Ísafold - 09.03.1904, Qupperneq 4
óskunda í þeirra garð. Féllu af þeim
að sögn 500 manna í einum bardaga,
er Tyrkir áttu við þá.
i n g r o f stendur til að* verðí á
Englandi fyrir vorið, eða eftir pásk-
ana, með eftirfarandi nýjum kosning-
um. þá mun ganga mikið á og verð-
ur barist helzt um tollverndar-nýmæl-
in. Chamberlain brá sér nýlega suður
á Egiptaland, sér til hressingar eftir
fundastritið í haust og vetur, og til
þess að verða sem bezt fyrir kallaður
undir kosningaleiðangurinn í vor. |>orri
lýðs er honum enn andvígur í tollvernd-
armálinu, hvað sem verða kann síðar
meir. Stjórnin hefir og lagst á þá
sveifina á þingi í vetur afdráttarlaust.
|>á var raunar yfirráðherrann veikur,
Balfour; en með hans ráði þó svo
tekið í málið, sem nú var þá sagt.
Látinn er nýlega Heuch biskup í
Kristjánssandi f Norvegi, allmikill rit-
höfundur og vancHætingasamur kenni-
mannahöfðingi.
Breiðafjarðareyjum 5. jan. li»04.
Veðráttan er stöðugt að verða betri eft.
ir því 8em líður á veturinn; nú er daglega
ha,g sunnanátt og stöðug bliða. Hér i eyj-
unum gengur fé gjafarlaust úti og er viða
ekki býst að núttunni.
Menn eru hér mjög ánægðir með árang-
urinn af bólusetningu á sauðfé gegn bráða-
sóttinni. Olafur Guðmundsson á Skálmarnes-
múla hefir bólusett sauðfé bæði i Múlahreppi
og Flateyjarhreppi og tekist mjög vel. í
haust bólusetti hann um 400 kindur hér í
eyjum, veturgamiar og lömb, og drápust að-
eins örfáar kindur við bólusetninguna. Áð-
ur var bráðasóttin oft mjög skæð hér í
eyjum og mátti venjulega búast við, að
fullur helmingur færi úr henni af vetur-
gömlu fé, sem sett var á. Nú hafa aðeins
drepist 2 veturgamlar kindur; var önnur
þeirra bólusett i fyrra, en hin óbóiusett;
hafði ekki fundist, þegar verið var að bólu-
setja.
Magnús dýralæknir á vissulega miklar
þakkir skilið fyrir útvegun á bóluefni og
bólusetningarverkfærum, því að hann er
ávalt reiðubúinn tix að hjálpa hverjum, sem
leitar bans í þessu efni og fús til að ieiðbeina
með góðnm ráðum. Það er undarlegt, hve
litla viðurkenningu þessi starfsemi hans
hefir hlotið, svo ómetanlegt gagn sem af
henni hefir leitt.
Það væri óskandi, að Búnaðarfélag lands-
ins gerði lika eitthvað til að útvegamönn-
um nauðsynleg verkfæri til jarðyrkju; þau
eru hér hvergi fáanleg.
Það sýndist þó, að það mætti vera þakk-
látt verk, að gjöra hér eitthvað til að bæta
landbúnaðinn, eftir þvi að dæma, hvað
sumar jarðir stiga hér árlega i verði.
Nú er Fjörður i Múlasveit boðinn til
ábúðar fyrir 10 sinnum hærra afgjald
en hann var ieigður fyrir, þegar Johnsens
jarðatal var gefið út. Næsta jórð við Fjörð,
Deildará, er nú leigð fyrir 5 sinnum hærra
afgjald en þá var, og hefir sú hækkun
mest orðið á siðustu 10—20 árum. Ábú-
andinn á Deildará er reyndar bláfátækur
maður, en eigandinn er vist ríkasti
maðurinn á landinu.
Skafjafjarðarsýslu (Fljótum) 14.
febr. Fréttafátt héðan. Sumarið næstl.
óhagfelt og þurftu menn þvi að fækka
nautpeningi meira en annars hefði orðið,
en ekki kvarta þeir mikið um að þau hey
séu slæm, sem fengust, og yfirleitt held eg,
að kýr reýnist ekki illa þeirra hluta vegna.
Böðun á sauðfé afstaðin fyrir nokkru og
eru bændur alment mjög þakklátir fyrir
hana, óska, held eg helzt, að hún væri á
hverjnm vetri, til að fyrirbyggja öll óþrif
i sauðfénu.
