Ísafold - 25.08.1906, Síða 3
I S A F 0 L D
219
Báðgjafinn
kom heim hingað á Hunnudaginn úr
skemtiferð sinni norðan um land frá
Seyðisfirði; hann fór þar á land úr s/s
Botníu á heimleið úr þingmannaleið-
angrinum.
En ekki stóð hann lengi við heima,
heldur þaut austur á Seyðisfjörð aftur
á Fálkanum í fyrra dag, til þess að
vera þar við landtöku sæsímans og geta
símtalað þaðan við konginn fyvstur
manna, eins og Færeyingaamtmaðurinn
gerði um daginn, er sæsíminn komst
þangað frá Hjaltlandi. Þá stóð og til
hátíðarhald mikið á Seyðisfirði til að
fagna þeim miklu tíðindum. Þetta átti
að vera i dag — landtaka sæsímans
dagsett þá. Eu nú segir sagan, að þessu
víki öðru vísi við: engin landtaka nú
vegna þess, að sæsíminn sá lagður f r á
Seyðisfirði, byrjað þar, þ. e. kaflinn
milli íslands og Færeyja. Hitt má vera,
að í dag hafi hann átt að vera kominn
alla leið til Færeyja héðan (frá Seyðisf.),
og þá geti ráðgjafintt samt sem áður
fengið að símtala við konginn í d a g.
Sá veit mikið um það!
Ráðgjafinn var í veizlunni, sem bœ-
jarstjórnin gerði um daginn í móti hafn-
arfræðingnum frá Kristjaníu. Þar flutti
Halldór Jónsson skjallræðu fyrir honum,
þakkaði honum meðal annars fyrir
»næntan skilning á frantfaramálum bæ-
jarins« (í hverju sá skilnings-næmleiki
hefir lyst sér, mun hann hafa verið
sagnafár um) og hafði »fundið út«, að
hinn góði árangur af þingmannaförinni
væri einkum að þakka ráð - h e r r a n-
u m !
Þau ummæli bæjarfógetans í ræðu
fyrir minni íslands, að sig og aðra hefði
einkum glatt þau orð ráðgjafans í ríkis-
þingskveldveizlunni, að íslendittgar vildu
alt í sölur leggja fyrir sjálfstæði sitt,
notaði ráðgjafinn til að hreinsa sig at’
öllum grun um nokkurt skilnaðarhttgar-
slangur — fyr má nú vera spéhræðsla! —,
enda kvað hann skilnaö (við Danmörku)
vera fjarstæðan óskum og vilja mikils
meiri hluta þjóöarinnar.
Sá veit nú mikið nnt það!
Hafnarmálið.
Ekki hefir hann enn birt úlit
sitt, hafnarfræðingurinn norski, hr.
Smith, yfirumsjónarmaður hafnarmála
f Kristjaníu. það eitt hefir hann lát-
ið á sér skilja, að ekki muni vera ráð
að hafa höfniua neinstaðar annarsstaðar
en nú er hún, bvorki við Skerjafjörð
né inni í Sundum ; mundi hvorki verða
að mun ódýrri þar né heldur eins
mikið notuð, en minni notkun fylgi
tekjurýrnun af henni. Honum leizt
bezt á, að hlaða ofan á grandann út
í Orfirisey og þaðan aftur öldubrjót
í stefnu á Arnarhól, og annan garð-
stúf þar í móti, út frá Skanzinum.
þá fara allir sjóir um Engeyjatsund
fram hjá hafnarmynninu, en úr annari
átt er alveg sjólaust, þegar búið er að
hlaða ofan á Grandann, þ. e. iir land
norðanátt, innan úr Sundum, einu
áttinni, sem standa mundi upp á
hafnarmynnið.
Eftir lauslegri áætlun eða ágizkun
hr. Smiths á að mega girða höfn-
ina svo sem hér segir fyrir ekki fulla
1 milj. kr. Meira ekki brýn þörf í
bráð. Hitt, sem gera þarf höfninni
til umbóta, má gera smámsaman
eftir því, sem efnin leyfa og þörf kall-
ar eftir
Paulli hinn danski, sem hér kom
fyrir nokkrum árum til hafnarrannsókna,
hélt að þessu lík hafnarmannvirki
mundi kosta alt að 5 miij.
Bæjarstjórn hólt hr. Smith veizlu á
þriðjudaginn. — Hann fer héðan á
mánudaginn heimleiðis aftur.
Bæjarstjórn samþykti á fundi f
gærkveldi stefnu hr. Smiths í hafnar-
málinu, og að fá hjá honum nákvæm-
lega útlistaða og útreiknaða áætlun
um kostnaðinn, og tilboð í vinnuna
frá norskum verkfræðingum.
Um Flóa-vatnsveituna
ráðgerðu og Skeiða vill maður sá frá
Heiðafólaginu danska, hr. G. Thalbitzer
verkfræðingur, er lokið hefir nú rann-
sókn sinni þar í sumar, að svo stöddu
láta það eitt eftir sér hafa, að hana
megi framkvæma, í tvennu lagi:
úr Þjórsá yfir Skeiðin og úr Hvítá yfir
Flóann. Nákvæm áætlun stendur til aö
gerð verði í vetur.
