Ísafold - 04.08.1905, Qupperneq 3
ÍSAFOLD
199
Fyrirlestrar Monrads prests.
Sá hinn góðkunni íslands-vinur, sem
er nd orðinn allkunnugur hór, ætlar sér
að flytja hér 4 fyrirlestra, eins og í
fyrra, og byrja á morgun í Báruhús-
inu. f>á talar hann um stórskáldið
Hinrik Wergeland og frelsis-
baráttu Norðmanna. |>að er
mjög svo hugðnæmt umtalsefni fyrir
oss, ekki sízt á þessum tímum, og
enginn efi á, að hann kann að fara
vel með það. Euda láta blöðin eystra,
nyrðra og vestra mjög vel af því og ein-
róma, hve vel honum hafi sagst á
Seyðisfirði, Akureyri og ísafirði; hann
flutti þennan fyrirlestur þar í sumar,
í öllum kaupstöðunum 3, á fsrð sinni
hingað kring um land.
Hinrik Wergeland, sem dó um sama
leyti og Jónas Hallgrímsson, er alment
kallaður fyrirrennari Björnstjerne Björn-
sons. það er margt Iíkt með þeim.
Hann var allra manna frumlegastur
sem skáld, og því var svo um hann
sem marga, sem líkt er farið, að sam-
tíðarmenn hans skildu hann ekki til
hlítar. En þeir sem á eftir honum
komu hafa skilið það og viðurkent í
einu hljóði, að hann var einn af heims-
ins mikilmennum, þrátt fyrir það, þótt
hugsjónaflug hans ætti sér engin tak-
mörk, eða jafnvel einmitt fyrir það.
Ljóð þau, er hann orti á bamasæng-
inni, eru hinar mestu gersemar töfr-
andi og ógleymanlegrar fegurðar. En
hann var ekki síður þjóðmálaskörungur
en skáld, svo frumlegur og kjarkmikill,
að honum hefir verið líkt við Sverri
konung.
Svo má að orði kveða, að nær allur
heimur hlýði um þessar mundir hug-
fanginn á þau tíðindi, sem gerst hafa í
vor og eru að gerast í Norvegi. En
engin þjóð gerir það framar en vér ís-
lendingar, né óskar frændum vorura
Norðmönnum innilegar góðs gengis í
stórræðum þeim, er nú hafa þeir í bund-
ist.
Banatilræði viðTyrkjasoldán.
Honum var veitt banatilræði í Mikla-
garði 21. f. m., með tundursprengingu,
er varð meira en 20 manns að bana,
en lemstraði 30. En soldán sakaði
hvergi. Hann var á heimleið frá
musterisbænagerð. Sprengingin var
gerð fáeinum sekúndum of snemma til
þess, að tilræðið hepnaðist.
(Frétt þessa hafa Marconiloftskeytin
ekki flutt hingað. |>etta hefir gerst
einn þann daginn, sem skeyti eru ekki
send — 8em sé skipura á leið vestur
um haf. En þeirra vegna eru þau
send aðallega).
Norðmenn og Sviar.
Nefnd á ríkisþinginu í Stokkhólmi
hefir lagt til, að Norðmönnum sé því
að eins gerður kostur á skilnaði, að
þjóðin norska lýsi yfir þeim vílja sín-
um með almennri atkvæðagreiðslu eða
á nýju stórþingi, og þá sé leitað af
nýju við Svía, auk ýmissa skilyrða
annarra. |>ar á meðal þess, að ekki
séu höfð nein kastalavirki á landa-
mærum Svíþjóðar og Norvegs. |>ar
næst leggur nefndin til, að hafðar séu
til taks 100 milj. kr., hvað semj kann
að skerast. Og er þar vitanlega átt
við ófrið.
Norðmenn taka ekki vel í þetta,
sem og eigi var við að búast.
Ráðaneyti konungs brá svo við
nefndarálitið, að það sagði af sér, þeir
Ramstedt og bans félagar. Krusen-
stjerna heitir sá, er búist var við að
tæki við af Ramstedt. Hann er eða
var yfirpóstmeistari.
♦
Nýr þingmálafundur.
Um hraðskeytamálið.
Ár 1905, 30. júlí, var haldinn fund-
ur að Gaulverjabæ eftir fuudarboði,
sem gekk um allan hreppinn (Gaul-
verjabæjar), nema 5 bæi, sem bannaðar
voru samgöngur við vegna taugaveikis
hættu á 3 þeirra. Af hér um bil 45
kjósendum til alþingis mættu á fund-
inum 26, auk nokkurra annarra hrepps-
búa; enn fremur 1 kjósandi utanhrepps.
Tilefni fundarins var í fundarboðinu
tilgreint það, að ræða um hraðskeyta-
málið, sem nú liggur fyrir alþingi.
