Ísafold - 06.07.1905, Side 3
í S A F 0 L D
163
Hækkun á aðflutniugsgjaldi.
Nokkrar umræður urðu um það mál
í fyrra dag.
Ráðgjafinn (H. H.) : Tekjur
land8Íns hrökkva ekki fyrir út-
gjöldum. Tvent er til um að ráða
bót þar á: að lækka útgjöldin eða
hækka tekjurnar. Flestir munu á einu
máli um það, að ekki komi til mála
að lækka útgjöldin. Eina ráðið er
því að hækka tekjurnar. Skattalög-
gjöf land8Íns er í mörgu ábótavant;
skattarnir koma ójafnt niður o. s. frv.
Stjórnin hefir ekki enn haft tíma til
þess að íhuga og undirbúa gjörsamlega
breytingu á þessari löggjöf, en þar eð
tekjuhallinn undanfarin ár og ekki sízt
nú er svona mikill er nauðsynlegt að
bæta til bráðabirgða úr þessu,
og eftir nákvæma íhngun komst stjórn
in að þeirri niðurstöðu, að það yrði
einungis gert með tollhækkun. Yfir
höfuð verður stjórnin að byggja á ó-
beinu sköttunum.
Frv. þetta er einungis fjárhagslegt
frumv., um toll-h æ k k u n ekki toll-
breyting. Vörurþærsem hér er talað
um að tolla, eru tollaðar langtum
hærra f mörgum löndum. |>etta er
bráðabirgðaráðstöfun vegna tekjuhall-
ans. f>ess vegna virðist mér rótt að
vísa málinu til fjárlaganefndarinnar.
(Gekk út siðan).
Skúli Thoroddsen tók fram
5 atriði viðv. frv.:
1. Frv. kemur mönnum óvart.
Hefði átt að gefa þingmálafundum
kost á að láta álít sitt í ljósi.
2. Um vinfangatollinn hefðu þing-
málafundir verið sammála um að mót-
mælft honum. Hann (tollurinn) væri
þrándur í götu bindindishreyfingarinn-
ar. jþví meiri tekjur sem landssjóður
hefði af víninu, því síður mætti hann
sjá af tollinum.
3. Sykur og kaffi eru nauðsynja-
vörur, og því rangt að tolla þær.
4. Hins vegar væri rétt að taka til
íhugunar, hvort ekki mætti rétta við
tekjuhallann með »faktúru« tolli (mið-
uðum við viðskiftamagnið).
5. Annars væri varasamt að fá
stjórninni of mikið fé í hendur, þar sem
nokkuð almeun óánægja væri með fjár-
stjórn hennar. Ymsar raddir hafa
heyrst um, að hún hafi farið út fyrir
fjárlögín í samningum sínum.
L á r u s H. B. flýtti sér mjög að
gera sig að talsmanni hins brottborfna
mágs síns, ráðgjafans. |>rætti fyrir,
að tollarnir kæmu nokkrum macni á
óvart. Hækkun áíengistolls kvað hann
styðja bindindi! jfprætti fyrir, að ráðgj.
hefði farið út fyrir fjárlögin, er hann
gerðí ritsímasamninginn. (f>að sagðist
þó sjálfur ráðgjafinn hafa gert, í viður-
vist mörg hundruð manna hér á þing-
málafundi). Engan rétt kvað hann
þingið hafa til að hrófla neitt við rit-
símasamningnum!
MagDÚs Kristjánsson vildi
ekki láta hækka kaffi- og sykurtoll.
R á ð g j a f i n n var nú korninn aftur
og mælti: Við þurfum að auka
tekjurnar (vegna ritsímahítarinnar auð-
vitað); eg hefi hugsað vandlega, hvernig
það mætti verða og engan veg fundið
annan.
Eg kannast alls ekki við að hafa
farið út fyrir fjárlögin! (Sbr. þingmála-
fund 19. júní).
SkúlaThoroddsen þótti hugs-
Unargangur LHB. einkennilegur, er
hann (LHB.) vill auka tekjur lands-
ins með víntolli, en segir á næstu mln-
útu, að vínnautn muni fara minkandi
að sama skapi og tollurinn hækkar.
