Ísafold - 14.03.1906, Page 2
58
ÍSAFOLD
ir. Til þ e s 8 var Templarafélagsskap-
urinn nógu góður, þegar í nauðir rak.
|>eir hafa sumir verið þakklátir fyrir það,
en aðrir verið jafn-uppfullir rosta og
yfirlætis andspænis honum eftir sem
áður. þeir hafa verið í sjálfs 8Ín aug-
um (en e k k i annara) meiri mikil-
menni en svo eða þá of hátt settir í
mannfélaginu til þess, að þeir mættu
kannaat við slíka tollheimtumenn,
Templarana.
Líkt má segja um Hjálpræðisherinn.
|>að er raunar lítilræði, sem hann hef-
ir afrekað, í samanburði við hitt. En
gott er það og lofsvert. f>að kannast
allir mætir menn við og samvizkusam
ir. |>að sem þ e i m þykir að, er ekki
framkoma hersins, heldur háttsemi
menningarminsta hluta höfuðstaðarlýðs-
ins við hann, skrílsæði það, er hann
hefir löngum í frammi haft á fundum
hersins hér, þótt nú sé þó mjög mikið
úr því dregið og það sé vonandi á för-
um.
Nei. f>að e r engin nýlunda, þótt
sumir hátt settir þjóðarleiðtogar í höf-
uðstað vorum bregði grön við merki-
legum nýjungum og landsheillavæn-
legum. Tilraunafélagið getur látið sér
það í jafnlitlu rúmi liggja eins og
Templarafélagið gerði á sínum tíma,
— og varð að góðu. Enginn þarf og
að kippa sér upp við það, þótt sú
kynslóð sé býsnamikilli hjátrú hald-
in og hindurvitnum, þeirri elztu og
skaðvænustu hjátrú mannkynains, að
enginn hlutur sé sá í tilverunni, sem
•vísindin* kannist ekki við, á því reki,
sem þau eru þá eða þá. Hún á þar
óskilið mál við mikinn þorra heldri
manna með öðrum þjóðum. Eða þó
að það fólk sé þeir manna þrælar,
að afneita sannleikanum, þótt nasa-
sjón hafi af honum, meðan hann er í
minni hluta. Að reyna að myrða
hann i vöggunni hefir tíðum verið
slíkra manna iðja frá því er sögur fara
af. |>að er alt á þeirra ábyrgð sjálfra,
enda súpa þeir sjálfir af því seyðið
síðar meir. Tilraunafélagið lætur sig
það engu skifta. f>að fer s i n n a
ferða. f> a ð ber ekki ábyrgð á heimsk-
unni og lygasamsetningnum, sem sagð-
ur er um starf þess. J>að ber ekki
ábyrgð á því, þótt miklu af meiri
háttar lýð þessa bæjar, körlum og
konum, finnist það vera skaðsamleg
óspilun og vanbrúkun á gáfum þeim,
er guð hefir gefið honum, að nota þær
nokkurn tíma til að h u g s a, heldur
sé það eitt samboðið virðingu þess fólks,
að lepja hvað eftir öðru í algerðu
hugsunarleysi sérhverja heimsku, sem
að eyrum ber, eins og páfagaukar, — þá
helzt, sem first er öllu viti, með þar
við eigandi óðamælgi. |> a ð ber ekki
ábyrgð á því, þótt sum hin allra göf-
ugustu heiðarkvendi bæjarins gæði
hvert öðru á hinum allra-aulalegustu
andatrúar-lygasögum, innan um sí-
streyman kafiisamkundu-vellandann.
|>yki þeim nauðsyn til bera, að koma
almenningi á þá fáránlegu trú, að þær
hafi minni vitsmunaforða í sinni
rúmgóðu heilaskrínu heldur en mælt
er að fuglakynið, sem syndir hérna á
læknum á sumrum, hafi í sinni örlitlu
höfuðskel, þá þær um það. Vér látum
það alveg hlutlaust.
Guðm. B.jörnsson
héraðslæknir kom heim aftur í gær-
morgun með s/s Laura úr sinni utan-
för, frá Khöfn. Hafði dvalist nokkrar
vikur í hverri þessara 4 borga um sig,
viðlíka leDgi alstaðar: Lundúnum,
Farís, Berlín og Kaupmannahöfn.
Lætur mikið vel af sinni ferð.