Eundarstjóri var kosin Guðmundur
þorkelsson hreppstjóri í Rútsstaða-
Norðurkoti, og skrifari Einar Pálsson
prestur í Gaulverjabæ.
Var þá hið áðurnefnda mál tekið til
meðferðar af fundinum, og tóku marg-
ir til máls. Eftir að umræður höfðu
staðið alllengi, var borin fram þessi
tillaga til fundarályktunar, orðuð eftir
skoðunum þeim, sem helzt komu fram
í umræðunum:
Eundurinn lítur svo á, að hrað-
skeytasamband við útlönd og innan-
lands sé ekki hið bráðnauðsynlegasta
af framfaramálum landsins. í ann-
an stað lítur hann svo á, að ráð-
herrann hafi gengið út fyrir gildandi
fjárlög og tekið fram fyrir hendur
alþingis m3ð saraningi þeim, sem
hann hefir gert við norræna ritsíma-
félagið, auk þess að fundinum virð-
ist sá samningur alls ekki hagkvæm-
ur landinu. Eyrir því skorar fund-
urinn á alþingi, að hverfa frá þeim
samningi, en taka heldur samning-
um við eitthvert hinna þráðlausu
firðritunarfélaga. Að öðrum kosti
leggur fundurinn til, að máli þessu
sé með öllu frestað til næsta þings,
eða þar til er kjósendur og alþingis-
menn hafa náð að átta sig betur á
því.
Tillaga þessi var síðan borin upp
til atkvæða, eftir að hún hafði verið
rædd nokkra stund, og var hún sam-
þykt með 24 atkvæðum. Enginn
greiddi atkvæði í móti, og að eins kjós-
endur greiddu atkvæði.
Síðan var samþykt, að fela fundar-
skrifara að géra ráðstöfun til að fund-
argjörningur þessi berist leiðar sinnar
svo tafarlaust sem verða mætti.
Eundi slitið eftir nál. 3 kl.stundir.
Guðmundur Þorkelsson. Einar Pálsson.
S/s Botnia
kom hingað frá Leith í fyrra dag
þriðju ferðina með útlenda ferðamenn,
29 að tölu.
Hennar kvað veravon 4. ferðina um
miðjaD þ. mán.
Alþýðu-samsöngurinn
á sunnudagskveldið 30. f. mán., þeirra
frk. Hellemann og hr. Sigfúsar Einars
sonar, tókst mætavel og var fjölsóttur.
Hann var ætlaður alþýðu í þeirri
merkingu að eins, að inngangur var
seldur óvenju-lágt.
Frk. Anna Pálsdóttir lék undir, er
hin sungu, og þótti gera það afbragðs-
vel.
Læknaskólastúdeut Sigvaldi Stefáns-
son lék á harmonium mjög vel.
Þjóðminningarhátíð
var haldinhér í fyrra dag, 2. ágúsb,
að vanda, á Melunum og Landakots-
túni, en daufari miklu og tilkomuminni
en dæmi eru til áður. Var þó veður
mjög svo fagurt, glaða-sólskin og heið-
ríkja allan daginn, en hvass þó nokkuð
á norðan.
Aukaskip frá Thorefélagi, s/s Modesta,
kom i fyrra kveld l'rá Leith með ýmsar
vörur, sem Tryggvi kongur varð að skilja
þar eftir um daginn.
I
Lög frá alþingi.
þessi frumvörp hefir þingið lokið við
frá því um daginn:
11. Um samþyktir um kynbætur
nautgripa: sýslunefndum veitt heimild
til að gera slíkar samþyktir eftir til-
lögu héraðsmanna á almennum fundi
með 2/3 atkvæða.
12. Um að nema úr gildi lög 12.
nóv. 1875 um þorskanetalagnir í Faxa-
flóa.
13. Um að stofna slökkvilið á
Akureyri.
14. Um skýrslur um alidýrasjúk-
dóma: Landsstjórninni ber að annast
um, að teknar séu árlega skýrslur um
hina helztu alidýrasjúkd. hér á landi.
Hornafjarðar-læknishérað
er veitt eand. med. & chir. Halldóri
Gunnlaugssyni.
S/S Hólar,
strandferðabáturinn, kom í gærmorgun
austan um land með fjölda farþega,
þar á meðal bæjarfógeta Halldór Daní-
elsson og hans frú, síra Pétur |>or-
steinsson í Heydölum og hans frú,
Gísla Johnsen kaupm. frá Vestmann-
eyjum, frú Ragnh. Thorlacius frá
Djúpavog.
Aðflutningsbannið.
Frumvarpið það, um bann gegn að-
flutning áfengra drykkja, er komið í
nefnd í neðri deild: G. B., Á. J.,
Guðl., M. Andr., Tr. G.
Fórn Abrahams.
(Frh.)
Hvernig má svo vera?
Eg skýt því til yðar, herrar mínir.
