Ísafold - 07.09.1904, Side 3
235
þeir hafa blekt, reiðast þeim, sem von
von er, og snúast í móti þeim gallharðir.
En þeir treysta því sums kostar, að
sumir kjósendur veröi eigi vísir hins
sanna fyr en um seinan, e f t i r aS þeir
eru búhir aS kjósa, svona blektir. Eða
þá að þeir reyna að suúa blaSinu við,
og segja, að þetta sama þingniannsefni
hafi sagt þetta ekki á fundinum, held-
ur við annað tækifæri — ljúga því vís-
vitandi, tilnefna jafnvel vitni að, ljúg-
vitni.
Það mátti altónd við því búast, að ó-
skammfeilni í lygum og blekkingtim
kæmist á enn hærra stig nú en áður,
vegna þess, að nú er svo ilt að koma
við h i n u m ráðunum, sem þá voru
notuð : atvinnukúgun, peningavaldskúg-
un m. m.
En ekki e r eða æ 11 i að vera sigur-
vænlegt að berjast með þann Þór í
stafni.
Talar við kongimi einslega.
Ein akáldsagan stjórnarliðsforsprakk-
anna er sú, að nýi ráðgjafinn íslenzki,
Hannes Hafstein, sé svo mikill snill
ingur, að hann fái jafnau konginn á
sína skoðun áður en íslenzk mál eru
borin upp í ríkisráðinu. Hann tali
við konginn einslega áður heima hjá
honum, óg þá þýði alls ekki neitt,
hvað sagt er í ríkisráðinu. Kongur
kinkar bara kolli framan í Hannes,
þegar að því og því íslenzku máli
kemur, og Hannes brosir í móti allra-
þegnsamlegast. þá vita hinir ráðgjaf-
arnir, hvað klukkan er slegin, og halda
sér alveg sarhan, þó að þeir hefðu
haft það til annars, að fara að blaðra
eitthvað fram í.
það er si svona að eiga snilling
fyrir ráðgjafa, segja smalarnir, og æti-
ast til að kjósendur Iáti sér finnast
til um það.
Af óíriðinum.
Engin ný tíðindi með Tryggva
kongi; og nú ensk blöð til 30. f. mán.
þar segir svo, að byrjuð muni vera
höfuðorusta sú, er lengi hefir við bú
ist í námunda við Liaó-Yang, milli
þeirra Kuropatkins og Kuroki. Gert
ráð fyrir, að hún mundi standa nokkra
daga, með því að herirnir hvorutveggju
eru dreifðir um mikið víðlendi.
Flestir spá auðvitað Japönum sigri
af þeim fundi, með því að þeir hafa
alls engan ósigur beðið enn á landi
fyrir Rússum, smáan né stóran, og að
þá hafi Kuropatkin orðið að hröklast
með sitt lið norður í Mukden, ef ekki
Iengra. þakka fyrir, hafi Japanar eigi
umkringt hann og hremt hann og
hans menn flesta eins og otur i gildru.
Port Arthur enn óunnin. Japanar
kannast sjálfir við, að þeir hafi mist
15,000 manna í umsátinni.
Svo fór um skip þau úr flota Rússa,
er Japanar höfðu elt inn á höfn í
Shanghai, Askold o. fl., að Rússar
þorðu ekki annað en leggja niður víg-
búnað allan og þiggja grið.
Japönum tókst fynr skemstu að
gökkva fyrir Rússum einum bryndreka,
þeirra, Novik í Kóreusundi.
Lengi hefir staðið til, að Rússar
seudu austur Eystrasaltsflota sinn svo
nefndan nú í þessum mánuði. En nú
segja jafnvel bandamenn þeirra, Frakk-
ar, að hann muni vera allur 1 óstandi.
Ófriður á þiugi.
Mikið skrafa andstæðingar Jóns Jens-
sonar, kosningasmalar stjórnarliðsins, um
ófrið þann, er stafa mnni af honum á
þingi.
Það á líklega að vera annaðhvort af
því, að hann verði þar með gallharðar
landvarnarkennitigar, eða þá að hann
vill láta ráðgjafann sæta ámælum fyrir
frammistöðu hans í undirskriftarmálinu.
En nauniast getur einn landvarnar-
talsmaður miklu áorkað til ófriðar móti
39 þingmönuum öðrum. Hann getur í
hæsta lagi haldið svo sem 2—3 ræður
um það.
Og unt hitt málið er þaðað segja, að
þar verður Framsóknarflokkurinn óefað
allur á einu tnáli. Og kallist það ófrið-
ur, að halda uppi svari þingsins frá í
fyrra sregn ráðgjafanum fyrir heitrof
hans, þa verður þeim ófriði engan veg-
inn afstýrt með því, að bægja Jóni
Jenssytti frá kosningu. Það sannast,
að þar láta margir hinir þingmannanna
engu mittna til sín heyra í garð ráð-
gjafans. Þeir eiga þar beiut s í n s rétt-
ar að reka frá því á þingi í fyrra. Það
a Jón Jensson ekki.
