Ísafold - 22.06.1904, Side 1
Kemnr út ýmist einu sinni eða
tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
1 */» doll.; borgist fyrir miðjan
’úli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
AfgreiÖslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXXI. árg.
Mwífadá JftaAýaAMh
J. 0. 0. F. 866249
Augnlœlcning ókeypis 1. og 3. þrd. á
överjum mán. kl. 11—1 í spltalanum.
Forngripasafn opiÖ mánud., mvd. og
ld. H-12.
Hlutabankinn opinn kl. 10—3 og
'«7*-7 V..
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op-
in á hverjnm degi kl. 8 árd. til kl. lOsiðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
sunnudagskveldi kl. 8‘/8 siðd.
Landakotskirkja. GuÖsþjónusta kl. 9
og kl. 8 á bverjum helgnm degi.
Landakotsspítali opinn fyrir sjúkravitj-
•endur kl. 10‘/s—12 og 4—6.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
11—2. Kankastjórn við kl. 12—1.
Bankastjóri við kl. 11—2.
Landsbókasafh opið hvern virkan dag
%l. 12—3 og fel. ö—8.
Landsskjalasafnið opið á þrd., fimtnd.
>og ld. kl 12—1.
Ndttúrugripasafn, i Vesturgötu 10, opið
á sd. kl. 2—3.
Tannlœkning ókeypÍB i Pósthússtræti 14b
1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
Þjóðhátlö
Reykjavikur
verður haldin á Landakotstúninu einB
og að undanförnu 2. ágúst 1904.
Nánara auglýat síðar.
í aðalnefnd þjóðhátíðarinnar.
Reykjavík 22. júní 1904.
Kristján Þorgrímsson. Indriði Einarsson.
Hannes Hafliðason. Pétur Jónsson.
Guðmundur Jakobsson.
Af óíriöinum
Fréttir af ófriðinum m. fl. ná til
miðvikudags 15. þ. m.
Flugufróttin um að Port Arthur
væri unnin (10. þ. m.) alveg til-
h æ f u 1 a u 8 .
Japanar eiga enn langa leið að
borginni.
Helzta viðureign þeirra og Rússa
nýlega varð mánudag og þriðjudag í
vikunni aem leið, 13. og 14. þ. mán.,
nærri Port Adams, meira en 11 mílur
danskar fyrir norðan Port Arthur.
Rússar báru lægra hlut. Mannfall
þó ekki mikið.
Sömu dagana höfðu Japanar skotið
af sjó á Rússa norðar á ströndinni
Bömu, við Liatung-flóa, og atökt þeim
A flótta.
Nær 700 lík rússnesk hafa Japanar
fundið í valnum eftir orustuna 25. f.
mán. við Nanshan (eða Kin-tsjá) og
jarðað þau með virktum.
Búist við höfuðorustu þá og þegar
norður í Mandsjúriu, þar sem þeir
horfast í augu, Kuropatkin og Kuroki.
Kuropatkin treystir sér ekki til að
veita Port Arthur neitt fulltingi.
Japanar náðu nýlega mörgum vista-
Bkútum, er voru á leið til Port Arthur.
Regluleg umsát um Port Arthur á
óefað langt í land enn, hvað þá meira.
Plotadeild Rússa í Vladivostock hafði
Reykjavík miðvikudaginn 22. júní 1904
41. blað.
komistút þaðan ogvar tekin til að skjóta
á bæi og virki Japana heima fyrir, næst
sundinu milli Japans og Kóreuskaga
sunnan til. þar komu herskip Japana
í móti þeim og heyrðist skothríð þang-
að nærri ey, sem heitir Ibi-shima.
það var fyrra þriðjudag, 14. þ. m.,
og var ófrétt, hvernig þeirri viðureign
hefir lokið.
Rússar áttu sór 3 bryndreka í
Vladivostock, mikla og hraðskreiða,
Rossia, Gromoboi og Rurik, 11—12
þús. smálestir. það er haft fyrir satt,
að ferðinni hafi heitið verið til Port
Arthur, og er djarft í ráðist. þangað
er á 2. hundrað vikur sjávar úr Kóreu-
sundi og meginfloti Japana þar í leið
fyrir.
Skrydloff aðmíráll hafði verið kom-
inn nýlega til Vladivostock. Hann
hefir þe8su ráðið sjálfsagt. Hann átti
að taka við af Makaroff aðmfrál, sem
féll 13. apríl eða sökk með Petropaul-
ovsk; en komst aldrei til Port Arthur.
Eitthvað á Rússum að hafa tekist
að losa um hafnarteppuna fyrir Port
Arthur, og talað um, að einn bryn-
dreki, Novik, hafi komist út. En það
kemur þeim að litlu haldi, erJapanar
sitja úti fyrir með margt skipa. þeir
hleypa og niður sprengivélum úti fyr-
ir höfninni til frekari tryggingar.
f>að er mælt, að Rússar hafi tekið
fallbyssur af skipum sínum flestum,
sem inni eru á höfninni, skemdum og
óskemdum, og flutt á land 1 virki þar.
