Ísafold - 01.08.1903, Page 2
194
á skólanum, og áhugasamir bændur,
gati fengið að kynna sér nýjungar i
búnaði og framfarir hjá bændum bæði
innanlands og utan.
í sambandi við bóklegu fræðsluna
vill Hólaskóli útvega nemendum sín-
um verklega kenslu í garðyrkju, gras-
fræsáning, plægingu, skógrækt, garð-
hleðslu, vörzluskurðagerð, hallamæling,
framræslu, veitugjörð, meðferð áburð-
ar og eftir atvikum skepnuhirðingu*.
Bændaskólinn, sem hér er drepið á,
stendur yfir að eins hálfan mánuð í
einu, tvisvar á ári, síðari hlutann af
nóvember og marz. f>á eru haldnir
fyrirlestrar um ýms efni búnaði við-
komandi.
Síðastliðinn vetur voru 12 nemend-
ur við búnaðarskólann, 32 við bænda-
skólann og auk þess fekk 21 nemandi
tilsögn við mjaltir eftir aðferð Hege-
lunds dýralæknis.
Nú hafa sótt um skólann 42 nýir
nemendur, en ekki hefir verið hægt að
taka við fleiri en 30 af þeim. Auk
þess hafa ýmsir bændur og bændaefni
sótt um bændaskólann.
Svo er að sjá sem skólinn eigi all-
erfitt uppdráttar að sumu leyti, þótt
ekki verði yfir því kvartað, að hann
sé illa sóttur. í skólaskýrslunni er
komist þannig að orði um framtíðar-
hag hans:
•Framtíðarhagur skólans er ekkert
glæsilegur að sumu leyti, af því að
þjóðin er eigi enn farin að skilja nauð-
syn búnaðarskólanna. Menn hafa
skilið, að skósmiðurinn, trésmiðurinn,
bókbindarinn o. s. frv. þurfa sérþekk-
ingu, en þó er það vitanlegt að störf
bóndans eru miklu margbrotnari.
Staða bóndans er að verða mjög vanda-
söm staða. Danir hafa skilið tákn
tímanna fyrir landbúnaðinn og þess
vegna stendur landbúnaður Dana með
blóma. íslendingar hafa ekki skilið
að tímarnir eru að breytast þannig,
að landbúnaðurinn þarf að byggja á
þekkingunni og að hann stendur og
fellur með henni.
Búnaðarskólarnir nyrzt í Noregi
og í Svíþjóð fá miklu meira fé en far-
ið er fram á að veita til Hólaskóla.
Útgjöldin til hans eru spöruð svo sem
fraraast má verða; sem dæmi má nefna
það, að laun skólastjóranna í Noregi
eru nálega allsstaðar hærri en fjárhæð
sú, sem gengur til að launa öllum
kennurunum við skólann á Hólum.
Bœðumenn á Þjóðhátíðinni
á morgun eru tilnefndir þeir Tryggvi
bankastjóri Gunnarsson (minni kon-
ungs), lektor þórhallur Bjarnarson
(ísland), Indriði Einarsson revisor (al-
þing), Guðmundur Finnbogason mag.
(Reykjavík) og Halldór Jónsson banka-
gjaldkeri (íslendingar erlendis). Bæj-
arfógetinn setur hátíðina.
Pó stgufuskipið Vesta lagði af stað
vestur um land og norður, áleiðis til út-
landa, 30 f. m. Amtráðsmenn Vesturamts-
ins fóru með henni heimleiðis og auk þess
nokkrir aðrir farþegar.
Skipakoma »Auy« 69,80 Thorkildsen.
kom 21. þ. m. frá Mandal með timhur til
Bj. kaupm. Guðmundssonar.
»Hilma«173,58 (I. L. Jonssen kom 22.
frá Halmstud með timhur til Magn. Blön-
dal & Co.
»Union« 127 M. H. Mortensen í gær
með kol og steinoliu til Thomsens maga-
sín.
Gjöf Jóns Sigurðssonar
Engin verðlaunarit hafa boristverð-
launanefnd sjóðsins á þessu fjárhags-
tímabili, og með því að nefndinni
þótti eigi ástæða til að nota sér þá
heimild, að veita verðlaun fyrir lítgerð-
ir, er komið hafa út, þótt höfundur-
inn hafi eigi ætlast til þess, þá geym-
ist féð til næsta tímabils.
