Ísafold - 08.08.1903, Síða 2
202
Enn helzt uppreistarófriður í Vene*
zuela og er getið þar um bardaga ný-
lega, þar sem fallið hafi um 1000
manna af uppreistarliðinu.
Eldur uppi í Vesuvíus, heldur í
meira lagi; hraunfióðið komið langt á
leið niður að Pompeji.
Skógrækt á íslandi.
(Útdráttur úr fyrirlestri prófessor
Prytz, er hann hélt í leikhúsi W. Ó.
Breiðfjörðs 30. f. m. og 1. þ. m.)
Sá maður, sem á hugmyndina um
skógrækt og skóggræðslu á íslandi er
Carl Byder, kapteinn í herflota Dana.
Hann sá það af mannkærleika sínum
og næma skilningi á náttúrunni, að
hér var þörf fyrir og að úr henni
mátti bæta. Hans natn hlýtur því að
verða óaðgreinanlega sameinað skóg-
ræktarmáfefni íslands. Annað nafn
verður og samtvinnað við upphaf skóg-
ræktarmáls íslands og er það nafn
Flensborgs skógfræðiskandidats; hann
varð fyrstur til þess að koma hug-
mynd kapteins Byders í framkvæmd,
Og er það eigi all-lítil hepni fyrir mál-
efnið.
Skógræktarmálið er framtíðarmál;
það byggist á reynBlu fortíðarinnar,
sem vér verðum að læra af, jafnframt
og vér vörumst víti þeirra tíðar. En
aðallega er þó skógræktarmálið fram-
tiðarmál. Skógræktarmaðurinn vinnur
ekki fyrir einstaklinginn eða sinn tíma
að eins; hann vinnur fyrir þjóðfélagið
í heild sinni og ómælda framtíð.
Sjóndeildarhringur hans á engin tak-
mörk. Hann sáir, eftirkomendurnir
uppskera.
Sú þjóð, sem tekur sér fyrir hend-
ur að rækta hjá sér skóg, verður að
hafa náð vissu þroska og menning-
arstigi; hún verður að vera töluvert
frjáls og eiga sín á meðal menn, sem
með hlýjum huga bera allsherjargagn
þjóðfélagsins fyrir brjósti.
Enn er eitt skilyrði fyrir þróun
skógræktarmálefnis í þjóðfélagi, en
það er sérþekking; án hennar kemst
skógræktarmálefni ekkert áleiðis. Skóg-
ræktarmaður með nægri sérþekkingu á
að geta lesið sögu skógarins út úr þeirn
skógum, sem nú eru til, út úr hinum
ýmsu jarðlögum, eða jafnvel út úr
berum steinunum. Hann á að hafa
ímyndunargáfu til að sjá inn í fram-
tíðina, hvernig frækornin smáu, er
hann leggur niður í jörðina, munu að
mörgum árum liðnum verða að há-
vöxnum skógi; en eigi ímyndunin ekki
að leiða í villu, þá verður hún að
vera grundvölluð á náttúrufræðislegri
mentun; einungis ef svo er, getur
skóggræðslumaðurinn skilið þau kjör,
sem nýgræðingar hans eiga við að lifa;
þá einungis getur hann þannig sáð og
plantað, að framtíðarsjón hans verði
veruleg í framkvæmd.
(f>á lýsti ræðumaður gangi skógrækt-
armálsins erlendis, á Frakklandi
f>ýzkalandi og Bússlandi, í Danmörku,
Svíþjóð og Noregi. f>ví næst hélt
hann áfram).
Á nú ísland til skógmál? og hvað
er svo þetta skógmál? Eg hefi verið
að berjast við þá vafaspurningu í nær-
felt 4 ár. — Áður en eg byrjaði ferð
mína (frá Seyðisf. norðanlands til
Bvíkur) var það skoðun mín, að ís-
land þarfnaðist skóga til eldiviðar, svo
að ekki þyrfti að brenna áburði, og
enn er það ætlun mín að svo sé. Að
vísu er svo að sjá, sem íslendiugar
víða hvar hafi nægilegan áburð. Eg
var sjónarvottur aðþví á Sauðárkróki,
að þar aka menn kúamykjunni í sjó-
inn, menn þurfa hennar ekki með.
Ennfremur sá eg hjá mörgum bæjum
stóra áburðarhauga, margra ára gamla.