Ymsar eru spár um það, hve lengi
Port Arthur muni fá varist. Sumir
segja fram á haust. En ekki eru nein-
ar reiður á slíku að henda, hvorki af
né á. Hitt kemur öllum saman um,
að mjög séu virkin traust og mikil.
þau hafa verið sögð alveg óvinnandi.
En hreysti Japanna og herkænska
hefir og sýnt sig vera frábæra. þess
ber þó að gæta, að stórum liðfleiri
hafa þeir verið að jafnaði, er fundum
hefir saman borið við Rússa til þessa,
einkum í höfuðorustunum tveimur, við
Yaluelfi og Kint sjá. Rússum er marg-
falt óbægra um liðsafnaðinn en Jap-
önum. það er þeirra mesta meín. En
enginn frýr þeim hreysti heldur. Eink-
um eru þeir orðlagðir fyrir þrautseigju.
Tala setuliðs Rússa i Port Arthur
eða varnarhers þar leikur á 25—38
þús. En sóknarher Japana á næstu
grösum er meiri en 100,000. Hitt
munar og miklu, hve hægra er að
verja en sækja öflugan kastala. Sum-
ir segja vistaskort mikinn og veikindi
í Port Arthur. Aðir bera í móti. jpað
eru kínverskir flóttamenn þaðan, er
tíðindi bera helzt, og segir sitt hver.
Rús3ar höfðu sig á brott úr Dalny
þegar eftir orustunavið Kin tsjá. Jap-
anar settust þar á öðrum degi eftir.
Rússar böfðu hleypt út afbrotamönn-
um úr tugthúsi borgarinnar. ; feir
rupluðu og rændu, og lögðu eld í bæ-
inn víða. Japanar tóku þar í tauma.
Nokkurn veginn óskemdar hittu Jap-
anar fyrir skipakvíar þær hinar miklu,
er Rússaf höfðu þar gera látið með
ærnum kostnaði. það kemur þeim
vel. far geta þeir bætt skip sín, ef
á Iiggur.
Vistaskortur mikill í Vladivostock,
og var að verða ljósmetislaust.
Ribbaldaháttur enskra botn-
vörpunga.
Sýnd, en ekki gefin gæs.
Svo má landssjóður segja og yfir-
völdin hér, er kemur til botnvörpungsins,
þessa sem getið var um daginn að
höndlaður hefði verið suður í Keflavik
14. þ. m.
Hekla fór suður síðan daginn eftir,
15. þ. m., að tilmælum sýslumanns,
og mældi mið þau, er landsmenn (kær-
endur) höfðu séð sökudólg á; reyndust
þau vera langsamlega í landhelgi.
Skipstjóri þrætti fyrir brotið. En
vitni voru nóg í móti honum, Hann
hafði haft botnvörpudrátt dögum sam-
an úti í Leirusjó langsamlega í land-
helgi. Sýslumaður dæmdi hann þá í
100 pd. aterl. (=1800 kr.) og afla
upptækan og veiðarfæri. Skipið var
hlaðið fiski og albúið til heimferðar.
Skipstjóri áfrýjaði dóminum.
Hekla fór með skipið inn í Hafnar-
fjörð til halds þar.
Sýslumaður vildi' að mælt er fá 2
Heklumenn lánaða til varðgæzlu á
skipinu meðan það væri f haldi. það
fekst ekki. f>á fór hann fram á, að
vélmeistari 6 Heklu tæki stykki úr
gangvélum botnvörpungs og gerði hann
þarmeð óskriðfæran. Vélmeistarinn af-
sagði það, eftir að þeir höfðu borið sam-
an ráð sín, hann og yfirmaðurinn á
Heklu. Mun hafa talið sér það of
mikinn ábyrgðarhluta, ef skipinu yrði
háski búinn á legunni í stórviðri.
Slíkt er þó raunar óhugsunanlegt á
jafngóðri höfn sem Hafnarfjörður er
um hásumar og með meira en nógum
legufærum. Auk þess bar Býslumaður
ábyrgðina og ekki vélmeistarinn. f>etta
var eina örugga ráðið til þess að hafa
skipið í haldi, og mun vera alsiða er-
lendis, sérstaklega einmitt á Eng-
landi.
Hekla hraðaði sér á brott til Reykja-
víkur. Henni lá á að komast til Fær-
eyja fyrir 23. þ. m. Hún hafði þó
raunar fyrir sér fulla viku til þess.
f>ví þetta var 16. þ. mán., fimtudag-
inn að var.
f>á setti sýslumaður 4 Hafnfirðinga
út í skipið í varðgæzlu skyni.
Laugardagskveldið var fær skipstjóri
talskeyti héðan frá yfirmanni á enska
herskipinu, Bellona, er hér lá á höfn-
inni, að finna sig tafarlaust hingað.