Pljótshlíð.
Blika mjúk yfir víkum vakir,
vindur hægur strýkur um tinda;
ljóssins heita löðnr fossar
ljúft um mjöll á Eyjafjöllum.
Hátt úr sjó, sem heillavættir,
höfuð teygja Vestmanneyjar.
Hrýtur sær fyrir sandi heitum —
sofandi ljón með földum klónum.
Eyjafjöll undir fargi mjalla,
ferlega mynd, þar hvíta tinda
varðar, eins og voldug girðing,
virki traust af hömrum myrkum.
Háir fossar hlægja og flissa,
hefja söng í klettagöngum;
hoppa fram eins og kátir kappar
kynjaefldir i silfurbrynjum.
Eyjafjöll í eldlegri gylling,
undramynd, þar saman vindur
jökull bjartur, myndarmikill,
mjúkan dúk um hláa hnúka.
Efra breiða fannir fríðar
feld sinn sléttan milli kletta;
hrukkast fögur, fannhvít skikkja
fram á sand hjá Goðalandi.
Eyjafjöll, þar sem undir bellum
eldur hrýzt, sá er fjallið heldur
hlekkjuðum undir hömrum þykkum. —
Heljar-farg yfir bundnum vargi.
Sé eg í anda aflið hrinda
af sér þungum fannabungum;
sé með hleikum bjarma kvika
blikandi sverð yfir fjallsins herðum.
Blika mjúk yfir vikum vakir,
varpar sér yfir kletta skarpa
móða þið, sem mildnr leiðir
morgunandi’ um slétta sanda.
Glitrar straumur á grundu flatri,
greiðir úr sér á aurum breiðum;
liðar sig eins og nagandi naður
niður með hlíð, og eyðir og ryður.
Mörkin, girt hinu mikla virki,
móðurblíðan faðm sinn býður,
skína dyr, en skugga bera
skógarfell undir jökulsvelli.
Þýtur hjörð yfir laut og leiti,
létt á fæti’, á styggum spretti.
Varða bratta virkisgirðing
vötn með kátum óhemjulátum.
Litið hærra, gefið að gætur,
glitrar mjöll á Tindafjöllum;
hátt við lopt yfir heiðum bröttum
hyrna hvit móti skýjum spyrnir.
Likast þessu raunareykur
rennur fram hjá hetju enni,
blik og yfirbragð þegar vakir
bjart og frjálst yfir gcfgu hjarta.
Litið á hlíð — um hvamma og kletta
kvaka þrestir og vængjum blaka,
yndissléttar gróa grundir,
gilin duna, lækir bruna.
Býlin frið i fjallaskjóli
fólki góða hressing bjóða;
sizt er kyn þótt sjáist hér gestir;
sagt er og víða: Fögur er hlíðin!
Blika mjúk yfir vikum vakir,
varpar sér yfir kletta skarpa
móða þið, sem mildur leiðir
morgunandi um slétta sandá.
Háir fossar hlægja og flissa,
hefja söng i klettagöngum;
hoppa fram eins og kátir kappar
kynjaefldir i silfurbrynjum.
Hoppaðu, foss, í klettakreppu,
kannske þú spáir eða sjáir
nýja öld af hafi halda
heillaríka og fornöld líka.
Hátt úr sjó sem heillavættir
höfuð teygja Vestmanneyjar,
skín ei glóð á skörðóttum brúnum?
Skoðið til, það er ársældar roðinnl
Njálusveit, nú er sælt að líta
sumarbrá yfir fellin háu
yngjandi vor á vængjum bera,
vekjandi tíð með rausn og prýði.
Gullöld ný og gömul falla
gamalskyldar í faðmlög saman,
græða blóm yfir liðinna leiðum,
leysa bundið og fallið reisa.
Hoppaðu foss með kæti og kappi,
kemur sú tið og land hér nemnr,
að þú vinnur öllum grönnum
auð og frægð með gulli og brauði.
Plægðu, fljót, og farveg sveigðu
fram um sléttur milli kletta,
bráðum land, sem bylgjan eyðir,
breytast mun í engjar feitar.