Yeturinn, það sera af er, ekki illhryss-
ingslegur, en aðalmeinið hér í sveit er
aflaleysið úr sjó næstl. árið, af þvi að
aflabrögð eru svo mikilsverð hér fyrir at-
vinnu manna og margir sem ætla upp á
þau til þess að geta Iifað. Skuldavastur
þess vegna meira og erfiðari kringumstæð-
ur en áður.
Harðstjórunura er illa vlð bibli-
utia. Sænkt blað segir svo frá: Útgef-
andi nokkur i llelsingfors, höfuðborg Finn-
lands, ætlaði í súiuar að láta prenta nokk-
nr ritningarorð á veggspjöld, sem svo áttj
að selja út um landið. Nú verður að senda
prófarkir af öllu, sem prentað er þar í iandi,
til ritdómara, sem á að skera úr, hvort
það megi koma út. Kitdómarinn varð að
fá sýnishorn af þessnm spjöldum eins og
öðrn, og prentsveinn var sendur með þau,
en á þeim voru aðeins ritningargreinar:
»Gjaldið keisaranum hvað keisarans er
og gnði, sem guðs er.«
»Hver, sem frá snýr eyra sínu svo, að
það heyri ekki lögin, þess bæn er viðnr-
stygð.«
»Það er viðurstygð fyrir konunga að
fremja óguðleik, þvi að réttlætið grund-
vallar hásætið.a o. sv. frv.
Þegar prentsveinninn kom aftur til rit-
dómarans til að sækja sýnishornin, hitti hann
ekki vel á Ritdómarinnn rak hnefann í
borðið rétthjá drengnum og sagði öskrandi:
»Hver hefir hnoðað þessu saman?«
Nú- nú, — þelta er guðs-orð, sagði dreng-
urinn, hálfkjökrandi af hræðslu.
• Snáfaðu út, strákur, og segðu að þetta
sé óforskammað!« — —
Flest verða vesalings Finnar að þola af
hendi Rússa.
Tyrkir gjörðu og upptækt töluvert af
evangeliskum smáritum sem átti að dreifa
út þar í landi i fyrra, af þvi að þan væru
»stórhættuleg velferð rikisins.« Sérstaklega
hneyksluðust þeir á ritningarorðnnum,
sem hvert rit byrjaði á, og þá einkum á
orðunum úr 4. kapitula i Efesusbréfinu:
• Afleggið gamla manninn, sem spiltnr er
af tælandi girndum, og íklæðist hinum
nýja rnanni, sem skapaður er eftir guði í
réttlæti og heilagleika sannleikans.«
Tyrkir héldu að »gamli maðurinn« væri
soldán i Miklagarði og hér væri skorað
á menn til nppreistar gegn honum. (!!)
í Rómaborg eruaukpáfans 20 kardin-
álar, 35 biskupar, 2832 munkar og 3212
nunnur til að efla andlega heill bæjar-
búa; þar eru og 361 klaustur.
Það er samt ekki nema helmingur bæjar,
búa, sem kann að lesa og skrifa, og enginn
heyrir talað um vakningu. Victor Eman-
líel II., konnngur Italíu, sýnir oft að hann
er hlyntnr prótestöntum og starfi þeirra á
Ítalíu. Hann gefur oft góðgjörðafélögun-
um þeirra fé, og í vor, sem leið, sæmdi
hann yfirmann metodista í Róm, dr. Burt,
heiðurskrossi þeim, sem kendur er við st.
Maurice og st. Lazarus.
Fulltrúar kristilegra félaga ungra
manna i katólskum löndum, sem mættu á
alþjóðafundi K. F. U. M. i Kristianiu 1902,
bárn ekki kaþólskunni vel söguna, eftir
þvi, sem norsk blöð segja. Georg Fliedne
cand. theol. frá Madrid flutti þunga ákæru
gegn mótmælendum fyrir það, hversu lítið
þeir sintu Spáni: »Hvers vegna hafið þér,
kristnu stórþjóðir Norðurálfnnnar: Norvegur,
England og Þýzkaland«, hrópaði hann út
yfir þúsnndirnar, sem saman voru komnar,
• setið með ljós kristindómsins i 400 ár
og ekki flutt það til Spánar? Hvernig
ætlið þér að afsaka slíkt gagnvart lifanda
önði? Þér vitið, að Spánn er kaþólskasta
land í heimi og hvilir i fullkomnu myrkri,
og þó er nærri ómögulegt að fá menn til
að gjöra nokkuð fyrir oss Það er hægt
að vekja áhuga manna á heiðingjatrúboði,
en vér reynum árangurslaust að fá einbverja
hjálp fyrir vort óhamingjusama land. Hvað
ætlið þér að gjöra fyrir oss? Hver vill
hjálpa oss og flytja oss ljós gleðiboð-
skaparins.«
Einn áheyrandi bætir við, þegar hann skrif-
ar nm þetta i blað sitt: »Það er ómögu-
legt að lýsa tilfinningunum, sem ræða
þessi vakti. Orðin voru eins og neyðar-
óp úr myrkri næturinnar.« —
Fulltrúinn frá ítaliu vakti og afarmikla
eftirtekt þegar hann byrjaði ræðu sína á
góðri ensku, hátt og snjalt, með þessum
orðum:
»ítatía d tvo óvini; annar þeirra er
satan, en hinn er pdfinn. Vér þurfum
að berjast gegn satan í öllum löndum, en
á Ítalíu bætist páfinn við, sem er óvinur
alls sannarlegs kristindóms og allrar ment-
unar á jarðríki — —.«
(S. Á. G.)