Hann bregður við þegar sunnan að
gangandi.
Skömmu síðar vill stýrimaður kom-
ast á land af botnvörpungnum. Seg-
ist vera frá sér af tóbaksleysi. |>etta
er látið eftir honum og rær varðmað-
urinn einn hinn íslenzki stýrimann til
lands. Honum dvelst þar alllengi.
Loks kemur hann út aftur á stolinni
kænu. |>að varlöngu eftirháttatíma. Að
lítilli stundu liðinni taka þeir eftir því,
varðmennirnir íslenzku, að farið er að
kynda undir gufukatlinum. Síðan er
létt akkerum og lagt á stað út fjörð.
það var kl. um eða undir 2 um nótt-
ina. f>egar komið er út í Leir svo
nefndan, utarlega í fjörðinn, veita
skipverjar varðmönnum atgöngu og
skipa þeim niður í kænuna stolnu.
f>eir þorðu ekki annað en að hlýða.
Einn þæfðist þó fyrir. Honum hrunda
þeir niður. f>að var tæpast, að fleyt-
an bæri þá alla 4. Og ekki var árin
nema ein. Veður var kyrt ogkomustþeir
til lands seint og síðar meir, eitthvað
nálægt Hvaleyrarhöfða. f>eir hröðuðu
sér inn i Fjörð og áfund sýslumanns;
vöktu hann upp. j?á var kl. orðin 4
um nóttina. Hann brá þegar við inn
til Reykjavíkur fótgangandi. Mun
hafa ætlað að hafa uppi á skipstjóra.
En hann var hvergi hér að finna.
Hitt kuunu menn honum að tjá hér,
að enskur botnvörpungur, er hór var
staddur, hefði lagt út um kveldið
seint, skömmu eftir að skipstjórinn
seki var hingað kominn; og þótti þá
enginn efi á þvf leika, að þar mundi
hann hafa tekið sér far og hitt sína
menn einhversstaðar úti í flóa, en þeir
haldið sem hraðast til hafs og kveðið
kátir: brast snaran, burt sluppum
vér.
Botnvörpungur þessi heitir Carry
Anna, frá Grimsby (G. Y.4), og skipstjóri
Henry BaBkcomb, bróðir aðalútgerðar-
mannsins og meðeigandi í útgerðinni.
Hefir því verið ant um í meira lagi, að
komast úr greipum réttvísinnar hér.
Kvað hann og hafa gerst hér brotleg-
ur áður, fyrir mörgum árum og verið
sektaður.
Skipskjölum heldur sýslumaður eftir.
Ekki er hætt við fyrir það, að vér fá-
um neina rétting þessa máls. Yfir-
maður á Bellónu kvað vera allur á
bandi sökudólgs, trúir því sem hann
segir um sakleysi sitt eða læzt trúa.
Ekki líklegt þó, að hann hafi verið
beint í ráðum um hrekkjabrögð þau,
er hér voru höfð í frammi, þótt grun-
samt só um þessi skilaboð eftir skip-
stjóra.
Hinn seki skipstjóri verður auðvit-
að látinn skifta um skip og jafnvel
skipshöfnin öll. f>á verður ilt að
finna hann eða þá félaga, þótt hér
yrðu við land síðar méir. Auk þess
er haft eftir honum, að hann hafi verið
alráðinn að hætta sjóferðum. þetta
hefði átt að verða síðasta ferðin hvort
sem var.
Fénaðarsýning
var haldin að Varmá í Mosfellssveit
sunnud. var, fyrir þann hrepp og Kjal-
arne8. f>ar var af sauðfé ura 90,
margt af kúm, 8 naut, 17 hryssur og
2 folar. Eggert bóndi Briem í Viðey
hlaut 1. verðlaun, 15 kr., fyrir 3 miss-
ira bola. Fyrir kýr hlutu þeir, Guð-
mundur bóndi á Esjubergi Kolbeins-
son og Sturla kaupm. Jónsson (Braut-
arholtsbúið) fyrstu verðlaun, 12 kr.
Fyrir hross voru ekki veitt nein fyrstu
verðlaun; en önnur verðlaun, 10 kr.,
fekk Guðm. á Esjubergi fyrir 4 vetra
fola, ættaðan úr Skagafirði. Einhver
verðlaun voru veitt fyrir 30 kindur.
Fyrir sýningunni stóðu þeir Guð-
mundur bóndi í Elliðakoti Magnússon,
Eggert í Viðey og Jón Jónatansson
búfræð. f Brautarholti, auk Guðjóns
Guðmundssonar búfræðiskand. og ráðu-
nauts, er hefir umsjón með öllum
fénaðarsýningum af Landsbúnaðarfé-
lagsins hálfu.
Sýningarsvæðið var á völlunum hjá
ánni (Varmá) við þjóðbrautina. þar