Ísafold - 27.01.1906, Page 3
íSAFOLD
23
ú? Og færi svo, að Englendingar
ynnu land vort, sem er þó engin leið
að, ef vér erum þolgóðir, þá mun sá
dagur koma brátt, er sérhver vor á
meðal óskar, að heldur lægi hann
dauður hér en að hann hefði lifað að
sjá það. —
Loks gekk van der Nath fram. Hann
var óvanur við að koma orðum að því,
sem hann hugsaði, en hanu komat við,
er hann hugsaði til þess, að þessir
menn, er hann hafði þekt alla og ver-
ið höfðu iðjusamir verkmenn og góðir
nágrannar, lágu þar stirðir og andvana;
og hann hafði hugsað mikið um nótt-
ina fyrir. Hann gekk fram með gröf-
inni, nam staðar við hvern fyrir sig,
nefndi hann á nafn og tók fram mann-
kosti hans. Og er því var lokið, lýsti
hann friði yfir moldum hinna fram-
liðnu og bað drottin fyrirgefa öllum
þeim, er ynnu hver öðrum mein; því
gjöf lífBÍns væri engum gefin til þess
að fleygja henni frá sér í mannskæðri
baráttu. —
Tárin runnu niður eftir kinnum hans,
meðan hann talaði þetta.
Dornenborgarmenn stóðu berhöfðað-
ir og horfðu á, að vinir þeirra voru
moldu ausnir; en aðrir gengu burt
þangað sem verið var að jarða fallna
menn af fjandmannaliðinu. En þar
var ekkert að sjá. Liðsforingjarnir
höfðu ekki hugsað eftir því, að kenni-
maður var í herbúðunum, og enginn
hafði beðið hanu um að hjálpa til við út-
förina. Einum undirforingja og þrjá-
tíu liðsmönnum hafði verið skipað að
vera á verði við gröfina til sæmdar
hinum framliðnu. Hinir stóðu þar al-
veg tilfinningarlausir, meðan einhverir
flutningskarlar mokuðu ofan í gröfina.
En þegar búið var að moka ofan í
hina gröfina, yfir Búaliðsmennina föllnu,
báru félagar þeirra, sem eftir lifðu,
grjót að henni og lögðu það í hrúgu
ofan á, og hættu ekki fyr en þar var
komin há dys. þá skildu þeir, hljóð-
ir og alvarlegir, og gengu heim aftur
til herbúðanna. Merkisvaldurinn og
Jan gamli stöldruðu við ofurlítið og
báðu fyrir hinum framliðnu í hljóði.
Síðan fóru þeir líka. En að baki
þeim gnæfði grjótdysin há og döpur,
minningarniark yfir hina framliðnu og
fyrirboði ókomna tímans fyrir þá, sem
eftir lifðu.
— Eg fer heim, segir van derNath
við förunaut sinn.
Háskólapróf'.
Auk þeirra landa, er nefndir voru
síðast, hefir Páll Egilsson (frá Múla)
leyst af hendi próf í þ. m., fyrra hlut-
ann í læknisfræði, með I. eink.
KristÍDn Bjömsson fekk og I. eink.,
góða, en ekki II., sem stóð í síðasta
bl. (eftir bréfi frá Khöfn, sem reynist
vera óáreiðanlegt; hið rétta er bæði
skrifað þaðan úr alveg áreiðanlegum
stað og hafði auk þess fluzt hingað í
Marconiskeyti 11. þ. m.).
Fyrir guðlast á prenti hefir Einar
Jochumsson verið dæmdur í 50 kr. sekt
hér i héraði, ank málskostnaðar, og ritl-
ingur sá gerður upptækur, er það var í,
1 thl. af mánaðarriti, sem heitir RROPIÐ.
Félagsblaði dálitlu er SCANOIA,
félag danskra manna, norskra og sænskra
hér i hæ, nýbyrjuð á prentuðu — var áður
skrifað —, auðvitað á dönsku. Það heitir
Treklöverhladet og kemur út eftir
hentugleikum, 1, 2 eða 4 blöð á mánuði, i
50 eintökum. A. L. Petersen heitir rit-
stjórinn. Kostar 50 a. »eintakið«, stendur
s þvi. Auk félagsauglýsinga virðist það
eiga að fiýtja hitt og þetta smálegt gam-
an, eitthvað í fyndnisáttina helzt. Ekki
er óliklegt, að einhverir utanfélagsmenn
vilji eiga það fyrir fágætis sakir. Það er
snoturt útlits.