ALFA-LAÍAL-stilíiDiinar
eru þær langútbreiddustu Og beztu skilvindur sem tíl eru, enda not-
aðar næstum eingöngu í Damnörku þótt þær séu sænskar.
»Alfa Colibri* og »Alfa Viola« eru sératakJega hentugar fyrir meðal-
bændur og minni bændur. »Colibri« skilur 250 pd. á kl.st. og kostar 125
kr.; «Viola« skilur 150 pd. á kl.st. og kostar 100 kr.
Alfaskilvindurnar skilja mikið betur en aðrar skilvindutegundir. Sam-
kvæmt opinberum skiltilraunum skilja Alfa-skilvindurnar að eins eftir
0,12% feiti f undanrennunni, en t. d. Perfect-skilvindurnar 0,23%, og
Alexandra nr. 12 0,35%- — Gildur bóndi, sem hefir 65 pt. mjólkur á dag
að meðaltali, tapar því minst 62,8 pd. smjörs árlega við að nota Perfect-
skilvindu, og 131,4 pd. við að nota Alexöudru nr. 12, og mikið meira, ef
hann notar minoi Alexöndru-tegundirnar.
|>etta ættu bændur að athuga, því nú er kominn tími til, að farið sé að
meta smjörið til peninga.
Útsölumenn Alfa-skilvindanna eru : Gunnar Einarsson Reykjavík, Brydes-
verzlun Borgarn si, Sæmundur Halldórsson Stykkishólmi og Einar Gunnars-
son Akurej'ri.
Gnðjón Guðmundsson.
Útlendar bækur, mesta úrval, 1 bókv. Isafoldar.
árið 1903.
HÚn hefir selt landsmönnum góðar og ódýrar útlendar vörur fyrir rúmar
525,000 krónur.
Hún hefir keypt af landsmönnum fisk og aðrar innlendar vörur fyrir um
1,143,000 krónur,
og borgað f peningum út í hönd.
Hún hefir veitt landsmönnum atvinnu við verzlun og fiskiveiðar og
borgað hana í peningum alls um
121.500 krónur.
Hún hefi goldið til landsBjóðs og í sveitarútsvar alls á árinu um
33.500 krónur.
Verziunin hefir aðalstöðvar sínar í«
RETKJAVIK, en útibú á Isaíirði, Akranesi
og Keflavík.
snMar.
Margbreyttar og ódýrar
hljóta vðrurnar að vera í
vefnaðarvðrudeild J ó n s
Þórðarsonar, Þlngholts-
stræti 1, þar sem þráttfyr-
ir alla samkepni hefir selst
fyrir fullar
200 kr.
meira í febrúarmán. í ár
heldur en í fyrra.
Frystud siid
fæst nú beypt í ishúsnnnm i Reykjavik.
Loftherbergi með geymsluplássi til
leigu nú þegar á Laugaveg 49.
Uppboðsauglýsing.
FimtudagÍDn 10. þ. m. kl. 11 f. h.
verður opinbert uppboð haldið í
geymsluhúsi Kr. Ó. f>orgrímssonar,
Kirkjustræti 10, og' þar seldar meðal
annars ýmsar góðar bækur, skrifborð,
kommóða o. m. fl., tilheyr. Halldóri
sál. Guðmundssyni, fyrv. skólakénnara.
Söluskilmálar verða birtir á upp-
boðsstaðnum. ,
Bæjarfógetinn í Rvík, 7. marz 1904.
Halldór Daníelsson.
cIKörg Rús
af ýmsri gerð á góðum stöðum í bæn-
um til sölu. — Semja má við
snikkara
Bjarna Jónsson,
Vegamótum. Reykjavlk.
eru beðnir
að vitja Isa-
foldar í af-
greiðslustofu blaðsins, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum.
Ritstjóri Björn Jónsson.
Isafol darprentsmið ja