Ísafold - 23.07.1904, Page 2
194
spori. Á mjög mörgum heimilum hér
í bænum, smáum og sfcórum, eru gólf
í göngum, dagverustofum, eldhúsum
og svefnherbergjum þvegin á hverjum
degi, en aldrei sópuð. Fyrirmælin um
gólfræstingu hljóta að baka mönnum
nokkurn kostnað, til þess að auðvelt
verði að þvo þau. En sá kostnaður
getur hvergi numið svo mikiu, að kvart-
anir af þeirri ástæðu geti átt nokkurn
rétt á sér, sé veittur hæfilegur frestur
til að umbæta gólfin, svo sem með
því að fernísera þau eða leggja á þau
línóleum, en það munu heilbrigðis-
nefndir sjálfsagt gera.
Hér er að ræða um almennings
heill, mikilsvert atriði í vörn gegn voða-
lega3ta sjúkdóminum á landinu.
Mannalát
Hér í bsenum andaðist 17. þ. m. frú
Olafía Olafsdófctir, kona síra
Lárusar Benediktssonar, fyrrum prests í
Selárdál, en dóttir síra Olafs heit. Páls-
sonar prófasts og dómkirkjuprests og
konu hans Guðrúnar Ólafsdóttur Step-
hensen frá Viðey, f. 12. jan. 1849. Hún
var tvígift, og var fyrri maður hennar
Páll prestur Jónsson á Hesti, Eiríksson-
ar frá Stóranúpi, er andaðist 1875 eftir
fárra ára hjúskap, barnlaus; þau höfðu
eignast 2 börn, er dóu bæði ung. Síra
Lárusi giftist hún 1878. Þau eignuðust
9 börn, er 5 lifa, 1 sonur (í skóla) og
4 dætur, 3 heima í föðurhúsum, en 1
gift á Norðurlandi. Frú Ólafía sái. var
atgerfiskona, vel að sér til munns og
handa, mætavel látin jafnan, ástrík eig-
inkona og móðir, hjáipfús og hjartagóð.
Hinn 24. júní þ. á. andaðist að Fjós-
um í Myrdal Guðmundur Páls-
s o n, 25 ára að aldri, fyrirvinna hjá
móður sinni þar. Hann stundaði nám
við gagnfræða- og kennaraskólann í
Flensborg tvo undanfarna vetur, en
varð að hætta við nám sitt um miðjan
vetur sem leið vegna fráfalls sjúpföður
síns Gottsveins bónda Oddssonar í Fjós-
um, er andaðist um það leyti.
Guðmundur sál. var sérlega vandaður
maður, stiltur í lund, greindur, tryggur
og vinfastur. Hans er því alment sárt
saknað af öilum þeim, er nokkur kynni
höfðu af honum. — Banamein hans var
hálsbólga. E.
Hinn 7. þ. m. andaðist hjá tengda-
syni sínum Ásgeiri Guðmundssyni skipa-
smið í Vestmanneyjum úr lungnabólgu á
82. ári Magnús Jónsson. Hann
var fæddur á þorraþræl 1823, og var
elzta barn Jóns Þorsteinssonar, bónda á
Miðkekki, með fyrri konu hans Kristínu
Þorsteinsdóttur frá Kilhrauni, en Þor-
steinn iæknir í Vestmanneyjum yngsta
barn með síðari konu hans.
Ymsir hafa orðið langlífir í þessari
ætt.
Jón Þ. dó á 90. ári 1888, Margrét
móðir hans níræð 1865, en þær voru
systkinadætur, Halla Magnúsdóttir í
Skálmholtshrauni, sem varð meira en
100 ára, og Margrét. Magnús var og
enn svo ern og hraustur, að alt útlit
var fyrir, að hann gæti náð aldri föður
síns, en þá varð hann votur og ofkæld-
ist á ferð upp í Landeyjar og fekk fyr-
ir það lungnabólguna.
Magnús heitinn bjó fyrst á Skíð-
bakka í Austur-Landeyjum og því næst
um langan tíma góðu búi í Berjanesi í
Vestur-Landeyjum, en þar var hann
uppfóstraður hjá móðurbróður sínum
Jóni bónda Þorsteinssyni. Magnús átti
mörg börn með konu sinni, 5 þeirra
komust á fullorðins aldur, 4 dsetur lifa,
en 1 sonur látinn. Magnús heitinn var
fjörmaður og dugmaður, mjög ræðinn
og skemtinn, og gat frá mörgu sagt af
langri lífsleið, enda var hanu greindur
vel og minnið gott, og í allri samvinnu
og félagsskap hvarvetna vel virtur
sómamaður. p.
