Ísafold - 02.04.1904, Síða 2

Ísafold - 02.04.1904, Síða 2
70 Bibliuíélags-afmæli. Snemma í f. mán. (7.) voru hundrað ár liðin síðan er Bretar stofnuðu sitt mikia og fræga biblíufélag (The British and foreign Bible Society), langstærsta og öflugasta biblíufélag í heimi. Fyrsti frumkvöðull þess var 2 árum áður prestur einn í Wales, Thomas Charies. Hann ritaði smáritafélagi einu í Lundúnum og bað það reyna að koma á stofn fólagi til þess að afla því landi, Wales, nægra biblía á brezku máli, því er þar er talað af alþyðu; hún skildi ekki ensku. Því var vel tekið af yms- um kennimannaskörungum í Lundúnum (Hugbes, Owen, Steinkoph og Pratt), og félagið stofnsett 7. marz 1804. Það var látið færa út kvíarnar fyrst um alt Bretland hið mikla og því næst um heim allan. Það er verkefni fólagsins, að snúa heil. ritningu á öll tungumál jarðarinn- ar og dreifa henni út um allan heim. Fólagsmenn geta allir orðið, er greiða vilja 1 gíneu f fast árgjald. Það er sama sem 19 kr. hér um bil. Fólagið hafði fyrsta árið í tillögum 619 pd. stert., sama sem rúml. IH/2ÞÚ8. kr. Nú eru árstekjur þess nær 250,000 pd. eða sama sem il/2 miljón kr. En dagleg útgjöld um 600 pd. eða nær 11 þús. kr. Og um 150 milj. eintök af biblíunni, nýjatestamentinu eða fáeinum bókum ritningarinnar hverri um sig hefir það látið prenta þessi 100 ár, sem það hefir lifað, á nær 300 tungumálum og mál- lýkkum. Oflugasta biblíufélag annað en hið brezka varð það, er stofnað var í Pót- ursborg 1813, af Englendingunum Paterson og Pinkerton. Það átti sór 289 undirdeildir út um Rússland, og lét snúa biblíunni á 30 tungur og mál- ly'zkur þjóða þeirra, er Rússakeisara lutu. En það lifði ekki nema 13 ár. Þá skapaði keisarinn því aldur og bar það fyrir, að það skifti sér af lands- stjórnarmálum. Rúmum 30 árum síðar (1858) nam Alexander II. það bann úr lögum, og hafa ensk og amerísk fólög unnið að því síðan kappsamlega, að koma biblíunni »inn á hvert heimili« rússneskt. Brezka félagið lót prenta biblíuna fyrst á íslenzku 1813, / Kaupmannahöfn. Sú útgáfa var kölluð Grútarbiblía vegna prentvillunnar: Harmagrútur Jeremiasar, í stað Harmagrátur Jer. Sama ár gaf félagið og út nýjatestament- ið eitt sór. Bókum þessum útbýtti skozki ágætismaðurinn Ebeneser Henderson að mestu gefins hér um land. Hann ferð- aðist hér 1814 og 1815. Fyrir hans tilhlutun var íslenzka biblíufélagið því næst stofnað 1816, ári fyr en danska biblíufélagið var stofnað, sömuleiðis fyrir hans tilhlutun. Hálfri öld síðar lót enska biblíufólagið prenta handá oss nýja útgáfu af biblíunni (1866), mikið vandaðaað ytri frágangi, auk sór- stakrar vitgáfu af nýjatestamentinu, ogaf Davíðs sálmum fám árum áður (1863); seldi þetta hór við gjafverði. Og nú hefir það í ráði að láta prenta á sinn kostn- að endurskoðaða útgáfu fyrst af nýja testamentinu og síðar ef til vill af hinu gamla, þá er nú er verið að semja að tilhlutun íslenzka biblíufólagsins og á þess kostnað af gamlatestamentinu með nokkurum landssjóðsstyrk; hið nýja, þýðinguna á því, kostar enska biblíu- félagið að öllu leyti. Biblíufólagið enska er einhver hin veglegasta og nytsamasta stofnun í heimi. Hvað ófriður er. Varla er nokkur þjóð í heimi, er ófrið- ur keniur minna rið en vér íslendingar. Þ a