V ið vörun.
í sænskum blöðum kvað nýlega hafa
staðið viðvörun gegn skrum-auglýsing-
um eða flugritum (Cirkulaire), sem
dönsk verzluu hér í bænum, sem kall
ar sig »Köbenhavn8 Varehus«, hefir
dreift út um alla Svíþjóð.
f>ar sem þessi verzlun, sem rekin
er af manni nokkrum að nafni Ubbe-
sen, einnig er farin að »vinna« á Is
landi, finn eg mér skylt að vara menn
við að trúa á skrum það sem í flug
ritum hans stendur. Er nóg að geta
þess hér, að Ubbesen þessi eitt sinn
var viðriðinn svonefndan »Skandinavisk
Korrespondance KIub«, sem ekki alls
fyrir löngu var skrafað talsvert um i
blöðum hér og það á þann hátt, að
það lítur út fyrir að Ubbesen þessi
vilji sfður hafa hátt um sig hér í Kaup
mannahöfn, þar sem hann er þektur,
en á íslandi og annarstaðar þar, sem
menn ekki enn þá þekkja mannkosti
hans.
Ummæli þau um mig sem undir-
skrifuð eru »Köbenhavns Varehus*, sem
ganga út á að eg hafi heimtað eða
fengið alt að 30% af vörum frá »húsi»
þessu til þess að stinga i minn vasa,
lýsi eg hérmeð tilhæfulaus og einhver
hin ósvífnustu ósannindi, sem eg nokk-
urn tíma hefi vitað mann leyfa sér að
bera fram.
011 þau viðskifti sem eg hefi haft
við þessa verzlun, eru þau, að eg
næstliðið sumar, eftir beiðni eins af
skiftavinum mínum á lslandi, sem
muD hafa iagt trúnað á skrumið, út-
vegaði vörur sem kostuðu samtals 76
krónur 40 aura. Téða upphæð borg-
aði eg Ubbesen þessum út í hönd og
færði sömu upphæð skiftavini mínum
til útgjalda, og hefi því ekki stungið
svo miklu sem einum eyri í mÍDn vasa.
Að öðru leyti skal eg geta þess, að
eg nú þegar höfða mál á móti oft
nefndum dánumanni, og leikur varla
efi á að hann mun fá að finna til þess
hvað það kostar að fara með þannig
löguð ósannindi.
Kaupmannahöfn, 13. janúar 1906.
Jakob Gunnlogsson.
Haustull
kaupir JES ZIMSEN.
Enskt vaðmál
er áreiðanlega bezt að kaupa í
verzlun G. Zoega.
fffy* Kiiupendur
ISAFOLDAH
hér í bænum, sem skifta um bústaði,
eru vinBainlega beðnir að láta þess
getið sem fyrst í afgreiðslu blaðsins.
Det ideale Liv
eftir Henry Drummond fæst í
bókverzlun ísaf.prsm. 3,00. Mjög góð
bók.
WHISKY
Wm. FORD & SONS
stofnsett 1815.
Einkaumboðsmenn fyrir ísland og
Færeyjar:
F. Hjorth & Co.
eru beðnir
að vitja Isa-
foldar í af-
greiðslustofu blaðsins, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum.
Umboð.
Undirskrifaður tekur að sér að kaupa
útlendar vörur og selja ísl. vörur gegn
mjög sanngjörnum umboðslaunum.
G. Scli. Thorsteinsson
Peder Skramsgade 17. Köbenhavn K.
Margarine
fæst bezt og ódýrast í
verzlun G. Zoega.
Kálhöfuð,
Gulrófur,
Hödbeder
nýkomið til
Guðm. Olsen.
c^yrirlasíur
vim
Cliicago og lífiö þar
heldur undirritaður í Bárubúð f ö 8_t u-
daginn 2. febrúar næstk. kl. 81/,
síðdegis.
