Ísafold - 27.01.1906, Page 1
’Xenuir út ýmiat einn sinni etJa
tvisv. i vikn. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eÖa
l‘/j doll.; borgist fyrir miðjan
júli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bnndin v ð
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október og kanp-
andi skuldlans við blaðið.
Afgreiðsla Austurstrœti 8.
Xxxill. árg.
Reykjavík laugardaginn 27. .janúar 1906
6. tölublað.
1. 0. 0. F. 87228 V,-
Erlend tíðindi.
MarconÍ8kevti
26. jan.
Meðal hinna miklu og raargbreyttu vörubirgða sem verzlunin EDINBORG hefir fengið með hinum
siðustu skipum, vill hún sérstaklega vekja athygli hinna heiðruðu sjömanna á þeim miklu birgðum af
alls konar olínfatnaði
sem seldur er svo ódýrt, að menn munu brátt komast að raun um, að lang-bezt verður að kaupa olíufatnaðinn
í verzuninni EDINBORGr.
Frá fýzkalandi. f>ar er her-
lið alt vígbúið og lögreglumenn víða
látnir ganga með hlaðnar marghleypur,
af hræðalu við óeirðir út af ólátum
sósíalista um land alt til stuðningfl
feosningarréttarbót. Meat gengur á í
Berlín. |>ar er búið nú að halda 98
fundi um málið.
Frá Rússlandi. Afmæli blóð-
aunnudagsins (22. jan. 1905) leið hjá
tneð friði um alt land.
Sprengikúla eyddi lögreglustöðinni í
Odessa. Hún hafði verið ekilin þar eftir.
|>að er að segja af kosningun-
n m á E n g 1 a n d i, að þar eru nú
kosnir 405 stjórnarliðar, en að eins
123 8tjórnarandstæðingar (íhaldsmenn).
Eftir að kjósa 142. Meiri hlutinn
með stjórninni verður því afarmikill,
hvernig sem fer. Blað eitt í New
York (World) er borið fyrir því, að
hið mikla gengi verkmannaflokksins
snsfea i þessum kosningum sé mjög að
þakka höfðinglegum fjárframlögum til
kosningakostnaðar af hendi Andrew
Carnegie, auðmannsins mikla.
V i ð s j á r miklar með F r ö k k u m
og Venezúela í Suður-Ameríu. Ríkis-
forsetinn þar, Castro, mjög stirður
ákomu. Hann hefir hótað að láta
skjóta á hvert það franskt skip, er
kæmi Dærri borgunum Laguaira eða
Algo. Blöð í Caracas, höfuðborginDÍ,
láta ófriðlega og æsa lýðinn gegn
Frökkum. þrjár brynsnekkjur fransk-
ar lagðar á stað frá Trinidadey og er
búist við, að þeim sé ætlað að her-
kvía Laguaira. Castro forseti hefir
t)g komið sér svo illa við stjórn Banda-
ríkjanDa, að mælt er að Bandamönn-
Um muni ósárt um, þó að Frakkar
taekju ofan í hann. Frakkar segja öllu
óhætt um það, að ekki muni kröfur
þeirra ganga of nærri kreddum Amer-
fkumanna, þeim er kendar eru við
Monroe forseta.
S I y s f a r i r. Bryndreki einn úr
herskipaflota Brasilíu sprakk skamt
frá Rio Jaueiro, höfuðborginni, og sökk
á 3 mínútum. Yfirmaðurinn á skip-
fnu lézt og 4 aðmírálar, sem voru í för
baeð hermálaráðgjafanum á umsjónar-
ferð. Alls týndust 212 manns, að eins
:98 var bjargað.
Gufuskipi frá Bandaríkjum, Valencia,
Wst á við Beale-höfða (í Suður-
Áineríku?) á leið til Sau Francisco.
^extíu mann8 druknuðu, en 100 í
^áaka staddir í skipinu, og eru menn
^æddir Um, að þeim verði ekki bjargað.
Loftsighngamaður, er Cooper hét og
^gði upp frá Wolfirty í Texas, í fyrsta
skifti sem hann reyndi það, hrapaði
^OOO fet (til bana).
H a 11 æ r i fer vaxandi í Japan.
*élk deyr þar hundruðum Baman úr
úlda og hungri.
Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—3 1 spital.
Forngripagafn opið á mvd. og id. 11 12.