Hinn 28. apríl síðastl. andaðist að
heimili sínu Hvassahrauni í Vatnsleysu-
strandarhreppi bændaöldungurinn E i n-
ar Þorláksson, 79 ára að aldri.
Einar sál. var fæddur að Neðradal í
Biskupstungum 25. nóvbr. 1824, og
dvaldist hjá foreldrum sínum þang-
að til hann árið 1855 fluttist að Hvassa-
hrauni og kvæntist sama ár hinn
9. júlí eftirlifandi eiginkonu sinni Ingi-
björgu Pálsdóttur. Þau hófu þar sama
ár búskap og bjuggu þar nær 49 ár í
hinu ánægjulegasta hjónabandi. Þau
eignuðust 9 börn; þeirra eru 6 dáin, en
3 á lífi, eitt þeirra er Þórunn húsfreyja
í Hvassahrauni. I æsku lærði Einar
sál. söðlásmíði, og stundaði þá iðn á-
samt búskap sínum hin fyrstu búskap-
arár sín. Hann var mjög fjölhæfur
maður og smiður á flest, hinn mesti
iðju- og atorkumaður, meðan heilsan
leyfði. Hann var ágætur heimilisfaðir
og stjórnaði heimili sínu, sem var sfcórt
lengst af, með framúrskarandi lipurð,
reglusemi og hógværð. Hann var mað-
ur einkar-gestrisinn, skemtinn í viðræð-
um, enda fróður um margt, og minn-
ugur vel, eíns og hann átti kyn til.
Hann var fögur fyrirmynd að stillingu,
kurteisi og háttprýði. Enginn af hin-
um mörgu, sem þektu hann, veit til,
að hann hafi nokkurn tíma skift skapi
sínu, eða gert á nokkurs manns hluta,
hvorki í orði né verki, og mun það
dæmafátt. Hann var því virtur og
elskaður af öllum, sem kynni höfðu af
honum. — Hann lifði og dó sem sann-
arlegt guðsbarn. A. p.
Alþlngiskosningaundirbúuingur
er nú byrjaður, þ. e. hinn lögboðni
undirbúningur. Landstjórnin látið búa
til kjörseðla og sent þá í morgun með
Skálholti yfirkjörstjórnunum á Isafirði,
Akureyri og í Eyjafjarðarsj^slu. Til
Seyðisfjarðar munu þeir verða sendir
með Hólutn næst eða Ceres. Kosning
á fram að fara 10. sept., svo sem kunn-
ugt er, í 5 kjördæmuœ: kaupstöðum
landsins 4 og Eyjafjarðarsýslu.
Hér kaus bæjarstjórn í fyrra dag
yfirkjörstjórn fyrir kaupstaðinn og 3
undirkjörstjórnir, með þvi hún ákvað
að skifta kjósendum í 3 kjördeildir,
eftir sfcafrófsröð, sem er raunar sjálfsagt
of lítið, ef kosningarathöfninni á að
verða lokið á hæfilegum tíma. Kjós-
endur eru hér um 1200, og má gera
ráð fyrir, að þar af neyti 7—800 kosn-
ingarréttar síns. Þeir verða yfirleitt
býsna-lengi að athafna sig hver um
sig, að minsta kosti nú, fyista skiftið.
Það eru ekki færri en 7 viðvik, sem
kjósendur þurfa að gera hver um sig:
1. að ganga inn í kjörstjórnarherbergið
— það má ekki gera nema einn þeirra
í einu, sá næsti ekki koma inn fyr en
hinn er búinn að lúka sér af og farinn
út; 2. að taka við kjörseðli af oddvita
kjörstjórnar; 3. að ganga með hann inn
1 afherbergi, kjörklefann; 4. að rita þar
á hann atkvæði sitt, þ. e. gera kross við
nafn þess þingmannsefnis á seðlinum
prentuðum, sem sá vill kosið hafa; 5. að
ganga raeð seðilinn aftur saman brotinn
út úr kjörklefanum og að kjörborðinu;
6. að stinga honum þar niður i þar til
gerðan kassa, um rifu; 7. að ganga út
síðan úr kjörstjórnarstofunni. Þar við
bætist tími sá, er fer til leiðbeiningar
af kjörstjórnar hálfu við þá mörgu, sem
þess munu þarfnast, eru ófimir að átta
sig, gera eitthvað skakt o. s. frv. Loks
kemur enn til greina sú töf, er það
veldur, ef kjörstjórn þekkir ekki kjós-
auda, sem oft getur að borið, svo mik-
ið fjölmenni sem hér er, og hann þarf
því að útvega sér vitni að þvi, að hann
só sá, sem hann kveðst vera.
