Ísafold - 05.05.1904, Page 2
106
mikill fjöldi farþega, þar á meðal banka—
stjórafrú Emil Scbou og sonur þeirra ung-
ur, frk. Þóra Friðriksson, frk. Soffia Daní-
elsson, frk. Bentzen (heitmey síra Bjarna
Hjaltested), frk. Sigríður Sigurðardóttir^
kaupmennirnir Pétur J. Thorsteinsson frá
Bildudal, R. Riis frá Borðeyri og P. W.
Rnmohr frá Hamborg; Reykjavíkurkaup-
mennirnir Pétur Hjaltesteð úrsmiður og
Siggeir Torfason; C. Flensborg skógfræð-
ingur og cand. polyt. Jón Þorláksson;
húsfrú Dórunn Bjarnadóttir (kona Arnhj.
f. vitavarðar); verzlunarmennirnir Finnur
Ólafsson (frá Fellsenda) og Þórður Lýðsson;
sænskur málfræðingur, er Sadig heitir;.
Andersen lyfsalasveinn o. fl.
Flutningur búnaöarskólanna.
|>að hefir ávalt verið sannfæring
mín, og er það óbreytt enn, að það
væri landbúnaðinum og landinu í heild
sinni til m e s t a t j ó n 8 og niður-
dreps, ef búnaðnrskólarnir væru flutt-
ir úr sveitinni í kaupstaðiua. Eg er
fyllilega samdóma öllu því, er stend-
ur í hinum ágætu greinum í Isafold
eftir skólastjóra Torfa Bjarnason í
Ólafsdal.
Eg vil að eins taka það fram, að
þótt eg álíti, að betra sé, að verkleg
kensla fari fram á búnaðarskólasetr-
unum, þá vil eg einnig, að þeir skól-
ar, t. d. Hólaskóli, þar sem ekki er
nein verkleg tilsögn, séu alls ekbi flutt-
ir í kaupstað.
Auk alls þess, sem hr. Torfi telur
að mæli móti því, vil eg enn nefna
eina ástæðu, sem er sú, að samband-
ið á milli kennaranna og píltanna
verður miklu á s t ú ð 1 e g r a og
i n n i 1 e g r a, þegar þeir eru allir á
sama heimili í sveit.
þeir hafa miklu meira saman að
sælda.
Góðir kennarar geta þá haft miklu
meiri áhrif á vilja og tilfinningar pilta^
þeir geta þá miklu betur en annars
vabið og glætt alt gott og göfugt með
piltum, þegar ekkert glepjandi og spill-
andi bæjarlíf er annars vegar til þess
að freista þeirra.
Eg legg mikla áherzlu á þetta.
Kennarar skólanna ættu betur hér
eftir en hingað tií að 1 e g g j a r æ k t
við vilja og tilfinningalíf
nemendanna, þar eð þetta er
að mínu áliti afarmikilsvert fyrir lífið.
Vildi eg gjarnan geta skýrt þetta bet-
ur síðar; því að þessu hefir verið
gefinn alt of lítill gaumur.
Allir málsmetandi menn í mínu
bygðarlagi, þeir er eg hefi átt tal viðr
hafa þá skoðun, að alls ekki ætti að
flytja búnaðarskólana í kaupstaði.
Eg skal geta þess, að í búnaðar-
skólanum á Hólum eru nú béðan úr
sveit nokkrir piltar, sem hefðu alls
ekbi í hann farið, ef hann hefði verið
í baupstað.
Viðvík 6. april 1904.
Z. Halldórsson.
svo lítið og svo örðugt að ná því, að
kostnaðurinn verður meiri en að kaupa
kalkstein erlendis og flytja til lands-
ins.
Mér vitanlega hefir ekki fundist
kalk annarsstaðar á landinu, og ekki
hef eg orðið var við það á ferðum
mínum.
Kalk er ákaflega dýrt í verzlunum
hér og hefir víst alt af verið það; af-
leiðingin hefir auðvitað orðið sú, að
það befir verið mjög lítið notað. Sum-
staðar erlendis, þar sem gott grjóttak
er, er alsiða að gera sér hús úr grjóti,
höggnu eða klofnu, en auðvitað er
það lagt í steinlím; þetta er mjög fá-
títt hér á landi, og er það því að
kenna fyrst og fremst, að þótt grjótið
sé víða við hendina, þá verður stein-
límið of dýrt.