Ennfremur hugði eg, og hygg enn,
að trén gætu verið til gleði og á-
nægju kringum bæina og til skjóls
garðyrkju kringum garðana.
f>að eru fornkveöin orð, að ísland
hafi á landnámstímum verið »viði vax-
ið frá fjöru til fjalls«, og það hygg eg
rétthermt, þótt auðvitað hafi það ekki
átt bókstaðega allstaðar við. En þar í
hefir falist og felst enn óyggjandi
sönnun fyrir því, að loftslag og jarð-
vegur leyfa það, að skógur vaxi hér á
landi, enda er og skógur hér til enn
og það sumstaðar allmikill. Við Hall-
ormstað og í Fnjóskadal höfum við
mælt tré, sem eru 31 fet á hæð og
höfðu þau vaxið 3 fet á seinustu 4
árum, og þar voru svæði þétt skipuð
ungum skógi, sem óx vel. En að öllu
samtöldu er að eins lítið eitt orðið
eftir af skógi hér. Hvað er þá orðið
um hitt?
Margir munu ætla að kindurnar
hafi etið upp skógana, en svo er eigi.
Að vísu eru kindur engir skógarvinir;
þær bíta nýgræðinginn og naga topp-
ana, sem standa upp úr snjónum, þær
tefja fyrir vexti plantnanna og geta
skemt skóginn en þær uppræta hann
ekki. f>að eru mennirnir, sem hafa
höggvið skógana og eytt þeim meira
en góðu hófi gegndi. Má sjá þetta á
hrísskógum þeim, sem enn eru til; því
fjær sem færist bænum, því hærri verð-
ur runnurinn; menn höggva það sem
næst þeim er; en sé lengra farið er
höggvið hið stærsta; menn vilja ekki
fara langt eftir smáhrísi, ef stærra er
í boði. —
Eyðing skógarins er að vísu mikið
mein og stórtjón fyrir landið, en þó er
afléiðing sú, er henni fylgir, miklu verri.
Jarðvegurinn hér á landi er gljúpur
og moldin þur. f>egar nú skjólið
vantar og vindurinn nær sér niðri,
þá blæs hann alt jarðlagið burtu en
eftir verða ber holt og auðir melar.
f>að er ógurlegt tjón, sem ísland hef-
ir beðið í framleiðslumagni sínu við
það, að vatn og vindur hafa lagst á
eitt að eyða hinni gróðurberandi jörð.
Eg hefi farið heilar dagleiðir um eyði-
merkur þær, sem orðið hafa til, er
skógurinn hvarf. Yfirtak þessarar
eyðileggingar má sjá við Grímsstaði á
Fjöllum. f>ann bæ hefir orðið að flytja
Sökum jarðfoks. Fyrir 30 árum voru
umhverfis hann gróðursælir bithagar
og mýrar; nú mæna bæjarrústirnar
gömlu, eins og klettar, 10—15 fet yfir
sandauðnÍDa. Og þetta á sér ekki að
eins stað þarna á FjöIIunum. Vindurinn
leitar uppi moldina hvar sem hana er
að finna og feykir henni burtu.
Að minni skoðun liggja hér fyrir
verkefni, sem skógurinn á að leysa;
hann á að halda í jörðina; hann á að
veita skjól, svo að vatn og vindur geti
ekki flutt hið gróðurberandi jarðlag
fram og aftur. f>að er skógurinn
einn, sem þetta getur gert. Markmið
fólagsskipunarinnar verður að vera það,
að erfiði mannsinB verði svo nytsamt
sem unt er, veiti svo mikinn arð, sem
kostur er á. f>ess vegna verður að fá
skóginn í lið með sér hér á landi;
hann er, eftir því sem mór kemur
fyrir sjónir, nauðsynlegt skilyrði fyrir
sannri, varanlegri framför á verksviði
hinna annara greina jarðyrkjunnar.
Markmiðið á að vera, að hver ís-
lenzkur bóndi (þó ekki alveg bókstaf-
lega skilið), fái sinn skóg. í öðrum
löndum kalla menn skóginn prýði.
Verði markmiðinu náð, þá eignast ís-
land aftur sfna mestu prýði, og skóg-
urinn hér mun verða enn meira; hann
mun verða nauðsynlegt fat fyrir landið.
En hvernig vinna skuli í fat þetta,
hvernig vefa það og sauma, um það
ætla eg að tala í næsta skifti, ef ein-
hver yðar skyldi hafa þolinmæli til að
hlýða á, hvernig eg hugsa mér að ís-
land megi verða skógi klætt. (frh.).