Hlutabankinn opinn 10—2 >(• og &>/«—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 siöd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 >/» si9d'
Landakotskirkja. Gnðsþj. 9 og 6 á helgidögum.
Landakotsspitali f. sjúkraritj. 10>/«—12 og 4—6.
Landsbankinn 10>/«-2>/«. JBankastjóm við 12-1.
Landsbókasafn 12—3 og 8—8.
Landsskjalasafnið á þrd^ fmd. og ld. 12 1.
Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd.'ll—12.
Náttúrngripasafn á sd. 2—3.
Tannlækning ók.i Pósthússtr. 14, l.og3.md. 11—1
Tekjuhalli í þ. á. fjárhagsáætlun
Japaua nemur 79 milj. pd. sterling.
J>að verður jafnað upp með láni, her-
sköttum og endurgjaldi frá Rússum
fyrir framfæri hórtekinna manna.
Ekkjudrotningin í Kína hefir skipað
' öllum kjörgengum keisarafræodum að
vera viðstöddum á nýárinu: hún ætlar
þá að tilnefna keisanum eftirmann.
Lofun þeirra Alfons Spánarkonungs
og Enu prinzessu af Battenberg verð-
ur birt hátíðlega bráðlega. Ena prin-
zessa er systurdóttur Játvarðar kon-
ungs.
----- — $ rnmm -
Rjómabúasamband
Suðurlands hélt aðalfund 9. þ. mán.
við þjórsárbrú. Meðal annars var sam-
þykt að skora á Landsbúnaðarfélagið
að láta hæfan mann fara á milli smjör-
búaDna næsia sumar og leiðbeina í
öllu, er að smjörgjörð lýtur, og skyldi
sá einnig dæma um rjómann, sem kem-
ur til búanna, ásamt bústýrunum, og
gefa hverju heimili einkunn fyrir útlit
rjómans og gæði.
pá var og samþykt að skora á Lands-
búnaðarfélagið að gera sitt hið ítrasta
til að útvega skip með kælirúmi til
smjörflutninga næsta sumar.
Afráðið var að senda J. V. Faber í
Newcastle 2/6 hluta af öllu smjöri sam-
bandsbúanna til sölu þetta ár, en hinum
3/6 hlutum skyldi skift milli þeirra Garð-
ars Gíslasonar, G. Davidsen, M. Hud-
son í Manchester og L. Zöllner.
Jes Zimsen kaupmaður og konsúll í
Reykjavík skyldi beðinn fyrir að ann-
ast útflutning smjörsins, eins og að
undanförnu.
Stjórn sambandsins var endurkosin:
formaður Ágúst Helgason í Birtinga-
holti og meðstjórnendur þeir Ólafur
Árnason kaupmaður á Stokkseyri og
Signrður Guðmundsson í Helli. End-
urskoðandi Eggert hreppstjóri Bene-
diktsson í Laugardælum.
Sigurður Sigurðsson ráðunautur flutti
fyrirlestur á fundinum um meðferð
mjólkur og fleira viðvíkjandi smjörgerð.
Síðdegisguðsþjðnusta i dómkirkjunni á
morgun kl. 5 (J. H.)
Af sjófatnaði er nu komið stórt úrval i verzlunma
LIYERPOOL
t. d.: kdpur, síðar og stuttar — buxur, margar tegundir — stakkar — ermar
svuntur — sjóhattar, bæði fyrir fullorðna og unglinga. Fatnaðurinn er hinn
vandaðasti að öllum frdgangi og verðið ótrúlega lágt.
Sjómenní litið á sjófötin og sjöstigvélin i LIYERPOOL.
Smjörsölumál.
•Til skýringar og leiðbeiningar fyrir
rjómabúin« hefir hr. Sigurgeir Einars-
son ritað greinarstúf í þjóðólf 5. þ. m.
Eg ætlast til að reynslan sýni rjóma-
búunum gildi þessara skýringa og
leiðbeininga, og sé því ekki þörf á að
fara um þær mörgum orðum.
J>au orð, er S. E. hefir eftir |>. G.,
»að það sé gott að eiga Davidsen að«,
get eg fullyrt og sannað að G. Gísla-
son & Hay hafa hvorki talað né ritað.
|>. G. fekk engar upplýsingar um þetta
mál frá þeim, aðrar en þær, söm eg
lét í té, og er mér því vel kunnugt,
hvað um það var sagt. Eu kynlegt
þykir mér, ef f>. G. hefir viðhaft þessi
orð, þar sem hann einmitt þá, líklega
fyrstur allra rjómabústjóranna, skoð-
aði sögur þeirra G. Davidsen og S. E.
