Ísafold - 23.07.1904, Qupperneq 3
195
sum inni. |>au kváðu eiga að kosta
6 kr. hvert um árið.
Um vatn8veituna hefir hr. Jón f>or-
lákason verkfræðingur lagt á ráðin.
Hugmyndin er að leggja pípu, vatns-
æð, úr lind aunnan við Hamarinn
niður að sjó og inn með honum.
Lindin liggur það hátt, að vatn kemst
upp í flest hús, sem ekki eru ofar en
fram með þjóðveginum.
Eeykjavík má biðja fyrir sér, að hún
verði ekki langar leiðir aftur úr
Hafnarfirði.
Settur Kanjgárvallasýslum. er
caud. jur. Karl Einarsson, frá 1. ágnst.
Þangað til þjónar embættinu skrifari
Magnúsar sýslumanns Torfasonar, sem fór
í morgun vestur með Skálholti að taka
við sínu nýja embætti, á Isafirði.
Síðdegisgruð.sþjónusta í dómkirkj-
unni á morgun kl. 5. (síra J. H.).
Messufall á morgun i Frikirkjunni.
Prestur fjarverandi.
Með póstgufusk. Laura (Aasberg),
er héðan fór 20. þ. m„ tók sér far til
Englands Jón kaupm. Þórðarson, og til
Kbafnar frk. Margrét Þorkelsdóttir (frá
Keyniv.), Olafur stúdent Þorsteinsson og
Þorkell Þorláksson landstjórnarskrifari.
Veðurathuganir
í Keykjavík, eftir Sigriði Björnsdóttur.
1904 júií Loftvog millim. Hiti (C.) Þ»- cr ct- << CD O* P -1 zr 8 ov œ c*r g S* Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld. 9.8 762,0' 10,7 0 0
2 761,4 13,6 NW 1 2
9 760,8 12,8 0 7
Sd 10.8 758,8 11,0 0 10 1,7
2 759,9 14,7 0 9
9 760,7 12,0 0 8
Mdll 8 756,7 12,7 NE 1 10 1,3
2 758,3 14,7 0 9
9 758,4 12,7 0 10
l>d 12.8 759,4 16,7 ssw 1 10 1,9
2 760,9 14,5 8 1 9
9 761,4 13,7 0 9
Mdl3 8 759,5 16,7 0 4 7,1
2 756,5 17,6 NW 1 8
9 754,8 13,7 0 10
Fd 14.8 753,6 15,3 0 10
2 754,8 12,6 0 10
9 754,0 10,8 0 10
Fd 15.8 752,5 13,2 0 2
2 752,8 14,2 N 1 2
9 755,3 S,7 N 2 4
Fórn Abrahams.
(Frh )
Liðsforingi sá, er átti að atýra síð-
ustu atlögunni, hafði séð, hvaðan liðs-
aukinn kom, og búið alt undir. Fallbyasu-
skotin komu honum i vanda, og margt
flaug honum í hug harla sundurlauat
og óskipulegt; hann gat ekki áttað sig
á því. f>að var engin leið að því, að
gera sér greinilega hugmynd ura, hvað
gerst hafði, með því að þar var svo
mishæðótt. Höfuðsmaðurinn vissi því
ekki, hvað hann átti að gera, en réð
þó af að hlýða því sem hafði verið
fyrir hann lagt áður. Bn hik var á hon-
um, og hann skreið þangað sem næsti
maður lá, til þess að heyra hvað hon
um litist.
Lautinantinn, sem hann aneri aér að,
var háborinn hermaður. Honum fanst
það svo sjálfsagt, að hermenn hlýddu
íblindni boðum yfirmanns eíns og orða-
laust, að hann anzaði höfuðsmanni
eínum engu, heldur leit til hans með
Þykkjusvip. f>á kemur höfuðsmaðurinn
auga á hraðboðann, sem þeysti þangað
á harða stökki. Hann veifaði handlegg-
junum og kallaði eitthvað, sem ekki
heyrðist, af því að hann var svo langt
í burtu.
það er sjálfsagt ný atlöguskipun,
hugsaði höfuðsmaðurinn. þar þóttist
hann laus undan allri óvissu. Hann
eggjaði liðsmenn sina. þeir spruttu upp
og tókst nú atlaga af nýju með byssu-
stingjum.
Hundrað hugprúðir hermenn hróp-
uðu húrra háum róm og ruddust áframj
þeir voru einráðnir að bera af fjand
mönnum sínum eða falla að öðrum
kosti.
Búar hnöppuðu sig allir við suður-
vegginn á garðinum og vildu vita, hvað
fjandmenn þeirra ætluðust fyrir. þeir
höfðu veitt friðarboðanum eftirtekt.