Eldhúsdagurinn.
Svo hefir hann verið nefudur dagur-
urinn, er fjárlaganefnd neðri deildar
hefir lagt fram álit sitt. Hafa þá á
stundum orðið allsnarpar umræðurum
•landsins gagn og nauðsynjart, og
stjórnarfulitrúinn mátt hafa sig allan
við að svara þeim spurningum, sem
fyrir hann hafa verið lagðar og »spyrna
á móti broddunum*, er beint hefir ver-
ið að stjórninni.
í þetta 8inn hefir verið mjög kyrt í
neðri deild alþingis; jafnvel sjálfan
eldhúsdaginn voru fáar og stuttar
ræður, fluttar með mestu rósemi. |>að
er eins og þingmennirnir hugsi með
sjálfum sér: »Vér sitjum hér við nábeð
hinnar gömlu stjórnar og því hlýðir
eigi að vór sóum með ærsl og ólæti.
Gefi henni rólegan viðskilnað*.
Stutt ágrip er þó sett hér á eftir af
nokkrum ræðum, er þennan dag voru
fluttar í neðri deild, með því að efni
þeirra er allfróðlegt, sumra hverra að
minsta kosti.
Pétur JónsBon (framsögumaður
fjárlaganna) kvað hafa verið mikið um
það talað, að þetta þing ætti að marka
þá stefnu, sem endurbætt stjórn ætti
að fylgja; þetta væri að vísu að miklu
leyti satt, en undanfarandi þing og
undanfarandi fjármálastefnur ættu líka
að rettu lagi sinn hlut í þessu. f>að
væru ekki eingön'gu flokksnöfn og prent-
aðar stefnuskrá, er skýrðu bezt frá
vilja þjóðarinnar um stefnu þá, er
nýja stjórnin ætti að fylgja, heldur
hefði vilji þjóðarinnar, og það ekki
sízt, komið fram í aðgerðum undan-
farandi þinga, og þá hvað skýrast í
fjárlögunum, þar sem vér hefðum full-
komnast sjálfsforræði. f>ví vildi hann
nú koma með lauslegt yfirlit yfirstefnu
þá, er ráðið hefði í fjármálum vorum
sfðustu 20 ár. Tekjur og gjöld hefðu
mikið aukist, og væri fróðlegt að sjá,
til hvers hinum auknu tekjum hefði
verið varið.
Gjöldin, skift niður í 10 flokka og
miðuð við árin 1882—83, 1892—93 og
1902—1903 litu þannig út:
Fyrsti flokkur: þing og landsstjórn,
hefði því nær staðið í stað.
Annnar flokkur: eftirlaun og styrkt-
arfé, hækkað um tæpan helming, úr
50,000 kr. upp í 99,000 kr.
f>riðji flokkur: kirkjan og hin and-
lega stétt, stæði því nær í stað.
Fjórði flokkur: læknaskipuuin og
heilbrigðismál, hefði vaxið þannig: Á
fjárlögunum 1882—83 voru veitt til
hans 80,000 kr., 1892—93 105,000 kr.
1902—1903 230,000 kr.
Fimti flokkur: æðri skólar, latínu-
skóli, prestaskóli og læknaskóli; útgjöld-
in þar staðið nærri því í stað.
Sjötti flokkur: alþýðufræðslan, gagn-
fræðaskólar, barnaskólar og styrkur til
annarar alþýðufræðslu, (sjómannaskól-
inn og búnaðarskólarnir taldir í
tíunda flokki). hefði verið 1882—83
36,000 kr., 1892—93 62,000 kr. og
1902—1903 104,000 kr.
Sjöundi flokkur: vísindi og bókment-
ir. Til þeirra veitt 1882—83 15,000
kr., 1892—93 26,000 kr. og 1902—
1903 51,000 kr.
Áttundi flokkur: skáldskapur og
listir, ekkert veitt 1882—83, 1892—93
2,200 kr. og 1902—1903 7,000 kr.
Níundi flokkur: póstmál og sam-
göngumál. Til þeirra veitt 1882—83
119,000 kr., 1892—93 250,000 kr. og
1902—1903 517,000 kr.
Tíundi flokkur: atvinnuvegir, land-
búnaður, sjáfarútvegur og iðnaður; veitt
til þeirra 1882—83 8,000 kr., 1892—
93 59,000 kr. og 1902—1903 162,000 kr.
