Ísafold - 31.10.1903, Blaðsíða 3
263
Átti þetta sér einkum stað með send-
inguna með Lauru, þar sem m ö r g
ílátin voru nær því gjarð-
alaus, og smjörið hafði
drepið í gegn, sem orsak-
aði það, að ílátinurðu dökk
að utan. Kaupandi fær við
þetta ímugust á smjörinu
og verður hræddur við að
kaupa það. Pappírinn, sem brúk-
aður er við smjörið, er engan veginn
í sem beztu ásigkomulagi, þar eð græn
mygla vill festast við hann. þegar
kaupandi sér þetta, hyggur hann að
8mjörið hafi verið geymt of lengi, og
fellir þetta því verðið á því vanalega
um 5—10 a. á. pd. f>að er að sjálfsögðu
ekki mjög auðvelt að fyrirbyggja þessa
grænu myglu, en að voru áliti
æ11i pappírinn að vera vel
▼ ættur í sterkum pækliáð
ur enhann e r 1 á t i n n f t u n n
u n a, því að, enda þótt þetta ekki
reynist óyggjandi ráð, þá fyrirbyggir
það lengur myglun, heldur ensépapp-
írinn settur í tunnuna án þess að
hann hafi verið bleyttur í pækli. í
sumam tilfellum væri líka
betra að salta ögn meira,
en auðvitað má það ekki gerast um
of. Litur smjörsins spillir einnig fyr-
ir sölunni. I flestum tilfell-
um vilja kaupendur ekki
að smjörið sé hvítleitt, eins
og átti sér stað með fyrstu sending-
una frá B. B. og eina eða tvær aðr-
ar. Við höfum skrifað hið framan-
skráða, svo að þér getið tilkynt það
hinum ýmsu smjörbúum.
Eftir umræðum þeim að dæma, er
við höfðum við kaupendur, þykjumst
við þess fullvissir, að ísl. smjörið muni
með tímanum komast í mjög gott á-
lit á markaðinum, með því að búin
öll framleiði smjör, sem er eins að
gæðum, og framleiðslan vex að mun.
það, hve lítið kemur af smjörinu, spill-
ir ekki svo lítið fyrir sölunni. K a u p-
andi vetður að geta fengið
smjörið teglulega, og þar sem
við höfðum ekki ávalt ísl. smjör á reið-
um böndum handa þeim, þá verða
þeir eðlilega að kaupa rússneskt smjör,
og afleiðingin verður sú, að þegar
næsta sending kemur, eru þeir svo vel
birgir af smjöri, að þeir vilja ekki
kaupa meir. Auðvitað er það ein-
göngu tímaspursmál að þetta komist í
lag, en við bendum bara á þessa örð-
ugleika, svo að viðskiftavinir vorir
fái að vita, við hvað við verðurn að
berjast.
það verður vel að gæta þess, að
gjarðirnar séu vel festar á; sumar
tunnurnar voru nær gjarðalausar orðn-
ar þegar hingað kom, og urðum við
að fá beykir til að gera við ílátin
í flestöllum sendingunum. Að voru
áliti má mikið fyrirbyggja þetta með
því að festa gjarðirnar með tveim
smánöglum, mundu gjarðirnar þá síð-
ur falla af í meðferðinni.
Við höfum nú komist í samband við
nokkra góða smjörkaupendur, og von-
umst því til, að það verði arðberandi
fyrir smjörsölumennina. En eins og
þér getið skilið, var töluvert örðugt að
ná í okkar gömlu skiftavini, þar
sem við gátum ekki útvegað þeim
smjör í fyrra; en þar eð við höfum
nú nálgast þá aftur, erum við þess
fullvissir, að við framvegis munurn
geta fengið hæsta verð, ef smjörið
batnar. Við vonum að seljendur verði
áoægðir með söluna, enda þótt við
séum engan veginn ánægðir með verð-
ið,- sem við fengum fyrir megnið af
smjörinu með Lauru. Við vonum að
fá smjörsendingu með næstu skips
ferð og búumst við að smjörið hækki
þegar líður að jólum. Við vonumst
til að fá 80 a. fyrir það, sem bezt
verður af næstu sendingu.