Hann segir það hafa greitt mjög fyrir
rannsóknum þessum í sumar, að land-
mælingadeild herstjórnarráðsins hefir af
góðvild sinni og til stuðnings fyrirtæk-
inu mælt í surnar einmitt þetta svæði,
þótt ekki hefði ætlað sór það, og hefir
því hr. Thalbitzer getað varið öllum
tímanum til að rannsaka halia, jarðveg
o. fl., í stað þess að hann hefði að öðr-
um kosti orðið að verja sumrinu að
mestu leyti til að gera uppdrátt af því.
REYKJAVÍKUR-ANNÁLL.
Adkomandi hér i hæ i þessari viku hafa
verið meðal aunarra Björn f. alþm. Sigfús-
son frá Kornsá og þau hjón bæði, Gnð-
mundur prófastur Helgason í Reykholti og
Magnus próf. Andrésson á Gilsbakka.
Brunabótavirðing samþykt á hæjar-
stjórnarfundi i gær á húseign H. P. Duus,
bnð og íbúðarhúsi (Aðalstr. 2) kr. 19,277,
og geymslnhúsi sama þar hjá 20,723.
Bcejarbrygyjan er nokkuð langt komin,
þ. e. breikkunin á henui úr 6 áln. i 15 áln.
Verður liklega húin seint i næsta mánuði.
Dánir i þ. m. m. Guðný Þormóðsdóttir
(73 ára) ekkja Lindarg. 34, f 23., Sigríður
Sigvaldad. frá Hafnarf. og 5. Þórður Olafs-
son tómthúsm. i Njálsg., 50 ára.
Elliðaárnar, sem nú eru orðnar hæjar-
ins eign, eru nú boðnar á leigu næsta ár,
og var nefnd kosin (Ásg. Sig., Kr. J„ J. M.)
á fundi 16. þ. m. til að semja við mann,
Englending, er hafði gefið sig fram, S. M.
Lamhert. En á fundi i gærkveldi var skýrt
frá, að þar hefði ekki gengið saman. Nefnd-
inni var falið að ráða fram úr, hvort og
að hve miklu leyti leigja skuli sjóhirtinga-
veiði í ánum fyrir neðan fossa nú i haust.
Ferðamenn útlendir komu hér 36 á s/s
Botniu í fyrra dag, flestallir enskir.
Hjónaefni, nýlega orðin : Jón Hermanns-
son skrifstofustjóri og yngismær Ásta Thor-
steinsson (kaupmanns frá Bíldudal); Sig-
urður Eggerz cand. jur. og yngism. Solveig
Kristjánsdóttir yfirdómara; Sigurður Sig-
urðsson lyfsalasveinn og yngismær Anna
Pálsdóttir frá Arnarholti.
Hjónavígslur i sumar (nokkrar). Bryn-
jólfnr H. Bjarnason kaupm. og yngismær
Steinunn Hjartardóttir (frá Ansturhlíð) */,.
Eirikur Stefánsson prestur að Torfastöð-
um- og yngismær Sigurlaug Erlendsdóttir,
i júni.
Fan0e (L. A.) stórkaupm. frá Khöfn og
yngism. Jóna Valg. Björnsdóttir (kaupm.
Kristjánssonar) 8/„.
Hans Ingi Hoffmann Bjarnason verzlun-
armaður og yngism. Guðrún Kristjánsdóttir
(kaupmanns Þorgrlmssonar) */6.
Matthías Einarsson spítalalæknir og yng-
ismær. Ellen Ludvika Johannessen ’/6
borgaral. hjónav.
Newman (A. G.) loftskeytamaður frá
Lundúnum og yngism. Ingigerður Zoega 10/6.
Olafur Olafsson prentari og yngism. Anna
Sigriður Hafliðadóttir- saumakona
Steingrimur Matthiasson læknir og yngis-
mær Kristín Katrin Thoroddsen u/8.
Hrossakaupaskip kom hingað seint i f.
viku, s/s Friðþjófur, frá Zöllner í Newcastle;
farþegi Jón Jakobsson forngripav. og alþm.
Skipið er ófarið enn.
Húsasmiði hefir naumast verið nokkurn
tima eins mikið um hér i bæ og þetta ár.
Þau skifta mörgum tugum, húsin sem reist
hafa verið frá því i vetur eða verða full-
húin i haust. Atvinna afarmikil fyrir húsa-
smiði, miklu meiri en þeir komast yfir, og
skifta þó sjálfsagt mörgum hundruðum.
Lántáka. Bæjarstjórn samþykti i gær-
kveldi tilboð frá Hlutabankanum um 108,C00
kr. lán til 40 ára gegn 4s/4°/0 vöxtum.
Póstgufuskipin. Hér kom 21. þ. m. s/s
Thyra frá Samein. fél., i ferð þá, er
Láru var ætluð, ef ekki hefði bilunin á s/s
Ceres gert þar glundroða á. Hún hafði
meðferðis nokkuð af útlendum ferðamönn-
um, og nokkra hérlenda, þar á meðal kaupm.
