.
Sigfús stúdent. Einarsson
er hingað kominn f þetta sinn með-
al annars í þeim erindum, að halda
hér sam8öng; á hánn fram að fara
næsta þriðjudagskvöld í dómkirkjunni,
og verður að líkindum einhver hinn
tilkomumesti, er hér hefir haldinn
verið. Syngja þar meðal annars 50
manns í einu, bæði karlar og konur.
Sigfús hefir lagt talsverða stund á
söng og hljóðfæraslátt, og hefir um
nokkur ár leiðbeint og stjórnað söng-
félagi ísl. stúdenta í Kaupmannahöfn
og hlotið almenningslof fyrir; sjálfur
er hann söngmaður góður og leikur á
piano og harmonium; hann heflr og
fengist nokkuð við lagsmíði; eru ný-
lega komin út eftir hann 12 sönglög
fyrir fjórar karlmannaraddir.
Á samsöngnum gefst mönnum kost-
ur á að heyra Sigfús syngja og sömu-
leiðis nokkur Iög eftir hann, þar á
meðal lofsöngslag, sungið af körlum
og konum, fagurt lag og tilkomumikið,
að sögn þeirra, er heyrt hafa.
Bæjarstjórn Reykjavíkur sam-
þykti á fundi 16. þ. m. að útvísa Knud
Zimsen verkfræðingi o. fl, um 13 dagslátt-
nr af landi til grjóttökn til 30 ára; en þá
fellnr landið aftur til bæjarins. Leggist
grjóttökufyrirtæki þetta niður áður en 30
ár eru liðin, legst landið og til bæjarins.
Bæjarstjórn er heimilt að mæla út til bygg-
inga, hvenær sem um er beðið, 45 álna
breiða ræmu af landinu meðfram Lauga-
vegi.
Bæjarstjórnin vildi ekki ábyrgjast lán,
er ábúandinn á Bústöðum hyggst að taka
til húsabóta, en samþykti að ábyrgjast
honum, þegar hann fer frá jörðinni, kaup
á 8teinhúsi, er hann ætlar nú að byggja,
alt að 6X12 áln. á stærð, þó svo, að frá
kaupverðinu dragist andvirði niðnrfeldra
jarðarhúsa, eins og þau verða nú metin.
Visað var til 1 erfðafestunefndar erindi
frá Sigurði Briem póstmeistara um merkja-
girðingu.
Bæjarstjórn vildi ekki fyrst um sinn út-
mæla til byggingar óútvisaðri lóðarræmu
milli Laugavegs og Hverfisgötn.
Samþykt var að kaupa 28 ferálnir af
lóð Sveins Sveinssonar trésmiðs fyrir 70
aura alinina,
Til veganefndar var visað erindi frá Sig-
nrði Jónssyni um afhlaupsrennu og erindi
frá Jóni Sveinssyni um veg frá Vesturgötu
niður að Nýlendugötu.
Formaður bæjarstjórnarinnar skýrði frá,
að nál. 300 kr. af a) þýðustyrktarsjóðsfé
yrði nú útbýtt í ár, og mundi það verða
auglýst á venjulegan bátt.
Bæjarstjórnin feldi hurt þessa árs útsvar
(14 kr.) Guðrúnar Finnsdóttur, með því að
hún hefir mist 3 sonu sina í sjóinn siðast-
liðinn vetur af fiskiskipinu »Orient«.
Póstskipið Laura, (Aasberg) kom
frá útlöndum 16. þ. m. og með henni
fjöldi farþega: Jón Jensson yfirdómari,
Fr. Fischer stórkaupmaður, cand. jur. Egg-
ert Claessen, kapt. Christiansen umboðs-
maður sameinaða gufuskipafélagsins, frck-
en Þuríður Jóhannsdóttir (dómkirkjuprests),
W. J. Richards ofursti í Hjálpræðishern-
um o. m. fl.
Gufuskipið Krystal (237, S. Gun-
ulfsen) kom i fyrra dag frá Burntisland
með kolafarm til verzl. W. Fischers.
Ágóðinn
af samsöngnum í dómkirkjunni næst-
komandi þriðjudag, á að renna í sér-
stakan sjóð, er síðar verði varið til að
koma á fót sérstökum söngflokk við
dómkirkjuna. Er því vonandi að
Rvíkingar hlynni svo vel að slíku fyr-
irtæki, að enginn miði verði óseldur
á mánudagskvöld og endurtaka verði
samsönginn síðar.
f*iii gmál afu n d arger ð
úr
Austur-Skaftafellssýslu.