Erlend tíöindi.
Marconiskeyti
I. 13. marz.
Eftir 3 daga bardaga tókst amerísku
herliði og farmönnum ásamt lögreglu-
liði í Filippseyjum að stráfella 600
seka skógarmenn, sem höfðu gert sér
virki á snarbröttu fjalli nærri Golo.
þar varð að vinda upp fallbyssum 300
fet með hjóltaugum í voða skothríð frá
virkisbúum. Af BandamönDum féllu
18, en 52 urðu sárir. Skógarmenn
voru allir drepnir.
Mælt er, að Ameríkumaður einn, er
Jackson heitir, hafi komist að samn-
ingum við Rússastjórn um að grafa
skipaskurð úr Eystrasalti suður í
Svartahaf.
Keisarinn í Kína hefir tekið þunga
sótt og hefir höfðingjalýður ríkisins
hvaðanæfa verið kvaddur að sóttar-
sæng hans.
Heldur vænlegri horfur á stórvelda-
fundinum í Algeciras (um Marokko-
málið). Fulltrúi Rússa styður nú mál-
stað Frakka. Fulltrúi þjóðverja hefir
gengið að því, að Fiakkar og Spán-
verjar baldi uppi lögreglu í Marokko
með þeim skildaga, að þar yfir sé sett
alþjóöa-eftirlit.
Maður úr flotastjórn Bandaríkja hélt
því fast fram á málfundi í Chicago,
að herskipastóll Bandaríkja þyrfti að
vera á undan tímanum og viðbúinn
ófriði með örstuttum fyrirvara.
Yoða loftbrestur varð í Courrieres-
námunum (á Frakklandi). Allir þess
dægurs verkamenn voru að vinnu niðri
í þeim, og eru menn hræddir um, að
þeir muni hafa allir týnst. Síðari
fréttir segja hafa verið hræðilegt að-
komu fyrir þá, sem voru að leita að
líkunum. Hörmungarsýn, er körfurnar
voru að koma upp úr námunni fullar
af sundurtættu mannaholdi og bein-
um. Konur réðust æðistryltar á hlið-
in í kring til þess að komast að körf-
unum. Menn eru hræddir um að brátt
verði að hætta öllum bjargráðum vegna
óþefsins af hálfrotnuðum mannabúk-
um og hrossskrokkum í hrönnum.
Gjafir streyma að til líknar eftirlátn-
um munaðarleysingjum.
II.
Lítið eitt er að frétta með póstskip-
inu um fram það er Marconiskeytin
hafa flutt eða nánara en þau herma.
S 1 y s i ð í Norvegi var nýorðið, og
hefir sem betur fór miklu minna úr
því orðið en fyrstu fréttir gáfu í skyn
eða hræddir voru menn um. það var
í útveri, skamt frá þrándheimsfirði,
þar sem heita Gæslinger. f>að eru
smáeyjar 3 og margir hólmar. Al-
mennÍDgur reri þar þennan dag, fyrra
föstudag, 1200—1500 manns, en hrepti
ofsastorm með fjúki. Fjölda báta
hvolfdi eða þeir hröktust. En mjög
mörgum mönnum var bjargað af kili
eða hins vegar. Og vissu menn síðast
ékki fyrir víst, að druknað hefði meira en
50—100 manns. En tjón á bátum og
veiðarfærum mjög mikið, skiftir tugum
þúsunda. Efnt til almennra aamskota
til að bæta það.
K r ý n i n g Hákonar konungs er
ráðgerð á Jónsmessu í sumar eða um
það leyti, í dómkirkjunni í Niðarósi.
f>ar verður stórmikið um dýrðir. —
Norðmenn í Ameríku ætla að gefa
honum þá veglegt skemtiskip, er nefn-
ist Leifur Eiríksson. f>eir eru að
Bkjóta saman í það.
B r e t a r ætla að veita á þessum
missirum Transvaal og Óraniu sjálfs-
forræði, — löndunum, sem þeir unnu
af Búum fyrir skemstu. f>að er nýja
stjórnin, sem það ráð tekur. En
íhaldsmenn mæla þar mjög í móti.
Arthur Balfour, forsætisráðgjafinn
gamli, hlaut kosniugu í City f Lund-
únum með miklum atkvæðamun.
