Ísafold - 06.01.1906, Síða 3
ÍS AFOLD
7
þambarskelfir. Ráð-herra nefnir Snorri
hann aldrei né aðra, er hann eða aðrir
fornritahöfundar vorir minnast á, þá er
konungar höfðu sér til ráðuneytis.
Ráðherranafnið var að visu til áður i
íslenzku, áður en stjórnarskráin nýja hljóp
af stokkunum. En það þýddi þá að jafn-
aði alt annað, hjá beztu rithöfundum vor-
um að minsta kosti. f>að var að mér befir
verið sagt þýðing á útlenda orðinu senator.
f>vi var talað um ráðherra i Róm á sinum
tima; eins i Hamborg og öðrum Hansa-
stöðum. En sú merking er hinni gagnólik,
og hefði verið .jafngott að hún hefði fengið
að haldast, og ekki verið farið að gera
glundroða með þessari vitleysu, sem hér
um ræðir. Ráðherrar í Róm voru drotnar,
sem engan mann höfðu yfir sér og voru
einskis manns ráðgjafar, nema sjálfra sin.
Það var réttnefni, að kalla þá ráð-berra.
Eftir þeim mun sama heitið hafa verið tekið
í Hansastöðum og viðar.
Eg hefi nú veitt þvi eftirtekt, að sumir
halda enn gamla, rétta heitinu: ráðgjafi,
þar á meðal ísafold fremst i flokki, og
þykir mér vænt um liana fyrir það, sem
margt annað. Eg imynda mér lika, að þeir,
sem ráðherra-nafnið not.a, geri það flestir,
ef ekki i hugsunarleysi, þá af svo nefndri
löghlýðni, sjálfum sér þvert um geð.
En eg ætla nú að naumast geti mikið sagst
á þvi, þótt þess kyns ómyndar-lagastafur
sé að engu hafður og skapleg málvenja
látin útrýma honum.
Eg hygg þess vera ýms dæmi.
Siðhótarlöggjöf vor fyrirskipaði, að yfir-
umsjónarmenn kirkjunnar hér á landi, er
höfðu verið nefndir biskupar í kaþólskri
tið, skyldu heita súperintendentar. En
skamma stund mun því boði hafa verið
hlýtt og liklega aldrei af alþýðu. Bisknps-
nafnið komst fljótt á aftur.
sSkrifari við landshöfðingjaembættið* var
aðstoðarmaður landshöfðingja nefndur í
konungsúrskurði þeim, er þau embætti setti
á stofn (1872). En landritari var hann
fljótt skirður og kallaður i daglegu tali, og
síðan alla tið, meðan það embætti stóð.
Svona útrýmir málvenjan óviðfeldnum eða
ambögulegum embsettislieitum.
Ráðgjafa-nafninu villist og enginn mað-
ur á. Þar er ekki um neitt tvent að tefla.
Herra-nafnið í embættisheiti er og verður
aldrei nema afkáralegt hégómatildur. Eða
hvernig mundum vér kunna við það, ef
farið væri að kalla sýslumenn sýsluherra,
iækna læknisdæmisherra, hreppstjóra hrepps-
herra, presta kirkjulierra eða eitthvað þvi
um likt, og þingmenn þing-herra (sem er
nú auk þess orðið spottnafn á einum til-
teknum þingmanni)?
Það hafa sagt mér fróð'r menn, að vel
láti sér aðrar þjóðir duga annað en herra-
nafn á embættismanni þeim, er hér um
ræðir. Minister sé tíðasta nafnið þar,
en það þýði að uppbafi það sem herratign
er hér um bit ólikast, sem sé þjónn (þ. e.
þjónn konungs eða aunarra þjóð öfðingja).
Um enskan heim kváðu þessir embættis-
menn bera yfirleitt ritaranafn (secretary).
Það láta þá tvö ein hin voldugustu riki í
heimi sér lynda, Bretar og Bandarikin i
N.-Ameríku, Þvi hlægilegri fordyld verður
það af heimsins óvotdugustu þjóð, að vera
að klína h e r r a-nafni á þetta embætti.