Kvædalestur og söng
eiga Reykvíkingar kost á að heyra
næsta sunnudagskveld, vafalaust beztu
skemtun. það er fagurfræðingurinn
norski, O P. Monrad prestur, sem
ætlar að hafa yfir fyrir almenningi
nokkur skáldmæli eftir höfuðsnilling-
ana miklu, Björnstjerne Björnson og
Henrik Ihsen, svo sem Terje Viken
eftir H. Ibsen, er síra Mattías hefir
íslenzkað (þorgeir í Vík), leikritið De
Nygifte eftir B. B. og úrval úr ljóð-
mælum hans. þeir sem hlýddu á
hina ágætu fyrirlestra O. P. Monrads
preets um Björnstjerne Björnsson,
munu ekki sitja sig úr færi að hlusta
á hann aftur, og bætast þar við vænt-
anlega margir, ef afspurn hafa haft
af þeim.
þar að auki syngur Söngfélag stú-
denta hér um leið ýms kvæði eftir
Björnstjerne Björnsson o. fl., en Sig
fús Einarsson syngur solo.
Mannalát.
Austur í Lóni, i þórisdal, lézt í sum-
ar (í júnímán.) Sveinn bóndi
Bjarnason prests Sveinssonar,
bróðir síra Jóns Bjarnasonar í Winni-
peg, eínn hinn mesti merkisbóndi þar
um sveitir og sæmdarmaður í hvívetna,
nær sextugur að aldri.
þá druknaði 24. f. mán. í Horn-
arfjarðarfljóti þ o r 1 e i f u r bóndi
P á 1 s 8 o n í Holti á Mýrum, vel
metinn atorkumaður, bæðisýslunefnd-
armaður og hreppsnefndaroddviti.
Hinn 11. þ. m. andaðist að heimili
sínu í Hafnarfirði eftir langa og stranga
banalegu húsfreyjan Ragnheiður
þórarinsdóttir, kona góðkunns
og merks borgara s. st. Filippusar
Filippussonar. Hún var góð kona og
hreinhjörtuð, og sæmdarkvendi í hví-
vetna.
Daniel heit. Thorlacius og þau hjón
(sbr. síðasta bl.) eignuðust 8 börn
alls, og eru 6 þeirra á lífi.
Með Ceres fóru um daginn til Danmerkur
ennfr. frú C. Jónassen amtmannsekkja alfarin
og systur hennar tvær heim til sin aftur,
þær er hér hafa dvalist i sumar, þær frú
Luise Pesche og frk. Rosa Siemsen, svo og
systurdóttir þeirra. Enn fremur frk. Guð-
munda Nielssen frá Eyrarhakka.
V edurathugranir
i Reykjavík, eftir Sigriði BjörnsdóUur.
1904 ágúst — sept. Loftvog millim. Hiti (C.) >- Cf er* < CD cr. -s zr ?D C* yl 7T 3 crc Urkoma millim.
Ld 27.81759,8 9,0 NE 1 9
> 2 760,8 12,5 S8E 1 9
9 759,9 10,8 8E 1 10
•8.1 26.8 758,6 1,7 NE 1 2 0.9
2:756,1 12,9 NE 1 9
9 754,0 lU | 0 10
Md29.8:753,8 11,2 NE 1 10 1,4
2 753,0 11.6 0 10
9 752,9 11,7 0 10
Þd 30.8 753,3 12,4 E 1 8 13,6
2 754,0 13,6 8E 1 9
9 752,6 11,6| SE 1 10
Md31.8 750,7 8,71 0 8 2,1
2 748,5 9,5 NW 1 10
9 744,5| 8,7 0 10
Kd 1.8:741,4 7,9! 0 10 4,0
2 743,0 12,1 S 1 9
9 744,8 9,7 8E 1 9
Fd 2.8 750,6 6,5 8W 1 10
2 752,7 10,4 8W 1 8
91752,7 8,8 0 5
Skilvinduverksmiðja Burmeister & Wains
hefir nýlega hlotið fyrsta fiokks verðlaun
þau r hér segir:
I PONOSWESH (Rússland) stóra silfur-
medaliu fyrir »Perfect« borð til að hnoða
smjör.
I WJASMA (Rússland) stóra silfur-
medalíu fyrir át öld til smjörgerðar (Per-
fect skilvinduna, »Perfect strokkinno. s. f.)
1 BERHN (undir vernd keisarainnunnar á
Þýzkalandi) fekk >PerfeCt«-skilvindan og
»Perfect«-strokkurinn: heiðursmerki (Æres-
diplom), heiðurskross og gullmedaiiu.
