Ísafold - 05.09.1903, Qupperneq 3
231
kr. fyrir hvern mánuð, enda leggi skóla-
búið nemendunum ljós, bita ogeldivið.
En til styrktar nemendunum greiði
Búnaðarfélagið 5 kr. á mánuði af með-
gjöfinni.
c. Að haldið sé próf við lok fyrra
námBskeiðsins að viðstöddum tveim
prófdómendum, er stjórn Bvinaðarfé-
lagsins tilnefnir.
d. Að mjólkurmeðferðarkennarinn sé
skyldur til að kenna námspiltum bún-
aðarskólans mjaltir án endurgjalds.
e. Að Búnaðarfélagið kaupi af skóla-
búinu alt það smjör, sem skólabúið
vill selja, og sem framleitt er við
mjólkurmeðferðarkensluna á tímabilinu
frá 1. jan. til 15. júnf, fyrir 68 aura
pundið, flutt í Borgarnes.
f. Að stjórn Búnaðarfélagsins sjái
um, að smjörgerðin verði sem bezt af
hendi leyst.
g. Að stjórn félagsins sé heimilt að
veita námsstúlkum úr fjarlægum hér-
uðum nokkurn ferðastyrk, alt að 30
kr. hverri.
h. Að skólabúinu sé heimilt að nota
smjörgerðaráhöld mjólkurskólans að
sumrinu.
i. Að skólabúið taki tll dvalar að-
komna mjaltanemendur og selji þeim
hús og fæði fyrir hæfilegt verð.
5. Útvegun og prófun verkfœra.
Nefndin, sem kosin var í þetta mál
(Eiríkur Briem, Pétur Jónsson, Sig.
Sigurðsson), kom með svolátandi til-
lögu, er var samþykt.
Stjórn Búnaðarfélagsins er falið að
hafa til sýnis og prófunar í Beykjavík
og á Akureyri nokkur helztu búskap-
aráhöld, einkum jarðyrkju og nrjólkur-
meðferðaráhöld þau, eralmenning van-
hagar um.
Jafnframt er henni falið að leiðbeina
og greiða fyrir útvegun á þeim, að
því leyti, sem það eigi bakar félaginu
peningalega ábyrgð.
6. Verðlaun handa vinnuhjúum.
Nefndin í því máli (EiríkurBr., Sig.
Sig. og Stefán Stefánsson) kom með
svohljóðandi tillögur, er voru samþ.:
a. Að varið sé til verðlauna handa
vinnuhjúum á árinu 1905 alt að 200 kr.
b. Að verðlaunin séu tvenns konar:
fyrstu verðlaun 15 kr. og önnur verðl.
10 kr. Fyrstu verðlaun veitist þeim
hjúum, er verið hafa í sömu vist 15
ár og lengur. Onnur verðlaun þeim,
er unnið hafa að minsta kosti
samfleytt, 15 ár í vist, og ekki víðar
en í tveimur vistum á þessu tímabili.
c. Að verðlaunin séu munir, og á-
kveður stjórn Búnaðarfél. hverjir þeir
skuli vera.
d. Að stjórnarnefnd Búnaðarfél. semji
form fyrir nauðsynlegum skilyrðum og
upplýsingum, er verðlaunaveitingin
miðist við.
7. Plœgingar.
Út af tillögu frá síra Einari þórðar-
syni, um styrk til plæginga á Fjóts-
dalshéraði, var samþykt:
Búnaðarþingið ályktar, að auk styrks
til plægingarkenslu á tveim til þrem
stöðum í landinu, megi á næstu tveim
árum, þar sem þess sérstaklega þarf
með, veita nokkra uppörfun til búnað-
arfélaga, sem koma verulegri plægingu
á hjá sér.
8. Kjötsölutilraunir.
Forseti skýrði frá ráðstöfun stjórn-
arinnar í þessu máli, og gat þess, að
gjörðar yrðu tilraunir með kjötsölu er-
lendis í haust, og að maðurinn, sem
ráðinn væri til að hafa þær á hendi,
væri Hermann Jónasson, búfræðingur
á þingeyrum.
9. Fjárhagsdœtlun 1904 og 1905.
Tekjur samtals kr. 36,500,00 hvort
árið; og gjöldin hin sömu.