Hinn 6. júní 1903 var þingmálafund-
ur haldinn að Flatey á Mýrum í Aust-
ur-Skaftafellssýslu fyrir kjörfund. Fund-
arstjóri var kosinn Ari Hálfdánarson
hreppstjóri á Fagurhólsmýri, og þor-
steinn prestur Benediktsson skrifari.
þ>68si mál voru tekin til umræðu, og
samþyktar þær tillögur, sem verða
taldar hér. þingmannaefnin voru
þeim öllum samþykk.
1. Stjórnarskrármálið. Fund-
urinn vill að stjórnarskrárfrumvarpið,
sem samþykt var á síðasta alþingi,
verði samþykt aftur alveg óbreytt.
2. Móntamál. Fundurinn vill
að þingið gefi alvarlegau gaum að al-
þýðumentamálinu og reyni að finna
heppileg ráð til að hrinda því í heppi-
legt horf.
3. Landbúnaðarmál. Fund-
urinn vill, að þingið geri sér sem
mest far um að styðja landbúnaðinn
með fjárveitingum. Létti beinum
gjöldum, en auki tolla til að standast
kostnað við vaxandi framkvæmdir.
4. Bankamálið. Fundurinnvill,
að því sem bankamálið snertir, að lög
þau, Bem samþykt voru á síðasta
þingi, haldist óbreytt.
5. Trollaramálið. Fundurinn
mótmælir því, að landhelgissvæðið sé
leigt botnvörpungum nema málið sé
áður rætt og samþykt í hverjum hreppi
og af sýslubúum í heild sinni.
6. Ábyrgðarmál. Fundurinn
telur nauðsynlegt að ráðgjafaábyrgð-
arlög verði samin og samþykt þegar á
næsta alþingi, og leggur yfirleitt á-
herzlu á að alþingi verði trygð hæfi-
leg áhrif á stjórnina.
7. Hin nýja stjórn og
kostnaður við hana. Fundur-
inn vill, að stjórnarfyrirkomulagið
verði sem óbreyttast, hagfeldast og
kostnaðarminst og að hin nýja stjórn
verði skipuð einlægum framfaramönn-
um. Fundurinn var yfirleitt móti öll-
um eftirlaunum, einnig ráðgjafaeftir-
launum.
8. Kosningarlög. Fundurinn
vill, að leynilegar kosningar séu sem
fyrst í lög leiddar við alþingiskosning-
ar.
9. Fundurinn er á móti því að mann-
talsþing séu afnumin.
10. Fundurinn vill að yfirsetukonur
séu launaðar af landssjóði.
Fleiri mál komu eigi til umræðu.
Fundi slitið.
Flatey 6. júní 1903.
Þorsteinn Benediktsson. Ari Hálfdánarson.
--------------- !■ ■ —
Veðurathugamr
I Reykjavik, eftir aðjonkt Björn Jensson.
1903 júlí Loftvog millim. Hiti (C.) í>- <rr- <rt- C* p cr 8 <=* Sk/magn Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ldll.8 761,2 9,7 WNW i 10 ubt. 7,4
2 762,1 10,6 0 10
9 761,5 9,0 0 9
Sd.12.8 761,4 9,7 NNW í 6 ubt. 7,3
2 762,1 12,2 WNW 2 4
9 760,8 12,5 NW 1 2
Mdl3.8 761,1 11,8 E 1 1 6,3
2 761,6 13,6 W 1 2
9 760,1 758,5 11,5 WNW 1 2
Þd.14.8 10,1 0 3 6,3
2 759,4 12,6 WNW 1 4
9 758,4 10,5 WNW 1 4
Mdl5.8 760,3 9,9 0 3 7,1
2 760,8 12,7 w 1 1
9 760,2 11,7 NW 1 1
Fd 16.8 729,2 8,9 0 1 7,5
2 759,6 12,8 WNW 1 1
9 758,9 11,8 WNW 1 2
Fsdl78 759,8 12,5 WNW 1 7 7,6
2 760,7 WNW 1 4
9 759,9 11J w 1 6