Ísafold - 14.12.1907, Side 2
306
ISAFOLD
Erlendar ritsimafréttir
til ísafoldar frá R. B.
Kh. 12. des. kl. 5 */4 sd.
Útför Sviakonungs.
Konungshjónin dönsku leggja d stað
17. des. til fiess að vera við útförina í
Stokkhólmi, sem fer fram 19. fi. m.
Myrtir byltingarhöfðingjar.
Tveir byltingarflokksforingjar í Sofíu
(höfuðstaðnum í Búlgaríu), þeir Sara-
foiv og Gerwanow, skotnir til bana með
marghleypum; fiað gerði Makedoníu-
maður.
Konungsfararkostnaður Dana.
Til íslandsferðar konungs hafa far-
ið 115,587 kr., og til þingmannafarar-
innar 133,653 kr., sem farið er fram á
veitingu fyrir eftir á.
Druknanir.
Skrifað er Isafold úr Stykkishólmi
fyrir fám dögum :
Það sorglega slys bar að höndum að
kvöldi hins 29. f. m., að þrír menn úr
Stykkishólmi druknuðu af bát, ör-
skamt frá landi, svo sem J/2 viku sjávar
út frá Hólminum.
Þeir stunduðu róðra í Höskuldsey og
voru á heimleið, sigldu með landi fram,
er slysið bar að, í stinnings útsunnan-
leiði, en allmyrkt var orðið; sigldu bátn-
um á grunn út af litlum grashólma.
Báturinn brotnaði og mermirnir týnd-
ust.
Mennnirnir hétn:
Sakaías íónsson, 53 ára, reyndur og
gætinn formaður; lætur eftir sig ekkju
ogbarn.
Jón Daníelsson húsmaður, 36 ára, ný-
fluttur í Hólminn sunnan úr Miklaholts
hrepp; lætur eftir sig ekkju og barn.
Þorgrímur Ólafsson hinn þriðji, ekkju-
maður, 43 ára; lætur eftir sig 4 mun-
aðarleysingja.
Allir voru mennirnir piúðir, og vand-
aðir til orðs og æðis.
Líkin fundust eftir þrautseiga leit,
og voru þeir jarðaðir saman í einni
gröf hér í Hólminum, að mjög miklu
fjölmenni viðstöddu, 6. þ. m.
Nú hafa 14 menn, flestir á bezta
aldri, tynst í sjóinn úr Helgafellspresta-
kalli á einu ári og sjö mánuðum, og
þó Jangflestir þeirra úr kauptúninu
sjálfu. Það er þungur missir, bæði fyr-
ir ástvinina, og sveitarfólögin. En bót
er til við hverju meini — það erhugg-
unin : himnesk
Þess skal og getið, að hjónin Ásgrím-
ur Jóhannsson og Guðrún Eilífsdóttii á
Staðarbakka í Helgafellssveit hafa 3 börn
Þorgríms heitins í fóstri; hafa alið hið
elzta þeirra upp að öllu leyti.
S. S.
Maður hafði druknað í Staðará í Stein-
grímsfirði laust eftir veturuætur, L y ð-
ur Björnsson; var á heimleið frá
Óspakseyri í Bitru, syslumannssetrinu.
Hestur hans hafði fundist í hólma í
ánni morguninn eftir.
Eftirmæli.
Látimi er 6. nóv. þ. á. Magnús Jörgens-
son tómthúsmaður á Sandi á Skipaskaga,
eftir langvinna sjúkdómslegu, af magakrabba.
Hann var fæddur i Elínarhöfða 14. ágúst
1830, sonur J. bónda Magnússonar og Helgu
Jónsdóttur. Hann var tvikvæntur; fyrst
Álffiíði Eiriksdóttur bónda á Læk ; þau voru
4 ár í hjónabandi og eignuðust 3 börn, af
þeim lifir Ragnheiður, kona Haligrims
Guðmundssonar verzlunarmanns á Akranesi.
