Ísafold - 22.06.1904, Qupperneq 3
163
Kárastöðum i Borgarhreppi (sem nýlega er
dáinn), og frú Margrétar, síðari konu f>or-
steins prófasts Hjálmarsen i Hítardal. Hjá
Sigurði ólst Jón upp, þangað til hann var
18 ára gamall, og naut þar góðs nppeldis,
eftir þvi sem tiðkaðist meðal bænda á þeim
timum. —
Eftir að Jón fór frá fóstra sinum, vann
hann fyrir sér i vinnumensku i 11 ár. —
Árið 1851 giftist hann Ragnheiði Olafs-
dóttur frá Helgastöðum, og tók þá við búi
eftir föður sinn, í Tungu. En ekki hjó
hann þar nema fa ár. Sjálfur var hann
félítill. Hann varð þvi að hætta búskap,
og bafðist við i lausamensku eða húsmensku
á ymsum stöðum. Konu sina misti hann
snemma á árinu lSttí, en haustið 1866
kvæntist hann aftur Þóru Magnúsdóttur,
ættaðri úr Snæfellsnessýslu. Hún er enn
á lifi. Með hvorugri konu sinni varð hon-
um harna auðið, en i siðara hjónahandinu
tók hann til uppfósturs 2 munaðarlaus börn,
mjög ung, og gaf þeim alt eítir sinn dag.
— Með siðari konunni bjó hann lö úr
undir Eagraskógarí'jalli, 7 ár á Tjaldbrekku
og loks 12 ár i Hitardal. Vorið 1901
fekk hann húið í hendur fóstursyni sinum,
Þorleifi Jónssyni, og dvaldist hjá honum til
dauðadags. Á siðari árum grseddist hon-
fé að mun, einkum meðan hann hjó í Hit-
ardal, svo að hann var orðinn allvel efnað-
ur maður.
Jón heitinn gat að mörgu leyti talist
merkismaður. Hann var sæmilega vel að
sér, greindur í hetra lagi og dável hag-
mæltur. Hann var gætinn og stiltur vel,
en þó glaðvær og gamausamur. Hann var
siðprúður maður og hinn reglusamasti, og
ávalt mjög yfirlætislaus.
S1/f, 1904 S.
Um mislingana
vestra segir |>jóðv. bvo frá, en rit-
stjóri hans kom um daginn vestan af
ísafirði eftir mánaðar veru þar, að
þeir hafi komið upp s n e m m a í
m a i m á n. á hvalveiðastöðinni Lang-
eyri við Álftafjörð. jþað vs.r Norð-
maður, sem veiktist þar, sjálfsagt ný-
kominn frá Norvegi og hefir borið í
sér veikina. Eitthvað hafði verið
fengist við að sóttkvía Langeyrina. —
En hefir verið tómt kák, eins og oft
vill verða hér. f>ví laust eftir miðjan
mánuðinn voru 6 orðnir veikir í Eyr-
ardal, næsta bæ við hvalveiðistöðina.
Héraðslæknis var ekk; vitjað. Enda
fór hann eigi inn í Álftafjörð fyr en
6. júní, líklega fullum mánuði eftir að
sóttin var byrjuð. |>á var hún komin
út um allan fjörð (Álftafjörð), og í
næstu firði, Seyðisfjörð, Hestfjörð og
Skötufjörð.
f>á dagana rétt á eftir var það, sem
hingað kora til landsstjórnarinnar
loksins tilkynning um veikina, fyrir
greiðvirkni yfirmannsins á Heklu. —
Hefði sjálfsagt dregist ella, hver veit
hvað lengi.
Sóttin hefir eftir þessu haft bezta
næði til að berast út, hver veit hvað
langt.
Af framkvæmd sóttkvíunarinnar á
ísafirði segir ritstj. þjóðviljans svo frá,
að dagana áður en hann fór þaðan,
13. þ. mán., hafi legið þar á höfninni
meira en 30 þilskip, innlend og útlend,
og hafi hann eigi betur séð en að
skipsmenn gengju þar á land rétt eina
og þeir ætluðu sér, og færi allra sinna
ferða, »enda þótt einn eða tveir menn,
til settir af lögreglustjóra, og án nokk
urs lögreglueinkennisbúnings, væri
eitthvað að banda á móti eða sussa
að þeim«.
|>essu líkt er búist við að varð-
haldið hafi verið á landi.
