Ísafold - 26.11.1904, Side 3
299
200: Björn Jónsson ritstjóri, SigurtJur
Briem póstmeistari og Þórh. Bjarnarson
lektor.
190: H. Andersen klæðsali, Björn Ó-
lafsson augnlæknir og Eiríkur Briempresta-
skólakennari.
175: Jón Hermannsson skrifstofustjóri.
170: Guðm. Björnsson héraðsl.
160: Gruðm. Magnússon læknakennari,
Halldór Jónsson bankagjaldkeri, JónMagn-
ússon skrifstofustjóri, Sighv. Bjarnason
bankastjóri, Steingr. Thorsteinsson rektor
og Sveinn Sigfússon kaupm.
150: Björn M. Óisen f. rektor, Daníel
Bernhöft bakari, Eggert Briem skrifstofu-
stjóri, Hannes Dorsteinsson ritstjóri, Ishús-
félagið og Knud Zimsen ingenieur.
140: Féiagsbakaríið, Gunnar Einarsson
kaupmaður og Þórður J. Thoroddsen banka-
gjaldkeri.
130: Jón Jensson yfirdómari og Ólaf-
ur Davíðsson bankabókari.
125: Guðjón Sigurðsson úrsmiður
Gunnar Þorbjarnarsson kaupm. og Lárus
Benediktsson f. prestur.
120: Benedikt S. Þórarinsson kaupm.,
Einar Zoega veitingamaður, Kristján Jóns-
son yfird., Siggeir Torfason kaupmaður og
Sæm. Bjarnhéðinsson spitalalæknir.
110: Björn Guðmundsson timburkaupm.
100: Braun (Eich.) kaupmaður, Frið-
rik Jónsson kaupm., Halldór Þórðarson
bókbindari, Jóbannes Sigfússon settur yfir-
kennari, Jón Yidalín brezkur konsúll, Odd-
ur Gislason yfirréttarmálfm., Pálmi Páls-
son adjunkt og Sigurður Thoroddsen sett-
nr adjunkt.
Ýms tíðindi erlend.
Aidrei kvað kosningagauragangur hafa
meiri verið í Ameríku en í forsetakosn-
ingunni núna, og er þá langt til jafn-
aS. Þrír menn biðu bana í þeirri við-
ureign á einum stað í Colorado, en 7
stórmeiddust. Sumar sögur segja, að
10 menn alls muni hafa lífi tynt • í,
kosningaryskingum um öll Bandaríkin.
Fullar 14 miljónir manna greiddu at-
kvœði.
Fundarspjöll urðu á þinginu í Mad-
rid um síðustu mánaðamót litlu betri
en í París. Þar átti að fá heimild
meiri hluta til málshöfðunar gegn
nokkrum þingmönnum. Því var reynt
að afstýra með þrámælgi, og stóð fundur
hátt upp í sólarhring. Loks lenti í á-
flogum, og varð lögreglan að skakka
þann leik.
Þjóðverjum hefir lengi verið gjarnt
til yfirgangs við aðrar þjóðir, er þeir
eiga sambúð við, bæði á Þýzkalandi og
í Austurríki. Gera skyldi í haust ítöl-
um það til hæfis í Tyrol, með því að
þeir eru þar viðlíka margir og Þjóð-
verjar, að þeir fengi ítalskan háskóla í
Innsbruck, höfuðstaðnum í Tyrol. Það
þoldu ekki þýzkir stúdentar og gerðu
uppþot. Þar urðu um 20 stúdentar
sárir og á annað hundrað snarað í varð-
hald af lögregluliði.
Tjón varð af landskjálfta 6. þ. m. í
eynni Formósu, er Japanar eiga nú, en
Kínverjar áður. Hús hrundu þar um
H hundrað og 80 manns biðu bana.
Jjeikhúslð.
Áfturgöngur voru leiknar aft-.
ur á helginni síðustu, og fengu færri
að sjá en vildu; svo var mikil að-
sóknin.
Leikendum tokst þá og til muna
betur yfirleitt en í fyrsta skiftið.
Fórn Abrahams.
(Frh.)
Biddarahersirinn var höfuðstór, blóm-
legur í andliti, með geysimikið yfir-
skegg, rómmikill og nokkuð skræk-
hljóðaður. það leyndi sér ekki, að
það var maður, sem átt hafði góða
daga. Hann hafði orðið að hverfa ný-
lega frá vistarborðinu og refaveiðun-
um og leggja á sig leiðindavinnu, sem
hann þráði að lokið væri sem fyrst og
stóð ella alveg á sama um. En skyldu
sína gerði hann sleitulaust og bar
hernaðarþrautirnar sæmilega karlmann-
lega. En heldur kaus hann að hvíla
sig. f>að var notalegra, og það var
miklu líkara lífinu á gamla Englandi.
Hann var ræðinn og hreifur í máli og
aýndi þar með, að enskur liðsforingi
gæti haldið uppi sararæðu engu miður
en doktor í heimspeki frá tveimur
Nor ðurálf uh áskólum.
þrjú skref frá honum sat hljóður
og dulur maðurinn, er þar var svo sem
eins og fulltrúi smáþjóðanna tveggja,
er höfðu sýnt, að þær höfðu mátt til
að hrista af sér afleiðingar hinna
mannskæðu ósigra og að taka til ó-
spiltra mála hvað ofan í annað, jafn-
vel eftir að svo var að sjá, sem alt
væri úti. Van der Nath hafði snar-
að frá sór barðabreiða hattinum og
sat þar ógreiddur og með hárið flaksandi
niður um herðarnar, en óhreina tusku-
ræmu bundna um ennið til þess að
stöðva blóðrás úr skeinu, sem hann
hafði fengið upp við hársræturnar.