Útgjöldin voru alls 1882—83 á ní-
unda hundrað þúsund krónur, 1892—
93 rúm miljón og 1902—1903 1,668,000
krónur.
Af þessu yfirliti mætti sjá, að und-
anfarin þing hefðu engu síður en þjóð-
arraddirnar og þetta þing látið það ó-
tvíræðlega í Ijóa, að vér vildum fram-
farastjórn, og þótt fjárlaganefndin nú
virtist ef til vill í einstöku greinum
hafa verið nokkuð stórstfg, þá hefði
hún þó haldið sömu stefnu og undan-
farin þing.
f>rátt fyrir útgjaldaaukann síðustu
20 ár, hefði þó fjárhagurinn haldist í
góðu horfi, og safnast töluverður
sjóður, en það hefði þó haft nokkur á-
hrif á gerðir þingsins, að allmikið af
sjóði þessum væri fast í útlánum og
verðbréfum.
Nú að þessu sinni væri fjárhagsút-
litið ekki sem glæsilegast, aðþvíleyti,
að eftir því sem fjárlaganefndin hefði
gengið frá fjárlagafrumvarpinu, væri
gert ráð fyrir rúmrar hálfrar miljónar
tekjuballa á næsta fjárhagstímabili.
Nú væri svo komið, að það væri
auðsætt, að vér þyrftum meiri tekjur,.
það væri eigi unt að stöðva þann
straum, nema með því að gera sig
sekan í sterku afturhaldi. f>að mundi
því nú reka að hinu sama sem milli
1880 og 1890, er tekjuhalli fór að koma,
að menn yrðu að auka tekjurnar með
tollum, þetta væri óumflýjanlegt, til
þes8 að geta fullnægt framfarahug
þjóðarinDar. Auknar tekjur mundu
nú sem fyr hafa það í för með sér,
að byrjað yrði á nýjum nytsemdarfyr-
irtækjum, og þau studd með raeira.
krafti, sem þegar er byrjað á.
f>órhallur Bjarnarson kvaðsfe
ætla að víkja að afskiftum landsstjórn-
arinnar af þjóðjörðum. Kvaðst hann
vera mjög áfram um sölu þeirra, og
áliti, að með henni væri stigið þýð-
ingarmikið spor í framfaraáttina fyrir
íslenzkan landbúnað, og af því að
sér hefði ekki betur skilizt, en hinn
núverandi stjórnarfulltrúi væri mjög
andvígur þjóðjarðasölu, vildi hann taka.
það skýlaust fram, að hann áliti það
rétt og sjálfsagt, að selja allar þjóð-
jarðir, og það sem fyrst. f>jóðjarðirn-
ar væru og hefðu verið hálfgerð vand-
ræðaeign fyrir landssjóð; þyrfti þar
eigi annað en minna á Arnarstapaum-
boðið.
Að vísu hefði verið lagt fram nokk-
urt fé til húsa og jarðabóta nú síð-
ustu ár gegn 4°/0 hækkun á afgjald-
inu, en það mundi mega segja líbt
um þennan styrk og lánin til presta-
kallanna. f>ótt styrkir þessir gæti
komið sér vel í bráð, þá fylgdi þar
óþægilegur böggull Bkammrifi, afgjalds-
hækkunin. Eina verulega bótin væri
að láta þjóðjarðirnar falar með sér-
‘stökum vildarkjörum; hingað til hefði
ekki verið slíku að fagna. Fyrst hefði
kaupandi orðið að borga 1/i jarðar-
verðsins þegar í stað, og síðan hitt, er
eftir hefði staðið, með 6°/0 í 28 ár.
Landbúnaður vor þyldi ekki þessi kjör.
í Danmörku væri varið stórfé til að
koma upp húsmannabýlum, og kjöriu
væru þar þau, að lánþegi borgaði S1/^/^
af lánsupphæðinni í 115 ár, og hefði
hann með þessu borgað lánið til fulls.
f>að væri segin saga, að þar sem fáir
sjálfseignarbændur væru í einhverri
sveit, og afgjöldin færu mest út úr
sveitinni, þar væii hagurinn þrengstur..
f>að hefðu heyrzt þær raddir, að eitfc
hið mesta mein vort væru vesturfar-
irnar, og að fólksleysið væri aðalmein
bænda; helzta ráðið til að stöðva
þennan útstraum væri það, að vinna
að því, að hver og eina gæti eignast
blettinn, sem hann sifcur á. f>ing og