Nú er hætt við, að sama yrði ofan
á, þótt tigulsteinn fengist fyrir lítið
verð til þess að gera; margir mundu
ekki hafa efni á að byggja úr honum,
af því að steinlímið er of dýrt.
Eg vil þó geta þess, að það hlýtur
að vera hægt að fá steinlím ódýrara
en nú gerist. Sement er selt með
sanngjörnu verði, að minsta kosti í
Reykjavík; það kostar þar 8 kr. tunn-
an eða jafnvel dálítið minna, og það
er ekki hægt að selja það ódýrara, ef
nokkur hagur á að vera að verzlun-
inni. En kalkið kostar þetta um 14
kr. tunnan og jafnvel meir; verðið gæti
að vísu verið nokkuð lægra, en verð-
hæðin hlýtur að vera því að kenna,
að kalkið er flutt til laudsins brent
og hálfslökt (mjölkalk), en það er vara-
samur flutningur vegna eldhættu, og
þarf því dýr ílát undir það (steinolíu-
tunnur), og flutningsgjaldið er hátt.
Betra væri að flytja óbrendan kalk-
stein í heilum skipsförmum, og brenna
svo kalkið í einföldum kalkofnum jafn-
óðum og þarf að nota það eða hægt
er að selja það; þá væri hægt að selja
kalktunnuna á 7—8 kr. með sæmi-
legum hagnaði; sá ávinningur mundi
og fylgja því, að þá yrði kalkið mik-
ið betra, er það væri slökt nýbrent;
nú er það vanalega orðið töluvert
skemt, þegar farið er að nota það.
Ein tunna af góðu kalki jafngildir að
minsta kosti tveim tunnum af sementi
til steinlímingar í ofanjarðarveggjum.
f>etta yrði því töluvert ódýrara en að
hafa til þess sement, eins og nú ger-
ist, að minsta kosti fyrir þá sem eiga
ekki mjög langt að sækja til kalk-
ofnsins.
Af innlendum efnum er það fátt
annað en leirinn, sem komið getur til
mála að gera úr byggingarefni. Er
því nokkurn veginn auðséð, að ef ekki
væri gert annað en að leita að nýj-
um byggingarefnum, þá stæðu flestir
litlu nær en áður með húsagerð sína;
flesta mundi skorta bæði fé og þekk-
ingu til þess að nota sér þessi efni,
og afleiðingin yrði sú, að almenning-
ur bjargaðist eins og hingað til og
mundi byggja úr torfi af litlum efn-
um og enn þá minni þekkingu, en
framfaranna ekki gæta nema í kaup-
stöðunum og hjá einstöku efnamönn-
um.
f>að er því fyrirsjáanlegt, að ef veru-
legt og alment gagn á að verða að
byggingarefnarannsóknunum, má ekki
láta hér staðar numið; það verður
einnig að rannsaka, hvort ekki muni
vera hægt að byggja viðunanlega úr
þeim efnum, innlendum og útlendum,
sem nú höfum vér, og það verður að
kenna þjóðinni að byggja; hvorttveggja
þetta er vandasamt starf og hlýtur að
þurfa til þess langan tíma, mikla elju
og íyrirhöfn.
Alþýða hér á landi stendur alveg
sérstaklega að vígi við húsagerð. Land-
ið er tiltölulega snautt að þeim bygg-
ingarefnum, sem aðrar þjóðir nota;
veðráttan er köld og rigningasöm, og
þess vegna óhjákvæmilegt að hafa hlý
og vatnsheld húsakynni; landið elds-
neytissnautt víða; efnahagurinn ekki í
svo góðu lagi, að landsmenn geti keypt
að góð byggingarefni, eða nóg elds-
neyti; þjóðin hins vegar á því menn-
ingar8tigi, að hún gerir tilkall til
sæmilegra húsakynna; ofan á alt hitt
bætist, að í sumum héruðum má eiga
von á laud8skjá]ftum, sem öllu um-
turna. Eru því alveg óvenjulegir örð-
ugleikar á því að kenna alþýðu hér
húsagerð. Enginn veit hvernig á að
byggja og mér vitanlega er hvergi
hægt að læra það til hlítar, því hvergi
stendur eins á og hjá oss, nema eftil
vill með þjóðum, sem eru enn þá
skemmra komnar áleiðis og una við
enn þá laklegri húsakynni; en af þeim
verður ekkert lært.
