Ísafold - 13.01.1906, Side 1
-
'K.emnr út ýmist einn sinni eöa
tvisv. í vikn. Verð árg. (80 ark.
minn8t) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l'/» doll.; borgist fyrir miðjan
júli (erlendis fyrir fram).
ÍSAFOLD.
UppsSgn (skrifleg) bnndin v'ð
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október og kaup-
andi sknldlaus við biaðið.
A fgreiðsla Austurstrœti 8
XXXIII. árg.
I. 0. 0. F. 871198 7».
Faxaflóagufubáturinn Reykjavik
ler upp i Borgarnes 14., 19. og 26. jan. 5.,
12. og 24. febr. og 5., 14., 22. og 31. marz.
Kemur við á Akranesi báðar leiðir.
Suður fer hann (Kefiavik m.m.)
1., 16. og 20. febr.; og 9., 19. og 26. marz.
fgg* Fer jafnan héðan kl. 8 árd. stundvísl.
Ipgf* Kaupendwr
ISAFOLDAR
hór í bænum, sem skifta um bústaði,
eru vinsamlega beðnir að láta þess
getíð sem fyrst í afgreiðslu blaðsins.
Augnlækiiing ók. 1. og B. þrd. kl. 2—3 i spítal.
Forngripasafn opió Á mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—2x/2 og ú*/2—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skriístofa frá 8 árd. til
10 síðd. Alm. fundir fsd. og sd. 8^/2 sibd.
Landakotskirkja. Gubsþj. 9 og 6 á helgidögum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10»/2—12 og 4—6.
Landsbankinn 10 ^/a—2^/a. Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—3 og 6—8.
Landsskjalasafnið á þrdM fmd. og ld. 12—1.
Lækning ók. í læknask. þrd. og fsd. 11—12.
Náttúrugripasafn á sd. 2—3.
Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14,1. og3.md. 11—1
Breyting á bæ j ar stj örnarl ögum
Reykjavikur.
Kosningalöyin um of við vöxt?
Margir tala um, að það muni vera
óhæf lög fyrir oss, bæjarstjórnarkosn-
ingarlögin nýju, sem kosið var eftir
um daginn í fyrsta skifti. J>að sé að-
flutt vara, dönsk, og muni tæplega
eiga vel við hér, fremur en margt
annað, er dregið hefir verið í búið hjá
oss með líkum hætti. jpeim finst
aldrei hafa verið meira stefnuleysi í
kosningttm en hér var um daginn, —
ekki landsmálastefnuleysi; stefnufesta
í þeim getur gert eins mikið ilt og
gott í bæjarstjórnarkosningum; held-
ur hitt, að ekki var sýnilegt að kosið
væri eftir neinni stefnuskrá annari en
þeim hégóma-metnaði, að vera ekki út
undan fyrir sína stétt eða sitt félag,
þótt ekkert kæmi félagsskapurinn við
bæjarmálum. —
Eétt er að taka það fram í þessu
sambandi, að það er tómur blekking-
arþvættingur og annað ekki, að stjórn
ræðismannafélagið Fram-og aftur hafi
orðið 3igursælt f þessari bæjarstjórnar-
kosningu. f> a ð kom a ð e i n s að
efsta manninum á sínum lista, eins
og trésraiðafélagið, skipstjórafélagið og
kaupmannafélagið. Hitt er tilviljun
tóm, að efstiráblaði hjá þeim félögum
þremur voru sumir meðal þeirra, sem
stjórnræðismannafélagið hafði hnýtt
aftan við forustusauðinn á sínum lista.
Nema svo sé, að það hafi vitað af
Ulnefning hinna félaganna og elt hana.
í>á hefir það verið fyrirhugað ráð, til
ólíkinda gert, en ekki tilviljun. —
Kristján Jónsson, sem Fram og aftur
Baátti ekki heyra nefndan í bæjarfull-
^úastöðu, af því að hann er ekki
8tjórnarfylgifiskur, hann fær langflest
atkvæðin; s v o glæsilegur er sigur
stjórnarmanna, eða hitt heldur !
Ekki er þó þetta stefnuleysi áminst-
um lögum að kenna beinlfnis. Nema
að því leyti, sem segja má, að þau Béu
Reykjavík laug-ardaginn 13. janúar 1906
3. tölublaö.