Glymur stál í gröfum hulið,
geirinn spádóm kveða heyrist;
himinljómi helgur nemur
heiðarbrún yfir Gunnars leiði.
Aldna bygð, sem skrift á skildi
skina sé eg framtið þína;
speki Njáls mun verða þér vakin,
vaia mun þor upp af hetjusporum.
Eyjafjöll í eldlegri gylling,
undramynd, þar saman vindur
jökull, bjartur, myndarmikill,
mjúkan dúk um bláa hnúka.
Sjáið þið eigi suður á ægi,
svipaða drekahöfði á skipi,
öndvegissúlu áfram hrindast
anda þess, er hyggja skal landið?
G. M.
Fjárlaganefndarálit
neðri deildar.
Fjárlaganefndin hefir nýlega lokið
við álit sitt.
Við tekjukaflann stingur hún upp
á þeim breytingum, að húsaskattur
sé hækkaður í 8000 kr. á ári (úr
7000), tekjuskattur í 16000 kr. (úr 14%)
aukatekjur í 34000 kr. (úr 32), vita-
gjald í 10,000 kr. (úr kaffi- og
sykurtollur 240,000 kr. (úr 220 þús.),
tekjur af póstferðum í 40,000 (úr 38
þús.), og óvissar tekjur í 5000 kr.
(úr 2500). Hækkunin er miðuð við
það, sem þessar tekjur hafa numið
síðustu ár.
Breytingarnar eru flestar við út-
gjaldakaflann, svo sem venja er til.
Vegabótafénu vill nefndin iáta verja
þannig, að til flutningabrautarinnar á
Fagradal sé kostað 30,000 kr., til
flutningabrautar í Borgarfirði 15,000 kr.,
og til viðhalds 12,000 kr. fyrra árið
og 7000 hið síðara. Fjárveitingu
stjórnarinnar til flutningabrauta f
Húnavatnssýslu og Skagafirði hefir hún
felt burt.
f>jóðvegafénu hefir nefndin skift
þannig milli landsfjórðunganna, að
Norðuramtið fái 30 þús. kr., Vestur-
amtið 20, Austuramtið 12 og Suður-
amtið 8 þúsund kr.
Til sýsluvegarins frá Hafnarfirði að
Keflavík eru ætlaðar 3000 kr. hvort
árið, gegn jafnmiklu tillagi annars-
staðar frá, og til brúargerðar á Jökulsá
í Öxarfirði 50 þús. kr., samkvæmt
lögum frá síðasta þingi.
Nefndin vill veita alt að 14,200 kr.
til gufubátsferða í Sunnleudingafjórð-
ungi og á Faxaflóa, með því skilyrði,
að haldiö sé uppi ferðum alt árið milli
Reykjavíkur og Borgarness, og ætlast
þá til, að Iandpóstarnir norður og
vestur taki sig upp í Borgarnesi.
Til vitabyggingar á Skipaskaga legg-
ur nefndin til að veittar séu alt að
3000 kr. og 300 kr. síðara árið til
viðhalds.
|>á vill nefndin verja 15 þús. kr. til
að kaupa Reykjavíkurspítala með lóð
og 1800 kr. til viðgjörða á húsinu og
viðhalds. Er ætlast til, að húsiS sé
notað handa læknaskólanum og fyrir
efnarannsóknastofu, og sparast þá þær
7000 kr. er stjórnin ætlaðist til, að
varið væri til að byggja hús til efna-
rannsókna. Auk þess leggur nefndin
til, að laun forstöðumanns efnarann-
sóknastofunnar séu ákveðin 2000 kr.,
en ekki 3000.
Styrknum til kvennaskólanna norð-
lenzku vill nefndin haga þannig, að
þeir fái 1500 kr. á ári hvor, og auk
þess 3000 kr. báðir, sem skiftist znilli
þeirra eftir nemendafjölda (35 kr..
fyrir hvern).
Búnaðarskólanum á Hólum er ætlað-
ar 1000 kr. styrkauki fyrra árið og 500
kr. hvort árið til verklegrar kenslu.
Eiðaskólinn á og að fá 1000 kr. við-
bót fyrra árið til húsabygginga. Og
loks leggur nefndin til að Ólafsdals-
skóla sé veittur 3500 kr. Btyrkur fyrra
árið og 2500 kr. hið síðara.