Siðar kvæntist hann Guðbjörgu Guðmunds-
dóttur Bjarnasonar bónda í Einarsnesi, sem
lifir mann sinn ásamt 2 börnum (af 4), Sig-
ríði, sem nú er ekkja í Reykjavik, og Magn-
úsi, sem er ókvæntur heima hjá móður
sinni.
Magnus sál. var öil þau meira en 40
ár, sem hér bjó, einkargóður styrktarmaður
breppsfélags sins, og binn áreiðanlegasti í
öllum viðskiftum. Hagleiksmaður var hann
á tré; og hinn hraðhendasti og lipur til
allra starfa, svo að orð var á gert. Eor-
maður var hann nm 40 ár, gætinn, laginn
og með allrahepnustu sjósókaurum. Hann
var hóglyndur, en skipanir hans snarpar og
ákveðnar. Hann átti einatt við brimleið
að tefla að og frá lendingu sinni, en eigi
þykir óhult leið nema blindsker nokkurt
liggi niðii. Það er í minnum hafr, að
eitt sinn, er hann kom úr fiskiróðri, mælti
einn hásetinD, er leiðin hafði verið tekin:
»Boðinn fellur, Magnús«, en hann svaraði:
vEg ætla ekki út á Boða; róið þið, piltar«.
Jafnframt því sem hann var virtur og
eiskaður af básetum sínum, var hann sönn
fyrirmynd sem húsfaðir, faðir og eiginmað-
ur, gestrisinn, hjálpfús og glaður í lund,
enda hús þeirra hjóna opinn áfangastaður
gesta og gangandi. Hinir mörgu burtförnu
æskuvinir hans og samtíðarmenn, ásamt
eftirlifandi vinum og kunningjum, viður-
kendu og minnast þess: að hann var hrein-
bjartað göfugmenni, sem mun guð sjá.
Einn vinur hins látna.
Avarp til íslenzkra kvenna
frá kvenstúkunni
Arsól nr. 136
í Reykjavik.
Þjóð vor á við marga erfiðleilca að
striða, og hver sannur Islendingur, kon-
ur sem karlar, vilja af öllum mœtti
starfa að þvi að sigra þá. Nú er tœlci-
fœri fyrir höndum að gjörsigra og
gjöra útlœgan einn af skœðustu óvin•
um lands vors, og fiá má enginn sann-
ur œttjarðarvinur liggja á liði sínu, og
með línum þessum viljum vér sérstak-
snúa máli voru til íslenzkra kvenna, og
skorum alvarlega á allar konur og stúlk-
ur lands vors, að gjöra alt þeim frek-
ast er unt til fiess að flýta fyrir þeirri
stund, að allir áfengir drykkir verði
landrækir gjörðir. Og hverjum œtti
að vera það starf tjúfara en kvenfólk-
inu ?
Karlmennirnir segja stundum, að þeir
hafi svo mikla ánœgju af víninu, að
þeir megi ekki missa alveg af því; en
svo lánsöm er þó þjóð vor, að fáar is-
lenzkar konur eða stúlkur munu vilja
gjöra fiaú orð að sinum orðum. En
áreiðanlegt er fiað, að fœkka mundi
sorgarstundum sumra kvenna vorra, ef
Bakkus yrði brottu rekinn.
Hver getur talið tár og andvörp von-
svikinna kvenna og harmfirunginna
mœðra, þegar vínið var að spilla dáð
og sœmd ástvina þeirraf
Dœmi fiess eru mörg og hörmuleg;
og hver getur sagt um, yfir hverjum
ógæfan vofir, á meðan þessum óvini
guðs og manna er leyfð landsvist f
Rísum fiví upp, íslenzku konur, og
látum eigi á oss sannast, að ánauðar-
ok öfugs hugsunarháttar á liðnum öld-
um hafi svo úr oss dregið dáð og dreng-
skap, að vér getum engin áhrif haft á
helztu velferðarmál lands vors.
Snúum oss eindregið að því, að þeir
einir verði kosnir á nœsta alþingi fijóð-
ar vorrar, sem í fullri álvöru vilja gjöra
Bakkus útlœgan.