Kosinti var í yfirkjörstjórn hér fyrir
bæinn með bæjarfógeta úr bæjarstjórn
Jón Magnússon skrifstofustjóri og utan
bæjarstjórnar Eiríkur Briem prestaskóla-
kennari; en til vara úr bæjarstjórn
Kristján Jónsson yfirdómari og utan
bæjarstjórnar Hannes Thorsteinson
cand. jur. og bankaritari.
Þá voru kjörnir í undirkjörstjórn í 1.
kjördeild L. E. Sveinbjörnsson háyfir-
dómari, Magnús Einarsson dýralæknir
og bæjarfulltrúi, og Sighv. Bjarnason
bankastjóri og bæjarfulltrúi.
Kjörstjórn í 2. kjördeild er skipuð
þeim Birni Jónssyni ritstjóra, Eggert
Briem skrifstofustjóra og Halldóri Jóns-
syni bankagjaldkera og bæjarfulltrúa.
Þriðju kjördeildar kjörstjórn voru
kosnir í þeir Ásgeir Sigurðsson kaup-
maður, Mortea Hansen skólastjóri og
Sigurður Briem póstmeistari.
Til sveita er undirkjörstjórn í hverj-
um hreppi og kosið þar á hverjum
þingstað.
Yfirkjörstjórn kemur ekki nærri
sjálfri kosningarathöfninni, hvorki hér
nó þar. Hennar hlutverk er að telja
saman atkvæðin eftir á, hór væntan-
lega daginn eftir kjördag, en í sveitum
varla fyr en viku síðar eða meira. Und-
irkjörstjórnirnar senda þeim atkvæða-
kássana óopnaða í forsigluðum uinbúð-
um.
Þingmannsefni verða að hafa sent
yfirkjörstjórnum framboð sín svo snemma,
að þau séu í þeirra hóndum 4 vikum
fyrir kjördag. Nú eru þá síðustu
forvöð 13. ágúst að kveldi. Framboði
hverju á að fylgja yfirlýsing 12 kjós-
enda í minsta lagi um, að þeir styðji
kosningu frambjóðanda.
Bæjarstjórn Reykjavíkur afsalaði
sér á fundi i fyrra dag forkaupsrétti að
sneið þeirri af Rauðarártúni, sem liggur
fyrir sunnan þjóðveginn, en skika þann
ætlar eigandinn, Yilhjálmur hóndi Bjarn-
arson á Rauðará, að selja fyrir 4500 kr.
Sömuleiðis afsalaði hún sér forkaupsrétti
að erfðafestulandi því á Melunum, sem
dánarbú Sigtryggs Sigurðssonar á þar og
það ætlar að selja fyrir 300 kr.
Til erfðafestunefndar var vísað bænum
um erfðafestulönd frá Guðmundi Jakohs-
syni, Magnúsi Blöndahl og Jóni Thorsten-
sen. Sömuleiðis heiðni frá þeim Carl
Frederiksen, 01. Th. Guðmundssyni og
Einari Finnssyni nm leirbakkann við Marka-
læk í Kleppslandi til tiglsteinshrensln.
Thor Jensen kaupm.tilkynti, að bann hefði
gengið að skilmálum bæjarstjórnar fyrir
erfðafestulandi, er hann hafði beðið um.
Til veganefndar var vísað beiðni frá
C. Frederiksen yfirhakara um aukavatns-
veitu úr Skálholtskotslind.
Samþykt var að taka framkomnum til-
hoðum frá búendum við Austurstræti um
styrk til rennugerðar þar, kaupa nauðsyn-
lega lóðarræmu af Ólafi Sveinssyni fyrir
2 kr. feralin hverja, og leggja nú þegar
rennuna. Kostnaður er áætlaður um 1000
kr., og skyldi verja nauðsynlegu fé til þess
af fjárhæð þeirri, er bærinn á i vændum
frá Hlutabankanum fyrir lóðarkaup.
Bæjarstjórn vildi ekki banna að sinni
sandtöku inni á Kirkjusandi, en fól vega-
nefnd að hafa eftirlit með henni og veita
því eftirtekt, hvort landspjöll geta orðið af
þvi sandnámi.