Yfirgnngur botnvörpunga.
Svo er sagt, að ekki sé netjum
manna vært i Garðsjónum fyrir yfir-
gangi og ránskap bottivörpunga. Sópa
þeir burtu netjunum með fiski og öllu
er þeim fylgir, svo ekkert sór eftir af,
og netjatrossu með 7 netjum misti skip
eitt hér á Sviðinu í fyrra dag.
Um aflabrögð er ekki að tala með
þessum aðförum botnvörpunga. Þeir
hætta ekki fyr en aflalaust er orðið.
Að eins 8 fiskar fengust hér á skip í
gær; það má með öðrum orðum heita
þur sjór, enda ezu þeir fáu, sem sjó
stunduðu héðan, um það leyti að hætta.
\oru þó allar likur til þess í haust,
að hér mundi fiskast til muna; en það
er ekki von að slíkt komi að notum,
þegar botnvörpungar tugum saman sópa
fiskimiðin fram og aftur, viku eftir viku
og mánuð eftir mánuð.
Frést hefir og að botnvörpungar sóu
um þessar mundir mjög nærgöngulir á
Stokkseyri. Þeir koma þar upp undir
á kvöldin, þegar fer að skyggja, svo
grunt *em þeir þora, og fiska þar svo
fram eftir kvöldinu í bezta næði.
í sambandi við þetta skal það tekið
fram, að Isafold óskar að fá sannar og
áreiðanlegar fréttir af háttsemi botn-
vörpunga hvar sem er hér við land,
þar sem þeir fiska í landhelgi, spilla
veiðarfærum manna eða brjóta landslög
á annan hátt.
Eini vegurinn til að fá aukna strand-
gæzlu virðist vera sú, að láta einskis
ógetið um yfirgang botnvörpunga. En
áreiðanlegar þurfa slíkar skýrslur að vera
og ættu að vera undirskrifaðar af 2—3
mönnum, sem hafa í hvert .skifti verið
sjónarvottar að lagabrotunum.
Á flækingi
er maður nokkur austur í Árnessyslu.
Kom hann um miðjan þennan mánuð
norðan fjöll að Tungufelli í Ytrihrepp.
Yar hann fremur fámálugur og vildi
ekki láta uppi hvaðan hantt væri eða
hvað hann héti. Komst hann svo aust-
ur yfir Þjórsá og var yfirheyrður af
s/slumatmi Rangæinga. Kvaðst hann
þá heita Hafliði (Magnússon?) og vera
norðan af Sauöárkrók. Mun syslumanni
hafa þótt óráðlegt að láta mann þenna
vera á t'lækingi um sýsluna og kom
honum í gæzlu að Austvaðsholti, en
þaðan hljóp hann burtu sama kvöldið
og hann koiii þangað. Maðurinn er
sagður um fertugt og fremur stiltur.
Ekki er hann gefinn fyrir vittnu, því só
nefnt við hann að taka handtak, er
hann allur á burt. Ætia sumir að
maðurintt sé sturlaður á geðsmunum,
þótt lítið beri á, aðrir hyggja hann vera
strokumann og enn aðrir flæking og let-
ingja.
ísafold,
gufiiskip Brydes, skipstj. Jensen, hafn-
aði sig hér í gærmorgun. Kom frá
Englandi með salt og ýmsar vörur til
Brydesverzlunar. Segir engar sérlegar
nýungar.
Leikfélag Reykjavíkur
tekur til starfa um þessa helgi (sjá
augl. hér í blaðinu) og byrjaráfler-
mannaglettunum eftir P. Ho-
strup og A p a n u m eftir L. Heiberg.