Látum eigi stjórnmál glepja oss sýn
í þessu máli, því sem betur fer eru nýt-
ir menn í öllum flokkum, sem sjá böl-
vun vinverzlunarinnar. Það má heldur
eigi gleyma fiví, að vér getum haft stór-
mikil áhrif á hina álmennu atkvœða-
greiðslu um aðflutningsbannið, þrátt
fyrir alt ófrjálslyndið og seinlœtið í
réttindamálum vorum.
Hvetjum vini málsins til drengilegr-
ar framgöngu og styðjum þá með ráð-
um og dáð. Sannfœrum þá sem eru á
báðum áttum, og spyrjum mótstöðu-
menn vora, hvort þeir séu færir um að
bera ábyrgð állrar fieirrar ógœfu, sem
framhald vínverzlunar mundi hafa í
för með sér hjá þjóð vorri.
Störfum biðjandi í trú von og kœr-
leika, og mun þá vel farnast.
(Önnur blöð landsins eru vinsamlega beð-
ia að taka þessa grein).
SYiakonungur hinn nýi.
Hinu tiyi konungnr Svía, elzti sonur
Oscars annars, er sig nefnir G u s t a f
V., er maður kominn fast að fimtugu,
f. 16. júní 1858. Hann hefir att til
muna við stjórnarstörf, bæði í veikinda-
forföllum föður síns og tíðum utanföi-
um, og eins fyrir hans hönd í Norvegi;
en lítinn orstír getið sér fyrir stjórn-
hyggindi, stillingu eða hóf. Með Norð-
mönnum var hann beint illa þokkaður,
og færði stórþingið um eitt skifti niður
lífeyri hans úr ríkissjóði Norðmanna um
meira en helming, eða úr 80,000 kr.
niður í 30,000. Það var árin 1893-—-
1898. Hanu verður aldrei konungur
vor Norðmanna, mælti merkur Norðm.
í eyru þess, er þetta ritar, mörgum
missirum áður en nokkur maður hafði
skilnað ríkjanna á vörum sór. Var svo
að heyra, sem þeir ætluðu sér beint að
gera uppreisn, er faðir hans fólli frá og
hann ætti að taka ríki. Það mun hafa
borið rninna á óþokkasæld hans þar
heima í Svíþjóð; en þó nokkuð.
En vera má að betur rætist úr, er á
reynir og hann tekur til aðráðaríkjum
á sjálfs sín ábyrgð*
Amma hans, Jósefína drotning, á að
hafa sagt svo eiuhvern tíma um sonu
sína, þá Karl (fimtánda) og Oscar:
Karl reynir með öllu móti til að verða
illa þokkaður, en tekst það ekki. Oscar
reynir með öllu ntóti til að verða vel
þokkaður, en tekst það ekki.
En þó fór svo, að Oscar varð mikið
vel þokkaður í Svíþjóð, er stundir liðu,
og hafði sjálfur gott yfirlæti af Norð-
mönnum.
Nafna Gustafs konungs hinn næsta á
undan honum, Gustaf IV. Adolf, ráku
Svíar frá ríkjum fyrir tæpum 100 árum,
1809, með því að hann hagaði sór líkara
brjáluðum manni en heilvita, og tóku
til konungs yfir sig föðurbróður hans,
er nefndist Karl XIII., en kusu honum
að eftirmanni barnlausum Jean Baptiste
Bernadotte hinn franska, er nefndist
síðar Karl Johan XIV og varð forfaðir
hinnar nýju konungsættar. Hann var
konungur Svía og Norðmanna 1818—
1844.
Gustaf Adolf heitir elzti sonur hins
nýja konungs, af þremur, er nú er orðinn
konungsefni Svía, maður hálfþrítugur og
kvæntur fyrir nokkurum missirum bróð-
urdóttur Játvarðar Englakonungs. Hann
re hertogi að nafnbót, kendur við Skán.
Sigfús Svainbjdrnsson
fasteignasali i Reykjavik
makaskiftir á veðbandalausum, á-
litlegum eignum og hóflega veðbundn-
um húseignum hér í bænum.
