Ísafold - 05.05.1904, Blaðsíða 1
Xemnr nt ýmist einn sinni eöa
tvisv. i viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
lVa doll.; borgist fyrir miöjan
’úlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bnndin viÖ
áramót, ógild nema komin sá til
útgefanda fyrir 1. október.
AfgreiÖslnstofa blaösins er
Austurstrœti 8.
XXXI. árg.
Reykjavík fimtudaginn 5. maí 1904
27. blað.
jÝíudfadi jMaAýaAÍ'Th
I 0. 0. F. 86568'/2.
Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þrd. á
hverjum mán. kl. 11—1 i spitalanum.
Forngripasnfn opiO mvd. og ld 11
—12.
Frílœkning á gamla spítalanum (lækna-
akólanum) á þriðjudögum og föstudögum
41. 11-12.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op-
án á hve.rium degi kl. 8 árd. til kl. lOsiðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
*annnudagskveldi kl. 8*/2 siðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
<og kl. 6 á hverjum helgum degi.
Landakotsspítali opinn fyrir sjúkravitj-
•ssndur kl. 10'/2—12 og 4—ö.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
iíltl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Bankastjóri við kl. 11—2.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
ik). 12—3 og kl. 6—8.
Landsskjalasafnið opið á þrd., fimtud.
•í3g ld. kl 12—1.
Ndttúrugripasafn, i Vesturgötu 10, opið
<4 sd. kl. 2—3.
Tannlækning ókeypis í Pósthusstræti 14b
1. og 3. mánnd. hvers mán. kl. 11—1.
Stj órnar-andst ö ðuflokkur.
Sumir líta svo á, að bezt fari á því
og æskilegast sé, að landstjórn hvar
-sem er eigi sér enga andstæðinga eða
sngan ar.dstöðu f 1 o k k að minsta
kosti. |>að 8é mikið ólán, ef til slíkr-
ar flokksmyndunar þurfi að taka, og
að sneiða beri hjá því í lengstu lög.
Af henni kvikni misklíðir og ófriður.
En friðinn beri mest að meta og flest
til hans að vinna.
jpetta er bernska.
Engin siðuð þjóð er sú til með
þingbundinni stjórn, að þar sé ekki
stjórnar-andstöðuflokkur.
Svo er og svo verður, um ókominn
aldur svo langt, sem huga fáum vér
rent að svo komnu.
Svo er og svo verður meðan menn-
irnir eru ekki eins og þeir ættu að
vera.
Svo h 1 ý t u r að vera og svo þ a r f
að vera alla þá tíð.
Alla þá tíð er stjórnarandstöðu-flokk-
ur jafn-sjálfsagður, jafn-ómissandi eins
og stjórnin sjálf.
Hann er ómissandi vegna lands og
lýðs.
Hann er ómissandi vegna stjórnar-
innar sjálfrar ekki síður en þeirra er
á að stjórna.
Hvernig fer um hana ella?
Hún spillist bráðlega, verður tómlát,
miðlungi vönd að athöfnum sfnum,
orðum og gjörðum, sjálfbirg, dramb-
söm og drotnunargjörn um skör fram,
ef ekki 3ætir stöðugu eftirliti og að-
haldi. En slíkt eftirlit og aðhald er
ekki til öðru vísi í neinu landi sjálfu
sér ráðandi. far á stjórn sér engan
yfirboðara. Beglulegur andstöðuflokkur,
árvakur og skyldurækinn, er eina ráð-
ið til slíks aðhalds. Engin stjórn er
bvo fullkomin, svo fýtalaus, svo vönd-
uð, að hún þarfnist ekki þess. Hún
þarfnast þess alla tíð, meðan hún er
við lýði, frá vöggu til grafar.
AÍdrei er borið við annað í nokkru
félagi, sem fé hefir milli handa, en að
kjósa endurskoðendur til að yfirfara
reikninga félagsstjórnarinnar, og það
er vanalega hylst til, að hafa þá ekki
úr hóp nánustu vina hennar og vanda-
manna.
Stjórnar-flokknum er ekki trú-
andi til í neinu landi að hafa á hendi
endurskoðun gjörða hennar. f>að er
andstöðuflokkurinn, sem það verður að
gera, ef slík endurskoðun á að verða
annað en kák og hégómi.