Hafa báðir þeir leikar verið sýndir hór
áður þó ekki af leikfél., þykja jafnan
hin bezta skemtun, ef vel er með far-
ið, sem enginn mun efast um, þar sem
Leikfólagið á hlutinn að.
Enn fremur er nú þegar ákveðið að
leika í vetur þrjú leikrit, er aldrei
hafa verið héráðurleikin: Lavend-
e r eftir Arthur W. Pinero, J> r o t a -
b ú i ð (fín Fallit) eftir Bjömson og
Ambáttina (Die Sklavin) eftir
Fulda, höf. að Hinni týndu paradfs, er
Leikfélagið sýndi hér fyrir nokkru
og þótti einkar tilkomumikill leikur.—
Víxilfölsun.
Ólafur nokkur Ólafsson, sjómaður
hér í bænum og óreglumaður í meira
lagi, varð fyrir nokkrum dögum upp-
vfs að víxilfölsun. flafði hann ritað
nöfn tveggja manna á 200 kr. víxil,
er hann svo seldi landsbankanum og
fekk borgaðan, með því að banka-
stjórnin kannaðist við nöfn beggja mann-
anna. Bithönd þeirra hefir hún auð-
vitað ekki þekt.— Komst þetta upp
skömmu síðar sama daginn og það
gerðist, er bankastjórinn af hendingu
rakst á annan manninn á förnum vegi
og þótti ástæða til að spyrja hann um,
hvort hann ætti nokkuð til þessi ólaf-
ur, sem hann hefði verið að ganga í
ábyrgð fyrir. En maðurinn brást, sem
vonlegt var, ókunnlega við.
Síddegisguðsþjénusta á morgan kl.
5 (B. H.).
Mannalát.
15. september síðastl. andaðist á spít-
alanum á Akureyri merkiskonan S o 1-
veig Guðmundsdóttir, ekkja
Ásgeirs lieitins Jónssonar hreppstjóra og
póstafgreiðslumanns á Stað í Hrútafirði,
en systir frú Sigríðar Eggerz.
Lík Solveigar sál. var flutt vestur að
Stað með strandferðarbátnum »Skálholti«
og fór jarðarför hennar þar fram 1.
október við mikið fjölmenni.
Hinn 3. september andaðist að heim-
ili sínu í Álftavatnsbygð í Ameríktt,
eftir tiýafstaðinn barnsburð, konan
K r i s t r ú n S i g v a 1 d a d ó 11 i r, fædd
í Laufássókn hér á landi, kona Hávarð-
ar Guðmundssonar. — Þetta tilkynnir
ekkillinn viuum og vandamönnum.
Fórn Abrahams.
(Frh.)
Gamli maðurínn brosir að þeim,
er hann heyrir orð þeirra og
hugsar til kveldsins áður.
Maður féll.
Dansleikur er haldinn og eiga allar
tekjurnar, að frádregnum útgjöldum
til húsaleigu, ljóss og umsvifa, að
ganga til þeirra, er sjúkir verða og sár-
ir í stríðinu; þar dansar ung stúlka.
Að vísu var hún ófús á að fara á
þenna dansleik, en gerði það samt,
af því henni var gefið í skyn, að það
gæti ef til vill misskilist, ef hún sæti
heima, þar sem unnusti hennar var í
stríðinu. Hún lætur eins og sér standi
á sama, þykist vera glöð og ánægð og
dansar af því heimurinn heimtar það
öðrum til fyrirmyndar. Hún finnur
grímuna fyrir andliti sér, en tekur
þegar að venjast henni. Hún hlær
dátt og verður upp með sér, er hún
heyrir aðra segja:
•Lítið á hana; svona eiga menn að
bera sig. Og þegar þess er gætt, hve
vænt hjónaefnunum þykir hvort um
annað, þá er það aðdáanlegt að sjá
hana svo káta«.
þessi orð hressa huga hennar, hún
hlær aptur og heldur áfram unz dans-
inum er lokið.