Hver getur og ábyrgst. að þýtyndi það,
sem þykir hafa brytt beldur mikið á hér á
landi siðan er áminst embætti komst á stofn,
sérráðgjafa-embættið, stafi ekki eitthvað
meðfram af þessu iburðarmikla valdsmanns-
heiti? Það er ótrúlegt, hver ósjálfráð áhrif
þess kyns orð, þótt. ekki sé annað, geta
haft á ístöðulitlar sálir með nógum undir-
gefnisanda.
Eg skal geta þess að lokum, að kunn-
ugur maður ráðgjafanum, sem nú er, þefir
sagt mér, að sjálfur hafi hann einbvern
tíma sagst kunna hálfilla við ráðherra-
nafnið og betur við að heita ráðgjafi, heita
það sem hann er: ráðgjafi konungs, og
annað ekki. Þá þurfa jafnvel h a n s menn
ekki að óttast vanþóknun hans, þótt þeir
hætti að þrælbinda sig við ráðherranafnið.
Hina mun ekki þurfa að bera fyrir brjósti.
Þeir hafa sjálfsagt fulla einurð á að leggja
það niður, eins og ísafold hefir gert fyrir
löngu.
— Að svo mæltu bið eg afsökunar á þvi,
ef eg þyki hafa verið heldur ljöíorður um
þetta smámál. Eg vildi hreyfa þvi, úr því
að aðrir hafa ekki gert það, þótt eg sé
ekki nema óbreyttur og fáfróður
almúgamaður.
Jarðarför Páls Ólafssonar
skálda fór fram 2. þ. m. Lektor
fórh. Bjarnarson flutti húskveðju, og
sungin voru snjöll og fögur minningar-
ljóð eftir forstein Brlingsson. Hér
eru nokkur erindin, hin síðari:
Við sáum svo íslenzk, svo ólmhuga skeið,
að ófærur þurfti’ ekki að brúa;
en góðhestum fækkar og grýtt verður leið —
og gott var að eiga þá bróður í neyð
og hina, sem með honum hlúa.
Og henni við þökkum sitt þrekmikla stríð,
sem þér fylgdi unaðarveginn
og varði þig bezt þegar versnaði tið,
og vermdi á hjarta sér blómin þín frið
og fléttaði sjálf með þér sveiginn.
Þó nú hafi skuggarnir skeiðið þitt stytt,
þá skina þó ljóðin í heiði;
þau breiða’ yfir næturnar norðurljós sitt
á nafnið þitt kæra’ og á ættlandið þitt,
og verða þér ljómi’ yfir leiði.
Bœjarstjórn Reykjavíkur kom sér
á siðasta fundi, 4. þ. mán., niðnr á þvi,
að láta loks gera nýja sundlaug þar,
sem hún hefir verið áður, fyrir 6,500 kr.
eftir áætlun.
Ekki vildi hún selja hólmann i Tjörninni;
Hjörl. Þórðarson hafði falað.
Hafnarnefnd lagði fram áætlun um aðgerð
á svæðinu fyrir ofan Hafnarbryggjuna, milli
geymsluhúsanna þar, og fól bæjarstj. nefnd-
inni að semja við Tr. Gr. um að steinleggja
svæðið fyrir norðan bankapakkhúsið og
milli þess og pakkhúss Ásg. Sigurðssonar
fyrir tóOO kr., og sömuleiðis að gera brim-
klöpp frá Hafnarbryggjunni austur að brim-
klöpp Thomsens fyrir 2000 kr.
Vegafé var þannig ráðstafað: til Vonar-
Btrætis 3185 kr., til Tjarnargötu 2500, til
Vesturgötu 600, til Suðurgötu 400, til
Norðurstigs 215, til Vitastigs 200, til
Sprautuhúsvegar 200, Austurvallarrennu
900, til ofaníburðar 1800.
Ennfremur var samþykt að taka 10,000
kr. lán til þessara vega:
Þingholtsstrætis . . . 5000
Laufásvegar . . . . 4000
Bókblöðustígs .... 1000
Nokkrum málum visað til nefnda eða
frestað.