Heimsins elzta þingstjórnarríki, Eng-
iand, metur andstöðuflokk stjórnarinn-
ar, hver sem hún er, jafnmikils og
stjórnina sjálfa. Sú skoðun er þar
svo rík og rótföst, að það er orðið að
orðtaki, að tala um »Hans Hátignar
andstöðuflokk*, eins og talað er ann-
ars um »stjórn Hans Hátignar*. f>ar
með er gefið greiuilega í skyn, að kon-
ungur, ímynd þjóðvaldsins og þjóð-
tignarinnar, helgi sér hvorttveggja
jafnt, — að hvorttveggja vinni í lands-
ins, ríkisins þarfir.
Hitt segir sig sjálft, að stjórninni
sjálfri, —- henni er ekki neitt hugleikið
að hafa andstöðuflokk í móti sér, og
það því síður, sem henni e’r meira á-
fátt.
Hún neytir eðlilega allrar orku til
að efla s i n n flokb sem allra mest,
með leyfilegum hætti og óleyfilegum,
vandaðri aðferð og óvandaðri. Hún
rær að jafnaði að því öllum árum, að
sem flestir verði til að veita henni
örugt fylgi, hvað svo sem hún gerir,
hvort heldur er rétt eða rangt. Hún
hefir miklu meiri og betri tök á því
en mótstöðumenn hennar.
Hún á vald á embættum og öðrum
frama, skipun í milliþinganefndir og
hinum og þessum fríðindum öðrum.
f>ví ásæknari sem hún hefir verið í
völdin og því gráðugri sem hún er í
að halda þeim sem allralengst, því
minna skiftir hún sér af verðleikum
og hæfileikum.
Flokksfylgið er henni fyrir öllu.
Hún beitir valdí sínu aðallega til
þess að úthluta fylgifiskum sínum trúrra
þjóna verðlaunum.
Viti hún eiuhverjum undanviliugjarnt
I hjörðinni, vefur hún þann hinn sama
að sér með kjassmáium og blíðuatlot-
um og lætur hann gegn-bakast við
brennheita geisla landsföðurlegrar náð-
ar sinnar.
Hversu illvíg sem hún hefir verið,
meðan hún var að brjótast til valda
og engu eirt þá, engu unað þá öðru
en að alt væri í logandi ófriðarbáli,
þá lýtur alt hennar tal og hennar
málgagna eftir það að friði og sátt-
semi.
H e n n i kemur skiljanlega þ á bezt,
að þeir, sem hún er yfir sett og ekki
beyra til gæðingahjörðinni, hagi sér
eins og sinnulausar rolur og gungur
jarmandi eftir þeim friðarsóninn og
gerandi hvorki að æmta né skræmta,
hvað sem við þá er gert, og hvort
sem gætt er viðunanlega hagsmuna
lands og lýðs eða alls ekki.
Stjórnar-andstöðuflokkur er jafn-
ómissandi í hverju landi eins og stjórn-
in sjálf.
f>að er sannleikur, sem allir þurfa
að láta sér skiljast og hafa hugfastan.
Ekki sízt þjóðstjórnar-frumbýlingar.
En fjandsamleg þarf andspyrnan
alls ekki að vera. Æskilegast, að hún
sé það ekki. Hún getur verið full-
alvarleg án þess og komið að góðu haldi.
f>að er mest undir stjórninni komið,
hvern brag hún hefir á sér sjálf.
Hvort hún sýnir heldur af sér hóglæti
og óhlutdrægni, alúð og elju, eða það
sem því er gagnstætt, svo sem ofstopa
og þó einurðarleysi, einþykni og þó
ráðaleysi, undirferli og þó kjassmælgi.
Einarðlegri og alvarlegri stjórnar-
andstöðu getur fylgt og á helzt að
vera samfara alúðarfylgi af andstöðu-
flokksins hálfu í öllu því, er stjórn
vinnur til nytsemdar að skyngóðum
almannarómi. Að landsins hag er öll-
um skylt að vinna, og á öllum að vera
ljúft að vinna, hver sem fyrir því
beitist.
En hitt þurfa allir að hafa hugfast
alla tíð, a ð
andstöðu-leysi leiðir til andvara-Ieysis.
Byggingarefnarannsóknir
og
byggingartilraunirnar.
Eftir cand. polyt. Jón Þorláksson.
I.
f>að er mörgum kunnugt, að Guðm.
héraðsl. Hannesson vakti fyrstur
manna máls á því af alvöru (vorið
1899), að eitthvað yrði að gera til þess
að koma húsagerð hér á landi í við
unanlegra horf en hún er nú; hann
fekk því framgengt, með fylgi nokk-
urra ötulla manna, að alþingi veitti
sumarið 1899 fé »til rannsóknar á
byggingarefnum landsins og leiðbein-
ingar i húsagerð«.