En þegar hún er komin heim til
sin, grefur hún höfuðið niður í svæf-
ilinn og grætur eins og hjartað ætli
að springa.
Er hann dauður, lifir hann enn, er
hann sjúkur eða . . . nei. . . nei . . .
jú * • .
Hún vildi helzt ekkert hugsa, aðeins
vona, en það getur hún ekki. En hún
þorir ekki heldur að gráta lengur, svo
að hún verði rauð og dauf til augn-
anna og kinnin föl, því þá gæti hún
ekki látið neinn mann sjá sig. Hún
reynir því af fremsta megni að stöðva
tárin og setja upp marklausa vana-
brosið sitt.
Veöurathuganir
i Reykjavík, eftir aðjunkt Bj'órn Jensson.
1903 ir W < o ox e ÍO > 3 <3 -t ö
okt. B 1 OQ p et- ET ö 0>( 3 M Ts 3 s| P ^ 03 3?
Ld 24.8 757,1 -2,4 N 2 1 -5,0
2 759,6 0,3 N 2 2
9 758,3 -2,1 NE 1 2
Sd.25.8 757,7 -1,1 E 1 3 -5,0
2 759,2 0,5 NW 2 6
9 756,9 -0,7 NW 1 2
Md26.8 757,0 -1,3 0 1 -5,0
2 758,5 -0,3 N 1 1
9 758,7 -2,7 NB 1 2
Þd.27.8 757,4 -4,6 NE 1 1 -7,0
2 759,7 -0,4 E 1 2
9 759,9 -4,0 E 1 2
Md28.8 759,3 -5,2 0 1 -8,0
2 759,9 -5,5 E 1 5
9 758,7 4,4 0 2
Fd 29.8 754,5 -4,9 E 1 3 -8,0
2 753,5 0,5 E 1 5
9 752,2 -2,0 0 2
Fd 30.8 753,6 -0,1 0 2 -5,0
2 756,1 2,6 0 1
9 753,2 -0,4 0 2
Alþýðnfræðsla Stúdentafél.
10 fyrirlestra
um líf og heilbrigði
heldur Guðm. Björnsson í
barnaskólanum á miðvikudögum og
Iaugardögum kl. 8’/2—9*/2 e. h., í
fyrsta sinni miðvikudag 4. nóvember.
Aðgöngumiðar á 1 kr. fást hjá Sigf.
Eymundssyni meðan rúm endist.
Tapast hafa i Reykjavik 2 lötnb.
blákkuð á bakið mark á öðru: blaðst. fr. biti
ait. h., blaðstýft aft. biti fr. v,, á hinu;
sýlt, lögg aft. h., blaðstýft aft. biti fr. v.
Skilvis finnandi gjöri undirskrifuðum að-
vart.
Þórustöðum á Hvalfj.strönd 28. okt. 1903
Hjálmar Guðnason.
Brúkuð frímerki.
kaupir undirritaður. Sendið tilboð,
með verði, til
E. Punstinen. Stud. kem.
Cöthen. Anh. Tyskland.
Herbergi t i 1 1 e i g u, með eða
án húsgagna.
Pétur Hjaltesteð.
Flntningur sá,
sem var sendur með gufubátnum
Reykjavík, til Víkur þann 24.ágúst þ,
á., og hann ekki gat komið til skila,
og var aftur sendur með s/s Hólar, sem
fór héðan 4. sept., er heldur ekki gat
komið honum til skila, er nú hér aft-
ur kominn, og er.u viðkomendur beðn-
ir um að vitja flutningsins á afgreiðslu
Beykjavíkur sem allra fyrst, annars
verður farið með hann sem annað ó-
skilagóss.
Rvík 20. okt. 1903
Bj. Guðmundsson
ísl. frímerki, gamla
peninga (allra þjéða) kaupir hæsta
verði
Lúðvíg Hafliðason, Edinborg.
eru beðnir
að vitja ísa-
foldar í af-
greiðslustofu blaðsins, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum.