Ísafold - 10.09.1904, Page 1
'Kemnr út ýmist einu sinni eða
tvisv. i vikn. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
1 */, doll.; borgist fyrir miðjan
’úlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bnndin við
íramót, ógild nema komin eé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austuratræti 8.
XXXI. árg.
Reykjavík laugardaginn 10. september 1904
60. bíað.
Hvers vegna eg kýs Jön Jensson
A f þ ví að hann er maður vitur og vel að sér, einarð-
ur og stefnufastur, réttsýnn og ö 11 u m óháður.
A f þ v í a ð hann er r e y n d u r á þingi að slíkum og
öðrum þingmannskostum.
A f þ v í a ð hann ber einlæglega fyrir brjósti landsrétt-
indi vor og vill ekki láta rýra þau eða hnekkja þeim á nokkurn
hátt.
A f þ v í a ð hann heldur fram óskoruðu þingræði og
þjóðræði.
A f þ v í a ð hann vill ekki láta þjóð vora verða undir-
lægju d a n s k r a stjórnarvalda fyrir ábyrgðarlaus áhrif þeirra á
skipun landsins æðsta valdsmanns.
A f þ v í a ð hann vill vernda sjávarútveginn gegn yfir-
gangi landbúnaðarins og hlutdrægni þings og stjórnar honum í
vil (landbúnaðinum).
A f þ v i a ð eg sem verzlunarstéttarmaður treysti honum
manna bezt til að fá lagaða verzlunar- og siglingalöggjöf vora,
með því að hann er ágætur lagamaður.
A f þ v í a ð eg, sem er bindindismaður, veit að hann
vinnur bindindismálinu meira gagn á þingi, eins og þar er
flokkum háttað, heldur en hvað góður bindindismaður sem er,
ef sá íyllir stjórnarflokkinn.
A í þ v í a ð hann vill ekki láta leggja neina ójafnaðar-
tolla á sjávarmenn, og s í z t matvörutoll.
Af því að hann vill hlynna að þilskipaútvegnum,
hinum helzta lifsbjargarvegi þessa bæjar, með hagíeldum atvinnu-
lánum.
Af því að hann vill forða landssjóði við óþörfum og
hóflausum útgjöldum.
Gamall kjósandi.
I. 0. 0. F. 869169
Augnlœkning ókeypig 1. ag 3. þrd. á
hverjnm mán. kl. 11—1 i spltalannm.
Forngripasafn opifJ mánnd., mvd. og
ld M—12.
Hlutabankinn opinn kl. 10—3 og
-61/*—71/*.
K. F. U. M. Lestrar- otr skrifstofa op-
in á bverjnm degi kl. 8 árd. til kl. 10 siðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
mnnudagskveldi kl. 8‘/a siðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
og kl. 6 á hverjum helgum degi.
Landakotsspitali opinn fyrir sjúkravitj-
endur kl. 10'/a—12 og 4—6.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
fcl 11—2. Bankastjórn við ki. 12—1.
Bankastjóri við kl. 11—2.
Landsbókasafn opiÖ hvern virkan dag
n. 12—3 og kl. 6—».
Landsskjalasafnið opið á þrd., fimtud.
4>g ld. kl 12—1.
Ndttúrugripasafn, í V esturgötu 10, opið
a sd. kl. 2—3.
Tannlœkning ókeypisiPósthússtrseti 14b
i. og ó. manuU. nvers mau. ki. 11—1.
Mikilsverð fyrirmynd.
Tvent sr það, sem gerir kosninguna
í dag stórum merkilega, bæði hér og
í hinum kjördæmum landsins þremur,
sem eins stendur á fyrir; í 4. kjör-
dæminu utan Reykjavíkur, Beyðisfjarð-
arkaupstað, er kosning sama sem
löngu um garð gengin og þjóðkunn
orðin.
Annað er það, að nú eiga islenzkir
kjósendur í fyrsta sinn kost á að
neyta atkvæðisréttar síns með fullu
frelsi, eftir sannfæring sinni og sam-
vizku, gersamlega óháðir öllum annar-
legum og ótilhlýðilegum áhrifum, með
þeirri tilhögun, sem fengin er næg
reynsla fyrir um hinn mentaða heim
víðast hvar, að bezt tryggir kjörfrelsi
almennings.
Nú er þá að neyta þessa nýfengna
freUis svo vel og sleitulaust, að fyrir-
mynd sé að. f>á gera þeir sér og
bænum og landinu sóma, en vansæmd
með hinu, að smá þennan frelsiskjör-
grip með því að láta haun ónotaðan.
Hitt er það, að nú á þjóðin, eða
þetta brot af henni, er á að kjósa f
þetta sinn, í fyrsta skifti kost á að
segja til með atkvæðagreiðslu, hvort
henni líkar eða líkar ekki það tilræði
við nýfengið þingræði vort, er felst í
ólöglegri skipun hins fyrsta íslands-
ráðgjafa, með þar af leiðandi voða fyr-
ir stjórnfrelsi það, er þjóðin hefir lagt
svo mikið í sölur fyrir, — langa og
harða baráttu.
Hér er e k k i úr vöndu að ráða.
Hér er að eins um að velja tvö
þingmannsefni, er annað vill ekkert
gera úr þessum voða, en hitt hefir
opnað augu þjóðarinnar á honum og
berst gegn honum af öllum mætti.
Hér á höfuðstaður landsins kost á
að vinna sér til ágætis frammi fyrir
allri þjóðinni og vera henni harla mik-
ilsverð fyrirmynd.
J>að getur hann með því, að kjósa
nú á þing mann, sem er og ágætis-
maður að öðru leyti, — hann getur
það með því, að kjósa
yfirdómara Jón Jensson.
SjÓ8endafunður
var haldinn hér í gærkveldi, al-
mennur, í Iðnaðarmannahúsinu, að til-
hlutun flokksmanna Jóns Jenssonar,
aðallega í því skyni að veita almenn-
ar bendingar og leiðbeiningar um koan-
inguna í dag. f>ar var húsfyllir og
meira en það.
f>ar töluðu af þess fiokks hendi
stúdent Ben. Sveinsson, sem setti
fundinn, Björn Jónsson ritstjóri, Krist-
ján f>orgrímsson kaupmaður, f>órður
Sveinsson stúdent, Bichard prestur
Torfason, Brynj. H. Bjarnason kaup-
maður, Einar Benediktsson yfirréttar-
málaflm., alþm. Björn kaupm. Kristj-
ánsson, Sigurður Jónsson kennari,
Magnús Benjamínsson úrsmiður, Pét-
ur Jónsson blikksmiður, Jón Sigurðs-
son skrifari. En af hinna hendi Hall-
dór Jónsson gjaldkeri, Jón Olafsson
ritstjóri, alþm. Tryggvi Gunnarsson
bankastjóri, alþm. Jón Jakobsson
forngripavörður, þingmannsefnið Guðm.
læknir Björnsson og Hjalti Jónsson
skipstjóri.
Mjög var þingbeimur að heyra
framar á bandi með Jóni Jenssyni.
Að máli Einars Benediktssonar var
sem fyr gerður hinn mesti rómur.
Hann á fáa sína líka að fyndni og
snjöllum svörum.
Ræður lutu að þingmannshæfileik-
um frambjóðanda og nokkrum áhuga-
málum kjósenda, bæði almennum og
bænum viðkomandi sérstaklega.
Ef satt er
sagði Isafold um daginn um kvitt
þann, er þar getur um snertandi land-
fógetastörfin eftirleiðis, að' íslands banki
hefði boðist til að taka þau að sór fyr-
ir ekki neitt. Bankastjórnin skýrir nú
Isafold frá því bréflega, að svo sé ekki.
En kveðst hafa boðist til að ávaxta pen-
ingaforða landssjóðs með ákveðnum, uáu-
ara tilteknum kjörum, en ekkert svar
hafa feugið um það frá stjórninni að
svo komnu.
Ekkert skriflegt svar, á hún líklega
við. Munnlegt nei getur vel verið kom-
ið fyrir því, og skriflegt að eins ókomið.
Heimildarmaður Isafoldar fyrir sög-
unni um tilboð Hlutabankans viðvíkj-
andi landfógetastörfunum er einhver
hinn áreiðanlegasti maður hór í bæ, og
hann hafði fyrir sór frásögn mauns, er
varla var hugsanlegt annað en að vissi
þetta gjörla.
Þingkosningin og sjömannastéttin.
Engri stétt í þessum bæ ríður meira
á, að vel og rétt fari kosning sú á
þingmanni, sem fram á að fara í
dag, heldur en sjómannastéttinni
íslenzku. Annað þingmannsefnið, G.
B., sem hér býður sig fram, vill ein-
dregið fylla þann flokk frá síðasta
þingi, sem studdi að því, að Hannes
Hafstein yrði ráðgjafi og því fylgir
honum áfram, en sá flokkur var á
síðasta þingi mikið liðsterkari en hinn.
Gætum að, hvað þessi flokkur gerði
á síðasta þingi fyrir
sjómannastéttina.
1. Flokkurinn og ráðgjafinn, sem
fyrir þeim flokki réð, kom því til
leiðar, að þilskipa.lánin voru
færð úr 6 0 þús. kr. á fjárhag-
stímabilinu niður i 3 0 þús.
k r ., þrátt fyrir það, þó að fram-
sóknarmenn berðust fyrir því, að
lánin ekki einungis stæðu í stað,
svo kaupa mætti ný skip, heldur
hækkuðu. Á sama þingi veitir
þessi stjórnarflokkur landbúnað-
inum
aö g.jðf
til að útrýma fjárkláðanum
94,500 kr,
og til búnaðarfélaga
108 þús. krónur
Ennfremur fyrir útflutt smjör 10
þús. Til kjötsölutilrauna 2000
kr, Til búnaðarskóla 25,500 kr.,
og margar aðrar smærri fjárhæðir.
Svo var þessi flokkur, sem öllu
réð á þingi, andstæður framförum
sjómannastéttarinnar, að hann
feldi þau hlunnindi, að fá 1 á n
til þilskipakaupa, niður um helm-
ing, vitandi þó, að þau hafa að
eins verið lánuð til 10 ára gegn
v ö x t u m, og vitandi, a ð s k i p i n
g a n g a ó ð u m úr sér.
2. Framfaraflokksmenn börðust fyrir
því, að vitar væru settir nú
þegar á Vestmanneyjar, á Önd-
verðanes og víðar, og þegar það
fekst ekki, þá aðeins á V e 8 t-
manneyjar. f>essu gat
stjórnarflokkurinn af-
stýrt.
3. Stjórnarflokkurinn samþykti, að
verja hálfri miljón króna
til g ad d a v í r s g i r ð i n g a .
SHkar girðingar gátu auðvitað ekki
komist á nema með auknum toll-
um. Og eftir því sem reynslan
hefir sýnt og eftir því sem stjórn-
arflokkurinn kom fram á þinginu