ð er einn af einangrunariunar fáu kostum. Vér sitjum hór á hjara veraldar og höfum ekkert af að segja hörmungum þeim, er hernaður leiðir yfir þjóðirnar. Ekkert nema ef eiuhver útlend vara hækkar ofurlítið í verði. Því sagði kerlingin: Ekki er g a m - an að guðspjðllunum; enginn er í þeim bardaginn. Af fyrgreindum ástæðum verða bardagar lengst út í heimi ekki annað en gamanleikur fyrir oss. Að minsta kosti fyrir þá, sem les þess konar tíðindi hugsunarlaust. Og það gerir þorri manna. Þessi ófriður, sem nú er nýlega byrj- aður, með Rússum og Japönum, verður líklegast einn hinn skæðasti og hörm- ungamesti, er sögur fara af á síðari tímum, annar en sá, er þeir áttu sam- an, Frakkar og Þjóðverjar, fyrir rúmum 30 árum. Þetta segir dauskur rithöf., P. Munch, í tímaritinu »Det nye Aar- hundrede«. Þá stóðu, segir hann, 42 milj. Þjóð- verja á öndverðum meið gegn 36 milj. Frökkum. Nú berast um 140 milj. Rússar á banaspjót við um 50 milj. Japaua. Þá hófu Þjóðverjar hernað sinn með x/2 miljón vígra mantia, en Frakkar höfðu nær 300 þús. Talan komst upp milli 1 og 2 milj. frá hvoru landinu um sig meðan á ófriðnum stóð. Nú hefir Rússland á að skipa 3^/a milj. leiðangursliðs og hefir jafnmargt manna í varaliði. Það er mælt, að Rússakeisari muni geta bætt við öðru eins, ef í nauðir rekur. Her Japana er sagður rúm ‘/2 m'lj- Hitt er ókunnugt, hvað miklu Japanar treysta sór til að bæta við. Aðalmunurinn er þó sá þá og nú, að nú er hernaðarsvæðið ekki stórmentað land og brennidepill ófriðarins siðmenn- ingarhöfuðstaðar heims. Þjóðir þær, er nú eigast við, eru skrælingjaþjóðir í samanburði við menn- ingarþjóðirnar hérna í álfunni vestan- verðri; og þær eigast við í aunarlegu landi, er þær ágirnast báðar og ætla sér að taka ránshendi. En fyrir það láta þær sér miklu siður fyrir brjósti brenna að beita enn óskaplegri grimd og eyða landið enn óþyrmilegar. Og í ann- an stað má herlið beggja þjóða búast við enn meiri þrautum og harmkvælum, og eins hinu, að ófriðurinn verði mjög langvinnur. Japan virðist ætla að bera efra skjöld um sinn að miusta kosti. En það leið- ir til þess, að hvort þúshundraðið á fætur öðru af óþrjótandi mannsæg Rússa- veldis leggur leið a.ustur um Sibiríu endilanga, leiðina til harmkvæla og aldurtila. Þess ber öll saga Rússa vitni, að þeir eru þrautgóðir; þeir láta ekki undan, fyr en í fulla hnefana. Hér liggur sæmd þeirra við, vfgsæmd- in, hið versta skaðræðis-skurðgoð, er nokkurn tíma hefir blótað verið. Þeir hafa, Rússar, blótað því svo þús- hundruðum manna skiftir og miljörðum rúbla, og munu gera það enn. Landið er örsnautt undir og að því sorfið sem mest má verða. Það verður enn nær því gengið nú af nýju. Rússar hafa 1 miljón manna vígbúna á friðartíraum og kostar 1 miljarð króna til vígbúnaðar á hverju ári. Nú er aukið þar á ofan eftir því, sem þörf kallar eftir. Það hefir í för með sór hungur og hvers kyns hrelling í öllum myndum til handa mörgum miljónum manna. Það er ekki fengist hót um það. Svo mælir það fyrir, vitfirringar-lög- mál það, er drotnunarfíkn og ramvit- lausar sæmdarhugmyndir hafa fyrirskip- að ríkjunum. Nema, — nema ef svo færi, sem mundi ganga firnum næst, að skynsemis- og mannúðartilfiuningar vorra tíma mætti sín meira þeirra á meðal, er mestu ráða á Rússlandi, heldur en hleypidómar liðins tíma. Eða hitt, sem mundi enn meiri firnum sæta, að skyn- semin ryddi sór skyndilega til rúms meðal þjóðarinnar rússnesku, og hún sópaði af sór forynjum þeim, er halda uppi ramvitlausum hugmyndum frá sið- leysistímum og heimsku. Allir hafa um þessar mundir augun á vígvellinum austur við Kyrrahaf og því sem þar gerist. Þeir eru sólgnir í símskeytagrautinn, sem enginn botnar í; þeir grandskoða landabréfin og eru með höfuðóra um það, sem gerist og muni gerast. Þeir eru svo áfjáðir í þetta, að þeir hirða ekki hót um að gera sór grein fyrir eða íhuga, hvflíkar hörmungasögur og hvílikt æðisrugl það er, sem þessi símskeyti flytja í raun réttri. Það má gera sór það í hugarlund dálítið á því, sem kunnugt er úr ófrið- inum með Frökkum og Þjóðverjum 1870—71. Það hefir franskur sagnaritari, mjög stiltur og gætinn, lýst því nokkuð fyrir skemstu. Hann heitir Hanotaux [hanó- tó] og var áður utanríkisráðherra Frakka. Hann segir, að týnt hafi lífi þá af Frökkum 139 þúsundir. Það er nærri helmingi meira en íbúar alls íslands, hvert manns barn, er þetta land byggir. En sárir urðu af Frökkum enn fleiri, eða 143 þúsundir. Þar við bætast allir þeir, sem veikt- ust af ofraun og hvers konar hrakning- um; og kann það enginn tölum að t.elja. Það eitt vitum vér, segir höf., að 340 þús. menn lögðust í sjúkrahús. En ekki er þetta, segir hann, nema brot af öllu því tjóni, þvf lífs og lima tjóni eða heilsu, er landslýðurinn beið í ófriði þessum eða hans vegna. Höf. fullyrðir, að fólkinu á Frakklandi muni hafa þar að auki fækkað um 1,200,000 af veikindum og heilsubilun vegna harð- réttis og margs konar hörmunga, og af því, að miklu færri börn fæddust þau missiri en ella. Hugsum oss allar þær hrellingar, er þessar voðatölur hafa að geyma, allar þær kvalir, allar hugraunir og allan þann harm, er þar felst að baki, þar sem varla er nokkurt það manns barn íöllu landinu, er ekki eigi á baki að sjá ein- hverjum ættingja sínum eða vin fyrir örlög fram. Svo er fjártjónið. Höf. telst svo til, að ríkissjóður Frakka hafi beðið 15 miljarða króna tjón af ófriðum, beinlínis og óbeinlínis. Það er sama sem hálfu meir en alt það, er danska þjóðin á til í eigu sinni, eft- ir þvf sem þykir láta nærri. Hitt kann enginn tölum að telja, er einstaklingar mistu fyrir þjófnað eða kúgað var út úr þeim, eða fyrir það, að þeir urðu gjaldþrota eða spilt var fyrir þeim ökrum eða eytt fyrir þeim jarð- argróða. Hvað græddu þá Þjóðverjar, er sig- urinn unnu, er vegið gæti upp á móti því, er þeir lögðu í sölurnar? Það féllu af þeim 40 þúsundir og sárir urðu 90 þús., og veikir urðu 100 þús. Þeir fengu í skaðabætur hjá Frökk- um 5 miljarða franka eða 360 milj. kr. Það var lítið meira en þeir höfðu orðið til að kosta úr ríkissjóði. Þeir fengu ekkert fyrir það fjártjón og atvinnu- hnekki, er ófriðurinn hafði í för með sór fyrir almenning. En ófriði fylgir ekki einungis mikill manndauði og miklar líkamlegar kvalir og þrautir, og mikil glötun margvís- legra farsællegra hluta, þeirra er menn- irnir eiga og afla sór til þess að gera sór lffið viðunanlegt. Andleg áhrif hans eru ótalin, áhrifin á sálarlíf mannanna, hversu hugsanalíf þeirra ruglast og hjariaþelið