Rimileg peningamilligjöf ekki
látin standa fyrir sanngjörnum maka-
skiftum.
Leikfél. Reykjavikur.
Sökum veikinda eins leikandans varð
Föðursystir
Charley’s
ekki leikin síðastl. sunnudag, eins og
til stóð, en verður nú leikin
í síðiista sinn
sunnudaginn 15. des. kl. 8
síðd. í Iðnaðarmannahús-
inu.
Tekið á móti pöntunum í
afgreiðslustofu Isafoldar.
Miðvikudaginn 18. þ. m. verður
seldur við opinbert uppboð, sem hald-
ið verður í húsinu nr. 58 við Lauga-
veg, ýmislegur smá-búðarvarningur til-
heyrandi þrotabúi Benonýs Benonýs-
sonar. Uppboðið hefst kl. 11 f. m.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðs-
staðnum.
Bæjarfógetinn í Rvik 14. des. 1907.
Halldór Daníelsson.
Slaturfélag Suðurlands.
Til sveitamanna og sjávarmanna.
Félagsmenn! Eftir næstu ára-
mót geta starfsmenn Sf. Sl. í Rvík
veitt viðtöku til sölu fyrir yðurr
smjöri, tólg, kœfu hangikjöti, kdlfakjöti,
rjúpum, endum 0. s. frv. — góðum
vörum. Væntum vér að þér unnið
Sláturhúsinu (sölubúðum þess) við-
skifta yðar með allar slíkar vörur, er
þér hafíð að selja. Einnig verður
veitt viðtaka sláturfénaði (nautgripum),.
eftir nánari upplýsingum frá deildar-
stjórunum.
Utanfélagsmenn I Ef þér haf-
ið ofantaldar vörur að selja, þá finn-
ið að máli forstjóra Siáturfélagsins,.
hr. Hannes Thorarensen, Laufásvegii
31, áður en þér seljið öðrum.
Sjávarmenn! Einnig þér ætt-
uð að hafa tal af forstjóranum (H.
Th.), er þér komið til bæjarins með
fiskivörur. Hann hefir beztu sambönd:
við sveitabændur, og er líklegur til<
að geta selt vörur yðar- betur en þér
annars eigið kost á. Félagið vill
stuðla að beinnm viðskiftum milli sjá-
varmanna og sveitamanna. Það hefir
nú gott húsrúm, til vörugeymslu.
Virðingarfylst
Framkvæmdarnefnd Sf. Sl.
Nu er ekki dýrt að spýta mórauðu,
því Nobels-Skraaið kostar að eins
1,98 pr. pd.
i verzl. á Bergstaðastræti L
Uppboðsauglýsingv
Laugardaginn 21. þ. m. verður selt
við opinbert uppboð, sem haldið verð-
ur á Vigfúsarkotslóð hér í bænum,,
ýmislegur íverufatnaður, rúmfatnaður,,
búsáhöld og talsvert af höggnu grjóti,-
tilheyrandi dánarbúi Ragnheiðar Jóns-
dóttur frá Vigfúsarkoti. Uppboðið
hefst kl. 11 f. h. Söluskilmálar verðai
birtir á uppboðsstaðnum.
Bæjarfógetinn í Rvík 14. des. 1907.
Halldór Daníelsson.
í verzl. á Bergstaðastræti 1
fæst Kaffii no. i á 0,56 pr. pd. Stein-
olía Royal daylight á 0,15 pr. pt.
Gullstássið og plettvaran
hjá
Birni Símonarsyni
er alveg dæmalaus.
Grammophonplötur
og
Nálar
fæst í verzl. á Bergstaðastr. 1.
Ríka fólkið
þarf ekki að fráfælast að koma inn í
búðina hans Björns Símonarsonar gull-
smiðs, þótt mikið orð sé af því gert,
hvað alt sé þar ódýrt, því þar er hægt
að fá margt, sem hverjum efnamanni
sæmir að gefa og þiggja.