Kyn vort hefir alt sameiginlegt, og
þó er því haldið fram, að hernaður sé
nauðsyn.
Og úr því að sérhvern ófrið verður
að meta landráð við alt mannkynið,
þá hlýtur að mega til hugsanrétt að
meta hann ennþá meiri glæp við þá
undirdeild mannkynsins, þá þjóð, er
hann reiðir að bauasigð sína þá og þá
í hvert skifti. Eg segi ekkert um
mótstöðumennina.
Hverjar afleiðingar hefir þessi ófriður
hafb í för með sér?
Aður en eg svara þeirri spurningu,
verð eg að geta þess, að eg tel mig
ekki meðal hinna trúuðu, sem svo eru
nefndir. Eg er eins og fólk er flest.
En einmitt þess vegna krefst eg al-
mennra róttinda, fyrst og fremst þeirra
réttinda, að mega segja eins og mér
býr í brjósti.
f>essi ófriður sýnir það, herrar mínir,
að trú vor og yðar er ekki til öðru
vísi en svo sem hugarburður einn, og
ef til vill ekki einu sinni það.
|>ví hvað er varið í trú, sem ekki
getur afstýrt hernaði og hefir aldrei
getað aftrað því, þótt haldist hafi nú
nær 2000 ár, að helztu boðorð hennar
séu vettugi virt og smánuð einmitt
með vopnaviðskiftum og raannavígum.
Eg tel mig sjálfan meðal mentaðra
manna, og því er eg friðarvinur —
meðal annarra orða, herrar mínir,
hvernig víkur því við, að mentun get-
ur af sér vantrú, en skapar friðarvini?
En mín skoðun um það skiftir engu.
Friðarhugmyndin er hátt upp hafin
yfir velþóknun eða vanþóknun dauð-
legra manna. Hugmyndin sú er einn
bluti af trú vorri.
Fyrir því er hernaður ekki einungis
árás á réttmæta tilveru annarrar þjóð-
ar — væri tilveran ekki réttmæt, þá
væri þjóðin ekki til —, heldur beinlínis
árás á tilveru guðs. Sá sem segir öðr-
um hernað á hendur, eða kemur þeim
til þess, hann segir blátt áfram: Eg
efast um að guð sé til. — Já, eg tala
við skyngóða menn og þykist því ekki
þurfa að gera frekari grein fyrir þessu.
það er því vort sorglega hlutverk,
að sýna og sanna, að trúin sé ekki til.
Eg get ekki verið að skifta mér af
því, sem nú er kallað trú. f>ví ann-
aðhvort er trú til, og þá er hernaður
óhugsanlegur. Eða þá að hernaður er
til, og þá er trú óhugsanleg. Af á-
vöxtunum þekkist tréð og trúin af
verkunum.
Yér verðum enn fremur af sömu
ástæðum að neita því, að til sé sið-
menning. Hún hefir ekki rækt sitt hlut-
verk, ekki efnt það, sem hún hefir
lofað.
Hugmyndin siðmenning vor felur í
sér mentun, framfarir og uppgötvanir,
ásamt ýmsu öðru, sem eg býst við að
ekki þurfi að nefna.
Tapast hefir bláleitt silkitau á götum
bæjarins. PinnaDdi er beðinn að skila því
á skrifstofu þessa blaðs mót sanngjörnum
fnndarlaunum.
Þilskipið
kútter Élín, um 30 tons, með öllu til-
hevrandi í ágætu standi, er til sölu.
Kaupm. Siggeir Torfason í
Reykjavík gefur allar upplýsingar.
Skotfæri,
patrónubelti,
hlaðuar patrónur,
patrónuhylki,
högl og púður,
ódýrast í verzl.
B. H. Bjarnason.
Storjolian prestar
frá Kristjaníu,
heldur fyrirlestur í dómkirkjunui með
aðstoð dómkirkjuprestsins sem túlks
föstudaginn 4. þ. m. um blóð Krists.
Fyrirlesturinn byrjar kl. 8J/2 síðdegis.
Uppboðsauglýsing’.
Kynbótabúið á Breiðabólsstöðum sel-
ur í haust nokkra hrúta til kynbóta,
í Rauðgilsrétt fimtudaginn 28. sept.
og þriðjudaginn 10. okt.
Breiðabólsstöðum 25. júlí 1905.
Ingólfur Guðmundsson.
Um Henrik Wergeland
og
frelsisbaráttu Norðmanna
flytur o. P. Monrad prestur hinn
norski fyrirlestur í Bárufélagshúsinu
annaö kvöld (laugard.) kl. 9.
ASgöngumiðar á 1 kr. fást í afgreiðslu
ísafoldar og við innganginn.
Með s/s Kong Trygve og s/s Modesta
til verzl. B. H, Bjarnason.
Det ideale Liv
eftir Henry Drummond fæst í
bókverzlun ísaf.prsm. 3,00. Mjög góð
bók.