J>að er eins og vant er. Góð lög
gagnslaus fyrir árveknis skort og at-
burðaleysi þeirra, sem þeim eiga að
beita.
Héraðslæknir hafði h a 1 d i ð fyrst,
að veikin væri ekki annað en »rauðir
hundar«. Við þá imyndun lætur hann
lenda og alt eiga sig m a r g a r v i k-
ur samfleytt. Hann ber ekkivið
að fara að rannsaka þetta, ekki lengra
en það er, á næsta fjörð, fyrir lítið
annes.
Síðan er tekið til að reyna að byrgja
brunninn þegar barnið er dottið ofan
í, og það með ærnum kostnaði, en
líklegast árangurslaust.
Dýr stjórn. Sægur embættismanna.
Mergð laga og reglugjörða og stjórnar-
bréfa og fyrirskipana. En hver er á-
vöxturinn?
Ferðapistill frá Berlín.
ii.
í einu horninu á þessum Thiergart-
en stendur eitt Berlínarlistaverkið, og
ekki þeirra minst.
það er þinghúsið nýja.
Áður en það var reist, var öllum
helztu liúsameisturum ríkisins gerður
kostur á að keppa um, hver komið
gæti með fallegast sýnishorn, enda
eru á húsgerðarlistasafninu í Charlott-
enborg, sem er úthverfi Berlínar, all-
mörg sýnishorn og uppástungur um
þinghöllina, og er óhætt að fullyrða
það, að ekki er það b e z t a sniðið,
sem farið hefir verið eftir. Húsið er
feykilega íburðarmikið að skrauti, með
fjórum hornturnum og þakhvolfi, sem
hefir þó heldur mistekist og sneyðir
stórhýsi þetta mjög öllum svip. Ekki
bætir það heldur úr skák, að hvolfið
er með afarBtórum gluggum, líkum
þeim sem vant er hafa á gróðrarskýl-
um; en logagylt er á milli glugganna.
Hann vill hafa alla skapaða hluti gylta,
keisarinn. Mælt er, að nær 1 miljón
króna hafi verið varið til að gylla þak-
ið!
Eitt mikilfenglegasta listaverk í Ber-
líner National-Denkmal. f>að
er minniavarði Vilhjálms keisara fyrsta,
gegnt^ höfuðdyrum á keisarahöllinni.
|>að var farið með þann minnisvarða
eins og þinghúsið, að listamenn voru
látnir keppa um hann, og er allfróð-
legt að líta á sýnishornin; þau eru
flest í mannvirkjaháskólanum í Char-
lottenborg. Eitt er þannig lagað, mót-
að í leir, að þar er Vilhjálmur keis-
ari I á hestbaki, en Bismarck gengur
og teymir undir honum !
f>að líkaði ekki stjórniuni, þ. e.
keisaranum.
Ekki er Berlín siður auðug af söfn-
um og góðum mentastofnunum en
listaverkum. Keisarinn ann mjög list-
um og vísindum; enda munar um hann
þar; ekki skortir rausnina og höfðings-
skapinn. Til eru víða í söfnum í
Berlín stórar deildir af dýrindisgripum,
sem keisarinn hefir gefið sjálfur, auk
þess sem hann hefir styrkt söfnin sem
stjórnandi þjóðhöfðingi. Og dæmi
keisarans er ekki látið eftirbreytnis-
laust meðal stórmenna þýzkalands.
f>að sem hann gerir, verður tízka.
Enda hafa söfnin aukist og blómgast
og sum meira að segja skapast af
nýju, og listir og vísindi þróast mjög
um hans daga.
Eg ætla að vera fáorður um söfnin
í Berlín, þó margt sé um þau að segja,
og þar eyddi eg flestum stundum mín-
um þá 22 daga, sem eg dvaldist í borg-
inni. Ekki er það fyrir smáþjóðir, að
eiga aðrar eins eignir. Allur sá auður,
sem varið hefir verið til að skreyta
borgina, er sjálfsagt lítið í samanburði
við það sem söfnin kosta. f>ar er
ekki til sparað. Og efalaust eru sum
söfnjn að minsta kosti svo fullkomin sem
framast er hugsanlegt, einkum nattúru-
gripasöfnin og hernaðarsöfnin. Eitt safn
er þar, sem mælt er að eigi sér hvergi
sinn líka, og það er p ó s t s a f n i ð, þ.
e. safn eða sýnishorn af öllum samgöngu-
færum og viðskiftagögnum á sjó og
landi frá allra elztu tímum til vorra
daga. Meðal annars er þar sýndur
allur útbúnaður við þráðlausa loftrit-
un, ritsíma, pípupóst, — þar sem
bréf eru send með loftþrýstingi eftir
málmpípum langar leiðir, o. s. frv.