Th. Thorsteinsson og frk. Kristínu Péturs-
son (gjaldkera).
Þá kom i fyrra dag eða nóttina fyrir s/s
Botnia aftur frá Skotlandi 3 daga á eftir
áætlun. Meðal ferðamanna á nenni var hin
góðkunna Mrs. Disney Leith, sem hér befir
komið mörg ár.
S/s Laura kom í fyrra dag úr strandferð
sinni, (i staðinn fyrir Ceres), með mikinn
fjölda farþega af ýmsum höfnum kringum
land.
Thorefélagið. Tryggvi kongur kom frá
útlöndum 22. þ. m. fullfermdur vörum, með
32 farþega, Þar á meðal voru: sira Jób.
Þorkelsson dómkirkjuprestur, síra Sigtr.
Guðlaugsson (háðir úr Finnlandsförinni),
trésmiðameistari Magnús Blöndahl, steinsm.
Jul. Schau með konu, Björn Stefánsson
prestaskólakennari, Eiríkur Kjerúlf læknir
með konu, skipstjóri Olafur Einarsson, frú
Maria Guðmundsson, frökenarnar Þóra
Friðriksson, Lilja Petersen, Guðrún Smith
og Hedvig Bartels, 2 nunnur til Landa-
kotsspitalans. Frá Vesturheimi komu syst-
urnar frú Ingibjörg og frk. Soffía Helga-
dætur (Helgasonar). Útlendir ferðamenn
nokkurir.
Vegagerð. Talsvert er að henni nnnið
hér i bænum. Nú er loks Vonarstræti full-
gert, alla leið milli Lækjarins og Suður-
götu. Það var skirt fyrir nál. 20 árum.
En var þá nær alt i sjó, þ. e. tjörninni.
Ekki er þó bygð komin fram með þvi alla
leið enn — stórt sund autt um miðhik þess.
Tjarnargata er nú komin alla leið suður
Mela, fyrir neðan Tjarnarbrekkuna, nær
fullgerð.
Tvð herbergi með húsgögnum til leigu
í miðbænum. Ritstj. ávisar.
Síöasta syniuu
í Iðnaðarmannaliúsimi.
Af því að eg komst ekki til Seyðis-
fjarðar sýni eg á laugardaginn kl. 8J
og sunnudaginn kl. 4:
Líf frelsarans.
f>etta verða áreiðanlega síðustu sýn-
ingarnar í þetta sinn.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 7 laug-
ard. og kl. 2 sunnud. Sæti að eins
0,50. Börn 0,25.
Nord. Biograf Co.
Margarine,
tvær tegundir, alveg nýtt, og hér áð-
ur óþekt, selt afar-ódýrt hjá
Gísla Jónssyni.
Fundur
í hlutafélaginu VÖLUNÐUR verð-
ur haldinn þriðjudaginn 27. þ. m. kl.
e. m. í verksmiðjuhúsi félagsins.
Lagður fram reikningur félagsins
fyrir fyrsta reikningstímabil þ. á.
Rædd ýms fleiri áríðandi mál.
Rvík 25. ágúst 1906.
Stjjórnin.
Frem
fæst í bókverzlun ísafoldarpr.sm.
Þeir sem vilja fá
til vetrarins, verða að vera komnir
með pantanir sínar fyrir kl. 9 árd. á
mánudag (27. þ. m.).
Sýnishorn eru til staðar.
B. A. J. Þórðarson,
Laugaveg 23.
Aííætir gólfdúkar fást i hegniugarhús-
inu fyrir mjög gott verð.
Úthey gott og sinulaust selnr og útvegar
Guðm. J. Diðriksson
Hverfisgotu 47.
I kvenslifsa- og
kramvöruverzlunina
í Ingólfsstræti nr. 6
eru nýkomner margar góðar og ódýrar vör-
ur, t. d. margs konar silki- og kjólatau,
barnakápur og önnur barnaföt, höfuðföt,
enskt vaðmál, vasaklútar, skrautlegur bréfa-
pappir og umslög, mjög ódýrar vasabækur
og margt fleira. — Það er ómaksins vert
að lita þar inn, áður en annarstaðar er keypt.
HSteensen
}sm»~t y' Si.
;<V■' '• *•’' ■
—a
]v[argarw
*r aCiið dert ficdst p
Boka £ pappírsverzlun
Isafoldarprentsmiöju
selur flestar íslenzkar bækur, sem nú
eru fáanlegar hjá bóksölum, hefir auk
þess til sölu talsvert af dönskum bókum
og útveear útlendar bækur og blöð svo
fljótt, sem kostur er á.
Ennfremur hefir verzlunin til sölu
höfuðbíekur, prótokolla, skrifbækur og
viðskiftabækur af ýmsri stærð, og þyki
þær eigi hentugar, sem til eru, þá eru
þær búnar til á bókbandsverkstofu
prentsmiðjunnar eftir því sem óskað er.
Pappír, alls konar, er til sölu og um-
slög stór og lítil, ágætt blek a storurn
og smáum ílátum, og alls konar ritfnög
og ritáhöld.