Til þess að hafa starf þetta með
höndum var ráðinn Sigurður Péturs-
son mannvirkjafræðingur; en því mið-
naut hans skamma stund við; hann
dó haustið 1900, áður en fyrsta starfs-
ár hans var á enda.
f>á fekst enginn til að halda starf-
inu áfram, og lá það því niðri þar til
um ársbyrjun 1903, að mér var falið
starfið á hendi samkvæmt tillögum
Búnaðarfélags íslands. Síðan hef eg
verið að kynna mér það sem hcr að
lýtur, húsagerð og byggingarefni, bæði
innanlands og utan, og vil eg nú
leyfa mér að gera stuttlega grein fyr-
ir, í hverju starfið er fólgið, og hvern-
ig eg ætla að verði að haga fram-
kvæmdumum til þess að von sé um
góðan árangur.
Fyrsta atriðið er rannsókn á bygg-
ingarefnum landsins.
f>að eru, sem bunnugt er, ekki
mörg innlend efni, -sem kostur hefir
verið á til húsagerðar til þessa: grjót,
sem víðast hvar er slæmt, torf, sem í
sjálfu sér hefir mikla ókosti, sandur til
þess að blanda með steinlím, og reka-
viður, sem tæplega getur talist með
innlendum byggingarefnum og er nú á
þrotum víðast hvar.
Hrís, melstöng og hey er sumstað-
ar notað undir torf í þök og er að
vísu betra en ekkert, en getur þó
tæplega með byggingarefnum talist.
Sú spurning, sem flestum verður
fyrst fyrir, er því þessi, hvort ekki sé
hægt að finna nein n ý byggingarefni
í landinu sjálfu, sem geti komið að
nokkru leyti í stað hinna útlendu efna,
sem nú eru notuð, og að nokkru leyti
í stað hinna innlendu efna, t. d.
torfsins, sem eru brúkuð nú, en hafa
reynst miður vel að ýmsu leyti.
Ekki er svo að sjá, að um auðugau
garð sé að gresja, er leitað er að nýj-
um byggingarefnum.
Yíða erlendis eru flest hús gerð úr
tigulsteini að veggjum, en tigulsteinn
er búinn til úr leir eða deigulmó.
Ekki er ólíklegt að hægt sé að búa
til tigulstein úr íslenzkum deigulmó,
og er þá von um að þar með fáist
nýtt innlent byggingarefni; en þó efn-
ið sé iunlent, er ekki svo að skilja, að
það kosti ekki neitt; tigulsteinn verð-
ur ekki ódýrari á Islandi en annars-
staðar, heldur hitt; og meðan vegir
og samgöngufæri eru í svipuðu Iagi og
nú, má heita frágangssök að flytja
þann tigulstein, sem þarf í heil hús
eða bæi, svo langan veg á landi, að
nokkru nemi. Er nú óhætt að segja,
að þó að tigulsteinsbrensla komist á
við stærri kaupstaði og í sjávarpláss-
um, þá hlýtur það að minsta kosti að
eiga langt í land, að alment verði að
byggja úr tigulsteini upp til sveita;
til þess að það gæti orðið verulega
hagkvæmt, þyrfti að búa til tigulstein
því nær á hverjum bæ, en á því eru
býsna-miklir örðugleikar.
Fyrst og fremst mun leirinn hvergi
nærri vera alstaðar til, og svo eru
mjög miklir örðugleikar á því að brenna
tigulBtein í smáum mæli, þar sem veð-
urfar er eins óstöðugt og rigningasamt
og hór á landi gerist; það þarf að
hafa nokkurn veginn fullkominn út-
búnað, og til þess að það geti borgað
sig, verður tigulsteinsgerðin að vera í
nokkuð stórum mæli.
Ef gera á veggi úr tigulsteini er
ekki heldur nóg að hafa steininn sjálf
an, heldur þarf einnig steinlím til að
leggja hann í; steinlímið getur annað-
hvort verið slökt kalk og sandur, eða
sement og sandur; sement er búið til
úr kalki og leir.
J>ví er það, að hvernig sem stein-
límið er haft, þá er kalk dýrasta efn-
ið í því.
En nú virðist svo, sem landið sé
gjörsnautt að kalki, og eru þá litlar
líkur til, að fá megi innlent steinlím.
Raunar hefir fundist ofurlítið af kalki
1 Esjunni á Kjalarnesi, og var það
unnið nokkur ár, flutt til Reykja-
víkur og brent þar; samt varð ekki
framhald af þessu, enda var þessebki
von, með því að kalkið virðist vera