Viö alla hluti eru fest spjöld með
greiuilegum skýringum prentuðum.
En þetta póstsafn er ekki nema
ein grein af hiuu griðarmikla þjóð-
safni. f>að er í 20—30 deildum alls,
er standa hverjum manni opuar alveg
endurgjaldslaust, og er þar margt að sjá
aðdáanlegt. I sambandi við sum söfn-
in eru lestrar- og vinnusalir fyrir al-
menning, þar sem menn geta lesið,
skrifað, dregið upp og málað allan
daginn, og fá eudurgjaldslaust að kalla
má alt sem þeir biðja um. Og inni í
sjálfum söfnunum er ekki einungis
leyft að teikna og mála, heldur meira
að segja greitt fyrir því, að það sé
gert.
Fyrir þá sem leita sór fróðleiks eru
þessi söfn sama sem skólar, sem eng-
ir aðrir skólar jafnast á við og engar
bækur hrokkva til að lýsa til fulls.
f>ar eru það ekki lítilfjörlegar myndir,
heldur hlutirnir sjálfir, sem lagðir eru
fram til sýnis. Söfnin fræða um
margt, sem er alls ekki untaðfáhug-
mynd um annarsstaðar.
Fljótt verður yfir sögu að fara í
ferðabréfum; ella hefði mig sárlangað
til að minnast á ýmislegt í þessum
söfnum.
Berlín er allra stórborga þrifalegust.
f> a r er viðurkent fyrir löngu í orði
og verki, að hreinlætið er fyrsta boð-
orð heilsufræðinnar. Fyrir þá, sem
vilja reyna að koma á einhverjum um-
bótum í hreinlæti, væri ekki einskis-
verc að kynna sér heilbrigðisreglur þar.
f>að er fyrirboðið og lögð sekt við, að
hrækja á gólfið í almennum samgöngu-
stöðum, í biðsölum o. s. frv. f>ótt ekki
só annað en stræti með þaki yfir,
hvað þá sporvagnar, gripasöfn og sam-
komusalir hverju nafni sem nefnast,
þá eru þar hrákaker hvarvetna. f>jóð-
verjar trúa því, að sýkingarháski standi
af hrákum, þótt Reykvíkingar virðist
ekki trúa því. Flestar götur eru lagð
ar asfalti; og þær sem ekki eru það,
eru svo vel steinlagðar, að auðvelt er
að halda þeim hreinum. Asfaltið er
jafnaðarlega spegilfagurt og tárhreint,
því jafnóðum sem það óhreinkast af
umferðinnni eru menn til taks að
hreinsa það, og á nóttunni eru allar
götur í hænum þ v e g n a r . f>að er
handarvik, í jafnstórri borg, en það
horfa þeir ekki í, Berlfnarbúar. Og
það er ekki verið að gera íbúunum að
skyldu að káka við þetta sjálfir. f>að
eru sömu mennirnir sem gera það alt
aE —- og kostnaðinn borgar bærinn.
Kunnugir menn segja að framræslan
undir bænum sé í svo góðu lagi, að
fyrirmynd sé að, og sama er að segja
um vatnsveitu. Ekki skortir vatn til
hreinlætisins. Af þessu hreinlæti leið-
ir það, að loftið í Berlín er furðuhreint,
eftir því sem við er að búast í stór-
borg; göturnar eru oftast nær ryk-
lausar. f>að er t. d. ólíkt betra loft í
Berlín en í Kaupmannahöfn.
Mikið er um glaðværð í Berlín og
skemtanir. Fólk er þar eins og víðar
sárþyrst í skemtanir. Eg þekki þar
nöfn á 30 leikhúsum, fyrir utan tvo
stóra cirkusa, allmargar sönghallir og
ótölulega mergð af minni háttar leik-
húsum og söngkrám. Venjulega er
þetta alt fult, og fá færri inn að kom-
ast en vilja. Allur er þessi leikhúsa-
sægur á sífeldum veiðum eftir ein-
hverju nýnæmi til að geta boðið gest-
um sínum og staðist samkepnina, en
á þeim markaði er eftirspurnin meiri
en framleiðslan; og verður ekki sagt,
að þýzkir rithöfundar beri ekki við að
semja sjónleiki. G- M- (Niðurl.).