Til útrýmingar fjárkláðanum eru
ætlaðar 78,500 kr. fyrra árið og 16,000
hið síðara, samkvæmt áætlun kláða-
málsnefndarinnar.
þessar fjárveitingar aðrar vill nefnd-
in hækka, úr því sem stendur í frumv.
stjórnarinnar:
Til tímakenslu í latínuskólanum um
150 kr. (1200 kr. alls), heirailisiðnaðar
í kvennaskóla Reykjavíkur 200 kr.
(500 alls), Stúdentafélagið 200 krón.
(500), til bókakaupa handa landsbóka-
safninu 1000 kr. (4500), til að semja
spjaldskrár við safnið 400 kr. (1200),.
Náttúrugripasafnið 200 kr. (1000),
stórstúka Goodtemplara 200 kr. (1000),
Leikfélag Reykjavíkur 300 kr. (600),
til byggingarefnarannsókna 1000 kr.
fyrra árið (4000), verðlaun fyrir útflutt
smjör 3000 kr. (5000), Iðnaðarmanna-
félagið í Reykjavík til að styrkja iðn-
aðarmenn til náms erlendis 600 kr.
(1200).
Eftir ósk landshöfðingja leggur
nefndin til, að ált að 1200 kr. séu
ætlaðar fyrra árið til húsaleigukostn-
aðar handa honum, frá því hann verður
að flytja burt úr bústað sínum og
þangað til landshöfðingjaembættið
verður algerlega lagc niður, og hækka
þá útgjöldin til hinnar æðstu stjórnar
innanlands um þessa fjárhæð.
þessar fjárveitingar vill nefndin
nema burt úr fjárlögunum (frv.stjórn.):
til kennara í organslætti og sönglist
og organleikara við dómkirkjuna í
Rvík 1000 kr.; til Magnúsar organ-
ista Einarssonar á Akureyri 300 kr,-
til unglingaskóla í Dalasýslu 1000 kr.;
skáldlaun síra Valdimars Briem’s 80G
kr.; styrkinn til Sögufélagsins 800
kr.; Sigfúsar Blöndal 500 kr., Jósa-
fats Jónassonar 600 kr. og styrk til
skógræktarnáms 600 kr..
Auk þess leggur nefndin til, að
lækkaðir sóu nokknr útgjaldaliðir, svo
sem laun starfsmanna við holdsveikra-
spítalann um 500 kr.; laun landsbóka-
varðar úr 2000 í 1700 kr. og lands-
skjalavarðar úr 1800 í 1400 kr.; til
skógræktartilrauna úr 8650 kr. og
7350 í 6000 og 5000 og til yfirmats-
manna á gæðum fisksfarma í Reykja-
vík og á ísafirði um 400 kr.
Að lokum er lagt til að veitt verði
þessi lán úr viðlagasjóði:
Til stofnunar mjólkurbúum 30,000
kr. gegn ábyrgð sveitarfélaga, sýslu-
félaga eða amtsfélaga; af lánunum
greiðist 3% og eru þau afborgunar-
laus fyrstu 5 árin, en greiðast síðau
á 15 árum;
Torfa skólastjóra Bjarnasyni í ÓI-
afsdal 18,000 kr. gegn jarðaveði og
með 4% vöxtum, afborgunarlaust með-
an hann heldur uppi skólanum en
afturkræft með ársfyrirvara ef hann
hættir;
Jóhannesi snikkara Reykdal til þess
að koma á fót trésmíðaverksmiðju í
Hafnarfirði 8000 kr. með 4% vöxtum,
afborgunarlaust í 3 ár, eu endurborgist
síðan á 12 árum;
Verksmiðjufélaginu á Akureyri, til
þess að koma á fót klæðaverksmiðju,
50,000 kr. með 4% vöxtum, afborgun-
arlaust 5 ár og endurborgist á 15
árum;
Ólafi vélasmið Hjaltested, til að
koma upp vélasmiðju í Reykjavík,
10,000 kr., með 4°/0 vöxtum og af-
borgist á 10 árum;
J. P. T. Bryde, P. J. Thorsteins-