I WISBY (Gautlandi) stóra silfurmedaliu
fyrir »Perfect«-strokkinn.
I Danmörku ryður hin nýja »Perfect«
skilvinda sér til rúms, og mjólkurbú, sem
fá sér nýjar skilvindur, taka »Perfect«,en
siður eldri skilvindur. I Svíariki er nú
»Perfect« skilvindan seld svo þúsundum
skiftir. og er þar þó ekki hörguli á sænsk-
um skilvindutn. Áuk þess selst »Perfect«
svo þúsundum skiftir til Englands, Frakk-
lanþs og Rússlauds og yfir höfuð um alla
Norðurálfu. »Perfect« selst eins fyrir það,
þótt keppinautar geri sitt til að spilla fyr-
ir lienni, þvi þessi skilvinda mælir sjálf
með sér og þeir sem þekkja »Perfect« nota
ekki aðrar skilvindur.
——————
Hér með tjái eg mitt innilegasta þakk-
læti öllum þeim, er á ýmsan hátt veittu
mér hjálp og aðstoð i hinni löngu
leg mins elskulega eiginmanns Bene-
dikts sál. Pálssonar prentara og sýndu
mér hluttekning í minni miklu sorg
við fráfall hans og heiðruðu jarðarför
hans með návist sinni.
Reykjavík, 31 ágúst 1904.
Sigriður Pálsdóttir.
■UHU
Öllum þeim sem i banalegu og við
útför minnar elskuðu konu sýndu mér
kærleikshluttekning, votta ég innilega
þökk. Hafnarfirði 20. ágúst 1904
Filippus Filippusson.
Hlutatélagið „Völundur“
heldur fund næstk. sunnudag kl. lo
f. h. í Báruhúsinu uppi á lofti. —
Aríðandi að hluthafar mæti.
Rvík 6. sept. 1904.
Stjórnin.
Til sölu með góðu verði ný kommóða
og Singers saumavél stigin. Ritstj visar á
seljanda.
Blómkál
og fleira
grænmeti
selur
Ástríður Petersen
Bóklilöðustíg 8.
SKANDINAVISK
Exportkaffi-Surrogat
Kjebenhavn. — F- Hjorth & Co-
Gnfuskipafél. „Thore“.
„Tryggve“ kouungur
fer héðan beina leið til Kaup-
mannahafnar 18. sept. Ferð-
in stendur yfir 5—6 daga. Skip-
ið getur tekið vörur til flutnings bæði
til Leith og Kaupmannahafnar, og
verður Leith-vörunum skilað í baka-
leiðinni c. 3.-6. okt.
Tryggvi konungur
fer til vesturlandsins aðfara-
nótt fimintudafís kl. 2
Forte-pianu er til sölu með góðum
borgunarkjörum. Ágætt hljóðfæri. Ritstj.
visar á
Til ieigix 1 herbergi fyrir eini 1. með
aðgangi að forstofu í búsi Steingr. Guð-
mundssonar snikkara Bergstaðastr. 9.
'X'ii sölii nýtt og vandað ibúðarhús í
Hafnarfirði 10XU að stærð, portbygt með
3 herbergjum uiðri, auk eldhÚBS og búrs og
4 herbergjum uppi. Húsinu fylgir stór
lóð, með erfðafestu.
Semja má við lir. kaupm. Ágúst Flygen-
ring í Hafnarfirði.
2 loftherbergi með ofnnm, eldavélum
og geymslu eru til leigu fyrir einhleypa frá
1. okt. í Ingólfsstræti ö.
Rófur og kartöílur fást á Rauðará.
Stórflsk, smáfisk
og ýsu
í spanskri og ítalskri aðgreiningu
kaupir
Th. Thorsteinsson.
Góðar danskar
cJSartöJlur
eru seldar í verzlun
P. J. Thorsteinsson & Co.
í Hafnarfirði
einnig LíUlkur
Dömur og herrarí
Galocher
er bezt að kaupa hjá
B. H. Bjaruason.
Utan- og imianhúspappi,
Klisturspappír og Veggjapappír er
áreiðanlega beztur og langódýrastur í
verzlun undirriíaðs — skoðið papp-
ann og spyrjið um verðið, áður en
þér kaupið hann hjá öðrum.
B. H. Bjarnason.
Kenuarastarf
við barnaskóla Bessastaðahrepps næsta
vetur er laust. Starfstimi 6 mánuðir;
kaup 300 kr. Umsóknir séu fyrir
25. þ. m. komnar til prófasts síra
Jens Pálssonar i Görðurn.
Mjólknrskiivindan
— FENIX, —
bezta skilvinda sem nú er
til,
fæst í öllum verzlunum
J. P. T. Brydes
og hjá hr. konsúl
J. V. Havsteen á Oddeyri.