Enginn má þó skilja þetta svo, að
ekkí sé hægt að læra n e i 11 af öðr-
um þjóðum.
Almennar byggingarreglur eiga við
hvar sem bygt er og hvernig sem það
er gert og úr hverju sem bygt er, og
þær verðum vér að læra af þeim, sem
lengra eru komnir en vér; flestir —
ef ekki allir — sem byggja hér á
landi, margbrjóta þær í hvert skifti
sem þeir byggja, og þá er ekki von
að vel fari.
F y r s t þurfum vér auðvitað að
læra þessar almennu reglur fyrir húsa-
gerð, en það er ekki nóg; sérstakleg-
ar ástæður hér á landi valda margvís-
legum vafa, sem vér getum hvergi feng-
ið úr leyst.
En vér v e r ð u m að fá leyst úr því.
Vér megum til að koma upp viðun-
anlegum húsakynnum og nokkurnveg-
in endingargóðum, fyrir það sem aðr-
ar þjóðir mundu kalla sama sem ekk-
ert verð.
Vér verðum að leysa úr þessum
vafaatriðum sjálfir.
það er býsna-margt, sem vér þurf-
um að komast að niðurstöðu um.
Veggirnir, þökin, milligerðirnar, glugg-
arnir, stromparnir, hitunin, fyrirkomu-
lagið innan —, alt þetta getur hvert
um sig verið á marga vegu og hlýtur
að kosta mikla umhugsun og reynslu,
áður komist verður að viðunanlegri
niðurstöðu.
Til þe38 að skýra þótta vil eg koma
með nokkrar sundurlausar athuga
semdir um torfVeggi, torfþök og hita
í sveitabæjum.
Tryggvikongur
(Kong Trygve), skip »Thore«-félags-
ins, skipstjóri Emil Nielsen og fyrsti
stýrimaður Egidiussen, báðir áður á
»Scotland«, kom í morgun frá útlönd-
Skipið hafði fengið mjög vont veður
alla leið frá Leith, lá í gærdag allan
við Vestmanneyjar í austanlandsynn-
ingBroki, en fekk ekkert aðhafst þar.
Farþegar hingað: Sveinn Sigfússon
kaupmaður, ekkjufrú Köhler Christen-
sen (áður verzlunarstjóra hér í bæn-
um) með börn þeirra, fröken Thor-
steinsen af ísafirði, þórður Magnús-
son bókbindari og 6 Pólverjar?
Farþegar segja skipið ágætt sjóskip
og vel hraðskreitt, og farrými ágætt.
Félagið hefir látið bæta við 1. far-
rými 2 nýjum sölum, öðrum fyrir karl-
menn og hinum fyrir kvenfólk; þar
að auki nýjum Bvefnherbergjum.
Nýir gufukatlar voru látnir í skipið
í fyrra.
Veðrátta.
Nú er löks fariS að lina og hl/na
nokkuð hér. Kuldi hafði verið ákaflega
mikill og fannkingi fyrir norðan, er
Vesta fór þar um. En hvergi sá þó
neitt til hafíss.
Sundlaugarmálið
hefir bæjarstjórn til umræðu og á-
lyktunar í dag.
Nefndin í málinu hefir lokið starfi
sínu. Formaður hennar og framsögu-
maður er héraðslæknir Guðm. Björns-
son. Hún leggur það til, erhérsegir:
1., að gerð sé ný sundlaug í barð-
inu að vestanverðu við laugalækinn
milli þvottahúsanna og Laugalands;
2., að laugin sé höfð 30 álnir á
lengd og 15 á breidd, 2 álna djúp í
annan endann og 4 álna í hinn, vegg-
ir hlaðnir úr grjótinu í gömlu sund-
lauginni, en steinarnir límdir saman
með steinlími, gólfið steinsteypt og
vatni veitt í laugina í járnpípum úr
læknum fyrir ofan þvottalauginu og
eins úr henni aftur;
3., a ð haft sé skýli yfir allri laug-
inni, sundhús, er sé henni jafnlangt
og jafnbreitt, með skúr frammeðann-
ari hlið, og þar í 2 álna gangur að
endilöngu, og fram með honum utan
15 laugarklefar; þar á að klæða sig
úr og í.