Guðlaugur Guðmundsson
vildi skipa sérstaka nefnd í málið.
|>órhallur Bjarnarson vildi
vísa því til fjárlaganefndarinnar.
Málinu vísað til 2. umr., og til fjár-
laganefndar með 16 : 5 atkv.
Þiiigmálaíundir.
- Austur-Skaftfeilingar.
Þeir liéldu sinn fund 28. júní uð
Biarnarnesi, með kjörnum fulltrúum úr
öllum hreppuin kjördæmisins. nema Or-
æfuni, eftir fundarboði frá þeim Þoi'leifi
hreppstjóra Jónssyni í Hólum og síra
Þorsteini Benediktssyni í Bjarnarnesi,
með því að þingmaðurinn, Þorgrímur
læknir, var farinti austan að alfarinn,
til Keflavíkur. Fundarstjóri var kosinn
Jón ptóf. Jónsson í Stafafelli og skrifari
Þórh. Daníelsson varzlunarstj. í Höfn.
Eftir allmildar umræður var með 13:5
atkv. samþykt í ritsímamálinu
svofeld fundarályktun:
Fundurinn lýsir óánœgju sinni yfir
pví, að ráðherrann liefir gert samn-
ing urn ntsímalagning hingað, svo
úr garði gerðan sem hann er, að al-
pingi fornspurðu, og skorar á pingið,
að sampykkja ekkert í pví máli, sem er
kröjtum pjóðarinnar ofvaxið. Einnig
telur fundurinn rétt, að pingið rannsaki
alt málið frá rótum.
Þá var í undirskriftarmálinu
samþykt í einu hlj. svofeld ályktun:
Fundurinn óskar að pað komi ekki
oftar fyrir, að forsætisráðherra Dana
slirifi undir skipun ráðherra vors, heldur
verði pessu hagað samkvœmt vilja síð-
asta alpingis, og skorar pví á alpingi
að sampykkja ályktun um petta mál, er
miði til pess að hrinda pví í rétt liorf.
Vestmanneyingar.
Þeir héldu ’sinn fund 25. júní, með
um 50 kjósendum, Fuudarstjóri Magn-
ús Jónsson sýslum. og fundarskrifari
Árni Filippusson bókari.
Þar var f ritsímamálinu samþ.
í einu hlj. svofeld ályktun:
Fundurinn telur hraðskeytasamband
við önnur lönd æskilegt, en vill eigi
sæta par neinum afarkostum, og hyggur
að ritsímasamningurinn frá í haust sé
ofvaxinn fjárhag landsins, hafi eigi
heimild í gildandi fjárlögum og sé pví
hættulegur fjárforræði voru og pingræði,
og skorar fastlega á pingið að sampykkja
ckkert í pví máli, sem sé efnahag pjóð-
arinnar um tnegn.
Jafnframt skorar fundurinn á pingið,
að sæta peim kjörum í hraðskeytamál-
inu, sem bezt eru fyrir landið, og mót-
mæla fjárframlögum til hraðskeytasarn-
bands áður en pingið hefir bundið enda
á málið frá pjóðarinnar hlið.
Þar næst var í undirskriftar-
málinu samþ. (í e. hlj.?) þessi álykt-
un :
Fundurinn lýsir yfir pví áliti sínu, að
með undirskrift forsætisráðherrans danska
undir skipun Islandsráðherra í fyrra
vetur hafi verið framin lögleysa og pjóð-
réttindum vorum traðkað, og skorar á
pingið að gera pað, sem í pess valdi
stendur, til pess að slíkt komi eigi fyrir
framvegis.
Barðstrendingar.
Þar voru 2 fundir haldnir, annar á
Patreksfirði og hinn á Bíldudal. ísafold
hefir fengið fundarskýrslu frá Bíldudals-
fundinum. Hann var haldinn 27. júní,
eftir fundarboði þingmannsins, Sigurðar
próf. Jenssonar í Flatey. Fundarstjóri
var Bjarni Loftsson sýslunefndarmaður
og skrifari Jón prestur Árnason í Otradal.