Hann var smáeygður og píreygður, og
leit ýmist vingjarnlega eða forvitnis-
lega framan í hina á víxl, en strauk
hendinni við og við um skeggið, sem
var mjög sítt. Hann sýndi af sér
virðingarverða viðleitni á að gera sér
skiljanlegt, hvað þar gerðist kringum
hann, og að eiga þátt í glaðlegu skraf-
inu, meðan verið var að borða. En
þetta, hvað hinir ókunnu menn voru
snyrtimannlegir, olli því, að hann fór
enn meira hjá sér. Honum var litið
niður á klunnaleg stigvélin sín. Annað
þeirra var sundur á tánni. f>ar stóð
út úr ruddalegur sokkur og sá á tærn-
ar þar út í gegn. Fötin fóru honum
illa og voru bætt. Hárið var ógreitt,
og hann vissi með sjálfum sér, að
hann hafði ekki látið sér detta þvotta-
vatn í hug tvo sólarhringa. Honum
fanst sér vera þar of aukið, eina og
almúgamanni, er lent hefði í heldri
manna hóp af misgáningi. Hann fór
allur hjá sér vegna þess, hve hann
var lélega búinn. f>að bar svo mikið
á því við hlið hinna, sem voru svo vel
búnir, þrátt fyrir hernaðarvolkið, og
hann dáðist að þeim, eins og gott
barn dáist að heldra fólki, er það veit,
að það getur ekki líkst.
Hér með tilkynnist vinum og vanda-
mönnum, að minn elsknlegi eiginmaður
Gestur Jónsson andaðist að heimili sínu
Keynistað í Þingboltum 25. þ. m.
Ingihjörg Andrésdóttir.
Yinnnkona, til að annast matreiðslu
og eldbúsverk, óskast frá 14. mai næstk.
á heimili undirskrifaðs. Hátt kaup i boði.
Keykjavik 24. nóv. 1904.
N. B. Nielsen.
Söltuð síld
fæst i verzlun
H. P. DUUS
Kaupendur gefi sig fram fyrir 4. des.
Alþýðufyrirlestrar
Stúdentafélagsins.
Annaðkvöld (sunnud.) kl. 5 e. m.,
i Iðnaðarmannahúsinu.
Bjarni Jónsson frá Vogi:
Oft rná af máli þekkja,
Hafníirðingar og nærsveitamenn
ættu jafnan að spyrja um verð á nauðsynjavörum sínum í verzlun
P. J. Thorsteinsson & Co. í Hafnarfirði,
áður en þeir kaupa annarsstaðar. f»að mun Óefað borga SÍg.
Otto Monsteds
danska smjörlíki
er b ezt.
Hafið þér teng|ð yður í föt
fyrir jólin?
Ef ekki þá Romié scm Jyrsf í klæðskeraverzlunina
LIVERPOOL.
í»að er mesta og bezta úrvalið af alls konar fata-
efnum og öllu er karlmenn með þurfa.
ALFA LAVAL hæstu verðlaun 1904.
Á heimsýningunni
í St. Louis
hefir ALFA LAVAL í samkepni borið af öllum öðrum skilvindum og hjá dóm-
nefnd sýningarinnar blotið
hæstu verðlaun (Grand Prize),
einu hæstu verðlaunin, sem nokkur skilvinda hlaut á sýningunni, og hefir hún
því enn þá einu sinni fengið opinbert vottorð um að vera
heimsins bezta skilvinda.
Aktiebolaget Separator Depot.
ALFA LAVAL
Vestergade 10. Köbenhavn K.
Með Laura nýkomið
i vefnaðarvöruverzlunina í IngöMvoli
meðal annars: úrval af 1 í f s t y k k j u m, léreftum, sirzum, tvisttauum.
FYRIR DANSLEIKINA:
Musselinsefni, hvít og mislit, hvít og svört blúndu- og tullefni, allsk. leggingar og
silkibönd, silkislifsi frá 0,60, sokkar frá 0,25, mesta úrval af hönzkum, hvítir
skinnhanzkar 8- og 10-hneptir, silkihanzkar 3- 6- og 12 hneptir etc. etc.
cJlíí Jallagar, góéar og óéýrar vörur.
Aðstoðarstúlka
getur fengiö vist frá 14. mai næstkom. á
Café Uppsalir.
Til sölu vanbað íbúðarhús nál. miðj-
um bænum. Lítil útborgun og skilmálar
mjöð góðir. Semja mú við Steingrirn Guð-
mundsson, snikkara, Bergstaðastig 9.
Bræðurnir G. og S. Eggerz
eru fluttir í Suöurgötu 8.
V ínþrtígur,
Ep»L
J^vítkáls- °g
Rauðkálshöfuð
nýkomin í
Brydes verzlun í Reykjavík.
Uppboð
það, sem auglýst hefir verið, að haldið
yrði á Járngerðarstöðum í Grindavík
30. þ. m. á gufubátnum »Oddur« frá
Eyrarbakka, afturkallast hér með.
Uppboðsráðandinn í Gullbringu- og
Kjósarsýslu 26. nóv. 1904.
Páll Einarsson.
Fortepiano óskast til leigu nú þegar.
Ritstj. vísar á.