EDIHBDB6 Í REYKJATÍE
minnir hina heiðruðu landsmenn á sínar miklu, íjölbreyttu og ódýru vörubirgðir af öllum tegundum.
Útibú hefir verzlunin á ísafirði, Akranesi og Keflavík, sem einnig hafa hinar sömu vörur á boðstólum. Á
öllum þessum stöðum kaupir verzlunin íisk hæsta verði fyrir pening’a Út í hönd eða vörur eftir samkomulagi.
Oskar hún velvildar yðar og viðskifta nú í ár, sem að undanförnu.
VERZLUNIN
TA. Jksfsksffff
ú INGDLFSHVOLI
hefir altaf bezt, mest og ódýrast
úrval af alls konar vefnaðarvöru.
almenningi hér heldur mikið v i ð
v ö x t. En svo er um mörg nýmæli,
bæði hér og annarsstaðar. J>að er vand-
ratað meðalhófið þar sem víðar. Með-
an þjóðir eru á vaxtarskeiði og fram-
fara, þurfa og eiga lög þau, er þeim
eru gerð, að vera sniðin þeim nokkuð
við vöxt, eÍDS og fötin á unglinga. En
svo miklu má þó ekki muna á vídd
eða lengd, að seint eða aldrei vaxi sá
út í klæðin, sem þau á að bera.
Dæmið frá prestkosningalöyunum.
Greinilegt dæmi sllkra laga og flest-
um minnisstætt eru prestkosningarlög
vor. þeinf var ætlað fyrst og fremst
að taka fyrir það hneyksli, að handó-
nýtir ræflar eða gjörspiltir óreglumenn
kæmust í prestsembætti og síðan brauð
úr brauði. Frumkvöðlar þess nýmælis
gerðu sér hér um bil alveg vísa von
um, að þjóðin, söfnuðirair, sem prest-
anna skyldu njóta, mundu stauda þar
ólíkum mun betur í dyrum en háyfir-
völdin, sem þóttu líta oft og tíðum
frernur á hitt, hvort umsækjandi þarfn
aðist viðurlífis, eða væri þeim sjálfum
eða þeirra vinum vandabundinn, held-
ur en hitt, hvort líklegur væri hann
til að verða góður sálnahirðir.
En hver hefir reyndin orðið?
8ú, að mjög lítið hefir borið á, að
dyrnar inn í prestsembættið og síðan
brauð úr brauði hafi ekki verið gerðar
viðlíka víðar og hliðið viðlíka hátt eft-
ir sem áður. Báðríkir sveitarhöfðing-
jar eða þá misjafnlega vandaðir sjálf-
skapaðir safnaðarleiðtogar hafa tekið
þar við, sem háyfirvöldin hættu, og
látið söfnuðina velja stundum hiklaust
af verri endanum, ef svo réð við að
horfa, þvert ofan í sýnan hag safnað-
armanna, andlegan og jafnvel verald-
legan. það er eins og þar hafi varla
fremur en áður getað að dyrum borið
svo miklum óreglu-kryppum búinn né
hneykslis-synda-böggum klyfjaðan úlf-
alda, að eigi hafi verið gert hlaupvítt
fyrir hann inn um þær.
»Sú skjöldótta* hefir vissulega veitt
margt brauðið hér á landi þau nær
tuttugu ár, sem lögin þau hafa verið
í gildi, — skjöldótta beljan í einhverju
gervi, sínu á hverjum stað eða í hvert
skifti.
Og það hefði enn oftar borið við, ef
yfirstjórn kennilýðsins hefði ekki notað
stundum vald sitt til að afstýra því
fyrir fram með því að setja ekki al-
þekta gallagripi »á skrá«, þótt til þess
væri fastlega mælst af safnaðanna
hendi.
f>jóðin er með öðrum orðurn ekki
vaxin út í lagaklæðin þau enn. Vér
vonum að hún verði það einhvern tíma.
Vér bíðum þess von og úr viti jafnvel;
því hér á það við sem víðar, að sund
lærist seint á þurru landi.
Tilætlun kosningalaganna nýju.
Kosningalögin nýju e r réttarbót að
því leyti til, að áður gat fjölmennasti
kjósendaflokkurinn ráðið e i n n kosn-
ing a 11 r a fulltrúanna, og það þótt
hann hefði ekki nema örlftinn minni
hluta fram yfir hvern hinna flokkanna.