Þar var með öllum greiddum atkvæð-
um (24 kj.ósendur á fundi, úr Dalahreppi
og Suðurfjörðum) samþykt eftir nokkrar
umræður þessi ályktun í r i t s í m a-
m á 1 i n u :
Fundurinn lýsir óánægju sinni yfir
pví, að ráðherrann hefir gert samning
við ritsimafélagið danska um ritsíma-
lagtiing liingað, án pess að leggja málið
fyrst fyrir alpingi, og skorar á alpingi
að gæta pess, að sampykkja ekkert í
pessu tnáli, er leggi of punga byrði á
pjóðina, en að sæta peim kjörnm i lirað-
skeytamálinu, sem bezt eru Jyrir landið.
Komist pingið að góðum kjörum í hvrð
skeytamálinu, skorar fundurinn á alpingi
að sjá um, að fiest kauptún á Vestur-
landi fái hraðskeytasamband við Reykja-
vík og útlönd, jafnt og önnur kauptún
latidsins.
Þar næst var í undirskriftar-
m á 1 i n u samþ. í einu hlj. þessi ályktun :
Fundurinn lýsir óánægju sinni út af
pví, að forsætisráðgjafinn danski hefir
undirskrifað skipunarbréf Islandsráð-
gjafa, pvert á móti pví, sem alpingi
ætlaðist til pegar stjórnarskrárbreytingin
var sampykt 1903, og skoðar pað sem
skerðing á pjóðréttindum vorum; og
skorar fundurinn á pingið að mótmæla
pví og að slíkt komi fyrir framvegis.
■---•—m ■ m t----
Setning alþingis.
Svo fór urn forsetakosning m. m.,
sem Isafold hafði sagt fyrir: M a g n-
ús Stephensen kosinn forseti í
neðri deild með 15 atkv. af 24 (Guðl.
Guðmundsson fekk 7, en 2 voru dreifð).
Og í efri deild Júlíus Havsteen
með öllum atkv. stjórnarliða þar; hin
fekk dr. Valtýr Guðmundsson. Skrif-
arasætin þar prýða þeir uppgjafarektor
og »sannsöglis« ritstjórinn, en í neðri
hinir sömu og áður (Árni Jónsson og
Jón Magnússon).
Varaforseta í neðri d. kusu báðir
flokkar Magnús Andrésson — stjórnar-
liðum er farið að lítast býsna-vel á
hann, en líklegast af tómri heimsku.
Varafors. í efri d. varð Jón Jakobsson
með stjórnarliðsatkvæðunum.
Forseti í sameinuðu þingi varð Ei-
rikur Briem með öllum stjórnarliðsat-
kvæðum (24). Og varaforseti Lárus
nokkur H. Bjarnason með 22 atkv.;
2 bafði þó boðið við honum. það
er uppbótin fyrir öskupokann !
Olafur Briem hlaut óháðu atkvæðin
flest (11 af 14) í varaforsetakosuing-
unni í sameinaða þingi.
Nýir þingmenn í efri deild voru þeir
kosnir, sem ísafold gerði ráð fyrir
síðast: Jóhannes Jóhannssson (23) og
Sigurður Stefánsson (24).
Prestvigður
var sunnudag 2. þ. mán. cand. theol.
G í s 1 i S k ú 1 a s o n aS Stokkseyri.
Flokkaskiftingin.
Af þjóðkjörnum þingmönnum, 34 alls,
eru 18 nú þegar vissir stjórnarliðar, og
13 vÍ8sir stjórnarandstæðingar. þrír
telja sig utan flokka að svo stöddu:
Jón í Múla, Magnús KristjánssoD og
Ólafur Thorlacius.
Vitanlega þarf ekki um það að spyrja,
hvar hinir konungkjörnu standa í fylk-
ingu.
Einn þeirra, er lézt vera utanflokka-
maður (lausamaður) þegar hann var
kosinn í fyrra, ei> að sögn algenginn í
stjórnarflokkinn, — gerði það jafnvel
fyrir þing. J>að er 2. þm. Rvíkinga,
Guðm. Björnsson.