Eyrri umr. um 2 regiugerðir, brunamála
og slökkviliðs.
Brunabótavirðingar samþyktar á þessum
húseignum: verksm. Mjölni við Laugaveg
23478 kr.; húseign Björns Simonarsonar
(Vallarstr. 4) 19,571; Ingveldar Kjartans-
dóttur á Laugaveg 11,808; Högna Finns-
sonar við Bjargarstig 6,548; Guðm. Ás-
bjarnarsonar við Njálsgötu 6,090.
Takið eftir!
þjóðræðisfél. heldur s k e m t i-
fund miðvikudag 10. þ. m.
Program afar fjölskrúðugt.
Bélagsmenn geta vitjað aðgöngumiða
í afgreiðslu ísafoldar þriðjud. þ. 9. og
miðvd. þ. 10. þ. m.
Aðgöngumiðar kosta 0,50.
Forstöðunefndin.
Karlmanns-gullhringur hefir tap-
ast á götum bæjarins. Finnandi er vinsam-
lega beðinn að skila honum i afgr. Isafoldar.
Vinnukona óskast frá næstu krossr
messu i Bankastræti 7.
PfGíiínemi -
þegar. Ekki eru
teknir nema efnilegir piltar og allvel
að sér.
THE
NOETH BRITISH ROPEWORK Co.
K i r k c a 1 d y
Contractors to H. M. Government
búa til
rússneskar og ítalskar
flskilínur og fœri,
alt úr bezta efni og sérlega vandað.
Fæst hjá kaupmönnum. Biðjið því
ætíð um Kirkcaldy fiskilínur og
færi, hjá kaupmanni þeim er þér verzl-
ið, því þá fáið þér það Bem bezt er.
Kína-lífs-elixír er ekki
ekta nema frá Waldemar
Petersen, Frederikshavn, Khavn.
Á þeim tímum, er siðgæði er svo
úr lagi gengið, að jafnvel annars áreið-
anlegir og mikilsvirtir fésýslumenn hika
ekki við að hafa á boðstólum stolnar
eftirlíkingar af vörum, sem hafa haft
mikið gengi og verið vel metnar tug-
um ára saman, ekki af öðru en sér
til lítils hagnaðar, verður það ekki
nógsamlega brýnt fyrir þeim, sem vör-
una nota, að vera sem allra aðgætn-
astir þegar þeir kaupa. Abatinu sem
altaf er miklu meiri á þeirri stolnu
eftirlíkingu heldur en á frumvörunni,
er mismunandi, og fer eftir því, hvað
hin stolna eftirlíking er góð, með öðr-
um orðum eftir því, hvað þessum
mönnum finst ekki virðingu sinni of
nærri gengið að hafa á boðstólum.
En hvort sem hann er mikill eða lít-
ill, þá blekkja þeir þó þá sem neyta
og selja þeim fyrir almennilega áreið-
anlega vöru svo sem Kína-lífs elixfr
tilbóning, sem þeim er allseudis ómögu-
legt að líkja eftir minstu vitund —
vöru, sem neytendur óska sér alls
ekki, og ennfremur vöru, sem ekki ger-
ir þeim það gagn, er þeir reyna að
hafa upp úr henni fyrir fé, er þeir
hafa aflað sér með súrum sveita.
f>etta er dýrkeypt reynsla mín, því
aldrei bfða þó neytendur eins mikið
tjón eins og sá, sem búið hefir til hina
frumlegu vöru, er hann hefir varið
mestöllu lífi sfnu til að framleiða, og
er seld fyrir það verð, er samsvarar
hvergi nærri vinnu þeirri, er hann hefir
varið til þess að fá hana gerða.
Eg verð því að brýna fyrir neytendum
vörunnar að varast sérhverja
eftirstæling og gæta þess jafnan,
að grænt lakk sé á flöskustútnum og
á því inn8iglið V-FP- og að Kínverji
með glas í hendi só á miðanum yfir
nafni frumleiðandans Waldemars Pet-
ersens, Frederikshavn, Köbenhavn.