Jóni Hannessyni i Austurkoti i Kaplaskjólí
var heimilað að taka grjót í fjörunni suð-
ur undan kálgarði hans til varnargarðs-
hleðslu. Að öðru leyti vildi bæjarstjórn
ekki sinna beiðni hans.
Tilkynt var, að þ. á. kæmi til úthlutun-
ai af alþýðustyrktarsjóðsfé nálægt 320 kr.
Ræddur var II. kafli frumvarps til heil-
brigðissamþyktar fyrir bæinn, og nann
samþyktur með örlitlum breytingum.
Tilboð um vatnsveitu fyrir bæinn hafði
bæjarstjórn borist frá firma Holst-Möller í
Kaupmannahöfn. Það var afhent vatns-
veitunefndinni.
Frá nefnd út af uppástungu um girðing
Fossvogs til kúabeitar var komin sú vit-
neskja um álit kúaeigenda, að alls einn
þeirra mundi vilja nota þar kúabeit. Þar
með var það mál látið niður falla.
Samþykt var brunabótavirðing á þessum
húseignum: Páls Árnasonar og Árna Jóns-
sonar við Lindargötu 6706 kr.; Árna
Gíslasonar pósts að Lækjarbakka 6877;
Sigurðar Þórarinssonar við Framnesveg
3668; Sæmundar Sveiussonar við Holtsgötu
3250 kr. Ennfremur á fundinum næsta á
undan: Geymsluhús Gróðrarstöðvarinnar
3135 og sólubúð Jóns Eyólfssonar (Lauga-
veg 59) 2368.
Fjarverandi: Björn Kristjánsson, Sigr
Thoroddsen og Þórh. Bjarnarson.
TJru rektorsembættið
hafa sótt: yfirirkennari Steingr..
Thorsteinsson, adjunktGeir T. Zoega,
Sfcefán Stefánsson gagnfræðaskólakenn-
ari á Akureyri, dr. Jón þorkelsson
landskjalavörður í Reykjavík, Jón
Helgason prestaskólakennari og Guðm-
Finnbogason cand. mag. (En ekki
Svb. Sveinbjarnarson, adjunkt í Ár-
ósum). Umsóknarfresfcur var útrunn-
inn 16. þ. m.
Sæmdarviðurkenning. Þeir hafa
fengið mikla sæmdarviðurkenning hjá
Þýzkalandskeisara, er hjálp og hjúkrun
veittu skipbrotsmönnum af fiskiskipinu
Friedrioh Albert, er strandaði i fyrra vetur
í Meðallandi.
Bóndinn á Orrustustöðum, er fyrstur veitti
skipbrotsmönnum hjálp, hefir fengið 300
kr. verðlaun.
Guðrún Jónsdóttir, yfirsetukona á Breiða-
bólsstað á Siðu, er stundaði skipbrotsmenn
þá, er kalið hafði og taka varð af limi^
hefir fengið dýrindis-brjóstnál, gulli setta
og gimsteinum, með fangamarki keisarans
(W með keisarakórónu yfir), sjálfsagt mörg
liundruð króna virði.
Þetta hvorttveggja er beint gjöf frá
keisaranum sjálfum, en ekki stjórninni
þýzku.
Læknana báða, er stunduðu hina sjúku
skipbrotsmenn og tóku af þeim limi m. m.,
þá Bjarna Jensson og Þorgrím Þórðarson,
hefir keisaíi sæmt riddarakrossi hinnar
rauðu arnar (IY. fl.).
Rafmagnslýsing í Hafnaríirði.
Tré8míðaverk8miðju með vélarafli,
vatnsafli, komu Hafnfirðingar upp í
fyrra.
Nú eru þeir komnir á flugstíg með
að nota sama vatnsaflið til að raflýsa
kauptúnið að einhverju leyti, í bráð.
Loke er þar á prjónum ráðagerð um
vatnsveitu fyrir bæinn.
Fyr má nú vera framfaraskrið en
þetta, á 1—2 missirum.
það er sami maður, sem raflýsing-
unni kemur upp og sá sem setti á
stofn trésmiðaverksmiðjuna í fyrra,
Jón Reykdal trésmiður. Hann gerir
það með ráði og fulltingi rafmagnsfræð-
ingsins nýja, Halldórs Guðmundsson-
ar. Hann kvað hafa pantað þegar á-
höld til þess nú með póstskipinu 20.
þ. m. Hugsað er um 150 rafljós með
16 kerta ljósmagni hverfc, sum úti og