Kostnaður áætlaður 4500—5000 kr.
Gizkað er á, að kosta mundi 3—4
þús. kr. að gera við gömlu sundlaug-
ina til hlítar: hlaða upp veggina og
steinlíma, leggja í hana steinsteypu-
botn, reisa þar nýtt hús á líkri stærð
og það, sem þar er nú og er orðið
fúið; og fengist þó aldrei h r e i n t
vatn í hana.
f>essi fyrirhugaða umbót, ný laug
með nýju húsi yfir henni allri, hefir
stórmikla yfirburði yfir hitt:
1., hreint vatn í lauginni í stað
hins grugguga og óhreina í þeirri
gömlu;
2., hægt að nota sundlaugina
a 11 á r i ð, í stað 4 mánaða, —og þó
ekki það, ef óveðursdagar eru frá
taldir;
3., hægt að k e n n a þar sund a 11
á r i ð, jafnt vetur og sumar.
Ný laug svona gerð mundi gera tí-
fa.lt gagn á við hina gömlu um fram-
för í þrifnaði og sundkunnáttu.
Synt geta í einu 25 menn í svona
laug, þ. e. 30 x 15 álna; ósyndir þurfa
miklu minna svæði, eða svo sem J/8
á við synda. f>að geta verið 4C manns
í lauginni í einu, ef helmingurinn er
syndur.
Sé hún notuð 10 stundir á dag og
J/2 stund ætluð hverjum manni, til
sunds eða laugar, þá geta notað hana
800 manns á dag.
þetta yrði hin ódýrasta stofnun til
sunds og lauga, sem til er í nokkrum
bæ í heimi líklega. Nóg vatn hitað
kostar annarsstaðar geysimikið fé, en
hér ekki neitt, nema dálítið af járn-
pípum mjög stuttan spöl.
Hér verður varla nefnd nokkur fram-
farastofnun, er gera mundi nándar-
nærri annað eins gagn með jafnlitl-
um tilkostnaði.
Skipströnd.
Kaupskipið Á 8 t a frá Keflavík rak
upp þar í gær og braut alveg, en
mannbjörg varð. |>að var komið ný-
lega frá útlöndum með alfermi af vör-
um, og búið að eins að ná úr því
þriðjung af þeim.
Fiskiskútu frá Stykkishólmi, er
Æ g i r hét, var bleypt til skipbrots
nýlega upp í vörina á Látrum við
Látrabjarg; nærri sokkið af leka.
Skipshöfn komst á land þurrum fót-
um, og kom heim til Stykkishólms frá
Patreksfirði með Vestu. Skipstjóri,
þorsteinn Jóhannsson, átti skipið móti
Sæmundi kaupmanni Halldórssyni,
f>að var keypt þangaö í fyrra frá
Bíldudal.
Með póstgafusk. Ceres, kapt. da
Cnnha, sem hér kom i gærmorgun, kom
Sóknanefndarkosningin hér i bæn-
nm fór svo í fyrra dag, a(T þeir vorn allir end-
urkosnir, sem verið höfðu í nefndinni, og
sá maður i stað Valg. heitins Breiðfjörð,
er gegnt hafði í forföllum annarra (Sig.
Einarsson á Seli),— með um og yfir 40
atkvæðum, sem sé Krisiján Þorgrímsson
kaupmaður, Knud Zimsen verkfræðingur,
Ingjaldur Sigurðsson hreppstjóri, Sig-
uróur Einarsson bóndi á Seli ogSigurð-
ur Jónsson kennari.
Þeim, sem steypa vildu gömlu nefndinni
frá völdum, tókst að hafa saman um 2C
atkvæði mest handa sínum mönnum, og
höfðu þó haft mikið fyrir, látið prenta um
200 atkvæðaseðla með nöfnum þeirra og
dreifa út nm allan hæ. Það hafði verið
breytt til og hætt við bankamennina, en
vinzað úr »lífverðinum« sæla, þessum sem
fylgdi ráðlierranum og móðurbróðurnum til
ísafjarðar i vetur.
Bankastjórinn (Tr. G.) fekk þó 2 atkvæði
En formaður sóknarnefndarinnar hinnar
um.