Og er Bretar hættu að skjóta norðan
og vestan, þá hættu þeir því líka. En
er þeir hugðu öllu vera lokið, var veitt
atlaga að sunuan. Hér bar þá enn að
höndum eitt ófynrsjáanlega atvikið, aem
nóg er jafnan um þar, sem mannavíg
fara fram nú um stundir. Hér voru orðin
gagngerð umskifti, og kom hér ný sveit
rnanna og greiddi Búum atgöngu; það
var ekki um að villast, hvað þeir ætl-
uðu sér. Búar litu liver framan í ann-
an forviða; eigum við að trúa því, að
þeir ætli að fara að ráðast á okkur
aftur, hugsuðu þeir. því næst tóku þeir
til að gera fjandmannaliðinu viðvart
um, hver breyting væri á orðin.
En alt var til ónýtis. Vígamóðurinn
gerði þá, sem atlöguna greiddu, blinda
og heyrnarlausa; og þeir, sem eitthvað
heyrðu, skildu það svo, sem verið væri
að smána sig, og urðu enn æfari fyrir
það.
Stjórnarvalda-augl. (ágrip).
Skiftaráðandinn i Strandasýslu kallar eft-
ir skuldakröfum i dánarbú Einars snikkara
Guðmundssonar á Kleifum með 6 mán. fyrir-
vara frá 3. júnl þ. á.
Einar G. Einarsson i Garðhúsum lýsir eftir
skuldakröfum I dánarbú Asbjarnar Olafsson-
ar í Innri-Njarðvík með tí mán. fyrirvara
frá 24. júní síðastl.
Skiftaráðandinn i Norðnr-Múlasýslu kallar
eftir skuldakröfum i þrofabú Stefáns bónda
Jónssonar á Leifsstöðum í Vopnafirði með
6 mán. fyrirvara frá lb þ. m. og i þrotabú
fyrv. kaupm. Andr. Rasmussens í Grunnólfs-
vik með 12 mán. fyrirvara frá 15. þ. mán.
(júH.)__________________________
Þjóöhátíð
Reykjavíkur
2. ágúst 1904.
Veðreiðum stjórnar D a n í e 1 D a n-
íelsson Ijósmyndari.
Verðl. fyrir skeið: 50 kr. 30 kr., 20 kr.
— — stökk: 50 kr. 30 kr., 20 kr.
Glímum og öðrum íþróttum stjórnar:
Pétur Jónsson blikksmiður.
Verðl. fyrir glímur: 20 kr., 15 kr., 10 kr.
— — hjólreiðar 15 kr., 10 kr.
— — Eótboltaleik: 25 kr.
Formaður í staðarnefnd er:
Hannes Hafliðason bæjarfull-
trúi.
Formaður í fjármálanefnd er:
Halldór Jónsson bankaféhirðir.
Forstöðunefndin
Klœðaverksmiöjan „Álafoss"
tekur að sér að kemba ull spinna og
tvinna; að búa til sterk fataefni
úr ull; að þæfa, líta, lóskera og pre3sa
heimaofin vaðmál.
Verksmiðjan tekur alls ekki tuskur
til vinnu.
Utanáskrift:
Klæðaveksmiðjan „Álaíoss"
pr Reykjavík.
Miðvikudaginn 27. þ. m.
verður uppboð haldið lijá
Gunnari Einarssyni, Kirkju-
stræti 4, á braki til upp-
kveikju, hurðuni, glugguni
o. fl
Dan-motorinn.
Kunnugt gjörist, að eg hefi tekið að mér aðalútsölu fyrir ísland á steinolíu-
motorum frá verksmiðjunni »Dan« í Kaupmannahöfn. Eg hefi átt kost á að
verða útsölumaður fyrir aðrar verksmiðjur, er einnig selja motora hér til lands,
en eg kaus »Dan« vegna þess, að ítarlegar upplýsingar, sem eg útvegaði mér
um ýmsar sceinolíumötora verksmiðjur, lutu allar að því, að »Dan«-motorinn
væri traustastur og áreiðanlegastur, og á því veit eg að ríður fyrir kaupend-
urna. Verksmiðjan »Dan« er stærsta og elzta motora-varksmiðja á Norður-
löndum, og motorar henuar eru margverðlaunaðir.
Síðan í vor liafa verið seldir hér á landi 8 motorar 4—8 hesta afls, og
reynslan mun sýna, hvort þeir svara ekki til þess, sem um þá hefir verið sagt.
þeim sem óska útvega eg einnig tilbúna báta hentuga fyrir motora, gang-
góða og góða í sjó að leggja, úr bezta efni og að öllu leyti með ókjósanlegasta
frágangi. Innsetningu á motorunum aunast eg einnig, ef menn óska, og vara-
stykki, sem hættast er við að slitni eða bili, geta menn einnig fengið hjá mér
með litlum fyrirvara. —
Frekari upplýsingar um »Dan«, motora eru á reiðum höndum, og verðlistar
með myndum. — Patreksfirði 6. júní 1904.