þingmaður Borgfirðinga (þórh. B.)
hefir og haft flokks-fataskifti rétt einu
sinni enn. Hann mun hafa gert það
löngu fyrir þing. Kunnugir fullyrða,
að hann muni jafnvel hafa verið með
hug og sál stjórnarinnar maður á síð-
asta þingi, þótt líkamlegum návistum
væri hann á fundum með hinum flokkn-
um. Hann er og hefir aldrei verið og
verður aldrei með hýrri há öðru vísi
en í meiri hluta.
»
Marconi-loftskeyti.
Send frá Poldku í Cornwall
2. júlí kl. 10 40 síöd.
Meðtekin í Reykjavík 2. júli
kl. 10 40 síðd.
Mikils háttar japanskur embættismaður,
sem spurður var um friðarmálaleitanir þær,
er nú eru á ferðinni á meginlandinu, svaraði,
að ekki væri liægt að segja neitt um það,
hvort þær mundu leiða til friðar eða ekki,
en hvernig sem færi, þá mundi Japan falast
bráðlega eftir nýju 30 miljón punda láni
(540 milj. kr.) Lánið mun verða trygt með
tóbaks-einkaréttinum og útvegað i Lundúnum,
New York og á meginlandinu.
Sakargiftirnar á hendur forstjórum amer-
ískra svfnakjötssölufélaga ná einnig til
samtaka um að hefta viðskifti og samsæris
um að svæla þá atvinnu alla undir sig.
Send frá Poldhu 3. júlí kl.
10 38 siðd.
Meðtekin i Reykjavík 3. júlí
kl. 10 38 siðd.
Frá Rússlandi berast fregnir um frekari
óeirðir. Verkfallsmenn gengu í hópum um
strætin og var Kósökkum boðið að tvistra
þeim.
Frézt hefir lát Mr. Hays, utanrikisráðgjafa
Bandaríkjanna, og hefir það hvarvetna vakið
söknuð og hluttekningu. Fyrsta samhrygðar-
skeytið kom frá Játvarði konungi. Jarðar-
förin fer fram miðvikudag kl. 10 árdegis i
Lake View kírkjugarðinum í Cleveland.
Hraðskeyti frá borginni Mexiko herma
mjög mikið manntjón af vatnavöxtum. I
Quanajuoto. þar sem Bretar og Bandaríkja-
menn eru aðalatvinnurekendur, fer ýmsum
sögum um tölu druknaðra manna, frá 100
manns og alt að 1000.
Fjárlaganefnd
í neðri deild skipa þessir 4 stjórnar-
liðsgarpar: Tryggvi — Þórhallur— Pétur
— Lárus; 2 hinna óháSu þingmanna:
Skúli Thoroddsen og Stefán Stefánsson
kennari; og loks einn lausamaðut Jón frá
Múla (tjáist vera utan flokka að sro
stöddu).
Tollhækkunina
hefir kvisast að ætti að keyra á í
mesta snatri, jafuvel reka frumvarpið
gegnum þingið á örfáum dögum, svo
fljótt, að það yrði sent út til konungs-
-staðfestingar nú með s/s Ceres á sunnu-
daginn. það þarf að laumast að þjóð-
inni með það að óvörum, eins og átti
að gera með ritsímasamninginn.
Hinir óháðu þingmenn 2 í fjárlaga-
uefndinni, Skúli Thoroddsen og Stefán
Stefánsson, leggja eindregið í m ó t i
tollhækkuninni. En meiri hlutinn
ræður: 5 í nefndinni og mikill meiri
hluti utan nefndar (stjórnarliðið alt).
Samsöngur
sá, er hér var haldinn 2. þ. mán. í
Bárubúð og þau stóðu fyrir, hr. Sig-
fús Einarsson og frk. Valborg Helle-
mann, tókst mætavel. Húsfyllir var
og meira en það. Frk. Hellemann
þótti syngja sérlega vel. £að fanst
og öllum mjög um, hve snildarlega
hún bar fram hin íslenzbu ljóð, er
hún söng, skýrara miklu en títt er
um íslenzka söngmenn og með háís-
lenzkum framburði, nákvæmlega rétt-
um á hverju orði.