Fæst hvarvetna á 2 kr. flaskan.
Œ3Ög mar“ar tegundir,
M/ t/ö lj > bókverzlun ísaf.prsm.
Pennastokkar
margar tegundir, mjög ódýrir, f bók-
verzlun ísaf.prsm.
Teiknibestik
hvergi ódýrari en í bókverzlun ísa-
foldarprentsm.
Jansens og Klaveness
prédikanir fást enn í bókverzlun ísa-
foldarprentsm.
Alveg nýtt!
Eg undirskrifaður tek að mér að
selja fyrir þá er þess óska ýmiskonar
lausafjármuni, svo sem húsgögn,
f a t n a ð og ýmsa aðra muni, er menn
vilja koma í peninga.
Virðiugarfylst
Valdemar Ottesen.
Laugaveg 12.
Telefónfélag
Keykjav. og llaf'iiaríjaröar.
Aðalfundur laugardag 13. janúar kl.
5 sfðdegis á skrifstofu ísafoldar. Lagð-
ir fram ársreikningar 1905. Stjórn
ko8Ín, o. m. fl.
Jón Þórarinssoii
p. t. forseti.
LíUistwpí
á Laugaveg 27.
Undirritaður, sem um mörg ár hefir
stundað líkkistusmíði í útlöndum og
nú tekið sér bólfestu hér og stundar
sömu iðn, hefir þegar á boðstólum
úrval af líkkistum af öllum stærðum
og með mismunandi verði, t. d.;
svartar líkkistur frá 14—100 kr. og
gular 20—100 kr. (hver), alt vönduð
vinna og fylgir að láni fögur ábreiða
á skammelin í kirkjunni.
Kisturnar má líka panta hjá herra
kaupmanni Mattliíasi Matthíassyni.
Reykjavík, 5. jan 1906.
Virðingarfylst
G. E. J. Guðmundsson.
A1 d a n.
Aðalfundur næstkomandi mið-
vikudag á vanalegum stað og stundu.
Árfðandi að allir félagsmenn mæti.
Stjórnin.
V í ii b e r
pundið á 60 aura, kæfa, gott ísl.
smjör og rjúpur í verzlun
Boga A. J. Þórðarsonar.
Ráðskonustaða i boði, 14. maí. Upp-
lýsingar i vistráðningarstofunni í Veltu-
sundi nr. 1. ,
Félagsbakaríið
Með því að nú hefir verið gert við
bökunarofninn í Vesturgötu 14, baka-
ríið sjálft og öll áhöld svo sem frek-
att eru föng á, verða þar nú bökuð
almenn rúgbrauð, auk normal-
brauða, maltbrauða og alls konar hveiti-
brauðs. Vér mælumst því til, að
heiðraðir skiftavinir vorir, sem hafa
keypt af oss brauðseðla, taki brauð
út á þá í vesturbænum í brauðsölu-
búð félagsins í Vesturgötu 14, en í
austurbænum hjá hr. Adam þorgríms-
syni Grettisgötu 26, eða ekkju Th.
Matthiesens við Laugaveg.
Bakarar þeir, sem um undanfarn-
ar vikur hafa gert oss þann greiða,
að leysa inn brauðseðla vora, eru hætt-
ir því úr því þessi dagur líður.
Reykjavík 5. janúar 1906.
Fyrir Félagsbakaríið
C. Frederiksen.
Umboð.
Undirskrifaður tekur að sér að kaupa
útlendar vörur og selja ísl. vörur gegn
mjög sanngjörnum umboðslaunum.
G. Sch. Thorsteinsson
Peder Stramsgade 17. Köbenhavn K.
Saltfiskur,
þorskur og þyrsklingur, fæst í Sjávar-
borg.
Asg. Sigurðssoii.
cTíauiisíi cRlmanaR
1903
fæst í bókverzlun ísafoldarprentsm.
Ritstjóri Björn Jónsson.
Isafoldarprentsmiðja.