í réttu ljósi.
Eg læt hlutlausan í þetta sinn sam-
anburð S. É. á smjörsölu þeirra G. G.
& H. og G. D. Samvizkusemi hans
og nákvæmni í því efni getur komið
til sögunnar seinna.
Eg veit líka, að rjómabúin þurfa
ekki á neinum slíkum samanburði að
halda. f>au hafa nú reynt hvorutveggja
þessa smjörsölumenn, G. G. & H. og
G. Davidsen, og munu þau f 1 e s t
fara eftir reynslu sinni og þekkingu á
þessum mönnum, hve háum eða lág-
um tölum sem við S. E. kynnum
að flagga með.
En því hefir S. E. gleymt í saman-
burði sínum, að geta kostnaðarins við
Bmjörsöluna.
f>ess konar er þó rétt að taka með
við slíkan samanburð.
f>ví kostnaður er mjög misjafn hjá
smjörsölumönnum, og alt annað nettó-
verð eða brúttó-verð.
Eg ætla ekki að þræta um það við
S. E., hvor þeirra G. G. & H. eða
G. D. segi réttara frá, eða hafi fyllri
akilyrði til að reynast góðir og áreið-
anlegir smjörsölumenn.
f>eir eru hvorirtveggju talsvert þektir
bæði hér á landi og erlendis, og mun
gengi þeirra hvers um sig fara eftir
því, hvernig þeir reynast eða hafa reynst.
En vorkunn er G. D., ef sögusögn
S. E. og samanburður hans í f>jóðólfi
væri heztu rneðmælin.
Eg efast ekki um, að það sé satt,
sem G. G. & H. hafa eftir G. D. við-
víkjandi skröksögu þessari.
Og fyrir þá sök mun G. Gíslasou
ekki hafa fundið ástæðu til að finna
S. E. að máli eða sjá heimildir hans;
enda mun hr. Garðar ekki hafa sagt
í þessu máli annað en það, sem hann
getur sannað.
En sé það satt, — sem talsverð
ástæða er til að ætla —, að S. E.
hafi frætt rjómabúin um, »að Geo.
Davidsen selji alt það smjör rjóma-
búanna íslenzku, er Faber, Copland
& B,, Garðar o. fi. taka á móti«, þá
er ekki ólíklegt, að honum gefist kost-
ur á að sýna heimildir sínar fyrir
þeirri sögu.
Rvík 2«/i ’06-
G. Eelgason.
Sameig’iiarverzlun.
f>að er í almæli, að sameignarkaup-
félög þau, sem eru í undirbúningi
austan fjatls, muni ætla sér að festa
kaup á Eyrarbakkaverzlun (Lefolii),
sem kvað vera föl, eða þá hafa sína
aðalbækistöð á Stokkseyri, ef kaupin
hin ganga ekki saman.
Markmið þessarar nýju kaupfólaga-
hreyfingar er að verzla skuldlaust beina
leið við erleuda umboðsmenn, einstaka
menn eða félög.
Auk þeirra, sem getið var um í síð-
asta blaði að kosnir hefðu verið á
f>jórsárbrúftrfundinum 8. þ. mán. i
nefnd í málið um almenna sameignar-
verzlun, voru kosnir í hana þeir síra
Ólafur Sæmundsson í Hraungerði og
þorsteinn Thorarensen á Móeiðarhvoli.
Nýr doktor.
Helgi Pétursson cand. mag. í Reykja-
vík er orðinn doktor í heimspeki (dr.
phil.) við Khafnar-háskóla fyrir ritgerð
um jarðfræði íslands. Hann var með
kgsúrsk. 16. f. mán. leystur frá þeirri
kvöð, að verja ritgerðina við háskól-
ann, eftir að hlutaðeigandi háskóla-
deild hafði tekið hana gilda.
Veöríitta.
XJmhleypingur af ýmsum áttum,
útsunnan, austan og norðan, hefir ver-
ið 6—3 dagana siðustu, með allmiklu
kafaldsfjúki. Faxaflóagufubátnum
(Reykjavík), sem átti að fara í gær-
morgun snemma upp i Borgarfjörð,
með póstflutning allan norður og vest-
ur, legaðist hér í gær og komst hann
ekki fyr en í dag upp eftir.