gjörspillist. Ef vér virðum fyrir oss þjóðirnar þessar tvær, Frakka og Þjóðverja, hvernig þær höguðu sór ófriðarárið, þá er engu líkara ' en að vér höfum þar fyrir oss tvær sveitir vitstola mannskepna, sem glatað hafa öllum skynsemisgáfum sínum nema alls einni: hugviti til að finna ráð til mein- gerða og tortímingar. Það er altítt um geðveika menn, að þeir verða einmitt svona. Hún fekk beinlínis vitfirrings- kast, þjóðin franska eftir ófriðinn. Og hinum til handa, Þjóðverjum, varð á- vöxtur sigursældar þeirra fádæma harð- ýðgi og hroðafengi. — Búast má við, að ófiiður sá, er nú gengur yfir, beri svip- líkan ávöxt. En þær verða svo sem fyllilega var- ar við ófriðary’gjuna, hinar þjóðirnar,. sem hjá standa og horfa á. Vióskifta- líf þeirra flestra bíður þar af margvís- legan htiekki, þótt hitt beri og við, að ýmsir ábatist á ófriðinum. Það er til marks um, að hér er ekki um neitt smáræði að tefla, að daginn, sem það fróttist til Parísar, að þeir hefðu kvatt heim hvor um sig sendi- herra sína f Pétursborg og Tokio, Jap- anskeisari og Rússa, þá varð þar svo mikið verðhrun á skuldabréfum Rússa fyrir þeim 11 miljörðum franka, er Fraltkar hafa lánað þeim smám saman, að munaði hálfum miljarð. En þótt ekki só nema að vér lesum um orustur og mannavíg, þá muu ilt að bera á móti því, að það örvi og glæði þær miklu leifar harðýgði og til- finningarleysis, er þorri manna elur enn í brjósti sór. Það ber mjög sjaldan við, að hörm- ungar þær og skelfingar, er hernaðinum fylgja, séu settar oss þann veg fyrir sjónir, aö þær verði oss andstyggilegar. Hitt er miklu algengara, að sagt er frá þeim svo snjalt og fjörugt, að bezta skemtun þyki að lesi eða heyra. Svo sagði enskur spekiugur, Fr. Harri- son, um siðspillandi áhrif af bardaga- frásögum 1870: Af óllu því voðaböli, er ófriður þessi hefir í för með sór, er ef til vill ekkert hörmulegra en það, að almenningsálitið er gagneitrað orðið af blóðsýki. Blöðin hafa mánuðum saman fylt oss hinu viðbjóðslega herbúða-orðbragði. Mann. skæðum orustum er lýst fyrir oss dag- lega með andstyggilegri ánægju. Konur og börn eru vanin rækilega við allan hinn ófagra hernaðar-munnsöfnuð. Þau lesa sí og æ um »fallegar atlögur«, »ljómandi« stórskotahríðir og »fjörugar« handskotadembur. Það stórspillir sið- gæðismeðvitund manua, að hafa apa- kynjaða ánægju af því, að hafa her- menskuorðbragðið eftir, og það örvar og glæðir hina hræðilegustu ástrfðu manna, þetta að vera sólginn í að glata og tor- tína, og það eins og slíkt er gert af mestri list og kunnáttu. Og það er hvergi nærri trútt um, að hernaðarórarnir grípi þá, sem engan hlut eiga í ófriðinum. En þó varla svo nú á tímum, að þeir fleygi sór beint út í ófriðarbálið. Þar er við búið svo af- skaplegum ófarnaði og hann liggur stjórnvitringum svo berlega í augum uppi, að mjög er örðugt orðið að kveikja heims-ófriðarbál eða jafnvel þó ekki só nema stórveldisófrið hér í álfu. Til þess þyrftu þeir, sem fyrir ríkjunum ráða, stórveldunum, að missa gjörsam- lega alt vit. Messur á hátíðinnl. Páskadagsmorg- un kl. 8: Haraldur Nielsson kand.; á há- degi: dómkirkjupresturinn; kl. 6: síra Bjarni Hjaltested. Á annan dag páska kL 12: Sigurb. a. Gislason.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.