I
Pétur A. Olafsson.
Orgel Harmonium
smíðuð í verksmiðju vorri — verðlaunapeningur úr silfri í Málm-
ey 1896, Stokkhólmi 1897 og París 1900 — frá 108 kr. með 1
rödd og frá 198 kr. með 2 röddum (122 tónum). Amerísk Harmonium
frá Estey, Mason & Hamlin, Packard, Carpenter, Vocalio, Need-
ham, Chicago Cottage Organ Co. o. fl. með lægsta verði og af beztu
gerð. Einkum mælum vér með Chicago Harmonium »Style 1« með standhillu
(Opsats), 2 röddum, 7 tónkerfum á 244 kr. með umbúðum. þetta harmonium
er óviðjafnanlegt að hljómfegurð og vönduðum frágangi. þessir hafa meðal
annara fengið það hjá oss: Prestaskólinn í Reykjavík, Holdsveikra-
spítalinn, alþm- Björn Kristjánsson, organleikari Brynj. f>or-
láksson Rvík, síra Bjarni þorsteinsson Sjgluf-, og Kj. þorkels-
SOn, Búðum- Hann skritar oss m. a.:
»Eg keypti fyrir 4 árum Chicago Cottage Harmonium hjá Petersen & Steenstrup
og hefir ekkert oröið að því á þessu timabili. Margir hafa dást að, hversu fagra og
góða rödd það hefði. Eg hefi leikið á Harmonium í 15 ár, og hlýt að játa, að eg hefi
ekki séð betra orgel með þessu verði.
Búðum 19 febr. 1904.
Kjartan Þorkelsson.
Jónas sál. Helgason orgauisti komst svo að orði um Harmouium nr. 5 frá
verksmiðju vorri (verð 125 kr.).
Þessi litlu harmonium eru einkar-haganleg fyrir oss Islendinga; þau eru mátuleg til
æfinga, tiltölulega ódýr og létt í vöfum. Allir sem nokkuð eru kunnugir Harmonium,
vita að yðar Harmonium eru góð og varanleg.
Jónas Helgason.
Vér veitum skriflega 5 ára ábyrgð á öllum vorúm Harinonium. Verðlistar með
myndum og skýringum sendast ókeypis þeim er þess óska.
Petersen & Steenstrup, Kaupmannahöfn.
Vín og vindlar
bezt og ódýrust í Thomsens magasini
Hirðing á luktum.
þeir sem vilja takast á hendur, að
annast kveikingu og hirðingu á ljós-
kerum bæjarins frá 1. sept. þ. á. til
1. apríl 1905, suúi sér til Kristjáns
þorgrímssonar bæjarfulltrúa, fyrir 15.
ágúst.
^Jilfí. cfiernfíöff
tannlæknir
verður ekki heima til 3. ágúst næstk.
Gluggafög af ýmsum stærðum (vönd-
uð og þur), rúmstæði, servantur, mjög ódýr
múrsteinn o. fl. fæst hjú Jóni Sveinssy^ii.
Öllum þeim. er sýndu konu minni Þuriði
Magnúsdóttur hiuttöku í veikindum hennarog
að siðustu heiðruðu jarðarför hennar, votta
eg mitt innilegt þakklæti.
Reykjavik 21. júli 1904.
Halld. Jónsson.
Þann 17. þ. mán. andaðist móðir min elsk-
uð, Margrét Guðmundsdóttir; jarðarförin fer
fram mánudaginn 25. júli frá heimilinu,
Lindargötu 25, og byrjar kl. II. Þetta til-
kynnist ætt og vinum.
Halldóra Erlendsdóttir.
Grá regnkápa hefir tapast á leiðinni
frá Hólmi og niður í Kvík, eða á Rvík-
urgötum. Finnandi er beðinn að skila
henni til Fr. Eggerzsonar, verzl. Liverpool.
Sloppsvuntur og telpusvuntur
framúrskarandi ódýrar, nýkomnar í Veltu-
sund 1. Kristín Jónsdóttir.
Lítið herbergi með húsgögnum fæst
leigt nú þegar. Ritstj. vísar á.
Frá nú og til þjóðminningardagsins
fást telpukjólar i Þingholtsstræti 8.
Halldóra Ólafsdóttir.
Húsgögn í svefnherhergi og dagvern-
stofu hefir maður til sölu, nýleg og vönd-
uð. Ritstj. visar á.
Fundinn milluhnappur. Vitja má i
afgreiðslu ísafoldar.
Zeolínblekið góða
aftur komið í afgreiðslu ísafoldar.