Dáinn er í Khöfn prófessor Arthur
Feddersen, fiskifræðingurinn þjóðkunni,
er hér ferðaðist fyrir mörgum árum,
rúmlega sjötugur að aldri.
Minna virðist vera nokkuð um
hryðjuverk á Rússlandi. f>að gerðist
þó nýlega í þorpi einu skamt frá Riga,
að af 130 mönnum, er Kósakkar hittu
þar fyrir með vopnura, voru 100 látnir
fara úr öllum fötum á þjóðvegi mið-
jum, leggjast þar flatir og hýddir
miskunnarlaust. Hinum var varpað í
dýflissu. Hún var svo full, að fleiri
komust ekki fyrir þar.
^ ■ —-----
Nýr Islands uppdráttur.
Höhenschichten-Karte von
Island von Th. Thoroddsen.
1:750,000 Gotha. Justus
Perthes. 1905.
f>etta er fyrstí hæðauppdráttur
sem gerður hefir verið af Ielandi, bygð-
ur á 1400 hæðarmælingura, 800 eftir
þorv. Thóroddsen, 600 eftir Björn
Gunnlaugsson og aðra, sýndur með 9
litum.
þeir landshlutar sem hafa hæð frá
0—100 stikur (3874 þml.) hafa grænan
lit, og eru það undirlendin meðfram
sjónum og dalirnir, sem skerast upp í
hálendið; en ljósgrænan lit hafa þær
spildur sem eru 100—200 st. háar;
það eru útjaðrar undirlendisins, sem
næst liggja hálendinu. Bleiki liturinn
tekur yfir stærst svæði. 200—800 st.
há; hann skiftist aftur í 3 litblæi, sem
snögt á að líta virðist sami litur.
Ljósbleikastar eru 200—400 st. hæð-
ir; svo eru allir afréttir, sem næst
liggja bygðum; lítið eitt dekkri blæ
hafa 400—600 st. háir landshlutar;
þannig er efri hluti afréttanna, en
svæði 6C0—800 st. há hafa enn þá
dekkri blæ, eins og Stórisandur, Ódáða-
hraun og svæðin næst jöklunum, og
mikið af hálendi Vestfjarða. Tangar
úr þessum bleika lit teygjast fram
úr hálendinu og afmarka skarpt fjall-
garðana, aem eru umkringdir af græna
litnum.
Leirgrá eru þau svæði, sem eru 800
—1200 st. há, 800—1000 st. ljósari,
en 1000—1200 st. dekkri. f>ann lit
hafa útjaðrar jöklanna, mestur hluti
Langjökuls og Eyjafjallajökuls, Gláma,
Drangajökull, Súlur, Hlöðufell, Fjórð-
ungsalda, Askja og mörg fleiri fjöll.
f>au eru eins og eyjar innan um hinn
bleika lit og auka mjög á skýrleik og
fegurð uppdráttarins.
Loks hafa þau svæði, sem eru 1200
—1500 st. há, rauðleitan lit daufan,
er aftur hefir tvo litblæi, dekkri 1500
st. og lítið ljósari þegar hæðin kemst
þar yfir; svo eru allir hájöklar lands-
ins og auk þess: Snæfell, Dyngjufjöll,
Trölladyngja og Hekla; hæstu hnúk-
arnir milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar
hafa einnig þenna lit.
Á þenna uppdrátt hafa hinar slð-
ustu leiðréttingar mælingamannanna
dönsku verið settar. Skaftafellssýslur
hafa því fleiri nöfn og öðruvísi útlit
en á gömlu uppdráttunum. Skeiðarár-
sandurinn og Núpsvötnin hafaöll tek-
ið talsverðum breycingum, sömuleiðis
Veiðiós og Kúðafljót. — Stöðuvötn og
ár eru með hvítbláum lit; svo er einn-
ig hafið kringum landið að 100 st.
dýpi; bláan lit hefir 200 st. djúp; 50
st. dýpi er sýnt með blárri boglínu.
f>ó mikill nafnafjöldi sé á þessum
uppdrætti og mjög margar tölur til að
sýna hæðirnar, þá er hann þó skýr og
fallegur, og hefir á sér hinn smekklega
blæ, sem Justus Ferthes uppdrættir
hafa að jafnaði. Enginn uppdráttur,
sem gerður hefir verið afísiandi hing-
að til, veitir jafngóða hugmynd um
yfirborð landsins, eins og þessi; það er
eins og landið lyftist upp fyrir augum
manns með öllum sínum ójöfnum,
höllum, hnúkum, dölum og sléttum.