Fyrirlesturinu er ætlast til að verði
fræðandi og skemtandi.
Aðgöngumiðar á 50 aur. fást í bók-
verzluD Sigf. Eymundssonar og Jóns
Ólafssonar, og í búð Ben. S. þórarins-
sonar á Laugavegi, svo og við inngang-
inn.
Arnór Árnason.
Nýtt! Nýtt!
Herold Cigarettur
(handrúllaðar) sérlega góðar, nýkomið
til
Guðm. Olsen.
Manufaktiir. Stöbegods.
En ung dygtig Forretningsmand söger
Plads paa Island til Maj eller Juni.
lma Referenser. Billet mrkt. 7917.
Dugleg stúlka,
rúml. tvítug, sem vill læra matartil-
búning og innanhússtörf í Kaupmanna-
böfn, getur nú þegar fengið þar góða
vist og hátt kaup. Ritstj. vísar á.
Matsöluhúsið
í Skindergade 27 í Kaupmannahöfn
leigir herbergi og selur mat. Herborgi
handa einst. leigjanda með daglegum
(3) máltíðum kostar 65 kr. á mánuði,
samherbergi og fæði 10 kr. á viku o.
8. frv.
Agœtar danskar
Kartöflur
eru sérlega ódýrar hjá
Jes Zimsen.
Olíufatnaður
innlendur og norskur
fæst sterkastur og ódýrastur í
verzlun G. Zoega.
Nýkomið í verzl.
Gísla Jónssonar
Mikið úrval af
Smekk-svuntum, Nærfatn-
aði og millipeysum.
Einnig Epli, Appelsínur, Vín-
ber og Laukur.
Kálmeti.
Hvítkál — Rauðkál — Selleri —
Gulrætur — Piparrót — Rödbeder
nýkomið til
Jes Zimsen.
Fantar
fást 1 Hússtjórnarskólanum á 7 a. Stk.
Atvinna.
|>eir, sem óska eftir atvinnu við
vegagerð eða símalagniug landssjóðs
á komandi sumri, geta suúið sér til
Jóns þorlákssonar verkfræðings, Lækj-
argötu 12 B. Heima kl. 2—3.
Sýaliiuefndarfundur.
Aðalfundur sýslunefndar Kjósarsýslu
verður haldinn í Hafnarfirði fimtudag-
inn 15. febr. næstkomandi og byrjar
kl. 11 f. h.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu
20. jan. 1906.
Páll Einarsson.
Hið isleuzka
RrisíniBoésfdíag
heldur fund þriðjudaginn 30. þ. m. kl.
8 síðdegis í samkomusal K. F. U. M.
— Docent Jón Helgason talar út a£
efninu: Béttir og rangir dómar um
heiðingjatrúboð.
Reykjavík, 26. janúar 1906.
Lúrus Halldórsson
formaður.
Lampaglösin
a leslampana
eru komin í
0(1^100^.
Leirvara
vel valin, ódýr nýkomið til
Guðm. Olsen.
Öllum, sem heiðruðu útfar máður minnar
Margrétar Árnadóttur með návist sinni, eða
á annan hátt sýndu mér hluttekningu við
fráfall hennar, votta eg mitt innilegasta
þakklæti.
Jón Jónasson.
Tómar
kaupir JES ZIMSEN.
SKANDINAVISK
Exportkaffi-Surrogat
Kebenhavn. — F- Hjorth & Co-
Góð brekán tyrir sjéinenn fást i Hegn-
ingarhúsinu til kaups; lágt verð. Sömuleið-
is gólfdúkar. S. Jónsson
M a r g a r i n e
NU
er gott og ódýrt
lija JES ZIMSEN.
MEÐ s/s Hólum, komu
____ ^ hin marg eftirspurðu ullar-
nærföt handa körlum, bonum og hörn-
um, óheyrilega ódýr og margt fleira.
Kristín Jónsdóttir
Veltusund 1.
Reykjavikur
kvennaskóli
Nokkrar konur, giftar eða ógiftar,
geta fengið tilsögn í alla konar vefn-
aði, nú þegar.
Reykjavík 19. janúar 1906.
Thora Melsteð.