Nú er það af tekið. Hugsjón og til-
ætlun nýju laganna er, að þær skoðan-
ir og stefnuskrúr, sem nokkurt veru-
legt fylgi hafa meðal bæjarmanna,
eigi hver sinn talsmann í bæjarstjórn,
og þá því að eins marga, að samsvar-
andi hluti kjósanda hafi þá sömu skoð-
un og stefnuskrá. f> á eru lögin rétt
notuð, er kjósendur skifta sér í flokka
þann veg, og kjósa eftir því, en alveg
rangt, ef þeir gera það aðallega eða ein-
göngu eftir stéttum, eða kunningsskap, í
því skyni að gera þeim eða þeim kunn-
ingja sínum greiða, sem auk þess að
hafa hausavíxl á réttum og röngum
hvötum til taka að sér fulltrúamensk-
una.
Eétta hvötin er vilji og máttur til
að verða bæjarfélaginu að liði, láta
eitthvað til sín taka því til nytsemdar
og framfara.
Eanga hvötin er hégómleg metnað-
arfýsn, upphefðin tóm.
í>ví þykir það vera sannreynt að
jafnaði, að þeir séu áfjáðastir í þá
stöðu, sem minst eiga þangað nyt-
semdarerindi, en hinir tregastir, sem
mest gera gagnið þar.
Fyrir því liggur það í augum uppi,
Det ideale Liv
eftir Henry Drummond fæst í
bókverzlun ísaf.prsm. 3,00. Mjög góð
bók.
SiaquppÉáttapappír
(transparent), 5 kvartil á breidd, fæst í
bókverzlim ísafoldarprsm.
eru beðnir
að vitja Isa-
foldar í af-
greiðslustofu blaðsins, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum
að þá fyrst eru bæjarmenn vaxnir út
í lög þau, sem hér um ræðir, er þeir
flokka sig eftir skoðunum, og hafa það
sjálfsafneitunarvald yfir sér, að þeir
greiða atkvæði öllum þeim, sem á full-
trúaskrá slíks flokks standa, hvort sem
þeir hafa sjálfir beint mætur á þeim
ö 11 u m eða ekki, eða þó að þeim sé
einhverjum betur við þann og þann, er
á annari skrá stendur.
jþroskaminsta stigið er, að kjósa eftir
eiginhagsmunum, vinfengi eða kunn-
ingsskap; þar næst eftir smæsta og
náuasta félagsskapnum, sem kjósandi
er í, einkum e( þar er um einhverjar
hagsmunalíkur að tefla fyrir sjálfan
hann. J>á eru hin víðtækari félags-
bönd vettugi vírð, þau er miðuð eru
við almenningshag. f>á tvístrast kjós-
endur margir eins og sauðir í haga eftir
grænu toppunum, sem þeir eygja eða
halda sig eygja.
Samvinna er hér óhjákvæmileg, ef
vel á að fara, og stefni hún að sæmi-
legu, almennu markmiði. Án hennar
er ekki fremur hægt að fá kosið af viti
en að setja skip, ef ekki leggjast allir
á eitt, heldur togar sinn í hverja átt.
Nauðsynleg breyting á bæjarstjórnarlögunum
Að öðru leyti virðist rétt að sæta
þessu færi til að minnast á bæjar-
stjórnartilskipunina fyrir Eeykjavík
(frá 1872), að hún er orðin a 1 v e g
ú r e 11 að ýmsu leyti. Einkum er
tvent í henni, sem breyta þarf nauð-
synlega. það er hvorttveggja bæði
úrelt og óhagfelt.
Annað er tvískifting kjósenda eftir
efnum, en hitt kjörtímabilið, 6 ár.
Fyrra atriðið þykir nú orðið víðast
óhafandi. |>að er að vísu enn í lögutn
í Danmörku, en þar er nú barist fyrir
að fá því breytt. f>að var apað hér
eftir Dönum á sínum tíma, svo sera
margt aunað, þótt aldrei væri hér nein
þvílík átylla sem þar til þess; það er
ólíkt, hve auðmagni er misskiftara þar
en hér. Hér mega allir heita féleysing-
jar, — sömu féleysingjarnir. f að er lang-
samlega úreltur hugsunarháttur, að
miða manngildi við fjáreign.
\