Stærsti útgjaldaliðurinn er til rækt-
unarfyrirtækja í landinu: 14,200 kr.
hvort árið; þar af til Ræktunarfélags
Norðurlands 6,500 kr. og til Gróðrar-
stöðvarinnar í Reykjavík 2,900 kr.
10. Kosning embœttismanna.
Forseti kosinn: lector þórh. Bjarn-
arson, varaforseti: ntstjóri Björn Jóns-
son; meðstjórnendur kennari Eiríkur
Briem og amtmaður Páll Briem.
Varameðstjórnendur: póstafgreiðslu-
maður þorleifur Jónsson og kennari
Björn Jensson.
Yinnnfólkseklan í SYeitunum
og þilskipaútgerðin.
í byrjun sláttarins var eg á ferð
upp í Mosfellssveit. Skamt fyrir ofan
Árnar hitti eg bónda, sem kom úr
Reykjavík og var á leið austur. Hann
var dálítið kendur og því skrafhreyf-
inn. þegar hann var búinn að ljúka
við hinar almennu ferðamannaspurn-
ingar: hvað eg héti, hvar eg ætti
heima, hvert eg ætlaði o. s. frv., barst
talið að búskapnum og þá sérstaklega
fólkshaidinu.
Bóndi sagði mér, að hann hefði farið
til Reykjavíkur, til þess að útvega sér
kaupamann um sláttinn, en hefði eng-
an getað fengið. Hann var, sem von
var, mjög armæddur yfir þessu, og fór
mörgum hörðum orðum um sjávarút-
veginn, og kvað hann eyðileggja land-
búnaðinn og þar með framtíð lands-
ins. Eg spurði bónda um fólkshald
hans. Hann kvaðst hafa einn vinnu-
mann, einn uppkominn son og smala,
en bætti svo við sorgmæddur, að hann
hefði látið son sinn á fiskiskútu í vor,
og að hann ætti ekki að koma heim
fyr en seint í ágúst. Hann hefði ein-
mitt ætlað að fá sér kaupamann í stað-
inn fyrir hann, og þar sem það hefði
ekki lánast, væri hann í standandi
vandræðum, og yrði sjálfsagt að fækka
svo eða svo miklu af skepnum sínum
i haust.
Á ferðum mínum síðan um Suður-
landsundirlendið hefi eg spurt mig fyr-
ir um þetta atriði, og komist að því,
að það hefir verið mjög alment, og er
í mörgum sveitum alment enn, að bænd-
ur sendi vinnumenn sína og uppkomna
syni á skútur að vorinu, og láti þá vera
á þeim skemur eða lengur frameftir
sumrinu, oft fram á haust, treystandi
þvi, að þeir geti fengið kaupamann í
staðinn um sláttinn. þetta er mjög ó-
hyggilega breytt, frá hvaða hlið sem
málið er skoðað. í fyrsta lagi er oft
ómögulegt að fá kaupamenn, hvað mik-
ið sem liggur við, og í öðru Iagi hefir
þessi óframsýni bænda að öllum lík-
indum stutt meira en nokkuð annað
að því, að draga beztu vinnukraftana
úr sveitunum til sjávarins.
það er með vinnulýðinn sem alla
aðra, að hann vill sitja við þann eld-
inn, sem bezt brennur. þegar því
bændur eru búnir að kenna vinnumönn-
um sínum á eiginn kostnað sjómensku,
segja þeir sig auðvitað úr vistinni og
flytja til sjávarins, ef þeir halda að
þeir hafi betra upp úr því.
Nú mun það oftast vera þannig, að
þeir, sem eru beztu vinnumennirnir í
sveitunum, eru einnig beztu fiskimenn-
irnir, og þar sem svo munurinn á kaup-
gjaldi duglega og liðlétta vinnumanns
ins er tiltölulega lftill í sveitunum, en
í flestum tilfellum miklu meiri á þil
skipunum, er það auðskilið, að með
þessu móti dregst megnið af bezta
vinnukraftinura úr sveitunum til sjáv-
arins.
Að endingu vil eg minna á, að sveita-
lífið og skútulífið er svo gagnólfkt, að
lítt hugsanlegt er, að sömu mennirnir
geti stundað hvorttveggja svo vel sé.
Eg vona að flestir séu mér samdóma
um, að hér er um afarþýðingarmikið
mál að ræða, sem er þess vert, að það
sé tekið til rækilegrar íhugunar.
Guðjón Guðmundsson.
Sigling. »Nanna< (159,30 Baagöe)
kom frá Dysart li. f. m. með kol til Thom-
sens magasfns; 24. s. m. »Progress« (734. A.
Iversen) frá Dysart með kol til W. 0.
Breiðfjörðs. 25. s. m. gnfnskip »Welhaven«
(415,24 HansenJ frá (Iranton með kol til
Brydesverzlunar. 26. s. m. gufuskip »Saga«
(260 Amundson) frá Leith með ýmsar vör-
ur til verzl. Edinborg, og 4. þ. m. gufusk.
»Hillevaag« (167. Gr. Holgersen) frá Blyght
með kol til Thomsens magasins.
PóstsUipið Laura lagði á stað héð-
an vestur um land og norður 29. f. mán.
með fjöida farþega; voru meðal þeirra: sýslu-
maður Lárus H. Bjarnason og systkini hans
Ingihjörg og Þorleifur kennari, próf. Sig-
urður Jensson, alþm. Jóhannes Ólafsson,
bæjarfógeti Hannes Hafstein og frú hans,
Guðjón alþm. Guðlaugsson, sira Bjarni Þor-
steinsson, próf. Árni Jónsson, hæjarfógeti
Jóhannes Jóhannesson, Tr. Gunnarsson
bankastjóri o. fl.
Hólar fóru héðan í gær morgun og með
þeim nokkuð af farþegum, þar á meðal
þorgr. læknir og alþm. Þórðarson, Olafur
læknir og alþm. Thorlacius og frú hans,
Guttormur aiþm. Yigfússon, sira Einar alþm.
Þórðarson o. fl.
Vendsyssel, aukaskip Sameinaða gufu-
skipafélagsins, kom hér i fyrra kvöld. Hafði
lagt á stað frá Khöfn 21. f. m. Farþegar
engir.
Björn Jónsson, ritstjóri ísafoldar, var
orðinn það hress, er siðast fréttist, að hann
var farinn að fara fram úr rúminu (19. ág.)
og yfir á sófa, 1—2 tima á dag. Gat þó
ekki staðið einsamall í fæturna. Ekki
vonlaust nm að hann komist hsim með
Lauru 8. október.
Hey brann fyrir skömmu hjá Einari
bónda Guðmundssyni í Rifshalakoti i Holtum í
Rangárvallasýslu; voru það um 700 hestar, í
hlöðu, er stóð nálægt hænum, og hafði
nærri legið, að i honum kviknaði.
Það þykir vorkunn, þótt djarft sé hirt
hey i óþurkatið; en eins og viðrað hefir í
sumar hér á Suðurlandi má það veita frá-
munalegt kæruleysi og vanþakklæti, aðhirða
svo illa þurt hey, að slys hljótist af.
í niðurjöfnunarnefnd var kosinn
einn maður hér í höfuðstaðnum, til 5 ára,
siðastl. laugardag, í stað Kristjáns kaupm.
Þorgrimsíonar, sem kominn er í bæjarstjórn-
ina. — Ekki var áhuginn á þessari kosn-
ingu meiri en svo, að einir 52 kjósendur
mættu á kjörfundi af 884, er á kjörskrá
stóðu. Af þessnm 52 greiddu atkvæðum
lentu 34 á skósmið Matthiasi Á. Matthiesen.
— Úr þessu býr Þjóðólfur svo til glæaileg-
an flokkssigur. Lengi ætlar hann að hlása
að þeim kolum.
SíðdeKÍsguðsþjóuusta á morgun i
dómkirkjunni kl. 5. (J. H.)
Veðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson
1903 W <TÞ í>- <1 CD OX P œ pr 3 <3 C3 pr £
ágúst sept 3 3 ■p err- c+ *-í cr 8 ox 5 e 3'| po 00 •-1
Ld 29.8 751,7 6,9 NW i 10 5,9
2 754,5 8,0 NW i 5
9 754,8 5,8 WNW i 3
Sd.30.8 755,5 4,3 NE i 4 -0,1
2 755,4 11,7 NE i 4
9 754,1 8,2 ESE i 8
Md31.8 753,6 8,1 E i 7 0,3 3,7
2 755,6 13,6 S 2 4
9 755,9 9,5 88E 1 8
Þd 1.8 756,1 9,4 E 1 8 0,2 7,6
2 757,2 12,6 SSE 2 7
9 757,3 7,0 E 1 3
Md 2.8 757,2 6,0 E 1 4 ubet. 2,3
2 757,7 10,5 NNE 1 6
9 756,1 7,8 0 2
Fd 3.8 753,6 5,2 0 2 1
2 10,7
9 753,2 7,5 E 1 5
Fd 4.8 753,4 5,8 E 1 8 ubet. 1,2
2 753,2 8,6 NE 1 10
9 752,1 7,5 E 1
Hér með tilkynnist vandamönnum og
vinnm, fjær og nær, að minn hjartkæri
eiginmaður Jónas Helgason, org-
anleikari og söngkennari, andaðist
snögglega ur hjartaslagi nóttina milli
l. og 2. þ. m., hálfri klukkustund eftir
miðnætti.
Jarðarför hans fer fram hinn 12. þ.
m. , og byrjar í húsi hans nr. 3 á Lauga-
vegi kl. II1/, f. hádegi.
Reykjavík, 4. september. 1903.
Margrét Arnadóttir.
3. þ. m. andaðist min hjartkæra eig-
inkona Alfxfa Halldórsdóttir, eft-
ir 12 vikna þunga legu. Þetta tilkynn-
ist hér með fjarverandi ættingjum henn-
ar og vinum.
Hafnarfirði þ. 4. september 1903.
Böðvar Jónsson.
Yfir ÍOO ára
gömul ágæt gróðramold fæst hjá Breið-
fjörð, ef hún er tekin strax.
Fæði og húsnæði
geta nokkrir piltar fengið í
Vesturgötu 37.
Hentugt fyrir sjómannaskólanemendur.
Hegningarhúsið kaupir tog á
25 a. pd., ekki minna en 10 pd.
S. Jónsson.
Guðm. í EJliðakoti
vill selja vanan og góðan vagnhest nú
þegar._____________
Tvö góð herbergi ásamt eldhúsi til
leigu á bezta stað i miðjurn bænum. Rit-
stjóri vísar á.
Reiðhesta. áburðar-
hesta og afsláttarhesta.
selur undirskrifaður frá 17.—23. þ. mán. í
Vesturgötu 10.
Magnús Vigfússon.
Öllum þeim Reykvikingum, sem i minum
erfiðu kringumstæðumj veittu mér hjálp,
votta eg hér með mitt og fjarverandi manns
mins innilegasta þakklæti.
Bræðrahorgarstig 27. ágúst 1903.
Anna EiriUson.
Drengur
óskast til smávika. Hátt kaup.
2 herbergi, eða jainvel 3, meðeldhúsi
til leigu í Bankastræti 7.
© Vagnhjól ©
stór og smá
eru nú aftur komin.
f>eir, sem þurfa að kaupa sér vagn-
hjól, gefi sig fram
sem fyrst,
því mest af þeim er pantað fyrir fram.
Th. Thorsteinsson.
Barnaguðsþjónustur
byrja aftur á morgun í húsi K. F. U.
M. og verða framvegis á hverjum
sunnudegi kl. 9s/4 árdegis. Oll börn
eldi en 8 ára eru velkomin.
Barnaskólinn i Landakoti
byrjar aftur á þriðjudaginn hinn 15.
sept. næstk. |>eir, sem vilja láta börn
sín í skólann, gefi sig fram sem fyrst.
Af sérstökum ástæðum verður
engin guðsþjónusta haldin í Fríkirkj-
unni á morgun.
Nýa testamentið.
Ný útgáfa, tneð myndum eða mynda-
laus, prentað í London, fæst í bók-
verzlun ísafoldar, ogkosta 1 kr.—3 kr.;
í mjög vönduðu skrautbandi 5 kr.
Einkar hentug unglingagjöf