Óskandi væri að hann kæmist inn
á sem flest íslenzk heimili.
Einkum er það þó gleðiefni fyrir
alla þá menn sem fást við kenslu, að
geta hagnýtt sér þennan uppdrátt, þv£
til kenslu ber hann mjög af öllum öðr-
um. Og þótt hann kunni að vera held-
ur lítill á vegg í stóra kenslustofu, þá
eru litir hans svo skýrir, að þeir bæta
laDgsamlega upp það, sem vantar á
stærðina.
Suðaustur af Breiðamerkursandi út
í horninu er lítill íslands uppdráttur,.
er sýnir bygt land með grænum lit, en
óbygðir hvítari, en grasbletti alla í ör-
æfum og óbygðum eru rauðir dílar
hafðir til að sýna. f>að er góð leið-
beining fyrir ferðamenn til þess að
geta fundið áningarstaði á hálendi ís-
lands.
f>að fer að verða býsDamikið, sem
dr. f>orv. Thoroddsen hefir starfað að
því að auka þekkingu á íslandi bæði
utanlands og innan. f>að er eigi að
eins í jarðfræði, sem hann hefir aukið'
þekkingu manna, heldur einnig í söga
og landafræði Islands. Jarðfræðisupp-
dráttur hans, sem hefir fengið maklega
viðúrkenningu í útlöndum, má kallast
hið mesta stórvirki eftir einn mann».
Með Landfræðissögu sinni hefir hann
fylt upp stóra eyðu f sögu landsins
sem ekkert var ritað um nema í mol-
um hingað og þangað, og óhætt má
telja eitt af myndarlegustu og beztu
ritum úr sögu landsins; og loks þessi
hæðauppdráttur af landinu með öllum
þessum fjölda af hæðamælingum, sem
hefir þurft svo mikinn tíma til og elju.
Og þegar hér við bætast öll önnur rit
og bækur á íslenzku og útlendum
málum, þá dettur manm í hug starf-
semi Guðbrands biskups og Bjarnar
Gunnlaugsaonar og annara beztu manna,
sem þjóð vor hefir átt; meðal þeirra
hefir f>orvaldur Thoroddsen áunnið oór
sæti.
Hæðauppdráttur þessi, sem hér er
getið, fylgir bók, sem nú er að
koma út á þýzku eftir f>. Tb. og heit-
ir: Grundriss der Geologie und Geo-
lographie von Island. Sú bók verður
meira en 40 arkir prentaðar með
mörgum uppdráttum til skýringar.
Vonandi koma þessir uppdrættir í
íslandalýsÍDgu þeirri, 8em dr. f>orv.
Thoroddsen er nú að rita fyrir Bók-
mentafélagið. O.
Hjálpræðisherinn.
Hann heimsækir hér um þessar
mundir yfirmaðurinn í Danmörku og
á íslandi, kommandör C h. S o w t o n,
maður fyrir innan fertugt, en hefir
verið liðsforingi í hernum 23 ár, fyrst
7 ár í Ameríku, og síðan á Norður-
löndum leng3t, Svíþjóð, Danmörku og
Norvegi. Hann er enskur að uppruna,
frá Lundúnum, en mælir nú reiprenn-
andi á danska tungu og sænska. Hann
er af öllum, sem til hans þekkja, sagð-
ur mesti ágætismaður.
Fáliðuð mun honum þykja sveitin
hér. En einróma lof mun hann un>
hana heyra af mætra manna munni
og málsmetandi, meðal annars og ekki
sízt fyrir alt hið mikla líknarstarf
hans, frá upphafi. Honum mun og
þykja það vera ekki ómerkilegt, að
hann heldur eina gistihælið fyrir al-
menning, sem hér er til, í bæ með
9—10 þús. íbúa, með því gjafverði,
sem hver fátæklingur er vaxinn og vitan-
lega með miklum tekjuhalla fyrir sig-
Báðgjaílnn
kom heim aftur i gærmorgun með
8/s Laura úr konungsgreftrunarför
8inni. Afrek hans önnur í ferðinni
herma stjórnarblöðin sjálfsagt. f>au
hafa ekki birzt enn.