Prestaskólinn.
f>ar lauk embættisprófi í þetta
sinn, 18. þ. mán., að eins 1 stúdent,
Böðvar Eyólfsson frá Árnesi,
með þriðju aðaleinkunn, 44 stigum.
Verkefnin við skriflega prófiS voru
þessi:
Skýring N. tm.: Matt. 16, 24—28.
Trúfræði: I hverju er opinberunin
fólgin?
Siðfræði: Að lýsa frumeðli syndar-
innar og höfuðstefnum.
Kirkjusaga: Að lýsa kenningu
Aríusar og segja í ágripi söguna um
trúardeiluna, sem sú kenning vakti.
Prédikunartexti: Matt. 21, 28—32.
Þýrkt herskip
kom hingað í dag, með sjóforiugja-
efni, hið sama og í fyrra, Ziethen.
Tryggvi kongur,Tlioiefélagsgufuskip-
ið, kapt Emil Nielsen, kom í fyrra dag,
degi á nndan áætlun, frá Khöfn og Skot-
landi. Farþegar voiu hingað meðal ann-
arra D. Thomsen konsúll, H. Bryde stúr-
kaupmaður, Guðm. Guðmundss. kaupmaður
og dóttir hans, Sigfús Einarsson stúdent og
sönglistamaðnr, Björn Sveinsson hókbindari
o. fl.
Skipið fer til Vestfjarða á morgun.
Praini. Þýzkalandskeisari hefir gert
konsúl D. Thomsen riddara af krónuorðunni
Alimannia-Cyklar
eru sterkir og vandaðir, búnir til úr góðu
efni og létlir að stiga. Mjög ódýrir. —
Verðskrár með myndum af þeim eru til
sýnis hjá
Friðftnni Guðjónssyni, Bókhlöðustig 9.
Herbergi rneð rúmi og húsgögn-
um óskast til leigu nú þegar á góðum
stað. Ritstj. vísar á.
Pakkaráv. Eg kom til Reykjavíknr
öllum þar bláókunnug, og sjóninni svift að
miklu, til að leita mér lækningar á henni,
en árangurslaust, þrátt fyrir margar og ná-
kvæmar læknistilrannir. Eg varð alveg
sjónlaus og meira og noinna sár-þjáð viðar
á likamanum. En þá auðsýndu mér allir
svo kærleiksrika hluttekningn i mótlæti
minu, bæði i orðum og gjörðum, mér til
mestu gleði og huggunnar. Fyrir stuttleika
sakir nafngreini eg hér að eins þær valin-
kunnu systur frk. Kristínu og frk. Önnu
Arasen, sem gengnst fyrir gjafa-samskot-
um til mín áður en eg fór hingað norður,
og gáfu mér sjálfar ýmislegt fleira sem
mér var hent til ferðarinnar. Deim og
öllnm minnm velgjörendum bið eg af
hjarta algóðan guð að endurgjalda fyrir
mig af rikdómi sinnar náðar, þegar þeim
mest á liggur.
Hugljúf Jóhannsdóttir
Fljótum.
Öllum þeim, sem með návist sinni heiðr-
uðu jarðarför manns míns sál., Daniels Sí-
monarsonar, og auðsýndu mér hluttekning
og aðstoð við útför hans, votta eg fyrir mina
og fjarverandi dóttur hans hönd mitt inni-
legasta þakklæti.
Reykjavik, 20. juní. 1904.
Kristbjörg Heljradóttir.
2stúlkur geta fengið að læra kjóla-
saum nú þegar.
Þuríður Sigurðardóttir.
í Veltusund nr. 1, SVO sem: man-
chettskirtur vandaðar en ódýrar, flibb-
ar, kragar, manchettur og hnappar til-
heyrandi og alls konar slaufur. Skírn-
arkjólar, bróderaðar blúndur, legginga-
bönd,|millifatapeysurnar góðu, normal-
nærfót handa kvenfólki og karlmönn-
og margt fleira.
Kristín Jónsdóttir
Zeolínblekið góða
aftur komið í afgreiðslu ísafoldar.
prússnesku.